Íslendingaþættir Tímans - 22.04.1970, Blaðsíða 4

Íslendingaþættir Tímans - 22.04.1970, Blaðsíða 4
Sjá, íossar þínir og fallvötn mörg nú færa afl sitt í nýja strauma, og slkapa þjúðinni birtu og björg og blessun jaínt þeim ríka og auana. Þeir symgja djarft með sigurbjört- um hreim og sjáið — fjöllin lyfta söngvum þeirn um bygigð og borg, um bæ og torg í sigurhljóm til sona og dætra. Þín býli stækika og blómgast hjörð og barrskógaTnir vaxa á heiðum. Já, síl-græn verður sandauðn igjörð og samgöngur á vegum breiðum. Nú fólkið þitt er á framfarabraut, svo frjálst og þjarft við hverja nýja þraut. Með þrótt og þor og þjóðar vor efst i hjarta og huiga sínum. Þú landið bjarta, munt lýsa vítt og ljóma slá á norðurslóðir, og skapa þjóðlíf svo hreint og hlýtt að hér að dáist margar þjóðir. Þín börn öll munu samam lifa í sátt og samistillt efla gæði þín og mátt, með dáð o g dug og þjörfum hug, í trú á guð og giftu þína. Við komu m/s Óðins 1960: Beffi af hafi „Óðiinn“. HeiOl til heimastrandar. Hér fagna þér öll fijóðin, hér fagna þér allir landar. Þú munt þjóðarsómi þímu heill í starfi, farkosturinn frómi, forimginn glæsti, djarfi. Stökk þú féndum á flótta færðu út þjóðarhaginn, laus við allan ótta á það vertu laginn. Heffi þér fylgi á hafi. Heffi í skut og stafni. Geiela muntu gjafi goðsins undir nafmi. óskhyg'gja Maignúsar Jakobsson- ar og draumsýnir miðuðust allar við vaxandi gengi íslands og ís lendinga, batnandi þjóðarhagi, og vaxandi manndóm þegnanna. Sjálf ur var Magnús maður sem gerði kiröfur, að vísu hóflegar, um mann gildi og manndóm samferðamanna sinna, en þó mestar til sj-álfs sín, og Magnús 3á aJdrei á liði sínu og hivert það rúm, sem hann skipaði, jafnt á sjó og landi, var vel skip að, svo samjöfnuður i þeim efn- um stóðst aíla viðmiðun. Magnús var hjálpsamur m.aður og sístarf andi að því að veita torfærum úr leið samborgara sinna og mun mörgum, að homum látnum, bregða við og sakna vin ar. Þau voru ófá sporin sem Magnús gekk húsa á milli til þess að hjálpa nágrömn um og kunninigjum og lagfæra margt sem úr skorðum haíði geng- ið. Það bar ekki ósjaldan við, á helgidögu-m er Magnús hafði spariklæðzt, að kom-ið var til hans til að fá hann til að lagfæra og laga og leysa vanda. Og það stóð aldrei á Magnúsi að fara úr spari fötunum og klæðast vinn-uföt-um til þess að leysa vanda þa-nn, sem að steðjaði hverju sinmi og aldrei tók Magnús gjaid fyrir sMka hjálp semi unna utan venju-l-egs vinnu- tíma. Stofan: Þótt stofan sé litil og lág og lítið um myndir og prjál, vist hlý getur orðið og há, ef henni í fögur býr sál. Fyrir Arnþór vin sinn kvað Magnús þennan skólasöng, sem hann nefndi Hvöt: Befjum sönginn hátt upp gaman: hlýðum okkar innri rödd. Stffium hljóma sterka saman stöndum upp þá erum kvödd henni af, að halda veginn hún sem okkur bendir á. Sjá, þá verðum sólarm-egin, því svona hugsa munum þá: Læra viljum stórt að starfa, stíga firam í rétta átt, landi verða og þjóð til þaría þreyta nám og stefna hátt, bera í huga bróðuranda, bæta það, er miður fer, reka burt þann ramma fjanda, sem rænir friði og eining ver. Hugsun vekur, líf og listir lægimg úr og gefur það: Allir viíja verða fyrstir vizkubrunnum koma að. Súpa úr þeim svaladrykkimn, sína mynd þar rétta fá speglaða á spegilfl'eti, er spjöldin sögu ritast á. Heiiræði: Viljir þú vinur kær verða í llfi sæll, rétt öðrum hjálpanhönd hér þegar færi gefst, miumtu þá safna sjóð, sem að ei rýrnað fær, göfigar og glæðir sál, gefur þér mesta heill. Heimþrá, tileinkað Arniþóri Helgasyni undir lagi hans, Heim þrá: Hugur leitar heim til þin Heimaeyjan glæsta mín árdagssól er á mig skín umvefuir mig geislum sín. Gullið eins og guðavín glitra ’in m-júku urn þig lín. Hu-gur leitar heim til þín Heimaeyjan glæsta mín. Leikur um mig léttur blær lyftir mér, til dáða slær, ef eg veit að ertu nær Eyjan kæra, þráða mær. Úfinn þótt að orgi sær eða þótt kaldur snær, leikur um mig léttur blær lyftir mér, til dáða slær. Hugur leitar heim til þín Heimaeyjan glæsta mín, árdagssól er á mig skín umvefur mig geislum sín. Guillið eins og guða-vín glitra ‘in mjú'ku um þig lín. Huigur leitar heim til þín Heimaeyjan glæsta mín. Tileinkað Ernu Jóhannesdóttur, feguirðardrottningu Vestmanna eyja, dótturdóttur Margrétar og Stefáns í Skuld, ort í orðastað Errnu: 1 Amma (Margrét) Elisku bezta amm-a mín ég uni vei hjá þér, þú ert s-vo góð og yndisfín og ætíð hjálpar mér. Ef eitthvað amar að ailt þú skiluir það, með blíðu þinni, elsku amma alit þú bætir það. 2 Langamma (Guðfinna Egilsdótt- ir, móðir Margrétar) Kær mér ein er kona kona nett og fín, hún er yfir níirætt og amma „l-anga“ er mdn. 4 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.