Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 53
Hið árlega golfmót Samiðnar
verður haldið á golfvellinum við
Hellu sunnudaginn 13. júní nk.
Mótið er opið öllum félagsmönnum
Samiðnar og fjölskyldum þeirra.
Nánari upplýsingar í síma
535 6000 og á heimasíðu
Samiðnar www.samidn.is.
Ath. að nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku fyrir kl. 15 föstudaginn 11. júní
í síma 535 6000 eða með tölvupósti helga@samidn.is eða postur@samidn.is
Útilíf styrkir mótið
SVEN-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englend-
inga, hefur valið landsliðshóp sinn fyrir Evr-
ópukeppnina. Frank Lampard verður með númerið
11 á bakinu á búningi sínum. Telja breskir fjöl-
miðlar að það auki líkurnar á því að hann verði í
byrjunarliði Englands í stað Nicky Butts.
Landsliðshópur Englands: David James, Man-
chester City, Paul Robinson, Tottenham, Ian Wal-
ker, Leicester, Gary Neville, Man. United, Ashley
Cole, Arsenal, John Terry, Chelsea, Sol Campell,
Arsenal, Wayne Bridge, Chelsea, Phil Neville, Man.
United, Ledley King, Tottenham, Jamie Carragh-
er, Liverpool, Steven Gerrard, Liverpool, David
Beckham, Real Madrid, Paul Scholes, Man. United,
Frank Lampard, Chelsea, Nicky Butt, Man. United,
Owen Hargreaves, Bayern München, Joe Cole,
Chelsea, Kieron Dyer, Newcastle, Wayne Rooney,
Everton, Michael Owen, Liverpool, Emile Heskey,
Birmingham, Darius Vassell, Aston Villa.
Eriksson er klár í
slaginn á EM
ENSKA landsliðið fór í gegnum erfiða æfingu í Man-
chester í fyrradag þar sem lítið var sparkað í bolta.
Ítalskur sérfræðingur í þolþjálfun, Ivan Carminati, sá
að mestu um æfingu liðsins en hann var aðstoð-
armaður Sven Göran Erikssons er hann var þjálfari
ítalska liðsins Lazio. Eriksson ætlar sér ekki að end-
urtaka það sem átti sér stað á heimsmeistaramótinu í
Japan og S-Kóreu þar sem líkamlegt ástand leik-
manna varð til þess að liðið gaf eftir á lokasprettinum
á mótinu. Enska liðið fór í gegnum erfiða æfingu sama
dag og liðið lék gegn Japan sl. þriðjudag. David Beck-
ham, fyrirliði enska liðsins, segir að liðið hafi lagt hart
að sér undanfarna 10 daga. „Ef það er mat þjálfara
liðsins að við þurfum á þessu að halda þá styð ég
þeirra ákvörðun,“ sagði Beckham. Miðvarðaparið Sol
Campbell og John Terry æfðu ekki með liðinu í gær
vegna smávægilegra meiðsla og Phil Neville var frá
vegna veikinda. Þeir verða hins vegar klárir í slaginn
gegn Íslendingum í dag á City of Manchester Stadium.
Hvergi slegið af
við æfingar
BRIAN Kidd, aðstoðarþjálfari, enska
landsliðsins í knattspyrnu, mætti á æf-
ingu liðsins í fyrradag til þess að kveðja
enska landsliðshópinn að sinni. Kidd
greindist með krabbamein í blöðruháls-
kirtli fyrir skömmu og hefur hann verið
í lyfjameðferð að undanförnu eftir að
hafa farið í aðgerð vegna meinsins.
Kidd mun mæta til leiks á ný með enska
landsliðinu í haust er undankeppnin fyr-
ir heimsmeistaramótið í knattspyrnu
hefst. Kidd fékk góðar móttökur á æf-
ingu enska liðsins í gær þar sem hann
ræddi lengi við David Beckham, Nicky
Butt og Steven Gerrard. Knatt-
spyrnustjóri Middlesbrough, Steve
McClaren, tók við starfinu sem Kidd
gegnir hjá enska knattspyrnusamband-
inu.
Kidd ekki með
í Portúgal
FÓLK
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins, hefur beðið stuðnings-
menn liðsins að haga sér vel í Portú-
gal, en undanfarin ár hefur ávallt
verið stormasamt í kringum stuðn-
ingsmenn liðsins á stórmótum. „Við
eigum bestu stuðningsmenn í heimi,
ekkert lið getur státað af jafnmörg-
um stuðningsmönnum á stórmóti, en
ég vona að okkar stuðningsmenn
hagi sér vel og verði landi sínu til
sóma. Geri þeir það verður það til
þess að hjálpa okkur enn frekar í
baráttunni á vellinum,“ segir Beck-
ham.
HINN ungi framherji enska lands-
liðsins, Wayne Rooney, þykir hafa
mikið skap sem honum hefur reynst
erfitt að hemja. David Beckham seg-
ir að ekki standi til að reyna að „setj-
ast“ á Rooney og fá hann til þess að
breyta hegðun sinni á vellinum.
„Rooney er bestur þegar hann fær
að vera hann sjálfur. Vissulega er
hann skapmikill en það er ekki
vandamál í okkar liði. Hann er gríð-
arlega efnilegur og hefur vilja til
þess að leggja sig fram. Við ætlum
ekki að breyta Rooney á svip-
stundu,“ segir Beckham.
RUDI Völler, þjálfari þýska lands-
liðsins í knattspyrnu, hefur kallað
framherjann Lukas Podolski inn í
landsliðshóp sinn fyrir EM í Portú-
gal. Podolski, sem leikur með Köln,
er aðeins 18 ára og er talinn ein
bjartasta von Þýskalands.
KRÓATÍSKI miðjumaðurinn Mil-
an Rapaic, sem leikur með Ancona,
er meiddur og verður ekki með Kró-
ötum í síðasta leik liðsins fyrir EM,
gegn Dönum á sunnudaginn.
RICHARD Rufus, sem leikið hefur
með Charlton undanfarin ár, hefur
neyðst til að hætta knattspyrnuiðk-
un sökum meiðsla. Rufus, sem er 29
ára varnarmaður, gekkst undir upp-
skurð á hné en aðgerðin gekk ekki
sem skyldi. Hann hefur verið einn
besti leikmaður Charlton undanfar-
in ár og hefur þrisvar verið valinn
besti leikmaður liðsins.
VARNARMAÐURINN John Terry,
félagi Eiðs Smára Guðjohnsen hjá
Chelsea, verður ekki með enska
landsliðinu í dag þegar það mætir
Íslendingum. Terry meiddist í leik
gegn Japan á þriðjudaginn og þótt
meiðslin séu minniháttar að sögn
Svens Görans Eriksson, landsliðs-
þjálfara Englendinga, þá hyggst
hann ekki tefla Terry fram. „Ég vil
ekki taka óþarfa áhættu,“ sagði
Eriksson í gær en lét þess jafn-
framt getið að væri enska liðið að
fara að leika gegn Frökkum en
ekki Íslendingum þá hefði hann
ekki hikað við að láta Terry leika.
Eriksson telur sig hafa verið full-
vissaðan af læknum enska liðsins
um að Terry verði klár í slaginn
þegar flautað verður til leiks á
Evrópumeistaramótinu í Portúgal
um næstu helgi. Reiknað er með að
Jamie Carragher taki stöðu Terrys
í enska liðinu.
Þá er einnig ljóst að David
James stendur ekki í marki enska
liðsins í dag. Ákveðið hefur verið
að Paul Robinson standi vaktina að
baki ensku vörninni gegn íslensku
sóknarmönnunum.
Þá hyggst Eriksson jafnframt
láta lið sitt leika 4-4-2 gegn Íslend-
ingum, ekki 3-5-2 eins og enska lið-
ið leikur gjarnan, síðasta gegn Jap-
an í vikunni. „Á EM þurfum við ef
til vill að nota báðar leikaðferð-
irnar svo það er rétt að reyna báð-
ar í síðustu leikjunum fyrir keppn-
ina,“ segir Eriksson sem svaraði
því neitandi á blaðamannafundi í
gær hvort hann reiknaði með létt-
um leik og stórsigri. „Hefðu þjóð-
irnar mæst fyrir 20 árum hefðum
við kannski mátt eiga von á stórum
sigri, en síðan hefur íslensk knatt-
spyrna tekið framförum, við getum
því ekki reiknað með auðveldum
sigri gegn Íslandi,“ sagði Eriksson.
Terry verður ekki með
Ég hef trú á því að við getum far-ið alla leið á Evrópumótinu í
Portúgal, við getum lagt öll lið að
velli og sem fyrirliði enska lands-
liðsins hef ég trú á leikmönnum liðs-
ins,“ segir Beckham. „Það er komið
að okkur að sýna hvað í okkur býr,
sú kynslóð sem er í enska landslið-
inu þessa stundina hefur allt sem
þarf til þess að fara alla leið – og
landa fyrsta stóra titli enska lands-
liðsins frá því á heimsmeistara-
mótinu árið 1966. Frá því að við luk-
um keppni á heimsmeistaramótinu í
Japan og S-Kóreu fyrir tveimur ár-
um hef ég haft það á tilfinningunni
að við séum á réttri leið með okkar
lið. Í dag er ég í hópi þeirra sem
teljast reyndir leikmenn og með
góðri blöndu af yngri leikmönnum
sem hafa getu til þess að láta að sér
kveða er ég bjartsýnn á að okkur
gangi vel í Portúgal. Munurinn á
liðinu í dag og fyrir heimsmeist-
aramótið fyrir tveimur árum er að
við erum reynslunni ríkari og
heilsufar leikmanna er mun betra
en fyrir þá keppni,“ segir Beckham
en hann var að jafna sig eftir fót-
brot fyrir heimsmeistaramótið og
náði sér ekki almennilega á strik á
mótinu. „Að auki erum við með
Steven Gerrard og Gary Neville í
liði okkar á ný en þeir voru meiddir
fyrir tveimur árum og gátu ekki
verið með. Gerrard sýndi það á upp-
hafskaflanum gegn Japan að hann
er gríðarlega góður og með þeim
allra bestu í dag.“
Enska landsliðið fundaði í gær án
þjálfara liðsins og segir Beckham að
andinn í liðinu sé einstakur. „Mér
líður eins og við séum félagslið, og
andinn í hópnum er sá besti sem ég
hef upplifað sem landsliðsmaður.“
Fyrirliðinn hrósaði Frank Lampard
fyrir leik hans gegn Japan þrátt
fyrir að fyrrverandi félagi hans hjá
Manchester United, Nicky Butt, sé
utan við liðið.
Charlton er svartsýnn
Sir Bobby Charlton, leikmaður
heimsmeistaraliðs Englendinga, frá
árinu 1966 segir við dagblaðið Daily
Express í Manchester að keppnis-
bann varnarmannsins Rio Ferdin-
ands muni hafa úrslitaáhrif á gengi
enska landsliðsins í Portúgal.
Charlton segir að langt keppn-
istímabil ensku úrvalsdeildarinnar
muni skaða möguleika enska liðsins.
Þreyta sé í hópnum og án besta
varnarmanns landsins eigi liðið ekki
möguleika á Evrópumeistaratitli.
„David Beckham er vissulega góður
leikmaður en hann hefur sína galla
sem hann þarf að vinna betur að.
Þar má nefna að hann er ekki sá
besti einn gegn einum og vinstri fót-
urinn er ekki sparkviss. En ég
þekki piltinn og veit að hann er að
vinna í því að bæta sig á þessu sviði.
Fáir eru betri spyrnumenn en
Beckham og hann er duglegur leik-
maður sem gefur ekkert eftir í bar-
áttunni úti á vellinum.“
Charlton gagnrýnir enska knatt-
spyrnusambandið, FA, harðlega
fyrir framgöngu sína í lyfjaprófs-
máli Rio Ferdinands og segir að
átta mánaða leikbann Ferdinand
hafi gert út um vonir Manchester
United um meistaratitil á leiktíðinni
og þar að auki hafi FA gert út um
vonir enska landsliðsins með keppn-
isbanninu.
Beckham hefur
tröllatrú á liðinu
ENSKIR fjölmiðlar hafa að venju fjallað mikið um fyrirliða enska
landsliðsins í knattspyrnu, David Beckham, sem haltraði af velli
undir lok leiksins gegn Japan sl. þriðjudag. Beckham sagði á fundi
með fréttamönnum í fyrradag að ekkert amaði að honum í ökkl-
anum, og að hann yrði klár í slaginn í næstu verkefni landsliðsins.
AP
Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, fylgist með æfingu lærisveina sinna.