Morgunblaðið - 05.06.2004, Page 59

Morgunblaðið - 05.06.2004, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 59 Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.  Kvikmyndir.com Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  Ó.H.T Rás2  SV MBL  SKONROKK 21.000 manns á 9 dögum!!! FRUMSÝNING Hvað gerist þegar tveir andstæðingar gifta sig fyrir slysni? Það verður allt vitlaust! Skemmtilegasta og rómantískasta grínmynd ársins. PIERCE BROSNAN JULIANNE MOORE Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Frá leikstjóra Johnny English Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 HP Kvikmyndir.com  ÞÞ FBL „HL MBL  ÓÖH DV  Skonrokk FRÁ HANDRITSHÖFUNDI PANIC ROOM BYGGÐ Á SÖGU STEPHEN KING  Ó.H.T Rás2 www .regnboginn.is Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Sýnd kl. 2.30, 5.30, 8.30 og Powersýning kl. 11.30. Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.  Ó.H.T Rás2  SV MBL  SKONROKK 21.000 manns á 9 dögum!!! Frábær rómantísk gamanmynd sem kemur þér skemmtilega á óvart. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.50. B.i. 16. ÆVINTÝRI á Atlantshafi heitir ný heimildarmynd sem frumsýnd verður í dag, laugardag, í opnu húsi Siglingaklúbbsins Brokeyjar í fé- lagsheimilinu að Austurbugt. Húsið verður opnað kl. 13 og er uppá- koman liður í fjölbreyttri dagskrá Hátíðar hafsins um helgina. Frum- sýning myndarinnar verður þó með óvenjulegu sniði þar sem gestum gefst kostur á að skreppa í siglingu á skútu og koma síðan við í félags- heimilinu og sjá myndina, sem sýnd verður nokkrum sinnum. Í Æv- intýri á Atlantshafi er fylgst með þátttöku íslensku skútunnar Bestu í frönsku siglingakeppninni Skipp- ers d’Islande. Siglt var frá bænum Paimpol á Bretagne-skaganum til Reykjavíkur og aftur til baka og varð Besta fyrst í mark, og í 6. sæti með forgjöf, sem verður að teljast góður árangur þar sem þetta var í fyrsta sinn sem Íslendingar tóku þátt í úthafssiglingakeppni. Ingvar Á. Þórisson er leikstjóri myndarinnar, og mikill áhugamað- ur um skútusiglingar. Hann segir dagskrána haldna til að kynna landsmönnum þetta skemmtilega sport, sem hefur verið að færast í vöxt á síðustu árum. „Við erum svo mikil fiskveiðiþjóð að lítil hefð hef- ur skapast fyrir skútusiglingum hér, en þetta er vinsæl tómstunda- og keppnisiðja víða í Norður- Evrópu. Það getur verið hreint dásamlegt að sigla út um sundin blá á góðum degi og ætlum við að bjóða upp á ókeypis siglingar út fyrir hafnarkjaftinn í tengslum við sýn- ingu myndarinnar, og leggja jafn- framt okkar af mörkum til Hátíðar hafsins.“ Kvikmyndin sýnir ekki eingöngu viðburðaríka siglingu milli Íslands og Frakklands, heldur er þar einn- ig fjallað um þá sögu sem liggur að baki Skippers d’Islande-keppninni og tengslum Íslands og sigl- ingabæjanna á Bretagne-skag- anum. „Hátíðin er að festa sig í sessi en hún er haldin til þess að halda á lofti minningu franskra sjó- manna sem sóttu Íslandsmið af kappi á átjándu öldinni og fram á þá nítjándu,“ segir Ingvar. „Í myndinni er fylgst með áhöfninni á Bestunni og er Baldvin Björg- vinsson skipstjóri þar í aðal- hlutverki. Það var mikið fjör um borð og gekk á ýmsu á leiðinni, enda myndaðist nokkurs konar Ís- land – Frakkland keppnisstemning. En auk þess er í myndinni rifjuð upp útgerð Frakka við Íslands- strendur, en þegar veiðar þeirra stóðu sem hæst um og eftir miðja 18. öld voru hér við land allt að 300 frönsk skip hverju sinni. Þátttaka Íslendinga vakti mikla athygli í keppninni, enda hafa bæjarbúar í Paimpol mikinn áhuga á þessum menningartengslum við Ísland. Að sama skapi veitir þátttaka íslenskra keppenda og áhorfenda kærkomið tækifæri til að rækta þessi tengsl af okkar hálfu,“ segir Ingvar og bætir því við að allir séu velkomnir að koma í opið hús siglingaklúbbsins og upplifa sanna skútusigling- arstemmningu. Morgunblaðið/Þorkell Hér má sjá keppnisskútuna Bestu upp á sitt besta í Reykjavíkurhöfn. Heimildarmyndin Ævintýri á Atl- antshafi fjallar um siglingu skút- unnar milli Íslands og Frakklands. Bíó og sigling í einni ferð heida@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.