Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 10.10.1974, Qupperneq 31

Heimilistíminn - 10.10.1974, Qupperneq 31
SAUTJÁN ára griskur piltur, sem skrifar á ensku, vill eignast islenzkar pennavinkonur. Hann nefnir engin áhugamál, en nafnið og heimilisfangið er: Yannis Paraskevoupoulos 11 Kostaki st. Patras 16 Greece. ATJAN ára júgóslavneskur piltur skrifar á þessa leið: Kæri vinur! Þaö er langt siðan mig langaði til að skrifast á við einhvern á ensku. Ég heiti Bagi Izabella og fæddist 21. ágúst 1956 i Subotica, sem er litil borg i Vestur-Júgóslaviu. Ég er i fjórða bekk i gagnfræðaskóla. Ég er ungverskur aö ætt og þess vegna tala ég tvö tungumál, ungversku og serbókróatlsku. Ég á mörg áhugamál, en eftirlætis tómstundaiðja min er fallhlifarstökk. Ég bið eftir svari þinu við þessu bréfi. Skrifaðu mér um sjálf- an þig I fyrsta bréfinu og sendu mynd, sem ég skal svo endursenda þér I næsta bréfi, ef þú vilt. Með þakklæti frá vini þinum: Bagi Izabella, Trg Oktobarske Revolucije 16/28, 24000 Subotica, Yugoslavia. Heimilisfangið skiptist I linur við kommurnar og orðið Subotica á að vera undirstrikað. HÍ^GIÐ — Vertu rólegur, ég er bara að hita mig upp. Brúður í þjóð- búningum: Sviss t Sviss eru 25 kantónur eða fylki, og hver hefur sinn sérstaka búning! Hér sjáum við brúðu i nokkuö táknrænum, svissneskum búningi. Strákurinn er i stuttum leðurbuxum með skrautlega isaumuðum axlaböndum, og svo er hann i vesti og með mjúkan, barðabreiöan hatt. Svisslendingar halda mjög upp á villtu fjallablómin sin, og alparósin kemur afar oft fyrir i útsaumi þeirra og skreytingum. Konur og Nóbelsverðlaun — endurbót ÝMSIR hafa orðið tíl að benda á, að á lista yfir konur, sem fengið hafa Nóbelsverðlaun og birtur var i blaði númer 6, vanti nokkur nöfn. Sumir hafa meira að segja tekið svo djúpt i árinni að telja óhæfu, að kona skuli birta svo ófullkominn lista. Þvi sfðara er til að svara á þá leið, að listi þessi var tekinn upp úr frönsku blaði, þar sem ekki er hægt að sjá annað en rit- stjórar séu allir karlmenn. En til aö gera yfirbót, þá skal listi yfir Nóbels- verðlaunakonur birtur eins og hann litur út eftir nokkrar vangaveltur yfir alfræðiorðabók: Bókmenntaverðlaun: Selma Lagerlöf, Sviþjóð 1909, Grazia Deledda, Italiu Óli litli fór I fyrsta sinn með móöur sinni að horfa á ballettsýningu. Honum fannst mikiö til þess koma, hvaö dans- meyjarnar voru flinkar aö standa á tánum, en þegar sýningunni var lokiö, gat henn ekki oröa bundizt: — Mamma af hverju fá þeir sér ekki dansmeyjar, sem eru nógu háar? 1926, Sigrid Undset Noregi 1928, Pearl S. Buck, Bandar. 1938, Gabriela Minstral, Chile 1945, og Nelly Sachs, Sviþjóö 1966. Friöarverðlaun: Bertha von Suttner, Austurriki 1905, Jane Addams, Bandar. 1931, Emily Balch, Bandar. 1946. Eðlisfræðiverðlaun : Marie Curie, Frakklandi 1903,Maria GoeppertMayer, Bandar. 1963. Efnafræöiverðlaun: Marie Curie, Frakklandi, 1911, Irene Joliot, Frakk- landi 1935, og Dorothy C. Hodgkin, Bretlandi 1946. Læknisfræðiverölaun: Gerty Cori Bandar. 1947. — Pabbi, hvernig maöur er herra- maöur? — Þaö er maöur sem getur lýst Raquel Welch án þess aö nota hendurnar. — Herra barón. Þér eruö oröinn faöir tvibura. — Agætt, Jón. Viltu gjöra svo vel aö segja konunni minni þaö. 31

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.