Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 2

Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MANNFALL Í ÍRAK Meira en 120 manns biðu bana í skærum og sprengjutilræðum í Írak í gær en m.a. féllu um 70 manns í sjálfsmorðsárás í borginni Baquba, skammt norður af Bagdad. Þetta er einn blóðugasti dagurinn í Írak á þessu ári. Fyrsta útboði lokið Íbúðalánasjóður hefur lokið fyrsta útboði íbúðabréfa, og voru alls seld bréf að andvirði 5 milljarða króna í lokuðu útboði til erlendra fjárfesta. Mikil verðhækkun á olíu Verð á olíu hækkaði mikið á mörk- uðum í gær, var 39,60 dollarar í London og fór í 43.05 í New York, en hærra hefur verðið aldrei verið á markaði þar. Ástæða verðhækkun- arinnar er rakin til yfirlýsingar sem rússneska olíufélagið Yukos sendi frá sér. Játning liggur fyrir Fyrrverandi sambýlismaður Sri Rhamawati játaði við yfirheyrslur lögreglu í dag að hafa ráðið henni bana. Leit að líki Sri hefur enn engan árangur borið. Greiðslukortin mikið notuð Erlendir ferðamenn nota greiðslu- kort sín meira hér á landi en áður, og hafa alls greitt 5,5 milljarða króna með korti. Íslendingar erlendis hafa einnig notað kortin meira en áður. Y f i r l i t Í dag Erlent 14 Bréf 27 Höfuðborgin 17 Minningar 28/33 Akureyri 17 Dagbók 36 Austurland 20 Víkverji 36 Landið 20 Velvakandi 37 Neytendur 21 Staður og stund 38 Daglegt líf 22 Menning 39/45 Forystugrein 24 Ljósvakamiðlar 46 Viðhorf 26 Staksteinar 47 Umræðan 26/27 Veður 47 * * * Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir Handverksblaðið frá bókaútgáfunni Hólum. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                 ! " #       $         %&' ( )***              +   SAMGÖNGURÁÐHERRA, Sturla Böðvarsson, segir að það sé ekki á dagskrá eins og er, út frá öryggis- sjónarmiðum, að ríkið komi til móts við símafyrirtækin með því að kosta uppsetningu senda á svæðum sem eru hvað óarðbærust fyrir fyrirtæk- in. „Ég tel nú auðvitað langeðlilegast að símafyrirtækin veiti viðskiptavin- um sínum þjónustu þar sem þeir leita eftir því. Þannig að ég tel að það væri algjört neyðarúrræði ef ríkið þyrfti að koma að þessu með einhverjum hætti,“ segir Sturla. Í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði hann að rík áhersla væri lögð á fjar- skipti sem örygg- istæki og að það væri mikilvægt verkefni að bæta farsímasamband- ið á fjallvegum og við fjölfarna ferðamannastaði á landinu. Hann segir að það sé til sér- stakrar skoðunar að Vegagerðin komi með einhverjum hætti að málum á fjallvegum og þannig yrði unnið að bættum fjarskiptum en ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. „Að öðru leyti lít ég svo á þetta sé í höndum símafélaganna. Ég tel að símafélögin eigi að þjóna viðskiptavinum sínum. Krafan hjá þeim símnotendum sem eru á ferðalagi er sú að þeir geti nýtt far- síma sína sem eðlilegt er.“ Hann segir ljóst að kostnaður við uppsetn- ingu á sendum sé gríðarlegur og því geti símafyrirtækin ekki lagt í kostnað við uppsetningu á sendum hvar sem er á landinu. „Aðalatriðið er að það er eftirspurn eftir þessari þjónustu og ríkið er ekkert á leiðinni með að veita sérstaka styrki,“ segir Sturla. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra um farsímafjarskipti Ríkið kemur ekki að uppsetningu senda Símafyrirtækin veiti þá þjónustu sem leitað er eftir Sturla Böðvarsson KRÍURNAR sem hreiðrað hafa um sig við golfvöllinn á Seltjarnarnesi eru orðnar vanar því að reglulega fari um völlinn, í næsta nágrenni varps þeirra, maður á sláttuvél. Þær láta hann því að mestu í friði, en eru vel á verði og flögra í kringum hann meðan á slættinum stendur. Kríurnar eru þó þekktar fyrir að vera allt annað en gest- risnar og því best að hafa allan varann á. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins ætlaði að fanga augnablikið á mynd, voru kríurn- ar fljótar að sjá að þar fór ókunn- ur gestur og gerðu því atlögu að honum, eins og þeirra er von og vísa. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Óboðnir gestir vaktaðir „ÞETTA fór vel, en hefði vissulega getað farið illa,“ sagði Tryggvi Sveinsson sem hefur umsjón með rannsóknarbát Hafrannsóknastofn- unar á Akureyri, Einari í Nesi. Hann, Einar í Nesi, lá utan á tré- bátnum Jóni Trausta við bryggju við Slippstöðina en leki kom að trébátn- um með þeim afleiðingum að hann sökk. „Hann hallaðist á bakborða og lenti með gálgann ofan á rekkverki á Einari í Nesi sem fór á hliðina,“ sagði Tryggvi. Slippkraninn var fenginn til aðstoðar við að rétta Jón Trausta við en við það losnaði Einar í Nesi undan honum. Skemmdir urðu litlar af völdum þessa óhapps að sögn Tryggva. Að sögn eiganda Jóns Trausta, Birgis Sigurjónssonar, gaf dæla sig um borð í bátnum svo hann fór að sökkva. Um klukkustund tók að dæla sjó úr bátnum og koma honum á réttan kjöl að nýju. Jón Trausti sökk við slippkantinn Ljósmynd/Jónatan Friðriksson Jón Trausti sökk við slippkantinn á Akureyri í fyrrakvöld og lenti ofan á rannsóknarbátnum Einari í Nesi. ALLS höfðu um 21.700 einstaklingar sótt álagningarseðil á heimasíðu rík- isskattstjóra, rsk.is, klukkan 18 í gær. Var þetta fyrsti dagurinn þar sem mögulegt var að nálgast þessar upplýsingar á vefsíðunni. Árlega er skattgreiðendum til- kynnt um álagningu opinberra gjalda og innheimtu þeirra með sér- stökum álagningarseðli. Í ár er jafn- framt hægt að ná í seðilinn á rafrænu formi á rsk.is. Seðillinn sjálfur er sendur landsmönnum í lok júlí en álagningardagur í ár er 30. júlí. Bragi L. Hauksson, deildarstjóri upplýsingatæknideildar hjá embætti ríkisskattstjóra, sagði að fólki hefði almennt gengið vel að nálgast þessar upplýsingar í gegnum tölvurnar sín- ar. Smáhnökrar hefðu komið upp í gærmorgun en það var fljótt lagfært. Um tíu þúsund manns hafa af- þakkað að fá álagningarseðilinn sendan heim og er í fyrsta skipti boð- ið upp á það í ár. 60 þúsund manns hafa afþakkað að fá pappírsframtal sent á næsta ári. Bragi segir að þeim sem skili framtölum rafrænt standi til boða staðfest afrit af skattfram- tölum, með rafrænni undirskrift skattstjóra, þeim að kostnaðarlausu. Heimsóknir á vefinn voru jafnar yfir daginn að sögn Braga. Reiknaði hann með stöðugum heimsóknum langt fram á kvöld. 22 þúsund sóttu álagn- ingarseðil MANNANAFNANEFND rík- isins kom saman nýverið til að afgreiða fjórar umsóknir um ný nöfn sem ekki er að finna í mannanafnaskrá. Beiðni um nafnið Leonida var hafnað þar sem það taldist hvorki ritað í samræmi við al- mennar ritreglur íslensks máls né hefði það unnið sér hefð í ís- lensku. Hins vegar samþykktu nefndarmenn nöfnin Kata, Von og Adel. Kom fram í úrskurði nefndarinnar hvaða eignar- fallsendingu þessi þrjú nöfn tækju og að þau fullnægðu lög- um um mannanöfn. Voru þau þar með færð í mannanafna- skrá. Fundinn sátu Andri Árna- son, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir. Von og Adel í manna- nafnaskrá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.