Íslendingaþættir Tímans - 30.12.1971, Blaðsíða 23
Krlstjáns, en uppeldis- og kjörson-
ur allt frá barnæsku. Volli heitinn
ólst upp hjá foreldrum sínum í
Sandvík ásamt þrem yngri systkin-
um, og hefur hiS góða og heilsu-
samlega uppeldi, sem hann hlaut,
eflaust átt sinn þátt í að gera hann
að þeim afbragðsmanni, sem hann
var.
Mér er ljúft að minnast þeirra
möngu samverustunda, sem við
Volli heitinn áttum saman. Frænd-
systkinahópurinn á Leirhafnarbæj-
unum var stór, þegar við vorum
að alast upp, og þá leið varla svo
dagur, að við krakkarnir værum
ekki einhvers staðar saman, annað
hvort að leik eða stöi'fum. Býst ég
við, að hvert okkar urn sig eigi
sínar sérstöku minningar frá þeim
dögum. En einkum treystust nú
vináttuböndin á milli okkar Volla
heitins nú á síðustu árum, því á
undanförnum sumrum höfum við
oftast unnið saman, hvort held-
ur hefur verið á sjó eða landi.
Hugur Volla heitins hneigðist mjög
að sjónum, og þangað sótti hann
atvinnu sina að mestu leyti, eftir
að hann fór að vinna utan heimilis-
ins. Þó var hann alls ekki frábit-
inn landbúnaðarstörfum, allra sízt
þeim, sem sauðfénu tilheyrðu.
Sléttan var honum ákaflega kær,
og þar hefði hann sennilega fest
rætur, hefði honum enzt aldur til.
Volli heitinn var liæglátur og
fremur seintekinn, en mjög trygg-
Jensína Fanney Karlsdóttir
Fædd 23. október 1931.
Dáin 23. október 1971.
Sunnudaginn 24. október s.l. bár
ust mér þau válegu tíðindi að vin-
kona mín Daisy, á Njálsgötu 52 b,
hefði dáið af slysförum í Svíþjóð
á afmælisdaginn sinn, þegar hún
var 40 ára gömul, daginn áður, 23.
október.
Jensína Fanney eins og hún hét
fullu nafni fæddist í Reykjavík 23.
október 1931. Foreldrar hennar
voru Karl 0. Jónsson sem lengi
var forstjóri Garðs h.f. í Sandgerði
ög kona hans Hulda Pálsdóttir.
Jensína fluttist frá Reykjavík
þriggja ára gömul ineð afa sínum
og ömmu, þeim Jensínu Teitsdótt-
ur og Jóni Erlendssyni, en
þau tóku þá ábúð á jörð-
inni Sandgerði i Miðneshreppi
ásamt foreldrum liennar. Nokkr-
um árum síðar fluttust þau
að jörð sinni Klöpp í sömu
sveit. Jensína ólst upp hjá afa sín-
um og ömmu við mikið ástríki og
var það gagnkvæmt. Með afa og
ömmu fluttist luin til Keflavíkur
þegar hún var 12 ára gömul og
var þar samvistum við þau, þar til
hún varð 23 ára. í æsku hlut hún
nokkra menntun meðal annars í
Samvinnuskólanum í Reykjavík og
Húsmæðraskóla Suðurlands. A
æskuárum sínum vann hún á sím-
stöðinni í Keflavík um nokkurt bii,
en 23 ára gömul giftist hún Giss-
ur og einlægur vinum sínum.
Hann var glaðvær og fjörugur í
vina hópi og átti þá til að glettast
við þá, sem liann vissi, að gaman
hefðu af. Hann var ákaflega vand-
virkur og samvizkusamur í starfi
og vel liðinn af yfirboðurum sín-
um, væri hann undir annarra
stjórn.
Það er mikill missir fyrir fá-
menna byggð, að sjá á eftir slík-
um efnismam*., 3em Volli lieitinn
var, og það stóra skarð, sem hann
skilur eftir, er vandfyllt.
Blessuð sé mi.nning hans.
K.L.
uri Þorvaldssyni loftskeytamanni.
Þau eignuðust tvær dætur Ragn-
hildi Jónu 17 ára og Huldu Krist-
ínu 13 ára. Áður en Jensína giftist
eignaðist hún son. Karl Kristinn
Júliusson sem er 19 ára.
Jensína og Gissur slitu samvist-
um árið 1963. Litlu síðar hóf hún
störf á auglýsingaskrifstofu dag-
blaðsins Tímans og vannþar t.il árs
ins 1968, en þá gerðist hún aug-
lýsingastjóri Vikunnar og starfaði
þar, þar til hún fluttist með eftir-
lifandi eiginmanni sínum Hilmari
Sigurðssyni vélstjóra til Gautaborg
ar fyrri hluta árs 1970. en á þvi ári
giftust þau.
Samliliða störfum sínum við dag
blaðið Tímann og Vikuna hélt hún
heimili fyrir börn sin og hafði þvi
oft langan vinnudag, en hún var
framúrskarandi dugleg kona og
við sem þekktum hana vel urðum
þess ekki vör að hún ætti annrikt.
Gestrisni hennar var mikil og ein-
læg og varð þess ekki vart að hún
ynni heimilisverkin eftir venjuleg-
an vinnudag á skrifstofu. Daisy
var glæsileg kona ásýndum og
mjög vel greind og einhvern veg-
inn hafði lnin tíma til lesturs góðra
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
23