Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Page 19

Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Page 19
MINNING Georg Richard Hansen bankaútibússtjóri Hinn 21. júní s.. anda'öist Georg Hansen útibússtjóri Landsbanfea ís- ands á ísafirSi, einn af þekktari bankamönnum þessa lands. Þessa kunna bankamanns var minnzt á fundi bankaráSs Landsbanka ís- lands fyrir skömmu. Flutti for- maður bankaráðsins, Baldvin Jóns- son hæstaréttarlögmaður, ávarp, þar sem liann minntist hins látna útibússtjóra. Fer það hér á eftir. Síðan við komum saman hér síð- ast, hafa þau sorgartíðindi gerzt, að einn af mætustu og duglegustu starfsmönnum bankans, Georg Hansen, útibússtjóri á ísafirði, lief- ur látizt. Hann andaðist aðfaranótt hins 21. júní, langt um aldur fram, tæplega sextugur að aldri. Andát hans kom okkur, vinum hans og kunningjum að vísu ekki á óvart, þar sem hann hafði um nokk urt skeið att við ólæknandi sjúk- dóm að etja, sem að lokum varð honum að aldurtila. Eigi að síður eigum við, eins og ávallt áður, örð- ugt með að sætta okkurvið dauð- ann, þegar hann ber að garði fyrr en ætlað er. Þá skapast tóm, sem erfitt er að fylla, ekki sízt þegar mikilhæfur maður á borð við Georg Hansen á í hlut. Geong Richard Hansen, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur hinn 27. nóvember 1911 í Reykja- vík og voru fereldrar hans þau hjónin Valdemar Hansen, forstj. Hins íslenzka steinolíuhlutafélags, danskur að ætterni, og kona hans Hlíf Þorvarðsdóttir fædd Sívert- sen. Ungur að árum hóf hann nám í endurskoðun og gerðist að því loknu starfsmaður í endurskoðun- ardeild Landsbanka íslands árið 1931. Bókari útibúsins á ísafirði var hann á árunum frá 1938 til 1942 og fulltrúi í ýmsum deildum bankans frá árinu 1942 til 1954. Frá áramótum 1955 var hann skip- aður forstöðumaður endurskoðun- ardeildar bankans og var í því starfi til ársins 1961, er hann var gerður að forstöðumanni endur- skoðunardeildar og bankaeftir- lits Seðlabanka íslands. Því starfi gegndi hann til ársins 1968, er hann var skipaður útibússtjóri Landsbankans á ísafirði og gegndi hann því starfi til dauðadags. Kynni okkar Georgs heitins eiga sér langan aldur og hófust þegar á æskuárum okkar í Skuggahverf- inu hér í Reykjavík, en hann átti lengi heima á Frakkastíg 7, en ég í næsta nágrenni. Ólst hann þar upp ásamt Katrínu systur sinni, konu Leifs Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra, á glæsilegu heimili, þar sem ekki einungis ríkti stak- asta reglusemi og festa, heldur og glaðværð og hlýja húsmóðurinnar. Var heimilisbragður þar hinn feg- ursti og s-iyrhmeimrka svo af hrr enda var Valdemar, faðir Georgs stjórnsamur og smekkvís með af- brigðum. Þessa fagra heimiis er gott að minnast og átti ég þar margar gleðistundir. Með okkur Georg tókst þegar góð og einlæg vinátta, sem aldrei bar skugga á og entist til æviloka. Það kom fljótt í ljós, að Georg heitinn bjó yfir sterkri og ákveðinni skaphöfn, sem reyndist honum gott veganesti þeg ar út í lífið kom. Honum veittist þó auðvelt að starfa með öðrum og naut hvarvetna vináttu og virð- ingar samstarfsmanna, enda veit ég, að hann var ávallt manna rétt- sýnastur og traustur í samskipt- um sínum við aðra menn. Þessa trausts naut hann einnig hjá yfir- boðurum sínum, enda fór veg- ur hans vaxandi eftir því sem árin liðu og voru honum falin æ vanda- samari og veigameiri störf. Georg heitinn var kvæntur Gróu Vigdísi Guðjónsdóttur og lifir hún mann sinn ásamt þrem mannvæn- legum börnum þeirra. þeim Valde- mar lækni, kvæntum Ernu Andrés- dóttur, Dóru giftri Árna Guðjóns- syni og Hildi giftri Sigurði Ólafs- syni. Georg var góður'heimilisfaðir og ^ er sár harmur kveðinn að fjöl- skyldu hans, þegar hann nú hverf- ur af sjónarsviðinu langt um aldur fram. Sendum við henni innilegar samúðarkveðjur. Ég þykist mæla fyrir munn okk- ar allra, þegar ég nú að leiðarlok um kveð góðan dreng og þakka hon um frábær störf í þágu Lands- banka íslands um meir en 40 ára skeið. Má ég biðja menn um að rísa úr sætum í virðingarskyni við hinn látna. Hann hvíli í friði. t Georg Hansen, bankaútibússtj, á ísafirði, lézt í Reykjavík 21. júní eftir langa sjúkdómsþraut. Hann fæddist 27. nóvember 1911. Voru foreldrar hans, Valdemar Hansen, danskrar ættar, og kona hans Hlíf Þorvaldsdóttir (Sívertsen úr Hrappsey). Valdemar Hansen var um mörg ár forstjóri Hins íslenzka steinolíuhlutafélags, maður vin- ÍSLENDINGAÞÆTTIR 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.