Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 51
DAGBÓK
Rauðagerði 26 • s. 588 1259
á vönduðum dömufatnaði
í Rauðagerði 26,
í dag, laugardag,
frá kl. 10-18
30-70% afsláttur
Stærðir 36-52
Peysur, bolir frá kr. 1.800
Verið velkomin
www.green-house.is
ÚTSALA - ÚTSALA
VOR - SUMAR 2004
450 fm glæsilegt iðnaðar-
húsnæði. Rýminu verður
skipt upp í 2 notaeiningar,
300 fm og 150 fm, hvor
með sinni innkeyrsludyr.
Mjög góð lofthæð, 7 metrar
við útvegg en 9 metrar við
mæni.
Vésteinn Gauti Hauksson veitir allar nánari
upplýsingar í síma 868 0049
KLETTHÁLS
533 4300 564 6655
Salómon Jónsson
- löggiltur fasteignasali
STJÖRNUSPÁ
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fróðleiksfús og úr-
ræðagóð/ur og átt auðvelt
með að tjá þig. Þú þarft á
aukinni einveru að halda á
árinu til að geta lært eitt-
hvað mikilvægt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú færð tækifæri til að að-
stoða einhvern sem er langt
frá þér. Þú hugsar stórt en
gleymir þó ekki þínum nán-
ustu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú laðar til þín gjafir og
greiða þessa dagana. Búðu
þig undir að taka á móti þeim
tækifærum sem þér bjóðast.
Þú átt happ í vændum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur áhyggjur af velferð
fjölskyldu þinnar og annarra
sem standa þér næst. Leitaðu
leiða til að hjálpa öðrum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er góður dagur til við-
ræðna við samstarfsfólk þitt.
Þú ert hlýleg/ur og skilnings-
rík/ur á sama tíma og þú gerir
þér skýra grein fyrir vanda-
málunum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður dagur til ferða-
laga og hvers konar leikja. Þú
munt einnig njóta þess að
daðra og fara á einhvers kon-
ar listasýningar. Leyfðu þér
að njóta lífsins.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur til mikillar hlýju í
garð þinna nánustu í dag og
átt því auðvelt með að veita
þeim stuðning.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt eiga skemmtilegar
og gagnlegar samræður við
annað fólk í dag. Þetta er því
góður dagur til viðræðna við
samstarfsfólk þitt og systkini.
Þú átt einnig auðvelt með
koma hugmyndum þínum á
framfæri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er góður dagur til fjár-
öflunar, hvort sem þú stendur
ein/n að henni eða með öðrum.
Settu markið hátt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Foreldrar þínir, kennarar eða
aðrir yfirboðarar geta veitt
þér mikilvæga aðstoð í dag.
Þú ættir endilega að þiggja
aðstoð þeirra því þú hefur
unnið fyrir henni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fyrirætlanir þínar varðandi
ferðalög eða útgáfustarfsemi
líta vel út. Hikaðu ekki við að
láta á þær reyna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vin þinn langar til að lána eða
gefa þér eitthvað. Sýndu þá
kurteisi að þiggja það sem þér
er boðið. Þú getur örugglega
fundið einhver not fyrir það
þótt síðar verði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það mun skila þér góðum ár-
angri að vinna með foreldrum
þínum eða nágrönnum í dag.
Fólk finnur til samkenndar og
það auðveldar alla samvinnu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Frances Drake
Á FERÐ UM LANGADAL
Mér eru lífskjör þessi þröng,
því verður margt til tafar,
gangandi manni er leiðin löng,
liggur hún þó til grafar.
Brotinn er vonarvölur minn,
völt og titrandi skriðtólin,
dugur sem hugur dvína.
Fagna ég hvíld í foldarþró,
föðurlandinu slitna skó
gef ég í minning mína.
Bólu-Hjálmar
LJÓÐABROT
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur í dag, laugardag-
inn 5. júní, Vilhjálmur Ein-
arsson, Útgarði 2,
Egilsstöðum, fv. skóla-
meistari og silfurverð-
launahafi frá Ólympíu-
leikunum í Melbourne 1956.
Vilhjálmur og eiginkona
hans Gerður Unndórsdóttir
halda upp á daginn ásamt
fjölskyldu í Reykjavík.
Haldið verður fjölskyldumót
fyrir börn og barnabörn á
Laugardalsvelli í anda
íþróttaskóla Höskuldar og
Vilhjálms.
SVEINN Rúnar Eiríksson
og Erlendur Jónsson voru
í góðu formi um helgina og
pressuðu stíft á landsliðs-
mennina sem nú hita upp
fyrir Evrópumótið í Sví-
þjóð. Erlendur sá í gegn-
um holt og hæðir í þessu
spili:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ÁG
♥D
♦KD1084
♣DG1083
Vestur Austur
♠KD10962 ♠4
♥53 ♥G108762
♦G732 ♦Á95
♣K ♣952
Suður
♠8753
♥ÁK94
♦6
♣Á764
Landsliðsmennirnir
Bjarni H. Einarsson og
Þröstur Ingimarsson voru í
andstöðunni:
Vestur Norður Austur Suður
Bjarni Sveinn Þröstur Erlendur
-- -- 2 hjörtu Pass
2 spaðar Dobl Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Pass 4 lauf
Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Dobl 6 lauf
Pass Pass Pass
Sagnir þarfnast skýr-
inga. Opnun Þrastar er
veikari gerðin af veikum
tveimur, sem sýnir annað
hvort sexlit og 3–7 punkta,
eða þokkalegan fimmlit og
heldur sterkari spil. Tveir
tíglar væri sterkari opnun
með sex-spila hálit (8–10
punktar). Svar Bjarna á
tveimur spöðum er eðli-
legt, en ekki krafa. Sveinn
Rúnar doblar til úttektar
með láglitina, Erlendur
krefur með þremur spöð-
um og síðan liggur leiðin
upp í laufslemmu.
Slemman er fullhörð og
líkleg til að tapast eftir
misheppnaða svíningu í
trompi. En Erlendur hafði
upplýsandi sagnir að styðj-
ast við. Bjarni hlýddi út-
spilsdobli makkers og kom
út með smáan tígul. Er-
lendur vissi hvar ásinn var
og lét lítinn tígul úr borði.
Þröstur fór upp með ásinn
og skipti yfir í hjartatvist,
eins og hann ætti fimmlit.
Sem er góð vörn.
En Erlendur trúði því
rétt mátulega. Hann sá
ekki að austur gæti átt
þrjú hávöld (tígulás og
laufkóng) fyrir fárveikri
opnun, auk þess sem líkur
voru á því að spaðaháspilin
væru skipt (úr því spaða-
kóngur kom ekki út). Hann
hafnaði því svíningunni í
laufinu og spilaði strax
laufi á ásinn!
Þegar enginn við borðið
sagði neitt, ákvað Erlendur
tjá sig: „Ég ER góður!“
Þetta er gamla sagan: það
hrósar manni enginn ef
maður gerir það ekki sjálf-
ur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessar glaðlegu stúlkur voru með hlutaveltu og söfnuðu
3.430 krónum til styrktar Rauða krossi Íslands, þær heita
Ásta Kristín, Hrefna og Þórdís.
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5
4. d4 cxd4 5. Rf3 Rc6 6.
cxd4 d6 7. exd6 e6 8. Rc3
Bxd6 9. Bc4 0-0 10. 0-0 Rf6
11. Bg5 Be7 12. He1 b6 13.
a3 Bb7 14. Dd3 h6 15. Bh4
Rh5 16. Bxe7 Rxe7
17. Had1 Rf4 18.
De3
Staðan kom upp á
heimsmeistaramóti
kvenna sem stendur
nú yfir í Elista í
Rússlandi. Hin kín-
verska Xue Zhao
(2.477) hafði svart
gegn Shadi Paridar
(2.267). 18. – Rxg2!
19. Kxg2 Rf5 20.
Df4 g5 21. Dc1
Rh4+ 22. Kf1 Rxf3
23. He3 Rxh2+ 24.
Ke2 Df6 og hvítur
gafst upp. Aðalfundur
Skáksambands Íslands fer
fram í dag í Faxafeni 12.
Nýr forseti sambandsins
verður kjörinn og fjölmarg-
ar lagabreytingartillögur
liggja fyrir fundinum.
Hægt er nálgast upplýs-
ingar um þetta og fleira á
www.skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Árni Torfason
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu.
Tilkynningar þurfa
að berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.