Heimilistíminn - 21.11.1974, Síða 33
Gunhild
Hesting:
□
>(< a,
<&> <&
4*psíg- v
(K 'o'liurín n
(3c\stí ísn
opnaði dyrnar. —Reyndu við næstu! sagði hún
og benti með skottinu á hurð i hinum enda stof-
unnar. Bastian, sem hafði tekið vel eftir,
hvernig gera átti þetta, hljóp af stað og opnaði
dyr inn i aðra stofu.
— Þetta var gott, sagði Sheherasade, — en
nú kemur það erfiðasta. Næsta hurð opnast
inn, svo þá þarf maður að nota afturlappirnar
til að spyrna frá svo hægt sé að opna. Siðan
sýndi hún, hvernig átti að gera þetta og loks
reyndi Bastian við næstu hurð. Þegar hann var
búinn að þvi, hélt hann áfram, en það voru tólf
herbergi i ibúðinni. Þetta var skelfing
skemmtilegt og hann fékk góða þjálfun i að
opna dyr. En inni i svefnherberginu tók fólkið
hennar Sheherasade að bæra á sér.
— Hvað gerum við nú? spurði Sheherasade,
þegar þau voru búið að opna allar dyrnar. —
Nú verðum við að gæta þess að okkur leiðist
ekki. Veiztu, hvað við gerum. Við skulum fara i
eltingaleik um allt húsið.
— Nei sagði Bastian. — Þú vekur fólkið.
Hann heyrði að einhver hóstaði inni i svefnher-
berginu. En Sheherasade hlustaði ekki á hann.
— Júhú! hrópaði hún og tók tilhlaup, stökk upp
i gluggatjöldin, krækti sér fastri með klónum
og sveiflaði sér fram og aftur, þangað til hún
lét sig detta niður i ljósakrónuna. En i sama
bili kviknaði á Ijósakrónunni og Sheherasade
varð svo skelfd, að hún hlunkaðist niður á sófa-
borðið með miklum dynk. Bastian varð enn
hræddari, þvi i dyrunum stóð stór, hvit vofa.
Vofan stökk hljóðandi fram og greip i hnakka-
drambið á Bastian, sem hvæsti dauðskefldur
og beit og klóraði, allt hvað hann gat.
— Viðbjóðslega skepna! skrækti vofan og þá
heyrði Bastian, að þetta var konan, sem kallað
hafði Sheherasade öllum heimskulegu gælu-
nöfnunum og að þessi kona var ein af fólkinu
hennar Sheherasade og var klædd i hvitan
náttkjól og var með ósköpin öll af hvítu kremi i
andlitinu og járnarusli i hárinu og leit þess
vegna svona hræðilega út.
— Hvernig komst þetta hryllilega dýr inn til
elsku Sheherasade? æpti hún. — Þessi villikött-
ur hefði getað étið hana! Svo stormaði konan
gegn um herbergin tólf og fram i forstofuna