Heimilistíminn - 10.10.1974, Blaðsíða 12
PG1
Alvin
Star-
dust
ÞEGAR platan My Co Ca Choo’
kom á markaö og vinsældalistann i
Bretlandi, varö Alvin Stardust frægur,
eiginlega stjarna á einni nóttu.
En þessi nýja stjarna er þó enginn
nýliöi. Hann fæddist í London fyrir 28
árum og ólst upp svo að segja i leikhúsi
og kom fyrst fram opinberlega
fjögurra ára á leiksviöi. Hann hélt
áfram aö leika.
Eiginlega hét hann Bernhard Jewry
og fór aö leika snemma I hljómsveit
með hræðilega löngu nafni: „Johnny
Theakston and the Tremloes”. En þeir
skipu um nafn, sem ekki er undarlegt
og kölluöu sig „The Fentones”
Bernhard kallaöi sig þá Shane Fenton
og þeir uröu vinsælir, einkum ár árun-
um 1962—-’64 þegar fyrsta plata þeirra
kom út og bæöi lögin á henni komust á
vinsældalistann. Þau hétu „Moody
Gay” og „Five foot two, Eyes so
blue.”
En Shane Fenton þreyttist á þessu,
kvaddi og fór og gerðist umboösmaöur
annarra söngvara, m.a. The Hollies og
Lulu. En hann fékk nóg af þvi lika og
hætti öllum afskiptum af poppi um
tima.
Hann fór i hringferð um Evrópu og
stundaði alls konar vinnu hér og þar i
tvö ár, en fór þá blankur til Englands
aftur, fékk lánað fyrir gitar og safnaöi
TheFentones saman aftur. Af tilviljun
hitti hann Hal Carter, sem varð um-
boösmaöur hans og útvegaði honum
samning viö plötufyrirtæki og siöan
fóru þeir aö safna og sátu loks
uppi meö heilmörg. En þar sem ekki
dugöi, að Shane Fenton sendi allt þetta
frá sér I einu, varö aö finna fleiri nöfn
og þannig kom Alvin Stardust til sög-
unnar. En þó plöturnar væru teknar
upp, kom engin þeirra út og þaö var
ekki fyrr en Peter Shelley birtist meö
lagiö „My Coo Ca Choo’” sem allir
töldu vonlaust, að Alvin Stardust varö
frægur. Næsta plata hans „Jealous
Mind” varð jafnvinsæl og siðan kom
albúmið „The untouchble Alvin
Stardust”.
— Ég er engin súperstjarna” segir
Alvin. — Ég held bara aö ég hafi komið
fram einmitt þegar fólk var að veröa
leitt á glitrandi fötum og miklum til-
þrifum.
Alvin klæöist aö jafnaði svörtum,
þröngum leöurfötum og einkennis-
merki hans er mikið og breitt gullarm-
band, sem hann lætur yfirleitt sjást á
myndum. Hann hefur þaö fyrir vana,
aö fleygja svörtu leiöurhönzkunum
sinum fram i sal, þegar hljómleikum
er lokiö og þá er mikill handagangur i
öskjunni. Alvin segist hafa gaman af
aö hlusta á Gary Glitter, en likar ekki
aö þeim er iöulega jafnaö saman og
jafnvel ruglað saman.
12