Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Qupperneq 14

Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Qupperneq 14
"T'«r 'v MINNINC Valgerður Jónsdóttir og Guðrún Jónsdóttir ; Báðar fæddust systurnar í Hafn- : arfirði, Guðrún 6. jan. 1878 og Val- gerður 12. apríl 1887. i Foreldrar þeirra voru merkis- 1 hjónin Jón Bjarnason kaupmaður ; óg kona hans Helga Árnadóttir, ; Árna Hildibrandssonar járnsmiðs og hreppstjóra í Hafnarfirði 1880— ! Í915, og konu hans Ingibjargar Jónsdóttur, útvegsbónda Árnason- ar frá Ofanleiti í Reykjavík. Ingi- björg dó ung í. á þrem börnum á unga aldri voru það: Kristín L. Árnadóttir, Árni Árnason og Helga i Árnadóttir. Árni Hildibrandsson j kvæntist í annað sinn, Valgerði I Brynjólfsdóttur og ól hún upp börn fyrr konu lians, en með Val- • gerði eignaðist Árni ekki börn. Val gerður Brynjólfsdóttir mun hafa verið mikilhæf merkiskona en all- skaphörð mun hún hafa verið og alið börnin upp við hörku og vönd- ^inn, eins og alltítt var í þá daga. Til marks um það heyrði ég eftir- ’farandi sögu. Helga hafði verið eitthvað óþekk og stjúpan refsar henni með vendinum og grenjar Helga þá ein ópsöp, Kristín litla heyrir þetta og vorkennir systur sinni, horfir agndofa á og tekur til að grenja lika, hættir stjúþan þá við að flengja Helgu en tekur Krist i ínu í staðinn. Önnur saga, sem lýs- ; ir hörku stjúpunnar og þá við ! hana sjálfa, er á þessa leið: Hún hafði fengið það sem kallað er „kartneglur” á fingur _.beggja i handa, var þetta slæmur kvilli og sórstaklega þar "sem hún var ljós- móðir. Hún fer þá út í smiðju , bónda síns, tekur þar föng og kipp ir öllum veiku nöglunum burt og mun þetta varla heiglum hent. Valgerður Jónsdóttir Grettis- götu 11, var vel metin og mikil- hæf kona, félagslynd var hún og kom það sérstaklega fram á efri árum hennar. Þegar hæfileikar hennar voru kunnir vildu oft hlað- ast á hana ýmis konar félagsstörf t.d. var hún gjaldkeri í sjálfstæð- isfélaginu „Hvöt“ árum saman, þar nutu sín hæfileikar og áreiðan- leiki hennar. Valgerður giftist ung að árum (1908) Jens Eyjólfssyni bygginga- meistara og var hún ávallt rnanni sínum traustur förunautur. í starfi hans komu hæfileikar Valgerðar skýrast fram, vann hún með hon- um að öllum teikningum og út- reikningum varðandi starf hans. Var það mikil og vandasöm vinna þar eð hann tók að sér að byggja mörg stórhýsi hér í borg og jafn- vel víðar á landinif. Valgerður fór ekki varhluta af erfiðleikum og songum lífsins, hennar stærsta sorg mun þó hafa verið er hún missti unga og efnilega dóttur sína Helgu að nafni átta ára gamla. Son áttu þau hjónin einnig. Hann var lieilsuveill og dó á bezta aldri. Var hann kvæntur Helgu Ásmunds- dóttur og var það lán Valgerðar því tengdadóttirin reyndist henni sem bezta dóttir. Sonarsonur henn ar Vignir að nafni var augasteinn ömmu sinnar. Valgerður var höfðingleg rausn- arkona bæði í félagsstörfum og í einkalífl. Þá er mér minnisstætt hve frændrækin Valgerður var og> hjálpfús við alla og naut ég oft þessara kosta hennar. Ég var alin upp hjá ömmu minni og afa og var ekki alltaf um mikla peninga að ræða hjá gömlu hjónunum og voru það ekki úfáar skólabækurn- ar er ég fékk hjá henni, því henn- ar barnaskólabækur átti hún sem ónotaðar væru. Einnig hafði ég t# ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.