Morgunblaðið - 29.07.2004, Page 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2004 33
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Skrifstofustarf
Við leitum að starfskrafti í símvörslu, skráningu
gagna í gagnagrunn (Exel, Access) og annað
tilfallandi hjá vaxandi þjónustufyrirtæki.
Vinnutími frá kl. 8.00—16.00. Stundvísi,
nákvæmni og þjónustulund algert skilyrði.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Góð laun í boði fyrir réttu manneskjuna.
Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga-
deildar Mbl. eða á box@mbl.is, merktar:
„ÍG — Stundvís — 15719“, fyrir 6. ágúst nk.
Hótelstörf
Fosshótel ehf. auglýsir eftir starfsfólki
á eftirfarandi hótel og í eftirtalin störf:
Fosshótel Vatnajökull, Lindarbakka við Höfn
í Hornafirði, óskar eftir fólki í herbergjaþrif og
framreiðslu morgunmats.
Um er að ræða tvö tímabundin störf, sem eru
laus nú þegar til 1. september. Húsnæði og
fæði í boði á staðnum. Upplýsingar veitir Þor-
gils Þorgilsson, hótelstjóri, í síma 478 2555.
Fosshótel Baron óskar eftir fólki í helgaraf-
leysingar í vetur í herbergjaþrif og framreiðslu
morgunmats. Upplagt með skólanum. Upplýs-
ingar veitir Jón Tryggvi Jónsson, hótelstjóri,
í síma 562 3204. Umsóknareyðublöð má einnig
nálgast í móttöku Fosshótels Baron á horni
Skúlagötu og Barónsstígs.
Sjúkrahótelið Rauðarárstíg 18 óskar eftir
starfmanni í framtíðarstarf við umönnun og
þrif. Vaktavinna frá 8.00 - 14.00. Starfið er laust.
Einnig er laus 73% staða frá og með 1. nóvem-
ber 2004. Upplýsingar veitir Bryndís Konráðs-
dóttir, forstöðukona, í síma 562 3330.
Umsóknareyðublöð má einnig nálgast í mót-
töku Fosshótels Lindar, Rauðarárstíg 18.
Umsækjendur verða að vera hlýlegir, sýna
frábæra þjónustulund, vera heiðarlegir,
traustir og tala góða íslensku.
Umsækjendur, sem eru vanir aðhlynningar-
störfum, ganga fyrir á sjúkrahótelinu.
Háseta vantar
Háseta vantar á 200 tonna línubát með beitn-
ingarvél sem gerður er út frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 420 5700.
Vísir hf.Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga við heils-
ugæsluhjúkrun, þ.e. ungbarnavernd, heima-
hjúkrun, hjúkrunarmóttöku, slysa- og bráða-
móttöku.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Pálsdóttir,
hjúkrunarforstjóri heilsugæslustöðinni Sól-
vangi, símar 550 2600 og 896 3634, netfang:
kristinp@hgsolvangur.is
ⓦ Blaðbera vantar
á Arnarnesið.
13 ára og eldri.
Upplýsingar
í síma 569 1376
Lynghálsi 3, s. 586 2770
Vakningasamkoma með trú-
boðanum Mike Carriere í
kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Ath!, ath!, ath! síðasta sam-
koman.
29. júlí
Kl. 20.00 Fimmtudagskvöld
á Þingvöllum
Þorvarður Árnason, heimspek-
ingar og líffræðingur, ræðir um
náttúrusýn og umhverfisvitund
Íslendinga. Gönguferðin hefst
við Flosagjá og farið verður inn í
Skógarkot.
31. júlí Laugardagur
Kl. 13.00 Á aftökuslóð
Rætt um aftökur og refsingar
fyrr á öldum. Gangan hefst við
Flosagjá og gengið verður um
Langastíg. Gangan tekur um 2-3
klst.
1. ágúst Sunnudagur
Kl. 13.00 Fornleifaskóli
barnanna á Þingvöllum
Á bakka Öxarár hefur verið
komið fyrir fornleifum á af-
mörkuðu uppgreftrarsvæði, þar
sem krakkar geta grafið með
aðstoð landvarðar og kynnst
vinnubrögðum fornleifafræð-
inga. Fornleifaskóli barnanna er
alla sunnudaga frá kl.13–16 í
Prestakrók á Neðrivöllum.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta
í Þingvallakirkju.
Kl.15.00 Þinghelgarganga
Gengið um þingstaðinn forna og
hugað að sögu Þingvalla og
fornleifarannsóknum. Hefst við
kirkju að lokinni guðsþjónustu
og tekur rúmlega 1 klst.
Ratleikur alla daga í allt
sumar!
Í þjóðgarðinum í sumar verður í
gangi ratleikur fyrir alla fjöl-
skylduna. Öll gögn og vísbend-
ingablöð varðandi leikinn eru af-
hent í þjónustumiðstöð á Leirun-
um.
Margmiðlunarsýning
í fræðslumiðstöð
Opin frá klukkan 9-19 alla daga.
Nánari upplýsingar eru veittar í
þjónustumiðstöð í síma 482
2660 og á heimasíðu þjóðgarðs-
ins, www.thingvellir.is.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
á Þingvöllum er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Bátsmaður/
2. stýrimaður
Bátsmann, sem fer sem 2. stýrimaður í annað
hvert skipti, vantar á togarann Bretting.
Brettingur landar vikulega á Vopnafirði.
Nánari upplýsingar í síma 470 3500 og hjá
Gunnari skipstjóra í síma 852 3750.
Umsóknir sendist:
Tangi hf., Reynir Árnason/v.stm.,
Hafnarbyggð 7, 690 Vopnafirði.
✝ Geir Stefánssonfæddist á Sleð-
brjót í Jökulsárhlíð í
Norður-Múlasýslu
19. júlí 1915. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Austurlands
á Egilsstöðum 11.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Stefán Sigurðsson, f.
6. júní 1875, d. 21.
júlí 1931 og Björg
Sigmundsdóttir, f.
13. mars 1884, d. 26.
febrúar 1952. Systk-
ini hans voru Magn-
hildur Guðlaug, f. 20. maí 1907, d.
1. maí 1996, Sigmundur Sigurður,
f. 23. desember 1909, d. 26. jan-
úar 1989, Guðrún Ingibjörg Sól-
veig, f. 14. júní 1913,
d. 11. apríl 1997 og
fósturbróðir hans,
Frímann Jakobsson
f. 30. júní 1906, d.
14. september 1974.
Eiginkona hans
var Elsa Ágústa
Björgvinsdóttir frá
Ketilsstöðum, f. 1.
ágúst 1920, d. 30.
ágúst 1977. Börn
þeirra eru Stefán, f.
4. febrúar 1944,
Björgvin Vigfús, f.
18. mars 1945,
Björg, f. 3. júlí 1950
og Eysteinn, f. 10. maí 1954.
Útför Geirs var gerð frá Sleð-
brjótskirkju 22. júlí, í kyrrþey að
ósk hins látna
Elsku afi.
Nú ert þú farinn, það átti vissulega
ekki að koma mér á óvart, þín stund
var komin. Samt greip mig mikið til-
finningaflæði og allar minningar mín-
ar um þig þutu gegnum huga minn.
Fyrstu minningarnar eru síðan ég var
lítill stelpuhnokki og fékk að skríða
uppí holuna til þín, en hún var á bak
við þig í rúminu þínu. Þessa frægu
holu þekkja öll þín barnabörn, þarna
fengum við að heyra sögur af gamla
tímanum og fjöldann allan af kvæð-
um. Einnig er mér minnisstætt þegar
þú sast og spilaðir á orgelið, þú þessi
stóri maður með þessa stóru fingur,
lékst hvað sem þér datt í hug og erfitt
var að skilja hvernig fingurnir rötuðu
á réttu nóturnar.
Í mínum huga varst þú maður fjöl-
skyldunnar, þú elskaðir þína nánustu
afar heitt og faðmlög þín voru stór og
heit. Þér fannst mikilvægt að allir
borðuðu vel svo þeir yrðu hraustir og
stórir, hún var því yndisleg síðasta
stundin sem ég átti með þér. Ég var á
sjúkrahúsinu með strákana mína tvo
og aðstoðaði þig við að snæða hádeg-
isverð, þú vildir að sjálfsögðu að
drengirnir fengju líka að borða og það
var úr að þið þrír deilduð máltíðinni.
Drengirnir enduðu síðan á því að
skipta milli sín smjörstykkinu sem
gleymst hafði að setja út á fiskinn, það
gladdi þig svo sannarlega að sjá svona
hraustlega tekið á viðbitinu.
Þín verður sárt saknað og ég fæ
engin afa-faðmlög framar, en svona
er nú víst lífið. Þetta er það eina sem
allir geta verið vissir um, að þeir fara
að lokum. Ég sé þig nú fyrir mér hjá
ömmu sem fór svo alltof fljótt og ég á
fáar minningar um en nú eruð þið
sameinuð á ný og getið saman gætt að
fjölskyldunni.
Saknaðarkveðja
Stefanía Malen.
Kæri afi.
Þegar ég kom í heiminn varst þú
þegar orðinn vel fullorðinn maður.
Elsa leit dagsins ljós ári síðar og við
urðum fljótt bestu leikfélagar. Við
vorum iðulega á Sleðbrjót og lékum
okkur út um allt. Við snigluðumst um
bæinn og hittum oftar en ekki fyrir
góðan og hjartahlýjan afa. Við vorum
augasteinarnir þínir og þú fylgdist
grannt með okkur og passaðir að við
færum okkur ekki að voða. Þú sagðir
okkur fallegar sögur og spilaðir á
hljóðfæri, stundum á orgelið og ein-
staka sinnum tókstu upp harmonik-
una. Heimurinn utan húss var ekki
síður spennandi í fylgd þinni. Við sát-
um sitt hvorum megin við þig inni í
traktornum og siluðumst uppí
Grænumýri eða uppí Gamla bæ til að
sinna kindunum.
Þegar ég varð eldri og byrjaði í
skóla urðu heimsóknirnar í Sleðbrjót
reglubundnari. Fljótlega áttaði ég
mig á því að ég átti engan venjulegan
afa. Mér fannst að ég ætti stærsta,
sterkasta og fróðasta afann af öllum
öfum barnanna í skólanum. Eftir að
ég áttaði mig á þessu fór ég að leggja
við hlustir. Þú sagðir svo skemmti-
lega frá. Þú sagðir frá lífinu fyrr á
tímum. Þú sagðir lífssögur forfeðra
okkar og kenndir mér að virða sög-
una. Í gegn um þessar sögur kenndir
þú mér meðvitað eða ómeðvitað að
þekkja rétt frá röngu og bera virð-
ingu fyrir fróðleik hvernig sem hann
er áunninn.
Árin liðu og þú varst alltaf stóri,
sterki og fróði afi minn sem var gott
að leita til þegar maður vildi spjalla
um daginn og veginn og fá að heyra
vísur og sögur. Þú unnir sveitinni til
hinstu stundar. Þú sinntir upp-
græðslustörfum og hélst áfram að
halda við girðingunum þrátt fyrir há-
an aldur. Ummerki uppgræðslunnar
skarta sínu fegursta nú í þessu hlýja
sumri.
Elsku afi minn, ég vona að þér líði
vel þar sem þú ert núna og ég skal
reyna að fara eftir öllu því góða sem
þú kenndir mér.
Ástarkveðja
Kristján Ketill.
GEIR
STEFÁNSSON
Guð blessi minningu Sollu.
Ágústa, Sigurður, Jakobína og
starfsfólk í Mónu.
Sólveig Guðmundsdóttir var fædd
þann 24. apríl 1950. Ég kynntist Sollu
eins og hún var alltaf kölluð af öllum
á Skálatúnsheimilinu fyrir mörgum
árum, þá var hún að læra til þroska-
þjálfa. Síðan lágu leiðir okkar saman
á ný á Bjarkarási. Solla var frá Sel-
fossi og átti fjögur systkini, þau Guð-
mundu, Fríðu, Ólaf og Guðmund. Ég
sendi þeim mínar samúðarkveðjur.
Síðan tók hún við sambýlinu að
Sigluvogi 5 hér í borg og var þar um
skeið hjá okkur þremur sem komum
þangað fyrst en vann samt á Bjark-
arási á daginn. Ég sendi Ljódí vin-
konu hennar til margra ára samúðar-
kveðjur og vona að hún hafi það gott.
Kveðja,
Eygló Ebba Hreinsdóttir
og Sigurjón Grétarsson.
Fleiri minningargreinar um Sól-
veigu Guðmundsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Erna,
Borghildur Thors, Margrét Yrsa,
Þórir, Yrsa Rós og Þráinn Leó, Elín
Óskarsdóttir, Ágústa, Jóna og
Ragna, Edda, Guðrún, Lilja og Sol-
veig The., Unnur Stefánsdóttir,
Hjördís Magnúsdóttir, Sigurður
Valur, Hildur Hauksdóttir, Ólafur
Ólafsson, formaður Aspar, Greta
Bachmann, Margrét Sæmunds-
dóttir, Sigrún Alexandersdóttir,
Theódóra Ólafsdóttir og fjölskylda,
Keilusamband Íslands.