Morgunblaðið - 05.06.2004, Page 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 23
Grindavík | Bláa lónið – heilsulind
hlaut í gær umhverfisviðurkenn-
inguna Bláfánann. Tryggvi Felixson,
framkvæmdastjóri Landverndar, af-
henti Önnu G. Sverrisdóttur, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Bláa lónsins
hf., fánann. Með þeim á myndinni er
Bergur Sigurðsson heilbrigðis-
fulltrúi.
Er þetta í annað sinn sem Bláa
lónið – heilsulind hlýtur Bláfánann
sem er veittur til eins árs í senn.
Hann var í fyrsta skipti veittur hér á
landi á síðasta ári.
Baðströndum er veittur Bláfáninn
ef að þar hefur verið kappkostað að
vernda umhverfið, bæta öryggismál
og aðstöðu á baðströndinni og veita
fræðslu um náttúruna og umhverf-
isvernd.
Bláa lónið
fær Blá-
fánann
Keflavíkurflugvöllur | Kaffitár ehf. í
Njarðvík mun opna kaffibar á ann-
arri hæð Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar hf. síðar í mánuðinum. Samn-
ingur þess efnis var undirritaður í
flugstöðinni í gær.
Kaffitár mun bjóða upp á kaffi-
drykki auk þess sem í boði verða saf-
ar, vatn og aðrar drykkjavörur
ásamt brauði og meðlæti. Einnig
verða til sölu smávörur sem tengjast
kaffi og kaffiuppáhellingu.
Samningurinn við Kaffitár kemur
í kjölfar forvals sem Flugstöð Leifs
Eiríkssonar efndi til um aðgang og
afnot af verslunar- og þjónusturým-
um í Flugstöðinni. Umsóknir um
rekstur veitingaþjónustu bárust frá
fjölda fyrirtækja. Fram kemur í
fréttatilkynningu frá Flugstöðinni
að eftir mat á umsóknum hafi Kaffi-
tári verið boðið til samstarfs um
rekstur kaffibars í Flugstöðinni
enda hafi hugmyndir fyrirtækisins
fallið vel að markmiðum forvalsins
um aukna þjónustu við farþega í
Flugstöðinni. Eftir er að gera fleiri
samninga um veitingaþjónustu í
Flugstöðinni.
Fyrir er Kaffitár með kaffihús og
kaffibúðir í Kringlunni, við Banka-
stræti og í nýrri kaffibrennslu fyr-
irtækisins í Njarðvík.
Kaffitár með
kaffibar í
Flugstöðinni
Fékk kylfu í höfuðið | Kona í
Grindavík varð fyrir því að fá golf-
kylfu í höfuðið í fyrrakvöld. Lögregla
og sjúkrabifreið var kölluð til. Sam-
kvæmt upplýsingum á vef lögregl-
unnar í Keflavík var konan flutt til
aðhlynningar á Landspítala – há-
skólasjúkrahús í Reykjavík.
♦♦♦
♦♦♦ Úrslitin í enska boltanum
beint í símann þinn Fréttir í tölvupósti