Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 30
LISTIR 30 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÝNING Þjóðleikhússins, Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helgason í leikgerð Baltasars Kor- máks, fær flestar tilnefningar til Grímunnar, ís- lensku leiklistarverðlaunanna að þessu sinni, tíu að tölu, en tilnefningar voru kynntar við athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Fast á hæla hennar koma Ríkarður þriðji, sem einnig var sett upp í Þjóðleik- húsinu, með níu tilnefningar, og sýning Leikfélags Reykjavíkur á Chicago, sem hlaut átta tilnefning- ar. Þrjár sýningar hlutu fimm tilnefningar, Brim hjá Vesturporti, Græna landið í Þjóðleikhúsinu og Meistarinn og Margaríta í Hafnarfjarðarleikhús- inu. Þjóðleikhúsið fær langflestar tilnefningar, 30 talsins. Leikfélag Reykjavíkur kemur næst með 16. Verðlaunin verða afhent 16. júní nk. á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýning ársins: Brim (Vesturport) Meistarinn og Margaríta (Hafnarfjarðarleik- húsið) Ríkarður þriðji (Þjóðleikhúsið) Sporvagninn Girnd (Leikfélag Reykjavíkur) Þetta er allt að koma (Þjóðleikhúsið) Leikstjóri ársins: Baltasar Kormákur (Þetta er allt að koma) Hafliði Arngrímsson (Brim) Rimas Tuminas (Ríkarður þriðji) Stefán Jónsson (Sporvagninn Girnd) Þórhildur Þorleifsdóttir (Chicago) Leikari ársins í aðalhlutverki: Eggert Þorleifsson (Belgíska Kongó) Gunnar Eyjólfsson (Græna landið) Hilmir Snær Guðnason (Ríkarður þriðji) Ólafur Egill Egilsson (Brim) Stefán Jónsson (Erling) Leikkona ársins í aðalhlutverki: Brynhildur Guðjónsdóttir (Edith Piaf) Harpa Arnardóttir (Sporvagninn Girnd) Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Chicago) Ólafía Hrönn Jónsdóttir (Þetta er allt að koma) Sigrún Edda Björnsdóttir (Sporvagninn Girnd) Leikari ársins í aukahlutverki: Björn Thors (Græna landið) Eggert Þorleifsson (Chicago) Hjálmar Hjálmarsson (Meistarinn og Margaríta) Þór Túliníus (Draugalestin) Þröstur Leó Gunnarsson (Þetta er allt að koma) Leikkona ársins í aukahlutverki: Brynhildur Guðjónsdóttir (Þetta er allt að koma) Edda Arnljótsdóttir (Þetta er allt að koma) Guðrún S. Gísladóttir (Vegurinn brennur) Guðrún S. Gísladóttir (Ríkarður þriðji) Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (Ríkarður þirðji) Leikmynd ársins: Börkur Jónsson og Hlynur Kristjánsson (Brim) Gretar Reynisson (Græna landið) Gretar Reynisson (Þetta er allt að koma) Sigurjón Jóhannsson (Chicago) Vytautas Narbutas (Ríkarður þriðji) Búningar ársins: Elín Edda Árnadóttir (Chicago) Filippía Elíasdóttir og Vytautas Narbutas (Rík- arður þriðji) Helga I. Stefánsdóttir (Þetta er allt að koma) Filippía I. Elísdóttir (Jón Gabríel Borkmann) Þórunn María Jónsdóttir (Meistarinn og Margaríta) Lýsing ársins: Björn Bergsteinn Guðmundsson (Edith Piaf) Björn Bergsteinn Guðmundsson (Þetta er allt að koma) Egill Ingibergsson (Meistarinn og Margaríta) Lárus Björnsson (Chicago) Páll Ragnarsson (Ríkarður þriðji) Tónlist ársins: Faustas Latenas (Ríkarður þriðji) Jóhann G. Jóhannsson (Edith Piaf) Jón Ólafsson (Chicago) Karl Olgeirsson (Paris at Night) Margrét Örnólfsdóttir (Meistarinn og Margaríta) Leikskáld ársins: Bragi Ólafsson (Belgíska Kongó) Hallgrímur Helgason og Baltasar Kormákur (Þetta er allt að koma) Hávar Sigurjónsson (Pabbastrákur), Jón Atli Jónasson (Brim) Ólafur Haukur Símonarson (Græna landið) Dansverðlaun ársins: Ástrós Gunnarsdóttir (Dance Performance / Skissa) Jochen Ulrich (Chicago) Katrín A. Johnson Symbiosis) Katrín A. Johnson (Æfing í Paradís) Lára Stefánsdóttir (Lúna) Danssýning ársins: Dance Performance / Skissa eftir Ástrós Gunn- arsdóttur Lúna eftir Láru Stefánsdóttur (Íslenski dans- flokkurinn) The Match eftir Lonneke van Leth (Íslenski dansflokkurinn) Symbiosis eftir Itzik Galili (Íslenski dansflokk- urinn) Æfing í Paradís eftir Stijn Celis (Íslenski dans- flokkurinn) Barnaleiksýning ársins: Dýrin í Hálsaskógi, eftir Thorbjörn Egner (Þjóðleikhúsið) Lína langsokkur, e. Astrid Lindgren / Staffan Götestram (LR) Rauðu skórnir, Tveir menn og kassi, eftir Tor- skild Lindebjerg (Möguleikhúsið) Ævintýrið um Augastein, eftir Felix Bergsson (Á senunni) Útvarpsverk ársins: Babbitt (leikgerð Maríu Kristjánsdóttur) Calderon (P.P. Pasolini), Íslenskur aðall (leikgerð Bjarna Jónssonar) Sálmurinn um blómið (leikgerð Jóns Hjartar- sonar) Sumar á Englandi (Evald Flisar) Ævinlega (leikgerð Bjarna Jónssonar) Tilnefningar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, kynntar í gær Þetta er allt að koma fær flestar tilnefningar Morgunblaðið/Eggert Chicago (Leikfélag Reykjavíkur): 8 tilnefningar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkarður þriðji (Þjóðleikhúsið): 9 tilnefningar. Morgunblaðið/Þorkell Þetta er allt að koma (Þjóðleikhúsið): 10 tilnefningar. UNDANFARNAR vikur hafa sjö leikskáld skrifað saman nokkurs konar keðjuleikrit á Leiklist- arvefnum. Leikskáldin sem ekki vissu hver hin voru, skrifuðu kafla í leikritinu eitt af öðru og höfðu 3–4 daga til skrifanna. Fyrsti þáttur var birtur á vefn- um 10. maí síðastliðinn og síðan birtust næstu þættir á mánudögum og föstudögum. Síðasti hluti leikritsins var birt- ur föstudaginn 28. maí og í vikunni var síðan athöfn þar sem upplýst var hverjir höfundar voru. Árni Ib- sen reið á vaðið með fyrsta hluta verksins en aðrir höfundar voru Þórunn Guðmundsdóttir, Ingibjörg Hjartardóttir, Lárus Vilhjálmsson, Sævar Sigurgeirsson, Hannes Blandon og Karl Ágúst Úlfsson. Sá síðastnefndi fékk það hlut- verk að hnýta lokahnútinn á verkið og sagði hann að það hefði verið skemmtilegt en hefði jafnframt tekið aðeins í. Í hefðbundinni leik- ritasmíði gæti höfundur alltaf farið til baka og breytt og bætt en hér hafði hann verið skyldugur til að virða það sem á undan hefði komið. Hann hefði þurft að setja sig inn í hugsun annarra og halda áfram með hana. Lesendum var boðið að setja inn tillögur að heiti á verkið á spjall- borði Leiklistarvefjarins og kusu höfundar þá tillögu sem þeim fannst best. Niðurstaða þeirrar kosningar var að verkið skyldi heita „Plottið myrt“. Þótti það hæfa efni og anda verksins. Að lok- um var flokkur leikara fenginn til að leiklesa verkið fyrir viðstadda. Keðjuleikritið er að finna á Leik- listarvefnum á slóðinni www.leik- list.is. Hulunni svipt af höfundum keðjuleikritsins Plottið myrt Morgunblaðið/Jim Smart Höfundar keðjuleikritsins Plottið myrt saman komnir í fyrsta sinn. LISTAHÁSKÓLI Íslands braut- skráir nemendur frá skólanum á há- tíðarsamkomu sem haldin verður á stóra sviði Borgarleikhússins í dag, laugardag. Samkoman hefst kl. 14:00. Með brautskráningu lýkur fimmta starfsári Listaháskólans. Alls ljúka að þessu sinni sextíu og átta nem- endur BA-prófi og B.Mus.-prófi úr þremur deildum: myndlistardeild, hönnunardeild og tónlistardeild. Tuttugu og einn nemandi lýkur dipl- óma-prófi í kennslufræðum til kennsluréttinda. Auk ávarpa rektors og fulltrúa nemenda verða á dagskránni tónlist- aratriði. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona flytur þrjú lög úr sýningu Þjóðleikhússins á leikverkinu Edith Piaf ásamt hljómsveit undir stjórn Jóhanns G. Jóhannssonar. Einnig munu Ingrid Karlsdóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir útskriftarnem- endur leika tvo þætti úr Sónótu fyrir tvær fiðlur nr.V eftir Jean-Marie Leclair. Karólína Eiríksdóttir tón- skáld flytur hátíðarræðu. Kynnir samkomunnar er Ragnheiður Skúla- dóttir deildarforseti leiklistardeild- ar. Sérstakir gestir á útskriftinni í ár eru stjórn Norræna tónlistarhá- skólaráðsins en hún samanstendur af: Pekka Vapaavuori, rektor Sibel- íusar Akademíunnar, Ingemar Henningsson, rektor Tónlistarhá- skóla Gautaborgar, Bertel Krarup, rektor Tónlistarháskóla Odense og Harald Jörgensen, rektor Tónlist- arháskólans í Ósló. Fulltrúi Íslands í stjórninni er Mist Þorkelsdóttir deildarforseti tónlistardeildar LHÍ. Stjórn Norræna tónlistarháskóla- ráðsins heldur sinn árlega stjórnar- fund á Íslandi að þessu sinni í tilefni af fyrstu útskrift úr tónlistardeild Listaháskólans. LHÍ braut- skráir 89 nemendur Penninn fóstrar Slunkaríki MYNDLISTARFÉLAG Ísafjarðar og Penninn hf. hafa náð samkomu- lagi um að fyrirtækið taki galleríið Slunkaríki á Ísafirði í „fóstur“ út ár- ið, eins og Jón Sigurpálsson, einn af forsvarsmönnum Myndlistarfélags- ins, kemst að orði. Penninn veitir galleríinu styrk og þar með er rekst- urinn tryggður út árið, að sögn Jóns. Ákveðið hefur verið að halda sex sýningar undir formerkjum sam- starfsins og segir Jón ætlunina að leita á nýjar slóðir í sýningarhaldinu. „Fram að þessu höfum við mest verið að sinna óskum eftir sýning- arsalnum en núna ætlum við að velja sýningarnar í auknum mæli en engu að síður tökum við mark á öllum ósk- um sem berast um að sýna hjá okk- ur. Nú höfum við öruggara bakland og getum gert svolítið meira úr hverri sýningu.“ Jón segir að galleríið hafi ekki tek- ið leigu af sýningarsalnum en haft tekjur af sölu listaverka. Lengi hafi Slunkaríki fengið styrk frá Fé- lagsheimilasjóði en hann sé rýr um þessar mundir einnig hafa komið til styrkir frá Ísafjarðarbæ. Tuttugu ár eru frá því Slunkaríki var opnað og segir Jón ekkert gallerí hér á landi slá því við í aldri. Undanfarið hefur engin sýning verið uppi í Slunkaríki en sá sem ríð- ur á vaðið í sýningaröð Slunkaríkis er myndlistarmaðurinn Tryggvi Ólafsson. Sýningin verður opnuð kl. 14 í dag. Tryggvi ætti að vera Ísfirðingum að góðu kunnur enda sýnt áður í Slunkaríki við góðar undirtektir. Tryggvi er Norðfirðingur en hefur verið búsettur í Danmörku um langt árabil. Næstur í röðinni er Daninn Niels Reumert og „ætti hann að vekja athygli enda vel þekktur í heimalandinu,“ segir Jón. Íslenskur ullarþráður á Norðurbryggju Á NORÐURBRYGGJU í Kaup- mannahöfn stendur nú yfir hönnunar- sýningin En Saga Blot? Þar vinna hönnuðurinn Dögg Guðmundsdóttir og danski fjöllistamaðurinn T.S. Høeg með arf og sögu gamla pakkhússins á Kristjánshöfn og skapa og velta fyrir sér sambandi manns og náttúru. Sýningin samanstendur af sam- anofnum 1.500 metra löngum íslensk- um ullarþræði sem strengdur er víðs vegar um sýningarrýmið og í honum hanga m.a. lampar og púpur sem gest- um gefst færi á að skríða inn í og öðlast hugarró. Sýningin varpar upp siðferð- islegum spurningum um notkun mannsins á náttúruauðlindum og eru ýmsum fylgifiskum nútímans gerð skil. Dögg Guðmundsdóttir stendur fyrir sjónrænum hluta innsetningar- innar og T.S. Høeg leggur til tónlist sem er sérstaklega samin fyrir sýn- inguna. Tónlistin er flutt á mismun- andi hljóðsporum sem komið er fyrir víðs vegar í sýningarrýminu og sam- einar ýmsa þætti norrænnar tónlistar- hefðar t.d. sálma, trommudans, nátt- úruhljóð og nútímatónlist. Sýningunni lýkur á sunnudag. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.