Morgunblaðið - 05.06.2004, Page 42
KIRKJUSTARF
42 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sjómannadagurinn
í Vestmannaeyjum
SUNNUDAGINN 6. júní 2004, á
sjómannadaginn, verður sjó-
mannadagsmessa í Landakirkju kl.
13.00. Stór kirkjunnar dagur í okk-
ar sjómannasamfélagi. Við söfn-
umst á helgan stað og sameinum
hugi okkar í bæn. Sr. Hjálmar
Jónsson dómkirkjuprestur mun
predika og verða ritningarlestrar í
höndum sjómanna eða sjómanns-
fjölskyldna. Kór Landakirkju syng-
ur undir stjórn Guðmundar H.
Guðjónssonar. Prestur sr. Þorvald-
ur Víðisson. Að kirkjuathöfn lok-
inni munum við ganga út á kirkju-
lóð og leggja blómsveig við
minnisvarðann um hrapaða og
drukknaða. Lúðrasveit Vest-
mannaeyja mun spila undir stjórn
Stefáns Sigurjónssonar. Þar mun
Snorri Óskarsson leiða með orði
og bæn. Fjölmennum í kirkju á sjó-
mannadaginn. Til hamingju með
daginn, sjómenn og allir Eyja-
menn.
Sr. Þorvaldur Víðisson.
Grindavíkurkirkja –
sjómannadagur
SJÓMANNAMESSA kl. 13.00.
Hátíðarstund í kirkjunni með
þátttöku sjómanna. Fluttur verður
leikþáttur í tali og tónum. Bergur
Ingólfsson, leikari og leikstjóri,
leikstýrir og setti þáttinn saman
ásamt sóknarpresti, Jónu Kristínu
Þorvaldsdóttur og þátttakendum.
Þau sem fram koma eru: Karl
Bjarni Guðmundss. (idol), Margrét
Einarsdóttir, Jón Guðmundsson,
Páll J. Pálsson, Einar Bjarnason,
Pálmar Guðmundsson. Hljómsveit
skipuð: Erni Falkner, Birni Er-
lingssyni, Fróða Oddssyni og
Pálmari Guðmundssyni. Kór
Grindavíkurkirkju syngur. Eftir
stundina er skrúðganga með
kransberum og fánaberum að
minninsvarðanum „Von“. Tón-
leikar í kirkjunni kl. 20.00. Tónlist
úr söngleikjum og kvikmyndum.
Kvartett skipaður þeim: Einari
Erni Einarssyni, Gunnari Krist-
mannssyni, Rósalind Gísladóttur
og Valgerði Guðrúnu Guðnadóttur.
Píanóleikari: Vignir Þór Stef-
ánsson.
Hjálmar Árnason
í Þorlákskirkju
Á SJÓMANNADAG er messa í
Þorlákskirkju í Þorlákshöfn kl.
11.00. Ástæða er til þess að hvetja
Þorlákshafnarbúa og aðra, gesti
og gangandi, til kirkjusóknar því
að þetta er auðvitað sjávarpláss
eins og margir vita, frá Þorláks-
höfn hefur verið róið frá ómunatíð,
enda er hafnaraðstaðan þar eins
og vin í hafnleysu suðurstrandar.
Hefð er fyrir því að einhver rödd
úr samfélaginu heyrist úr prédik-
unarstólnum á sjómannadag. Að
þessu sinni er það Hjálmar Árna-
son alþingismaður en hann á sæti í
sjávarútvegsnefnd Alþingis og tek-
ur gjarnan til máls um sjáv-
arútvegsmál. Og nú ætlar gamli
skólameistarinn að setja þetta í
kristilegt samhengi allt saman.
Það kemur svo í hlut sóknarprests-
ins að þjóna fyrir altari. Við hljóð-
færið situr hinn góðkunni Julian
Edward Isaacs og hið margreynda
Söngfélag sem kennt er við Þor-
lákshöfn syngur sálma og svarar
tóni. Og það er sjálfsagt ekki verri
byrjun á sjómannadegi en hver
önnur að fara í messu.
Baldur Kristjánsson.
Sjómannadagurinn
í Norðfjarðarsókn
SJÓMANNADAGURINN er hald-
inn hátíðlegur í Norðfjarðarsókn
með hátíðarguðsþjónustu í kirkj-
unni kl. 14.00. Í athöfninni er barn
borið til skírnar, börn sjómanna og
félagar í unglingadeild björg-
unarsveitarinnar Gerpis lesa ritn-
ingarlestra. Ræðumaður í hátíð-
arguðsþjónustunni er Aðalsteinn
Valdemarsson, skipstjóri í Fjarða-
byggð. Formaður sóknarnefndar
mun afhenda sjóferðabæn Norð-
fjarðarkirkju í tilefni komu nýs
björgunarskips til Norðfjarðar.
Kór Norðfjarðarkirkju syngur en
stjórnandi er Ágúst Ármann Þor-
láksson. Sjómenn og fjölskyldur
boðin velkomin sem og ferming-
arbörn ýmissa ára sem fagna tíma-
mótum á heimaslóðum. Gefum
Guði stund á sjómannadegi sem og
alla daga. Eftir athöfnina í kirkj-
unni er blómsveigur sjómanna-
dagsráðs borinn í kirkjugarðinn til
minningar um látna sjómenn.
Norðfjarðarkirkja og sóknarnefnd
færir öllum sjómönnum og fjöl-
skyldum þeirra hátíðarkveðjur í
tilefni dagsins.
Sigurður Rúnar Ragnarsson
sóknarprestur.
Sjómannadagurinn,
15 ára afmæli
Grafarvogssafnaðar
HÁTÍÐARHÖLD sjómannadagsins
í Grafarvogi hefjast kl. 10.15–10.30
með því að björgunarbátur frá
Björgunarsveitinni Ársæli í
Reykjavík og smábátar sigla inn að
Grafarvogskirkju, þeirri kirkju
sem stendur einna næst sjó af
kirkjum landsins.
Helgistund verður við fornt
naust, bátalagi sem er fyrir neðan
kirkjuna, en þar fór fram helgi-
stund í umsjá biskups Íslands á
prestastefnu sem haldin var í Graf-
arvogskirkju á liðnu vori. Flutt
verða ritningarorð og kirkjukór-
inn mun syngja sálm við fiðluleik
Steinunnar Harðardóttur undir
stjórn Harðar Bragasonar org-
anista.
Guðsþjónusta hefst kl. 11.00 í
Grafarvogskirkju.
Séra Vigfús Þór Árnason þjónar
fyrir altari.
Örn Pálsson, formaður Lands-
sambands smábátaeigenda, prédik-
ar.
Sjómenn flytja ritningarorð. Kór
Grafarvogskirkju syngur, ein-
söngvari: Sigurður Skagfjörð.
Fiðluleikari: Steinunn Harð-
ardóttir og organisti Hörður
Bragason. Kaffi og kleinur eftir
messu að íslenskum sjómannasið.
Fríkirkjan í Reykja-
vík – sjómannastund
Í TILEFNI sjómannadags, klukkan
11.00. Yfirskrift þessarar stundar
er „Létt stund í helgri alvöru“.
Söngvarinn okkar hinn síkáti
Ragnar Bjarnason ásamt Önnu
Siggu og Carli Möller munu flytja
okkur létta og skemmtilega sjó-
mannasmelli frá liðnum árum.
Barn verður borið til skírnar.
Leikja- og ævintýra-
námskeið í Neskirkju
Í SUMAR, eins og undanfarin ár,
verður Neskirkja með námskeið
fyrir börn á aldrinum 6–12 ára. Á
námskeiðunum er lögð áhersla á
einstaklinginn og að hann fái að
njóta sín, bæði sem hluti af hóp og
sem einstaklingur. Börnin taka
þátt í uppbyggilegum leikjum,
stuttmynd verður gerð og farið í
styttri ferðir í nágrenni Neskirkju.
Í lok hvers námskeiðs er farið út
fyrir borgina og grillað. Hvert
námskeið stendur yfir í eina viku
frá klukkan 13.00 til 17.00. Leikja-
námskeiðin eru fyrir 6–10 ára
börn og byrjar fyrsta námskeiðið
mánudaginn 14. júní.
Þrjú önnur námskeið verða síð-
an í boði sem byrja 21. júní, 3.
ágúst og 9. ágúst. Ævintýra-
námskeið eru fyrir börn á aldr-
inum 10–12 ára. Í boði verða tvö
Gísli Sigurðsson
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
ALDARMINNING
Þórarinn Þórarins-
son, skólastjóri á Eið-
um, var fæddur 5. júní
1904 á Valþjófsstað í
Fljótsdal, Norður-
Múlasýslu. Foreldrar
hans voru Þórarinn
Þórarinsson, prestur
þar (f. 10. marz 1864, d.
3. júlí 1939) Þórarins-
sonar bónda á Skjöld-
ólfsstöðum á Jökuldal,
Stefánssonar, og konu
hans Ragnheiðar (f. 3.
júní 1867, d. 17. marz
1940) Jónsdóttur, pró-
fasts á Hofi, Jónssonar.
Þórarinn lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri 1921
og stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1924. Að loknu guð-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands, hélt
Þórarinn til framhaldsnáms í helgi-
siðafræði, trúarsálfræði og uppeldis-
fræði við háskólann í Marburg í
Þýskalandi, 1929–1930, og í kenni-
mannlegri guðfræði við Pastoralsem-
inarium í Hebron 1930. Hann kynnti
sér æskulýðs- og íþróttastarfsemi í
Berlín 1936 og dvaldi í námsleyfi í
Danmörku og Englandi 1959–1960.
Þórarinn ritaði margar greinar í blöð
og tímarit um hugðarefni sín, svo sem
sagnfræði, menntamál og þjóðmál.
Bókin „Horft til liðinna stunda“, sem
kom út 1981, geymir ýmsar endur-
minningar Þórarins, skreytt teikning-
um höfundar og Þórarins sonar hans.
Þórarinn var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Helga Guðríður (f. 13.
desember 1903, dáin 27. september
1937) Björgvinsdóttir, sýslumanns á
Efra-Hvoli, Rangárvallasýslu, Vig-
fússonar og konu hans Ragnheiðar
Ingibjargar Einarsdóttur. Þau voru
barnlaus. Síðari kona Þórarins er Sig-
rún Ingibjörg Sigurþórsdóttir (fædd
10. janúar 1919) dóttir Sigurþórs
kaupmanns og matsveins í Reykjavík,
Sigurðssonar og konu hans Ingi-
bjargar Halldórsdóttur.
Börn Þórarins og Sigrúnar eru:
Ingibjörg, f. 18. júlí 1941; Þórarinn, f.
28. október 1943; Stefán, f. 26. marz
1947; Sigurður Þór, f. 17. september
1948; Ragnheiður Helga, f. 2. ágúst
1952, Hjörleifur, f. 30. desember 1959,
og Halldór, f. 25. nóvember 1962.
Árið 1930 varð Þórarinn kennari
við alþýðuskólann á Eiðum og tók við
stöðu skólastjóra af Jakobi Kristins-
syni 1938. Eiðastaður fékk rafmagn
frá virkjuninni við Fiskilæk og vor-
ufyrstu ljósin kveikt að kvöldi 30. nóv-
ember 1935. Fullveldishátíðin 1. des-
ember þetta ár nefnist Ljósahátíð í
sögu Eiða.
Nemendur voru 50 talsins veturinn
1938, í tveimur bekkjardeildum og
hélst sú tala að mestu til 1946 en þá
var talan 62 í þremur deildum og 64
árið eftir. Þriðji bekkurinn skiptist
brátt í þrennt og fjórði bekkur bættist
við. Síðasta skólaár Þórarins, 1964–
1965, var tala nemenda á annað
hundrað. Miklar breytingar urðu á
Eiðaskóla í skólastjóratíð Þórarins.
Árið 1943 var lokið við byggingu
íþróttahúss, 9,5x21 m og 11,2 m á
hæð. Sundlaug var á jarðhæð og fim-
ÞÓRARINN
ÞÓRARINSSON
leikasalur á efri hæð.
Mötuneytishús var
byggt 1949 og verk-
námshús 1960.
Hinn 29. júní 1960
brann skólahús staðar-
ins og íþróttahús að
hluta. Þórarinn var þá
fjarstaddur í orlofi, með
fjölskyldu sinni. Var þá
tekin í notkun rishæð
mötuneytishússins.
Þórarinn og fjöl-
skylda missti allt innbú
sitt og persónulega
muni í brunanum. Þeg-
ar Þórarinn lét af skóla-
stjórn á Eiðum, var lokið fyrrihluta
núverandi skólahúss og síðari áfangi
nokkuð kominn áleiðis. Skógargirð-
ingunni lauk 1939 og síðan var gróð-
ursett í friðlandið öll vor. Jaðarhús
voru byggð, fjós og hlöður 1957 og
íbúðarhúsi lokið 1962. ÚÍA tók við
landi BSA, gróðrarstöðvarlandinu á
5. áratugnum og lét gera þar íþrótta-
völl og lauk gerð hans 1948. Þar í
grennd reisti Ríkisútvarpið endur-
varpsstöð 1938. Barnaskóli var reist-
ur þar í nánd og tók til starfa 1959 og
prestssetur flutt að Eiðum 1956. Tvö
íbúðarhús einstaklinga voru byggð og
eitt endurbyggt og stækkað. Þetta
voru helstu verklegu framkvæmdirn-
ar á Eiðum í skólastjóratíð Þórarins.
Árshátíð Eiðamanna var haldin
fyrri hlutann í marz „Marzhátíðin“,
Til skemmtunar voru: ræðuhöld, fim-
leikasýning, kórsöngur, leiksýning,
upplestur og að lokum dans. Kaffi-
veitingar og ríkulegt meðlæti stóð öll-
um til boða. Meðal boðsgesta voru
námsmeyjar frá Hallormsstað og
fjöldi fólks af Héraði og úr Neðra.
Þórarinn starfaði mikið að menn-
ingarmálum á Héraði. Hann átti
mestan þátt í að skipuleggja Menn-
ingarsamtök Héraðsbúa og koma á
samtökum Héraðshreppa um bygg-
ingu héraðsheimilisins Valaskjálfar,
sem vígt var 1966. Valaskjálf tók þá
við af Eiðastað sem funda- og sam-
komustaður Héraðsbúa. Þórarinn
stofnaði kór við skólann og stjórnaði
einnig fjöldasöng á héraðssamkom-
um. Þórarinn hafði samstundir með
öllum nemendum skólans um helgar,
þar sem hann ræddi ýmis mál líðandi
stundar og flutti hugvekju. Eiðaskóli
var merk mennta- og menningar-
stofnun undir stjórn Þórarins og þau
hundruð Eiðamanna, sem nutu leið-
sagnar hans, búa enn að því vega-
nesti.
Þórarinn lét af skólastjórn á Eiðum
1965, eftir 35 ára kennslustarf, þar af
skólastjóri í 27 ár. Þórarinn og Sigrún
fluttust þá til Reykjavíkur. Þórarinn
kenndi síðan í nokkur ár við Kvenna-
skólann. Hann andaðist 2. ágúst 1985.
Eftir komuna til Reykjavíkur stund-
aði Sigrún nám í öldungadeild MH.
Árin 1971–1974 vann hún við MH og
sá um mætingabókhald skólans. Frá
1974–1979 var hún gæzlukona í Þjóð-
minjasafninu og trúnaðarmaður
gæzlukvenna, Sigrún dvelur nú á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í
Reykjavík.
Einar Vilhjálmsson.
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða
á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið
er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins,
Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs-
stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og
klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi,
mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstu-
degi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma.
Birting afmælis- og
minningargreina