Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Síða 29

Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Síða 29
skyldi ekki veitast tækiíæri lil þingsetu: þá fölsku stimamýkt, sem mörgum atkvæðaveiðara sýn- ist næstum ásköpuð, hefði hann aldrei haft geð í sér til að temja sér, né heldur hefði hann getað fylgt flokksforystu svo dyggilega, sem foringjar mundu krefjast. Oddur mun nú vera sá skóla- stjóri, sem langlengst hefur gegnt slíku embætti allra núlifandi skóla stjóra hérlendis, eða fast að hálf- an fjórða áratug. Starf skólastjóra er margþætt, tímafrekt og vanda- samt, og á því sviði er ekkert sem heitir að gera skyldu sína og þar hieð basta Eigi vel að takast, verð Ur skólastjóri að vera vakinn og sofinn í stofnun sinni, eins og hún væri hún hans eigin. Minnisstæð er samlíking Magnúsar Landshöfð- ingja, er hann sagðist hafa verið eins og lús á milli tveggja nagla. Skólastjórinn stendur ekki milli tveggja, heldur þriggja elda: nem- enda, foreldra og síðast, en ekki sízf — kennara sinna, og eru áhöld um, hver þeirra brennur honum heitast á baki. Hann verður því að vera ákveðinn, en ekki síð- ur laginn og lempinn. Sumir halda þessum aðilum í skefjum með því að ífærast hjúp dulúðar og íbyggni. Það hefur Oddur aldrei gert. Ávallt hefur hann staðið mitt í hópi síns fólks, aldrei reynt að sýnast annar en hann var og aldrei þótzt of góður til að blanda geði Við aðra menn, ekki heldur þá, sem starfað hafa undir stjórn hans. Þó segja megi um hann, eins og venja er að komast að orði um frægar stjörnur, að Iff h»ns hafi ekki alltaf verið rósum baðað, hef- ur honum veitzt sú gleði, sem hverjum starfsmanni veitist mest-. að sjá árangur erfiðis síns. Reynsla hans er nú orðin svo fjölbreytt, að síbreytileg tilbrigði daglegs lífs eiga ekki að koma honum svo mjög óvart. í einkalífi hefur Oddur verið lánsamur maður. Á heimili hans hefur jafnan ríkt fjör og lífsgleði, og má ekki síður þakka það frú Magneu, konu hans, og börnum þeirra hjóna, sem eru nú sum horf in að heiman, en önnur enn heima. Þau hjónin hafa ekki aðeins stutt hvort annað og byggt upp heimili sitt með sameigilegu átaki, held- ur — og engu síður — bætt hvort annað upp með ólíkum 'hæfileik- um. Oddur er þéttur á velli og þétt ur í lund, enda hefur hann því aðeins náð sínu marki, að hann hef ur' ekki haft fyrir sið að láta í minni pokann. Frú Magnea er aft- ur'' á móti gædd svo léttri glað- værð, að enginn getur verið öðru vísi en í sólskinsskapi í návist hennar. Bæði eru með afbrigðum skemmtiii. gestrisin og hjálpfús. Og þar eð frændgarðurinn er á báða bóga fjölmennur, hefur hús þeirra legið svo sem um þjóð- braut þvera. Þeir, sem hafa leit- að þar athvarfs og átt þar gleði- stundir, eru fleiri en tölu verður á komið. En þvílík risna kostar sitt. Er ekki of djúpt tekið í ár- inni að segja, að hvorugt þeirra hjóna hafi nokkru sinni hlíft sér við erfiði né fyrirhöfn. Enda hef- ur fjölskyldan lengstum verið fjöl- menn, þó nú sé aftur tekið að fækka í húsi þeirra:, börnin eru sex. Þegar Oddur nú lítur yfir far- inn veg, sextugur, hefur hann vissulega margs að minnast. Allt hefur starf hans verið unnið í þágu annarra, og mundi margur telja það gæfuríkast líf og farsælast. En er ekki hverjum manni liollt að láta eftir sér nokkra eigingirni — ögn meiri en Oddur hefur gert, vinna ekki öðrum allt, en ávinna sjálfum sér hluta af afrakstri erfiðis síns? Því verður ekki haldið hér fram, að Oddur hafi ekki verið á réttri hillu í lif- inu sem skólamaður, en hitt grun- ar mit, að hann hefði getað verið á réttari hillu. Ekki svo að skilja, að hann hafi ekki leyst af hendi öll störf sín þar að lútandi með prýði og meira en það. En sú er nú einu sinni raunin, að fræðslu- málunum fylgja einatt smásmygli og lágkúra og alls kyns fánýtt rex og yfirborðsmennska, sem get- ur átt vel við hæfileikasnauð sterti- menni, en hlýtur að vera til ama góðum mönnum, sem kunna sitt fag. Á engum vettvangi þjóðfé- lagsins er hálfmenntunin og með- almennskan vænlegri „til frama og áhrifa“, né heldur er skapandi frumkvæði nokkurs staðar minna metið í reynd. Mér segir svo hug- ur, að mikil starfsorka Odds liefði notið sín betur á öðrum vettvangi. Eg get séð hann fyrir mér sem stjórnanda stórs fyrirtækis með fjölmennu starfsliði og miklum umsvifum, þar sem hann hefði haft óbundnar hendur til að tefla til vinnings. Og enn annað: Oddur er svo ritfær maður, að langt er framar öllu meðallagi. En þann hæfileika hefur hann lítt rækt- nema í þágu þess málstaðar, sem hann hefur helgað drjúgan hluta tómstunda sinna, og á ég hér' við stjórnmálin. Skáldskapariðkunum hefur hann ekki heldur sinnt að neinu marki, en er þó prýðilega hagmæltur og smekkmaður á eldri skáldskap (og kannski líka hinn yngri, en um hann erum við gróf- lega ósammála). _Og lesinn er Odd- ur í beztu merking þess orðs, og engan mann þekki ég, sem betur vitnar í ræður og rit annarra eins og gerst á við hverju sinni. Hitt er þó ef til vill minnisstæðast, hversu kjarnyrtur hann getur ver- ið í mæltu máli, þar er hvorki tæpt á orði né málsgrein né fals- aður steðji sannleikans með óljósu orðalagi. Þegar Oddi er nú árnað heilla á þessum tímamótum ævi sinnar, má með sanni segja, að hann hafi verið sinnar gæfu smiður og gæfu- maður, mest fyrir þá skuld, að hann hefur verið veitandi, en ekki þiggjandi í samfélaginu. Hann er sprottinn úr þeim rama jarðvegi, sem má, hvort heldur vill, kenna til fortíðar eða hreint og beint til — forneskju Ætti hann að lifa, varð hann að ryðja sér til rúms eins og víkingarnir forðum. Og það gerði hann. Þess vegna er engin hálfvelgja með Oddi, þess vegna er ádráttur hans haldbetri en lof- orð annarra. Kynni af slíkum mönnum eru meira en dægrastytt- ing, þau eru fyrst og fremst reynsla, lærdómur, menntun. Erlcndur Jónsson. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 29

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.