Morgunblaðið - 29.07.2004, Side 41
ÓPERAN Parsifal eftir Richard
Wagner var púuð niður á opnunar-
kvöldi 93. Wagnerhátíðarinnar í
Bayreuth á sunnudag, að því er
segir á fréttavef BBC, en miklar
vangaveltur voru uppi fyrir frum-
sýninguna um hvernig til myndi
takast, eins og fram kom í Morg-
unblaðinu fyrir helgi.
Fyrir uppsetningunni stóð hinn
umdeildi þýski leikstjóri Christoph
Schlingensief, sem hafði sagt þýsk-
um fjölmiðlum að hann þyrfti að
finna sér felustað að sýningu lok-
inni vegna þess að hann byggist við
mótmælum sumra áhorfenda.
Frumsýningargestum þótti sýn-
ingin bæði flókin og óskiljanleg.
Þýski tenórinn Endrik Wottrich,
sem söng titilhlutverkið, kallaði
uppfærsluna „viðurstyggð“ og
sagðist ekki ætla að gefa kost á sér
í hlutverkið á næsta ári. Hann hefði
hins vegar ekki getað hætt við í ár
vegna þess að Parsifalar yxu ekki á
trjánum.
Wolfgang Wagner, barnabarn
tónskáldsins sem hátíðin er kennd
við, er formaður hátíðarinnar.
Hann valdi Schlingensief til þess að
leikstýra Parsifal eftir að gagnrýni
upphófst um að hátíðin væri of ráð-
sett.
Ópera | Opnunarsýning Wagnerhátíðarinnar
APFrumsýningargestum þótti uppfærsla Christoph Schlingensief á Parsifal bæði flókin og illskiljanleg.
Parsifal púaður niður
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2004 41
DJASSLÍFIÐ það sem af er árinu
hefur verið hið fjölskrúðugasta, en
eins og að líkum lætur hjá jafn fá-
mennri þjóð hafa sömu mennirnir
leikið oft með hinum ýmsu hljóm-
sveitum. Erfitt er að sjá hvernig farið
hefði á stundum væri ekki hinn fjöl-
hæfi sænski trommari Erik Qvick
lærimeistari við djassdeild FÍH-skól-
ans. Hann hefur trommað með nær
helmingi þeirra djasshljómsveita sem
komið hafa fram í vetur og leikið á
hinum hefðbundnari nótum: hvort
sem það hafa verið klassískir söng-
dansar eða bíbopp. Því miður eru
fremstu bopptrommarar okkar bú-
settir erlendis: Östlund í Stokkhólmi
og Einar Valur í Miami. En Erik hef-
ur staðið sig vel og það gerði hann
einnig á Jómfrúnni á laugardaginn
var, ásamt félaga sínum Ólafi Jóns-
syni tenórista, bróður hans Þorgrími
Jónssyni bassaleikara og Simoni
Jermyn gítarista, sem er írskur, en
þeir Þorgrímur stunda nám saman í
Hollandi. – Það er þetta yndislega við
sumrin; strákarnir, sem eru að læra
djass vítt og breitt um heiminn, koma
heim og láta ljós sitt skína. Jómfrúin
er gulls ígildi. Jakob smurbrauðs-
meistari og lipurt starfsfólk hans deil-
ir brauði og bjór á báðar hendur án
þess að trufla tónlistina og er það list
í sjálfu sér. Þau níu sumur, sem Jak-
ob hefur boðið upp á laugardags-
djassinn, eru slík gersemi að enginn
djasselskur borgarbúi vill vera án
þeirra og þegar sólin skín er þéttsetið
á torginu allt að tveimur tímum áður
en tónleikar hefjast. Kvartett þeirra
félaga var vel samspilaður, enda
þetta fjórðu tónleikarir. Þeir fyrstu í
listasafni Sigurjóns á þriðjudags-
kvöld, en þar var kvintett á ferð;
vantaði nú góðan liðsmann, Jóel Páls-
son tenórista. Því meira reyndi á Ólaf
Jónsson og brást hann ekki frekar en
fyrri daginn. Þó verður að geta þess
að eitt þurfa þeir Jómfrúarmenn að
eignast, einfalt mögnunarkerfi þar
sem bæði tal og söngur, svo og ein-
leikslínur blásara eru styrktar í hófi.
Fyrsta lag á dagskrá kvartettsins
var eftir Þorgrím. Ekkert tímamóta-
verk, heldur ljúfur djassópus með
boppi, sveiflu og blárri tilfinningu í
bland. Gítaristinn írski átti tvö lög á
efnisskránni: Það fyrra léttsveiflað
ljóð, Alien Swans, og hið síðara
dramatískara; Otabur. Svo mátti
heyra verk eftir einn alskemmtileg-
asta tenórsaxófónleikara Svía síðan
Harry Bäcklund var og hét og banda-
ríska bassaleikarann Reid Anderson,
auk hinna sígildu verka á efnisskrá:
My Ideal og Half Nelson.
Leikur kvartettsins var allajafna
góður. Að sjálfsögðu setti útilífið
mark á leikinn; þótt Jómfrúin hafi
komið sér upp spilatjaldi er ekki að
efa að bassahljómur Þorgríms leið
fyrir það útiloftið. Samt heyri ég ekki
betur en að hann hafi tekið stór-
stígum framförum í vetur og verður
gaman að fylgjast með þessum geð-
þekka bassaleikara í framtíðinni.
Ólafur Jónsson er alltaf að bæta sig,
sér í lagi eru hugmyndir hans fersk-
ari og í Tunelseende eftir Texas Jo-
hanson voru þær bæði vel byggðar og
rýþmískt spennandi. Jermyn hinn
írski er hinn efnilegasti gítaristi sem
gladdi hug og hjörtu og með sanni má
segja að þessir tónleikar væru
skrautfjöður í Jómfrúarhattinn.
TÓNLIST
Djass
Ólafur Jónsson tenórsaxófón, Simon Jer-
emy gítar, Þorgrímur Jónsson bassa og
Erik Qvick trommur. Jómfrúin 24.7.
2004.
B-SHARP KVARTETTINN
Vernharður Linnet
ÍTALSKA stórblaðið Corriere della
Sera birtir afar lofsamlega umsögn
um ljóðatónleika kontraalt söngkon-
unnar Elsu Waage sem fram fóru í
Pomerio kastalanum í Erba þann 13.
júlí sl.
Gagnrýnandi blaðsins segir að
Elsa Waage, sem lengi hafi verið bú-
sett á Ítalíu, hafi verið ákaft hyllt er
hún hélt vel samsetta ljóðatónleika í
hinum glæsilega kastala. Fyrirsögn
gagnrýninnar er: „Elsa Waage vinn-
ur kastalann.“
Um flutning Elsu á Wesendonk-
lieder eftir Wagner segir: „...Píanó-
undirleikur í stað hljómsveitar í öllu
sínu veldi hljómaði vissulega nokkuð
takmarkaður, en Waage bætti það
upp. Ögn hástemmd í byrjun en var
síðan algjörlega eitt með tilfinn-
ingaheimi textans.“
„Næstu 3 ljóð eftir Sibelius voru
heillandi, með þjóðlagakeim. Einnig
voru íslensku lögin heillandi, ýmist
fjörug, angurvær eða stíl stofu-
tónlistar. Áhugaverðast þeirra tón-
smíða virtist vera Skrifað í sandinn
eftir Sveinsson.“
„Þrjú falleg lög eftir Tosti voru
ómissandi og sýndu hvers Elsa er
megnug í túlkun, með sinni fallegu,
dökku rödd.“
„Lög Weills féllu áheyrendum
mikið vel í geð, þ. á m. hið fræga Sur-
abaya-Johnny, en þó þau hafi verið
vel flutt er spurning hvort þau henti
klassískum söngstíl flytjandans.“
Gagnrýnandinn lýkur svo umsögn
sinni með þeim orðum að píanóleikur
Giulio Zappa hafi verið „frábær og
næmur“.
Tónlist | Elsa Waage fær góða dóma
„…algjörlega eitt
með tilfinninga-
heimi textans“
Elsa Waage söngkona.
Sæludagar
um Verslunarmannahelgina
Vatnaskógur er í Svínadal skammt frá Saurbæ
í Hvalfirði og ekki nema 65 km frá Reykjavík
Koddaslagur
Knattspyrna
Kassabílar
Kaffihús
Söngkeppni barnanna
Skógarmannakvöldvökur
Bátar og vatnafjör
Barnadagskrá
Fræðslustund
Hoppukastalar
Varðeldur
Risabingó
Unglingadagskrá
Bænastundir
Barnaleikrit
EllenKK Jón Ólafsson
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu KFUM og KFUK
í síma 588 8899 og á heimasíðu www.kfum.is
Án áfengis
að sjálfsögðu
Verð aðeins
3.000 kr. fyrir alla helgina
7.000 kr. hámark fyrir fjölskylduna
Dagsheimsókn 1.500 kr.
Idol-stjarnan
Rannveig
Lalli
töframaður
fyrir alla
fjölskylduna
í Vatnaskógi 30. júlí til 2. ágúst