Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 30
M
ontpellier, Miðjarð-
arhafsborgin, eins og
hún kallar sjálfa sig,
sker sig úr öðrum
borgum Frakklands
fyrir það að bílar eru á burt svo þar
er komið stærsta svæði fyrir gang-
andi fólk innan borgarmarka í land-
inu. Í stað bílanna renna sporvagn-
ar áfram hljóðlaust í stórum
bíllausum kjarna, mengunarlaust,
og mannfólkið tiplar áfram án þess
að eiga á hættu í bili að enda ævina
undir bíl.
Það er ekki í kot vísað að vera á
ferðinni í miðbænum í Montpellier
eftir að skyggja tekur á heitu
kvöldi. Léttklætt fólk situr úti í
stórum klösum víðs vegar um þessa
bíllausu paradís, og það á venju-
legu mánudagskvöldi, að borða
sinn dýrlega Miðjarðarhafsmat. Á
þessum árstíma þegar jörðin er af-
kastamest við að skila af sér ávöxt-
unum: vínberjum, melónum, ferskj-
um, apríkósum …
En bíófólkinu var ekki til setu
boðið, því myndin var að byrja.
Ekki var autt sæti í salnum á
Sígaunalífi (Dom za vesanje) eftir
Emir Kusturica, frá 1988. Og bíó-
fólk er svo harðgerður stofn að
enginn yfirgaf svæðið í tvo og hálf-
an tíma í stækum hita og loftleysi.
Ekki minnkaði aðdáun mín á
kvikmyndaskáldinu litríka, Emir
Kusturica, við að sjá Sígaunalíf sem
heitir upphaflega Hengingarhúsið,
en fékk ekki að halda því nafni hér
fyrir vestan, markaðsins vegna.
L
eikstjórinn sýnir á sér aðra
hlið hér en í Underground-
fjörinu og Svörtum ketti,
hvítum ketti. Hins vegar
rek ég sumt af þungu undirtón-
unum úr nýjustu myndinni hans,
Lífið er kraftaverk, til Sígaunalífs.
Eins og þessar fyrri myndir ger-
ist Sígaunalíf í landinu hans eða
löndunum, gömlu Júgóslavíu, og
hún er full af fjöri, uppátækjum og
frumlegu fólki eins og þær, og
dásamlegri músík sem er inngróin í
frásögnina og fólkið. Sígaunalíf er
hins vegar miklu sárari og grimm-
ari en fyrri myndirnar þótt hún
byrji eins og grínmynd sem er hug-
ljúf og grótesk í senn. Frá mynd-
rænu sjónarmiði er hún að vissu
leyti enn athyglisverðari en fyrri
myndir og lýsingarnar á þorpinu
listilegar. Amatörarnir í næstum
öllum hlutverkum ljá myndinni líka
mjög sérstakan og sterkan blæ,
sem minnir stundum á heimildar-
mynd, og stundum á Guðföðurinn
hjá Coppola.
Lífi sígaunanna er lýst innan frá,
en Emir Kusturica þekkir vel til í
þeirra heimi og bjó í honum að ein-
hverju leyti þegar hann var lítill.
Sígaunadrengur er söguhetjan,
ljúfur og skemmtilegur í upphafi.
Og hvorugur þeirra eiginleika
hverfur alveg frá honum eftir að
búið er að gera hann að skúrki.
Sígaunalíf varð að lokum ein af
þungbærari bíómyndum sem ég
hef séð, enda ein af fáum sem
fjallar um varnarleysi barna og
unglinga gagnvart heimi fullorð-
inna, illri meðferð og siðblindu.
Kjarninn í myndinni er um dreng
sem fullorðna fólkið gerir svo sið-
lausan á örskömmum tíma að hann
hyggst selja ófætt barn unnustu
sinnar þegar þar að kemur, af því
að hann er í vafa um að hann eigi
sjálfur.
Þ
að er þó fjarri leikstjór-
anum að slöngva boð-
skapnum í hausinn á áhorf-
endum. Afstaða hans er
frekar eins og gömlu konunnar
þegar sonurinn er búinn að rífa
þakið ofan af henni í bókstaflegri
merkinu. Hún horfir á það reiði-
laust og hefur ekki annað að segja
en: „Hann er búinn að missa vitið.“
Þegar bíófólkið var komið til
sjálfs sín aftur úr loftleysinu eftir
að hafa nælt sér í vatnsdollur í næt-
ursjoppu blasti það við að þessi at-
hugasemd gömlu konunnar átti
ekki bara við um soninn heldur líka
um þann heim eftir árið tvö þús-
und, þar sem börn ganga kaupum
og sölum í stórum stíl, fyrir utan
allt annað sem þeim er gert og við
horfum á.
Bíókvöld í Montpellier
Sígaunalíf
Atriði úr myndinni Sígaunalíf.
Eftir Steinunni Sigurðardóttur
30 MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 4, 6 og 8 . Enskt tal.
Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta,
latasta og feitasta kött í heimi!
Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
Yfir 28.000 gestir!
Sýnd kl. 8 og 10.40.
Myrkraöflin eru
með okkur!
Mögnuð
ævintýra-
spennumynd!
Sýnd kl. 8.
HJ MBL
HJ MBL
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
kl. 4,6,8 og 10
"Fjörugt bíó"
Þ.Þ. FBL
Nicole Kidmani l i
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók, í
leikstjórn Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík
sem tekur
á stöðu ungs fólks í
íslenskum
samtíma
með húmorinn
að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
NOTEBOOK
NOTEBOOK
Sjóðheit og sexí gamanmynd um strák
sem fórnar öllu fyrir draumadísina
Ein besta ástarsaga
allra tíma.
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók, í
leikstjórn Silju
Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík sem tekur á
stöðu ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
Sýnd kl. 6,8 og 10.
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur
allrar fjölskyldunnar
er kominn í bíó!
Sýnd kl. 6. ísl tal.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10.15.
i
í
NOTEBOOK
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
BRESKU rafpönkararnir í The Prodigy munu halda tón-
leika hér á klakanum föstudaginn 15. október í Laugar-
dalshöll. Miðasala á tónleikana hefst í næstu viku, n.t.t.
mánudaginn 20. september klukkan 10.00, á öllum Nest-
isstöðvum Esso á höfuðborgarsvæðinu og eftirfarandi
sölustöðum Esso: Akureyri-Leiruvegi, Selfoss, Akranes
og Keflavík. Miðaverð er 3.900 kr. í stæði og 5.500 í stúku.
The Prodigy mun hefja tónleikaferð sína um Evrópu
hér á landi til að kynna nýjustu plötu sína Always Out-
numbered, Never Outgunned sem hefur verið að gera
það gott á vinsældalistum um allan heim. Þá má nefna að
uppselt er nú þegar á nær alla tónleika The Prodigy fram
yfir áramót. Hljómsveitin mun mæta með glænýja sýn-
ingu í farteskinu en með Keith Flint, Maxim Reality og
Liam Howlett mæta trommuleikari og gítarleikari til
þess að gæða tónleikana meira lífi. Tónleikahaldarar lofa
góðri skemmtun en þetta mun vera fjórða heimsókn Ís-
landsvinanna í The Prodigy.
Til þess að koma fólki í rétta gírinn fyrir tónleikana
mun hljómsveitin Quarashi mæta og hita upp lýðinn.
Quarashi er einmitt að gefa út nýja plötu titlaða Gorilla
Disco 14. október, degi fyrir tónleika The Prodigy þannig
að þetta eru svo til útgáfutónleikar þeirra drengja.
Vangaveltur voru um hvort rokkararnir í Mínus kæmu til
með að hita líka upp en svo verður þó ekki vegna anna hjá
þeim.
The Prodigy kemur til landsins í fjórða sinn
Miðasala hefst í næstu viku
The Prodigy hefur tónleikaför sína um Evrópu á Íslandi.
TÍMARIT Lögréttu var gefið út í
fyrsta sinn á föstudag en það er nýtt
fræðirit á sviði lögfræði, gefið út af
Lögréttu, félagi laganema Háskólans
í Reykjavík (HR). Í tilefni útgáfunnar
var haldið útgáfuteiti í HR þar sem
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, flutti ávarp ásamt því
að Þórður S. Gunnarsson, forseti
lagadeildar HR, Gunnar Egill Eg-
ilsson, formaður Lögréttu, og Andri
Gunnarsson, ritstjóri Tímarits Lög-
réttu, ávörpuðu gesti. „Útgáfa Tíma-
rits Lögréttu er enn eitt skrefið í við-
leitni Lögréttu og lagadeildar HR að
stuðla að opnum vettvangi fyrir
fræðilega umræðu á sviði lögfræði,“
segir Andri Gunnarsson og bætir því
við að auk greina eftir ýmsa virta sér-
fræðinga, megi benda á grein í
blaðinu eftir nemanda HR, því til-
gangur tímaritsins sé einnig að vera
vettvangur fyrir rannsóknir nem-
enda.
Höfundar í þessu fyrsta tölublaði
tímaritsins eru dr. Guðmundur Sig-
urðsson, Jón Steinar Gunnlaugsson
prófessor, Svala Ólafsdóttir lögfræð-
ingur, Áslaug Björgvinsdóttir dósent
og Ólafur E. Friðriksson laganemi.
Morgunblaðið/Þorkell
Björn Bjarnason flutti ávarp í útgáfuteiti Tímarits Lögréttu.
Nýtt rit um lögfræðiefni