Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 248. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tweed í
tísku í vetur
Tweed-efni eru notuð jafnt í föt
sem fylgihluti | Daglegt líf
Fasteignablaðið | Heimilislegar pöddur Snúrurnar faldar
Gagnrýni á götunöfn Verðlaunagarður í Hafnarfirði Íþróttir |
Arnór í aðgerð vegna hjartagalla ÍBV bikarmeistari í fyrsta sinn
TEKJUR sveitarfélaganna af fasteignaskött-
um hafa aukist um tæpan þriðjung á tveimur
árum frá 2001 til 2003. Útlit er fyrir að tekj-
urnar aukist enn frekar í ár, þar sem skatt-
urinn er hlutfall af fasteignamati á atvinnu-
og íbúðarhúsnæði í landinu og það hækkaði
um 10,6% að meðaltali um síðustu áramót.
Tekjur af fasteignasköttum á síðasta ári
voru tæpir 10,8 milljarðar króna samkvæmt
upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitar-
félaga og hækkuðu um 1.400 milljónir kr. frá
árinu áður og um 2,6 milljarða króna frá
árinu 2001 sem jafngildir 32,4% hækkun á
þessu tímabili. Ástæða hækkunarinnar er
stöðug hækkun á markaðsverði fasteigna síð-
ustu árin, auk þess sem fasteignamat hækk-
aði að meðaltali um 14% á árinu 2001 vegna
endurmats sem þá fór fram. Við þá breytingu
komu fram kröfur um að sveitarfélög breyttu
álagningarprósentu sinni, þannig að breyt-
ingin kæmi ekki niður á skattgreiðendum.
Fasteignaskattar eru einungis hluti þeirra
tekna sem sveitarfélögin hafa af fasteignum,
þar sem auk fasteignaskatta eru einnig
greidd önnur gjöld af þeim, eins og vatns-
skattur, sorphirðugjald, holræsagjald og lóð-
arleiga.
Hærri álagning á atvinnuhúsnæði
Fasteignaskattar eru bæði lagðir á at-
vinnu- og íbúðarhúsnæði, en álagningin er
mun hærri á atvinnuhúsnæðinu. Þannig eru
tekjurnar 6,5 milljarðar af fasteignasköttum
á atvinnuhúsnæði, en 4,3 milljarðar af álagn-
ingu á íbúðarhúsnæði, þó að verðmæti at-
vinnuhúsnæðisins í heild sé einungis þriðj-
ungur af verðmæti íbúðarhúsnæðisins.
Álagning fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði
er frá því að vera 0,290% af fasteignamati
lægst í það að vera 0,625% hæst. Í stóru
sveitarfélögunum á suðvesturhorninu og á
Akureyri er álagningin á bilinu 0,310% í
Garðabæ upp í 0,360% af fasteignamati í
Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi.
Algeng álagning á atvinnuhúsnæði er
1,650% af fasteignamati. Hún er lægst
1,120% af fasteignamati á Seltjarnarnesi og í
Garðabæ þegar stóru sveitarfélögin á suð-
vesturhorninu og á Akureyri eru skoðuð, en
hæst í Hafnarfirði 1,680%.
Þriðjungi meira greitt í
fasteignaskatta en 2001
SIGURÐUR Helgi Guð-
jónsson, formaður Húseig-
endafélagsins, segir að fé-
lagið hafi barist fyrir
lækkun skatta á fasteignir.
Enn frekari hækkana í þess-
um efnum sé að vænta í nóv-
ember næstkomandi þegar
nýtt fasteignamat verði
kynnt.
„Við höfum alltaf haldið
því fram að fasteignir væru
ofskattaðar,“ segir Sigurður Helgi.
Hann telur sjálfsagt að sveitarfélögin endur-
skoði álagningu sína. Þau hafi þegið sjálfkrafa
hækkanir, en svarið af sér alla ábyrgð þar sem
hækkanirnar verði vegna hækkunar fast-
eignamats. Stjórn Húseigendafélagsins muni
láta í sér heyra vegna þessa.
Fasteignir
ofskattaðar
JAMAÍKUMAÐUR við kirkju í höfuðborginni
Kingston sem varð illa úti aðfaranótt laug-
ardags þegar fellibylurinn Ívan fór þar hjá.
Minnst 15 manns létu lífið á Jamaíka í óveðr-
inu. Vindhraðinn hefur farið yfir 265 kíló-
metra á klukkustund og jafnvel enn meira í
einstökum hviðum sem rífa þá upp stór tré
með rótum. Raflínur sviptast í sundur, vegir
fjúka út í buskann og bátar þeytast á land en
ölduhæðin hefur sums staðar verið á við
þriggja hæða hús. Fjölmargir eru heim-
ilislausir eftir yfirreið Ívans, sem fengið hefur
viðurnefnið grimmi. Hann hefur farið eins og
refsandi andi yfir Karíbahaf undanfarna daga
og er talið að alls hafi yfir 60 manns farist af
völdum hans.
Nokkuð dró úr krafti óveðursins um hríð í
gær en veðurfræðingar töldu að það myndi á
ný færast í aukana þegar liði á nóttina.
Cayman-eyjar urðu illa úti í gær og var búist
við að næst myndi bylurinn herja á vestan-
verða Kúbu en allt benti til þess að íbúar á
Flórída gætu andað léttar þar sem bylurinn
virtist fara að mestu fram hjá.
Mikill viðbúnaður var á Kúbu og og um
800.000 manns voru flutt af mestu hættusvæð-
unum. Fidel Castro Kúbuforseti sagði lands-
menn reiðubúna að takast á við hamfarirnar
sem búist var við en margir íbúanna sögðust
vera óttaslegnir.
Reuters
Óttast yfirreið fellibylsins Ívans
LÍKUR eru á því að stjórnarandstaðan í
Danmörku hætti að greiða atkvæði með því
að danskir hermenn taki þátt í friðargæslu í
Írak, að sögn Berlingske Tidende og vefsíðu
danska ríkisútvarpsins. Mikill meirihluti
þingmanna hefur stutt veru herliðsins,
rúmlega 500 manna, sem hægristjórn And-
ers Fogh Rasmussen forsætisráðherra
sendi á sínum tíma til Íraks.
Samsteypustjórn Venstre-flokks Rasm-
ussen og Íhaldsflokksins hefur ekki þing-
meirihluta en styðst við Danska þjóðar-
flokkinn. Greidd verða atkvæði í desember
á þinginu um framhald á veru liðsins. Niels
Helveg Petersen, fyrrverandi leiðtogi Rót-
tæka vinstriflokksins og árum saman utan-
ríkisráðherra, sagði í gær að ef ástandið
lagaðist ekki í Írak yrði að kalla liðið heim.
Mogens Lykketoft, formaður jafnaðar-
manna, er einnig reiðubúinn að íhuga málið.
„Við erum á staðnum vegna þess að Sam-
einuðu þjóðirnar hafa mælt með því og
vegna þess að við viljum gjarnan leggja
fram okkar skerf til þess að til valda komist
lögmæt stjórn er njóti trausts í Írak,“ sagði
Lykketoft. „En við sjáum nú að aldrei var
gerð viðunandi áætlun um það hvernig
skyldi tryggja friðinn þegar búið væri að
vinna orrustuna og stríðið. Það getur því
komið til þess að ekkert gagn verði að því að
við séum áfram með herlið í landinu.“
Danskur
her heim
frá Írak?
Reuters
Danskur hermaður í Írak.
Mikið mannfall/13
Sigurður Helgi
Guðjónsson
KOMIÐ hefur í ljós að munur er á því
hvernig vinstra og hægra eyrað vinna úr
hljóðbylgjum. Hið fyrrnefnda er næmara
fyrir tónlist en hitt fyrir
tali, að sögn vísinda-
manna við Kaliforníuhá-
skóla í Los Angeles.
Lengi hefur verið vitað
að heilahvelin vinna á
ólíkan hátt úr hljóð-
bylgjum. Menn hafa talið
að ástæðan væri að
frumurnar í hvelunum
eru ólíkar en eyrun virk-
uðu hins vegar nákvæmlega eins. Nú var
athyglinni beint að örlitlum mögnurum sem
eru í hárfrumum í innra eyranu. Hárfrum-
urnar taka við hljóðbylgjum og efla þær eða
draga úr þeim eftir atvikum áður en þær
eru sendar með taugafrumum til heilans.
Tal örvaði frumurnar í hægra eyranu, tón-
list frumur vinstra eyrans.
„Við töldum því að engu skipti hvort eyr-
að í manni væri lakara. Við sjáum nú að það
getur skipt geysilega miklu máli fyrir þró-
un tals og málþroska,“ segir Yvonne Sin-
inger sem stýrði rannsókn er gerð var á
heyrn 3.000 smábarna. Talið er að niður-
stöðurnar geti komið að gagni við að ýta
undir heyrnarþroska hjá börnum og þjálfun
fólks með heyrnartjón.
Vinstra eyrað
söngelskara
Washington. AFP.
♦♦♦
Fasteignir og íþróttir í dag