Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
LEKI kom að bátnum Gústa í Papey SF
188 um níuleytið í gærkvöldi. Báturinn
sökk síðan um ellefuleytið um sex sjómíl-
um suður af Langanesi. Björgunarsveit-
inni Pólstjörnunni á Raufarhöfn barst
beiðni um að fara með dælur um borð í
bátinn um tíuleytið. Björgunarsveitin
lagði af stað á björgunarbátnum Gunn-
björgu og Bryndísi ÞH. Þrír menn voru í
bátnum og var þeim bjargað af skipverj-
um á Árbaki EA 5, sem var á leið inn til
Akureyrar.
Ágætt veður
Að sögn Stefáns Sigurðssonar, skip-
stjóra á Árbaki EA 5, voru þeir á siglingu
aðeins nokkrum sjómílum frá Gústa í
Papey. Veður var ágætt, hæg norðaust-
anátt. „Við vorum einungis nokkrar mín-
útur á staðinn, og settum út slöngubát yf-
ir til þeirra, og björguðum þeim yfir í
bátinn til okkar um hálftíuleytið. Svo
horfðum við á bátinn sökkva,“ sagði Stef-
án í samtali við Morgunblaðið.
Þrír menn
björguðust
Sökk við Langanes
TVÖ hvalveiðiskip, Njörður KÓ og Halldór
Sigurðsson ÍS, hófu á fimmtudag vís-
indaveiðar á hrefnu, samkvæmt hval-
veiðiáætlun Hafrannsóknastofnunarinnar.
Sjávarútvegsráðherra heimilaði fyrr í vikunni
veiðar á 25 hrefnum í vísindaskyni og hefur
Hafrannsóknastofnunin umsjón með fram-
kvæmd veiðanna. Líkt og í fyrra munu þrjú
unarbúnað á hvalabyssuna um borð, sem til
þessa hefur einkum verið notaður í hernaði.
„Búnaðurinn varpar rauðum punkti á skot-
markið og þannig fæst meiri nákvæmni í mið-
ið. Þessi tækni er þekkt í hernaði og mér skilst
að þetta hafi verið notað við hrefnuveiðar í
Noregi. En þetta hefur aldrei verið reynt hér á
Íslandi áður,“ sagði Konráð.
skip stunda veiðarnar. Tvö skip eru þegar
komin á miðin.
Gísli Víkingsson leiðangursstjóri, sem er um
borð í Nirði KÓ, sagði í gær að sést hefði til
hrefnu en aðstæður á miðunum væru ekki
góðar og því vont að ná þeim.
Konráð Eggertsson, skipstjóri á Halldóri
Sigurðssyni ÍS, hefur sett sérstakan mið-
Ljósmynd/Jóhann Vilhjálmsson
Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður stillir nýja miðunarbúnaðinn. „Ég hef aðeins æft mig með þessum búnaði og hef mikla trú á honum.“
Hrefnuveiðar hafnar með breyttri byssu
HVORKI Sementsverksmiðjan á
Akranesi né Aalborg-Portland á
Íslandi hafa tekið ákvarðanir um
verðbreytingar á sementi vegna af-
náms laga um jöfnun flutnings-
kostnaðar á sementi sem sam-
þykkt hefur verið á Alþingi. Þeir
telja þó ljóst að verð á sementi á
Suðvesturlandi muni lækka eitt-
hvað en verð til staða sem fjærst
liggja muni hækka. Framkvæmda-
stjóri Aalborg-Portland á Íslandi
tekur fram að hann undrist að
breytingarnar séu látnar taka gildi
á aðalverktíma í stað t.d. áramóta.
Verða að laga sig að
breyttum aðstæðum
Gylfi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi, segir ljóst að með afnámi
gjaldsins muni ekki sama verð
gilda fyrir alla „en við reynum að
minnsta kosti að milda þetta eins
og hægt er. En það er náttúrlega
ekki komin nein niðurstaða í þessi
mál enda eldri lögin ekki enn úr
gildi fallin. Flutningsjöfnunin hef-
ur verið til styrktar fyrir þá sem
eru fjærst og borin uppi af þeim
sem næst eru, sama hvort sement-
ið er framleitt hér eða flutt inn.
Sement lækkar því væntanlega
eitthvað á Suðvesturlandi en
hækkar á fjarlægari stöðum.“
Bjarni Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Aalborg-Portland á
Íslandi, segir að þar á bæ séu menn
að innrétta sig eftir þessum breyt-
ingum sem taki raunar til fleiri at-
riða en einungis breytinga á
verðskrá, þar megi t.d. nefna
skipakomur á aðra staði. Hann
segir fyrirtækið nánast enga af-
stöðu hafa til afnáms flutningsjöfn-
unarinnar út af fyrir sig. „Þetta
kemur sér vel fyrir viðskiptavini
hérna næst okkur þar sem við er-
um reyndar með stærstan markað.
Þetta kemur sér illa fyrir þá sem
eru lengst í burtu.“
Bjarni segist engu að síður
undrast að lögin séu látin taka gildi
þegar í stað.
Ný lög um afnám flutningsjöfnunar á sementi
Verð lækkar á
Suðvesturlandi
Morgunblaðið/Kristinn
„VÆGI háskólamanna, hug-
mynda þeirra og rökræðna
hefur minnkað á hinum póli-
tíska vettvangi og atvinnu-
pólitíkusar og embættismenn
hafa yfirtekið umræðuna,“
segir Jón Ólafsson í viðtali um
Ritið, tímarit hugvísinda-
deildar Háskóla Íslands.
Panta sjónarmið
Jón er ekki í vafa um að
breytingar hafa orðið í þessa
veru. „Á áttunda áratugnum
höfðu háskólamenn tvímæla-
laust meiri áhrif á skoðana-
myndun almennings í pólitík
en þetta hefur minnkað mjög.
Stjórnmálamenn gera nú
meira af því að panta einfald-
lega frá hverskyns sérfræð-
ingum þau sjónarmið sem
þeir vilja og það virðist býsna
auðvelt, hvort sem horft er til
þess sem er að gerast hér á
Íslandi eða í löndunum í
kringum okkur. Þessi staða
veldur vissri tilvistarkreppu
innan hug- og félagsvísinda,“
segir Jón.
Áhrif
háskóla-
manna að
minnka
Lesbók/6
Pólitísk umræða
DAGSKRÁ Airwaves-tónlistarhátíðar
liggur að mestu fyrir og bendir margt til
þess að hátíðin verði sú öflugasta sem
haldin hefur verið til þessa.
Erlendar sveitir sem staðfestar hafa
verið eru t.d. Radio 4, The Shins, The
Stills og Keane, allt sveitir sem hafa vakið
mikla athygli að undanförnu í popp- og
rokkheimum og er jafnvel búist við að
fleiri þekkt nöfn bætist í hópinn.
Að auki mun vel á þriðja tug rokk- og
framúrstefnutónlistarmanna frá Íslandi
koma fram á hátíðinni, þ.á m. Leaves, Mín-
us, Mugison, Singapore Sling, Ske, Botn-
leðja og Jagúar.
Airwaves er alþjóðleg tónlistarhátíð
sem haldin hefur verið árlega síðan 1999.
Hróður hennar hefur vaxið með hverju ári
á erlendri grundu og er gert ráð fyrir að
hundruð erlendra blaðamanna og útsend-
ara frá stórum hljómplötuútgáfum komi
hingað gagngert til að fylgjast með hátíð-
inni, sem fram fer dagana 20.–24. október.
Keane og Shins
á Airwaves
Tilkomumikil/60
BANASLYS varð á Garðbraut í Garði í gær-
kvöldi þegar ökumaður bifhjóls lést í árekstri
við bifreið. Var hann fluttur með sjúkrabif-
reið þungt haldinn á Landspítalann í Foss-
vogi en úrskurðaður látinn þegar þangað
kom. Tilkynning um slysið barst lögreglunni
í Keflavík klukkan 20.39 í gærkvöldi og var
sendur neyðarbíll frá Reykjavík eftir hinum
slasaða.
Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá lög-
reglunni og urðu með þeim hætti að bifhjól-
inu og bifreiðinni var ekið norður Garðbraut.
Ökumaður bifreiðarinnar hugðist snúa bif-
reið sinni við á veginum en þá var bifhjólinu
ekið í hlið bifreiðarinnar. Ökumaður bifhjóls-
ins var 42 ára karlmaður. Ekki er unnt að
birta nafn hans að svo stöddu.
Beið bana
í bifhjólaslysi
♦♦♦