Morgunblaðið - 05.06.2004, Síða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 49
ÁSTÞÓR Magnússon forsetafram-
bjóðandi hefur sent útvarpsréttar-
nefnd bréf þar sem hann segir fjöl-
miðla mismuna forsetaframbjóðend-
um og að kjósendum sé gefin skökk
mynd af því sem er í boði í komandi
forsetakosningum.
Ástþór hefur leitað aðstoðar Ör-
yggis- og samvinnustofnunar Evr-
ópu en hann segir m.a. að Ríkisút-
varpið hafi brugðist hlutverki sínu.
„Forsetaframboð Ástþórs Magnús-
sonar hefur ekki, þrátt fyirr ítrek-
aðar beiðnir þar um, fengið aðgang
að fjölmiðlum RÚV til að kynna
stefnumál forsetaframboðsins á mál-
efnalegum grundvelli. Sama gildir
um fjölmiðla Norðurljósa, Stöð 2 og
Bylgjuna,“ segir í bréfinu.
Ástþór gagnrýnir Ríkissjónvarpið
fyrir að senda út boltaleiki en sleppa
alfarið lýðræðislegri umræðu um
forsetakosningar. Þá segir hann
óeðlilegt að ekki hafi verið leitað við-
bragða hjá forsetaframbjóðendum
við þeirri ákvörðun forseta Íslands
að skrifa ekki undir fjölmiðlafrum-
varpið.
Ástþór ósáttur við
umfjöllun fjölmiðla
Fuglaskoðun í Alviðru Í dag, laug-
ardaginn 5. júní kl. 14–16, mun Jó-
hann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur
og höfundur bókarinnar Íslenskur
fuglavísir, fræða gesti Alviðru um
þær fuglategundir sem þar er að
finna.
Gengið verður um nágrennið og fugl-
ar skoðaðir í sjónauka. Boðið verður
upp á kakó og kleinur að göngu lok-
inni. Þátttökugjald er kr. 800 fyrir 15
ára og eldri, ókeypis fyrir börn. Al-
viðra umhverfisfræðslusetur Land-
verndar er við Sog, gegnt Þrast-
arlundi.
Femínistar til sölu Sunnudaginn 6.
júní stendur Femínistafélag Íslands
fyrir sölu á femínistum og er það liður
í fjáröflun félagsins. Í dag laugardag
og á morgun sunnudag verður Fem-
ínistafélagið með kompusölu í Kola-
portinu kl. 11–17 og á sunnudag mun
uppboðshaldari bjóða upp nokkra
femínista. Hæstbjóðendur fá klukku-
tíma með sínum femínista til skrafs.
Hægt er að gefa femínistann sinn til
t.d. ættingja eða þingmanna og er þá
hægt að fá gjafakort fyrir femínist-
anum. Greiðsla er við hamarshögg.
Landsbyggðin lifir fundar Aðal-
fundur samtakanna Landsbyggðin
lifi hefst að Rimum við Húsabakka í
Svarfaðardal kl. 13 30, í dag laug-
ardag. Þar verður auk venjulegra að-
alfundarstarfa rætt um mikilvæg
verkefni, sem eru framundan hjá
samtökunum. Að loknum aðalfund-
inum, verður athöfn í Dalvíkurkirkju,
þar sem Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti Íslands, afhendir
verðlaun í ritgerðarsamkeppni sem
„Landsbyggðin lifi“ efndi til meðal
skólafólks. Verðlaunaafhendingin í
hefst kl. 17:30. Auk Vigdísar og verð-
launahafa, munu skólabörn í Dalvík-
urbyggð koma fram, syngja og leika á
hljóðfæri.
Í DAG
Kaffisala og basar Hrafnistu Á
Sjómannadaginn 6. júní verður kaffi-
sala og basar á Hrafnistu í Reykjavík
og Hafnarfirði kl.14–17. Handa-
vinnusýning og sala á handavinnu
heimilisfólksins verður kl. 13–17 og
einnig á mánudaginn 7. júní kl. 10–17.
Fundur í Vináttufélagi Íslands og
Kanada verður á morgun, sunnudag-
inn 6. júní, kl. 14.30 á veitingahúsinu
Lækjarbrekku. Tryggvi V. Líndal
greinir frá kynnum sínum af marg-
víslegum þjóðarbrotum í Kanada,
sem og hvernig þjóðlífið þar kom Ís-
lendingi fyrir sjónar á áttunda ára-
tugnum. Að loknu hléi verður aðal-
fundur félagsins.
Á MORGUN
Staða neytenda í stækkuðu Evr-
ópusambandi Neytendasamtökin
halda opinn fund um stöðu neytenda
í stækkuðu ESB. Fundurinn verður
haldinn mánudaginn 7. júní kl. 17 að
Grand hótel Reykjavík við Sigtún og
er öllum opinn.
Rasmus Kjeldal, forstjóri dönsku
neytendasamtakanna - Forbrug-
errådet, heldur fyrirlestur. Fyr-
irlesturinn verður fluttur á ensku.
Að fyrirlestri loknum eru fyr-
irspurnir og umræður.
Á NÆSTUNNI
Bókun H-listans
Bókun H-listans í bæjarstjórn
Garðs var ranglega tengd F-listan-
um í frétt um afgreiðslu ársreiknings
Sveitarfélagsins Garðs sem birtist á
Suðurnesjasíðu í blaðinu í fyrradag.
Fyrri bókunin sem sagt er frá var frá
fulltrúa H-listans en seinni bókunin
var eins og fram kom frá fulltrúum
F-listans sem skipa meirihluta bæj-
arstjórnar. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Kiðjaberg í Grímsnesi
Í frétt um afmæli félags húsa-
smiða, sem birtist í blaðinu í gær, var
ranglega farið með nafn jarðarinnar
Kiðjabergs og hún sögð heita Kiða-
berg. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT
SAFNKORT ESSO heldur upp á 10
ára afmæli í dag. Af því tilefni fá
Safnkortshafar tífalda punkta við
kaup á eldsneyti og ýmis vörutilboð
þar sem þeir geta tífaldað verðgildi
punkta sinna. Safnkortspunktar eru
ígildi peninga og jafngilda tíu punkt-
ar tíu krónum. Hátíðarstemning
verður á 10 ESSO-stöðvum í dag.
Boðið verður upp á Fanta, kaffi og
kökur á ESSO-stöðvunum á Ártúns-
höfða, Borgartúni, Háholti, Lækjar-
götu, Selfossi, Egilsstöðum, Akur-
eyri, Sauðárkróki og Borgarnesi.
Í dag og næstu tíu daga geta allir
sem nota Safnkortið dottið í lukku-
pottinn og unnið til vinninga eins og
flugferð með Iceland Express, Out-
back Omega grill, grilláhöld og
heimabíó auk rúmlega 200 annarra
spennandi aukavinninga.
Safnkort ESSO er eitt elsta vild-
arkort sinnar tegundar á Íslandi.
Fyrr á árinu var kynnt nýtt og
breytt Safnkort með rafrænni
punktasöfnun og innlausn punkta.
Fjöldi Safnkortshafa í dag er um
100.000, segir í fréttatilkynningu.
Safnkortshaf-
ar fá tífalda
punkta í dag
VESTFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík fyrirhugar ferð um Vest-
firði dagana 21. til 25. júlí. Til-
gangur ferðarinnar er að afhenda
fjárhæð, sem safnað var á árlegri
Menningarvöku félagsins sem hald-
in var 14. maí síðastliðinn. Að sögn
Guðríðar Hannibalsdóttur, for-
manns félagsins, mun allur ágóði
Menningarvökunnar renna beint til
barna hjónanna Kristínar Ólafs-
dóttur og Stefáns Jóhanns Sigurðs-
sonar, sem létust langt um aldur
fram. Börnin eru búsett á Tálkna-
firði.
Verða helstu staðir Vestfjarða
heimsóttir í ferðinni en hápunktur
ferðarinnar mun vera sigling yfir
Ísafjarðardjúp til Hesteyrar, þar
sem snæddur verður léttur hádeg-
isverður í gamla læknahúsinu. Eru
allir velkomnir en fjöldi þátttak-
enda takmarkast við 36 og skal til-
kynna þátttöku til Guðríðar Hanni-
balsdóttur, formanns Vestfirðinga-
félagsins, fyrir 10. júní nk.
Dynjandafoss í Arnarfirði.
Vestfirðinga-
félagið með
ferð um
Vestfirði
Laugavegi 32 sími 561 0075
Bankastræti 9, sími 511 1135
www.paulshark.is/paulshark.it
Sumarfatnaður
frá Ítalíu
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
ÖNDVERÐARNES 41 - GRÍMSNESI
OPIÐ HÚS UM HELGINA
Vel staðsettur 42,5 fm sumar-
bústaður í landi Öndverðarness.
Húsið er á rólegum stað á fallegri
og kjarrivaxinni 5.000 fm leigulóð,
þar sem töluvert hefur verið aukið
við gróðurinn. Í húsinu er forstofa,
stofa, eldhús, 3 herbergi og snyrt-
ing. Góð 40 fm verönd er á tvo
vegu. Sundlaug og golfvöllur eru á
svæðinu og stutt í aðra þjónustu. Kamína. Kalt rennandi vatn. Raf-
magn og hitaveita við lóðarmörk. Eigendur sýna bústaðinn milli kl. 14
og 17 laugardag og sunnudag. V. 6,9 m. 4074
NÝ VEIRUTEGUND í hrossum
hefur greinst hér á landi. Rannsókn-
ir á vegum embættis yfirdýralæknis
hafa leitt þetta í ljós en frá páskum
hefur borið á smitandi augnsýkingu í
hrossum. Miðað við hve hratt sýk-
ingin hefur breiðst út telur embættið
líklegt að hún hafi borist til landsins í
fyrsta sinn síðastliðinn vetur.
Af þessu tilefni eru hestamenn
minntir á að innflutningur á notuð-
um reiðtygjum er með öllu bannað-
ur. Einnig er bannað að koma með til
landsins notaðan reiðfatnað sem
ekki er hægt að sótthreinsa.
Veiran veldur vægri sýkingu í
slímhimnu augnanna sem gengur
alla jafna niður á nokkrum dögum,
að því er segir í tilkynningu frá dýra-
lækni hrossasjúkdóma hjá embætti
yfirdýralæknis.
Ekki hefur verið tilkynnt um al-
varlegar aukaverkanir eða að sýk-
ingin skilji eftir sig varanleg mein í
augum hrossa. Því hefur ekki verið
ákveðið að grípa til aðgerða til að
hindra útbreiðslu sjúkdómsins. Er
eigendum ráðlagt að fylgjast vel með
hrossum sínum og hlífa þeim við
álagi. Embætti yfirdýralæknis lítur
svo á að sýkingin sé áminning um að
alvarlegri smitsjúkdómar geti borist
í hrossastofninn haldi menn ekki
vöku sinni hvað varðar smitvarnir.
Varað við augn-
sýkingu í hrossum