Íslendingaþættir Tímans - 30.12.1971, Page 27

Íslendingaþættir Tímans - 30.12.1971, Page 27
ATTRÆÐUR: HERMANN JÚNSSON A YZTA-MOI leið vel. Þau höfðu oft börn á sumr in. Ég hef átt tal við þau sem full- orðið fólk, það er sama ástin til þessara hjóna. Þau áttu 4 börn, 3 dætur og 1 son, mjög myndarlegt og gott fólk, er sýnir að þau eru al- in upp á góðu heimili. En því mið- ur dó Þórður fyrir aldur fram, svo hún breytti sínum högum og seldi jörðina og keypti sér hús í Stykkis- hólmi og fluttist þangað með börn sín, er voru orðin uppkomin að mestu. Hún vildi geta látið þau njóta betri skilyrða til lærdóms en hún sjálf naut, heldur en að vera kyrr. Ég og fjölskylda mín fluttumst til Reykjavíkur fyrir 23 árum og fylgdumst því ekki með högum fjölskyldu frænku minnar. Því það var komin vík milli vina. Ég minnist þess oft í huga mín- um, hve gaman var að koma í litla hlýja bæinn að Glaumbæ til fjöl- skyldunnar, þetta elskulega við- mót. Það var ekki hátt til lofts né vítt til veggja, en þar sem kærleik urinn ríkir verður allt unaðslegt. Þóra var mjög músíkölsk og hafði fallega rödd og hefði hún lært söng, er ég viss um, að þar hefði hún skarað fram úr, enda átti til söngfólks að telja má segja í allar ættir. Þegar hún kom til okkar að Stórahrauni, sem ung stúlka, þá var aldeilis tekið lagið, því að við systkinin höfðum ánægju af slíku Ég gæti skrifað langt mál um þig fræn'ka mín, og þína góðu foreldra er við systkinin nutum svo oft góðs af. En minningin um þig lif- ir í huga fjölskyldu minnar, kon- an mín þa'kkar þér fyrir kær- ar stundir, er hún mun alltaf minnast með hlýhug og hrifningu og þegar þú ert nú horf- in sjónum okkar, þá er það hugg- un mest fyrir börnin þín og okkur öll er vorum tengd þér, að eiga minningarnar um þig slíkar, er færa okkur heim sanninn um það að þeim sem ganga á guðsvegi verði allt til blessunar. Það var sárt fyrir þig að missa þinn góða mann, en guð gaf þér góð og efnileg börn. Eitt veit ég, að þú hefur oft í bænum þínum þakkað það. Ég samhryggist börn- um þínum og fjölskyldum þeirra og veit að þið viljið öll feta í fót- spor foreldra ykkar. Hafðu þökk fyrir allt gott. Þórarinn Árnason frá Stórahrauni. Áttræður varð hinn 12. desem- ber 1971, einn hinn ágætasti Skag- firðingur, Hermann Jónsson á Yzta-Mói í Fljótum. Hann er að vísu barnfæddur Vestfirðingur, borinn á Bíldudal, sonur Jóns verk stjóra þar Sigurðssonar og konu hans Halldóru Magnúsdóttur. Og á Vestfjörðum munu ættir hans standa. En hingað til Skagafjarðar lagði hann leíð sína árið 1909, 18 ára gamall, eftir að hafa lokið prófi frá Verzlunarskóla íslands. Það var okkur Skagfirðingum mik- ið happ, er þessi ungi Vestfirðing- Um örlög sín neitt veit enginn maður utan það eitt að allir deyja, þó verður helfregn í hlustum vorum oftast óvæntur angurboði. Vinátta okkar var ekki bundin stundargleði sem stundum gleymist, hún var ávöxtur æskukynna tengd gleði og sorg á göngu lífsins. Vel man ég þig á morgni lífsins, Tiávaxna, fríða og fagurhærða, milda á svip með móbrún augu sem lýstu gáfum og göfuglyndi. Guðstrú mildi og mannkærleika fékkstu í arf úr föðurhúsum. Það er auður, sem aldrei glatast þótt knýi á dyrnar dauðans engill. ur festi hér rætur. Og víst teljum við okkur það til gildis, að mega með réttu telja hann „einn af okk- ur“. Fyrstu árin eftir að hingað kom stundaði Hermann verzlunarstörf. Árið 1912 kvæntist hann Elínu Lár usdóttur útvegsbónda í Hofsósi, mikilli myndarkonu. Man ég gerla, að á orði var haft hversu glæsi- leg væru þessi ungu hión. Árið 1914 reistu þau bú 1 Málmey og bjuggu þar til 1918. en fóru þá búnaði sínum að Yzta-Mói, þar hef- ur heimili þeirra síðpn staðið alla Ung giftist þú góðum manni. Bjart var þá yfir Borgarholti. Vonar- og gleði geislar lýstu framtíð ykkar ungra hjóna. Heimili ykkar var hvíldarstaður aldraðs fólks, sem ellin mæddi. Hjúkrun ykkar af alúð naut það þar til dauðinn að dyrum barði. Sár var þín sorg er sótti dauðinn eiginmann þinn til æðri heima, en ástúð og góðvild góðra barna var þín huggun á harmastundum. Vandamenn þig og vinir kveðja aðeins um stund því allir deyja. Ég trúi á Krist og kærra vina endurfundi í æðra lífi. Kveðja frá Helgu frá Dagverðará. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 27

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.