Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 28
Stjórn Bandalags íslenskra far-fugla (BÍF) hefur ákveðið aðveita þeim farfuglaheimilum
sem uppfylla ákveðin viðmið á sviði
umhverfismála heimild til að kalla
sig græn farfuglaheimili og nota
umhverfismerki BÍF því til staðfest-
ingar. BÍF hefur unnið ötullega að
umhverfismálum á undanförnum ár-
um og hlaut í fyrra Umhverf-
isverðlaun ferðamálaráðs. Ákvörð-
un stjórnarinnar nú er hugsuð sem
hvatning fyrir
rekstraraðila
farfuglaheim-
ila á Íslandi til
að vinna
markvisst að
umhverf-
ismálum, að
sögn Markúsar
Einarssonar, framkvæmdastjóra
BÍF. Hann leggur áherslu á að ekki
er um viðurkennda umhverfisvottun
að ræða heldur viðmið sem BÍF set-
ur og hefur eftirlit með. Þessi viðmið
byggjast á almennum gæðastöðlum
BÍF sem öll farfuglaheimili þurfa að
uppfylla. Til að fá heimild til að nota
umhverfismerkið þurfa heimilin auk
þess að uppfylla ýmis viðbótarskil-
yrði sem tengjast umhverfismálum.
Viðbótarskilyrðin eru t.d. að gest-
um séu veittar upplýsingar um gæði
íslenska vatnsins og þeir almennt
hvattir til vatnsdrykkju. Einungis
viðurkenndar umhverfisvænar
vörur og aðferðir við dagleg og
regluleg þrif á farfuglaheimilinu.
Vatnssparandi kerfi með stilltum
hita skal vera í blöndunartækjum.
Unnið er að landgræðslu, plöntun
trjáa og ræktun gróðurs í næsta ná-
grenni við heimilið, jafnvel með
þátttöku gesta. Í vetur hafa nokkur
heimili unnið að því að uppfylla við-
miðin og voru þau heimsótt af ut-
anaðkomandi aðila á vordögum. Í
ljós kom að sjö heimili uppfylltu við-
miðin, þ.e. farfuglaheimilin í Reykja-
vík, Grundarfirði, Ytra-Lóni, Húsey,
Seyðisfirði, Berunesi og Laugar-
vatni. „Það er von okkar að þetta
verði öðrum hvatning til að leggja
enn meiri áherslu á umhverfismálin
en þau hafa gert fram að þessu,“
segir Markús.
FARFUGLAR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Græn far-
fuglaheimili
FERÐALÖG
28 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Vesturbæingurinn KáriGuðmundsson, 12 áranemandi í Melaskóla, hef-ur undanfarin tvö ár
gengið með þann draum í mag-
anum að komast til Vestmannaeyja
því hann hafði lesið sér til um
lunda, pysjusleppingar, þjóðhátíð-
arstemningu og fleira sem gerði
eyjarnar að spennandi áfangastað í
huga unga piltsins. Draumurinn
rættist svo í síðasta mánuði þegar
honum tókst að draga fjölskylduna
sína með sér í ævintýraferð til
Eyja. „Ég var einhvern veginn allt-
af viss um að það hlyti að vera
gaman í Vestmannaeyjum og þegar
upp var staðið og ferðinni lokið,
varð ég ekki fyrir vonbrigðum.
Þetta var þrusugaman og lang-
skemmtilegast var að fá að
spranga,“ segir Kári í samtali við
Ferðablaðið.
Það þarf ekki alltaf að leita langt
til að upplifa ævintýri, en að sögn
Kára má segja að fjölskyldan hafi
„hjólað“ til Eyja. „Við tókum nefni-
lega hjólin með okkur og notuðum
þau á ferðum okkar um bæinn all-
an tímann. Það var mjög skemmti-
legt.“
Foreldrar Kára, þau Guðmundur
Jón Guðjónsson og Dóra Magn-
úsdóttir og litla systirin Lilja, sem
er 7 ára, skipulögðu fjögurra daga
ferð til Vestmannaeyja. Þau flugu
frá Reykjavíkurflugvelli til Eyja
um hádegi á uppstigningardag og
tóku Herjólf til baka og rútu til
Reykjavíkur frá Þorlákshöfn.
Á Hótel mömmu
„Við byrjuðum á því að hjóla frá
flugvellinum beint á gistiheimili,
sem heitir því ágæta nafni Hótel
mamma og stendur rétt við höfn-
ina. Fengum eitt stórt herbergi þar
sem við komumst öll fyrir og fór-
um svo að kanna bæinn. Við gerð-
um mjög margt skemmtilegt og
fjölskylduvænt saman og er óhætt
að segja að Vestmannaeyjar standi
vel undir nafni óháð fótboltamótum
og þjóðhátíðarpælingum. Við hjól-
uðum um alla Heimaey og skoð-
uðum nýja hraunið, sem nú er orð-
ið þrjátíu ára gamalt, gengum á
Eldfell, sprönguðum á hverjum
degi, fórum í skoðunarferð um eyj-
arnar með bátnum Víkingi, skoð-
uðum Náttúrugripasafnið auk þess
sem við feðgarnir sigruðum Heima-
klett, sem er hæsti punktur
eyjanna, tæpir 300 metrar. Hefð-
bundnari hlutir á borð við pitsuát
og sundferðir voru líka með í
pakkanum og því má segja að
þetta hafi verið allsherjar fjöl-
skylduævintýri út í gegn. Á kvöldin
horfðum við svo saman á góðar
bíómyndir og höfðum það bara svo-
lítið huggulegt saman á gistiheim-
ilinu, þar sem við elduðum okkur
líka sjávarréttasúpu eitt kvöldið,“
segir Kári.
Rólegt og fiskilegt
En hvernig skyldu Eyjar hafa
komið borgarbarninu fyrir sjónir?
„Þetta var dáltíið ævintýralegt, svo-
lítið fiskilegt og pínu rólegt,“ segir
Kári og bætir við: „En staðurinn er
mjög fallegur og gæti ég vel hugs-
að mér að eiga þarna heima.“
VESTMANNAEYJAR | Vel heppnuð fjölskylduferð
Þrusugaman og ævintýralegt
Sprangað: Kára þótti sprangið langskemmtilegast. Gosminning: Tilvalið var að hvíla sig þarna.
Í hraunbaði: Það var mjög gott að leggjast niður og
þerra af sér rigningarúðann á volgu hrauninu.
Komin til Eyja: Guðmundur Jón Guðjónsson ásamt
börnunum sínum tveimur, Kára og Lilju.
join@mbl.is
Jónína Oddný Sveinsdóttir, kennari í Háteigs-
skóla, er á leið til Króatíu í júní ásamt manni sín-
um, Marínó Björnssyni, kennara við Setbergs-
skóla í Hafnarfirði.
„Við förum með starfsfólki Setbergsskóla í
Hafnarfirði og mökum, samtals 87 manns.“
Hvert er erindið?
„Þetta er námsferð sem farin er til að skoða
skóla og kynnast landi og þjóð í leiðinni.“
Hvernig farið þið?
„Flogið verður til Trieste á Ítalíu og ekið þaðan í
rútu til Rabac í Króatíu.“
Hvers vegna Króatía?
„Það stóð reyndar til að fara til Ítalíu en svo
kom í ljós að skólar þar eru komnir í frí á þess-
um sama tíma. Króatía varð þá fyrir valinu
vegna þess að þetta er spennandi land, sem erf-
itt hefur verið að heimsækja, auk þess sem einn
úr hópnum þekkir Slavko Helga Babir mæta vel.
Hann er Króati en hefur búið hér í um það bil 12
ár og starfar á Keldum. Hann hefur verið und-
irbúningshópnum innan handar við að skipu-
leggja ferðina og mun sjá um fararstjórn. Króat-
ía er að verða vinsælt ferðamannaland og fyrir
mig persónulega er mjög spennandi að geta
sameinað forvitnilega ferð, skoðað skóla og
kynnst landi og þjóð. Það er óneitanlega alveg
frábært að vera með innfæddan fararstjóra,
sem veit hvað vert er að skoða. Ein ástæðan
fyrir því að mér finnst þessi ferð spennandi er
að einn nemenda minna á ættir að rekja til Kró-
atíu. Fyrir vikið finnst mér þetta ennþá meira
spennandi. Ég hef náttúrlega ekki farið á þessar
slóðir þannig að þetta er alveg nýtt fyrir mig.“
Hvar munuð þið gista?
„Á Hótel hedera í Rabac.“
Verða farnar ferðir innanlands?
„Já, farið verður í siglingu í kringum Brijuni-
eyjar, sveitaferð, skoðunarferð um Pula, Rovinj
og Porec. Þá verður líklega einnig boðið upp á
siglingu í kringum Krk-eyju með viðkomu í Rij-
eka og Opatija og ferð að Plitvice-vötnum þar
sem er þjóðgarður. Þá er einnig hugsanlegt að
einhverjir bregði sér í siglingu til Feneyja.“
Morgunblaðið/Sverrir
Ferðalög: Jóhanna Oddný er á leið til Króatíu.
Kynna sér skóla í Króatíu
HVERT ERTU AÐ FARA?