Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ELLA
Í ÁLÖGUM
Æðisleg
ævintýramynd
fyrir alla
fjölskylduna
með Anne Hathaway
úr Princess Diaries!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 3.50 og 6.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést
á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
FRUMSÝNING
Hvað gerist þegar tveir
andstæðingar gifta sig
fyrir slysni? Það verður
allt vitlaust!
Skemmtilegasta
og rómantískasta
grínmynd ársins.
PIERCE BROSNAN JULIANNE MOORE
Frá leikstjóra Johnny English
21.000
manns
á 9 dögum!!!
Sýnd kl. 4, 8 og 10.
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Frá meistara
spennunnar Luc
Besson kemur Taxi 3.
Sýnd kl. 2.40, 4, 5.20, 6.40, 8, 9.20 og Powersýning kl. 10.40.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést
á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
kl. 3, 5.50, 8.30 og 11.10.
ELLA
Í ÁLÖGUM
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
21.000
manns
á 9 dögum!!!
Frábær rómantísk
gamanmynd sem kemur þér
skemmtilega á óvart.
Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 1.30. Með íslensku tali
FRUMSÝNING
Nýja myndin hans Kevins Smiths,Jersey stelpan eða Jersey Girl,fékk margan harðkjarnaaðdáandaleikstjórans til að snúa sér við í
Lazy-Boy stólnum sínum, en þar tók Smith upp
á því að gera vinsældarvæna Hollywood gam-
anmynd, með ljúfsárum rómantískum sögu-
þræði og stórstjörnum á borð við Ben Affleck,
Liv Tyler og Jennifer Lopez í aðalhlutverkum.
Smith er hins vegar þekktur fyrir allt annars
konar kvikmyndagerð. „Óháðu“ smellirnir Búð-
arlokurnar (Clerks) og Kringlurotturnar (Mall-
rats) hófu leikstjórann til vegs og virðingar
meðal kvikmyndaunnenda er þær komu út um
miðjan tíunda áratuginn. Samtalsdrifnar gam-
anfrásagnir, kynlegir kvistir og sjálfsmeðvit-
aðir fulltrúar menningarkima eru meðal þeirra
aðalsmerkja sem leikstjórinn ávann sér með
þessum fyrstu myndum ferils síns, og hélt
áfram að vinna með á áhugaverðan hátt í mynd-
um á borð við Umhverfis Amy (Chasing Amy)
og trúarfantasíunni Kreddur (Dogma).
Jersey stelpan fjallar um einstæða föðurinn
Ollie Trinke sem glímir við sorgir og gleði, jafn-
framt því sem hann reynir að sinna starfi, dótt-
ur sinni og síðast en ekki síst einkalífinu. Mynd-
in er nú í frumsýningu víða um Evrópu og
Kevin Smith því staddur í Lundúnum þegar
blaðamaður nær sambandi við hann. Maðurinn
sem kynnir sig kurteisislega í símann virðist
jarðbundinn og einbeittur, allsendis óskyldur
þeirri gauraímynd sem einkennir persónurnar
Þögla Bob og félaga hans Jay. Fyrst engar
spurningar um Ísland koma upp í byrjun sam-
talsins, er ekki annað að gera en að demba sér í
spurningarnar.
– Það er ýmislegt nýtt í gangi hjá þér í þess-
ari mynd. Þótt um gamanmynd sé að ræða er
heilmikil dramatík og tilfinningastríð í sögunni.
Var þetta nýtt fyrir þér?
„Já og nei“, segir Smith hugsi. „Í raun unn-
um við með áþekka samblöndu dramatíkur og
kómedíu við gerð Umhverfis Amy og mörg af
sömu þemunum koma upp í þessum tveimur
kvikmyndum. En ég hef ekki áður fjallað um
dauðann í kvikmynd, og það á máta sem hefur
áhrif á persónur út í gegnum söguna. En þegar
öllu er á botninn hvolft reyndist kómeídan ekki
síður mikilvæg við að draga fram tilfinn-
ingakrísur persónanna.“
Þegar Smith er spurður hvað hafi orðið til
þess að beina sjónum hans að staðlaðri Holly-
wood-kvikmyndagrein á borð við rómantísku
gamanmyndina, segir hann forvitni hafa ráðið
þar för. „Þetta er sú tegund kvikmynda sem ég
ólst upp við að horfa á, sjáðu til. Ég var ekki al-
inn upp við það að horfa á kvikmyndir af því
tagi sem ég hef verið að fást við, á borð við
Clerks eða Mallrats.. Móðir mín var mikið fyrir
drama og gamanmyndir og ég horfði með
henni. Ég held að þessi tegund kvikmynda hafi
alltaf búið í mér undir niðri. Þegar mér bauðst
að gera kvikmynd af þessu tagi greip ég því
tækifærið.“
– Fannstu fyrir einhverri tortryggni gagn-
vart verkefninu hjá hinum sönnu Kevin Smith
aðdáendum?
„Einhverjir gagnrýnendanna voru strangir
við mig, og hef ég eflaust verið dæmdur gagn-
vart eigin verkum, ef svo má að orði komast. En
mér hafa virst áhorfendur taka myndinni vel –
ég held þeir hafi fílað hana.“
Þegar Smith er spurður út í áhrif fjölmiðla-
fársins í kringum samband og sambandsslit
þeirra Ben Affleck og Jennifer Lopez á gerð og
viðtökur Jersey Girl, segir hann það mál hins
vegar hafa verið erfiðara viðfangs. „Ég held að
við höfum kannski tapað á því hversu búið var
að ganga fram af öllum með umfjöllun um sam-
bandið. Og það er auðvitað erfitt að fylgja í kjöl-
farið á Gigli eftir allt neikvæða umtalið um þá
mynd. „Bennifer“-fjölmiðlastormurinn hafði
hins vegar ekki áhrif á gerð myndarinnar sjálfr-
ar. Fárið var hreinlega ekki skollið á þegar við
vorum að taka myndina. Blessunarlega vorum
við því alveg vernduð frá hvers kyns stjörnulát-
um á þeim tímapunkti,“ segir Smith, sem hefur
viðurkennt að sú ákvörðun að velja stjörnukær-
ustupar til að leika saman í kvikmynd væri tví-
mælalaust óviturleg, svona eftir á að hyggja.
– Gamanmyndir sem fjalla um föðurhlut-
verkið og togstreitu starfsframa og fjölskyldu-
lífs virðast áberandi um þessar mundir. Var það
meðvitað skref hjá þér að slást í hópinn?
„Ekki beinlínis, en ég held að margir kvik-
myndagerðarmenn af minni kynslóð séu sjálfir í
þessari stöðu, þ.e. að sinna starfinu og vilja um
leið rækta fjölskyldulífið. Hugmyndin að Jersey
stelpunni kom til mín eftir að ég hafði sjálfur
eignast barn. Mig langaði til að fjalla um föð-
urhlutverkið og hvernig það er að verða pabbi,
á dálítið gamansaman hátt en draga um leið inn
ákveðna þræði sem ég hef unnið með í fyrri
myndum mínum. Það er líka heilmikið af krökk-
um í myndinni sem við unnum náið með og hefði
ég líklega komið af fjöllum í slíkum aðstæðum
væri ég ekki pabbi. Reyndar myndi ég almennt
ekki mæla með að fólk gerði svona mynd án
þess að þekkja foreldrahlutverkið af eigin
raun.“
– Nú eru mörg af þínum gömlu einkennum á
sínum stað í myndinni. Var það nýtt verkefni
fyrir þér að flétta þessu saman við kvikmynda-
formið sem þú ert að vinna með hér?
„Í mínum huga er þetta bara spurning um að
segja sögu,“ segir Smith. „Þó svo að ég hafi
unnið meira á sérviskulegu nótunum hingað til,
er það bara ákveðin leið til þess að vinna með
hugmyndir. Það er rétt að flestir þekkja form-
gerðina vel og er sagan kannski ekkert gríð-
arlega frumleg. En ég held að mín nálgun við
formið hljóti að vera blanda sem fólk hefur ekki
séð áður, og kannski einmitt það felur í sér til-
breytingu.“
– Hvað blasir við í framhaldinu? Það hefur
komið fram að þú sért að íhuga að gera æv-
intýramynd. Ertu á leið í nýjar áttir í kvik-
myndagerðinni hvað umfang og fjárhagsáætl-
anir varðar…?
„Við vorum að velta fyrir okkur þeim mögu-
leika að gera stóra ævintýramynd byggða á
myndasögunni um Græna geitunginn (The
Green Hornet), en það er enn á hugmyndastigi
og áreiðanlega ekki það sem ég tek mér fyrir
hendur næst. Ég er að skrifa handritið, en er
alls ekki viss um að ég vilji leikstýra myndinni.
Þetta yrði talsvert stærra verkefni en ég á að
venjast og ég held að það höfði hreinileg ekki
nógu vel til mín. Það sem mig langar að gera
næst er einmitt hið gagnstæða. Litla 250 dala
mynd sem hverfist um persónur og samtöl.
Hugur minn stendur því til þess að vinna með
kvikmyndir sem eru minni í sniðum, mig langar
til að hverfa aftur til óháðu myndarinnar,“ segir
leikstjórinn Kevin Smith að lokum.
Horfði á rómantískar
gamanmyndir með mömmu
Reuters
Feðgar í veruleika: Kevin Smith með son sinn.
Stundum bregður hann sér í gervi Þögla-Bob og
segir fátt. Frægari er hann þó fyrir kvikmyndir sínar.
Heiða Jóhannsdóttir spjallaði við leikstjórann Kevin
Smith um litlar og stórar myndir, föðurhlutverkið
og „Bennifer“-vandræðin.
heida@mbl.is
Feðgin í mynd: Ben Affleck og Raquel Castro.