Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 14
HÚS & HEIMILI
KÁPUR, dragtir, pils og buxur úr tweed er það sem
koma skal í hausttískunni, að því er fram kemur á vef
New York Times. Helstu fatahönnuðir sýndu föt úr tweed fyrir
komandi hausttísku og er af sem áður var þegar ekki var pláss
fyrir tweed-efnin innan um naumhyggju tíunda áratugarins.
Það þarf þó ekki að halda til New York til að sannfærast um að
tweed-efni setja sannarlega svip á tískuna þennan veturinn því
stutt rölt um tískuverslanir á höfuðborgarsvæðinu sýnir svo ekki
verður um villst að tweedinu er spáð miklum vinsældum. Þannig
má víða finna tweed-dragtir, ýmist pils- eða buxnadragtir, og eins
er tweed-efninu í mörgum tilfellum tvinnað saman við önnur og
allsendis ólík efni með skemmtilegum árangri. Tweed-jakkar eru
þá ýmist aðsniðnir eða um að ræða karlmannlega mittisjakka,
en pilsin í flestum tilfellum stutt eða í hnésídd.
Og þótt tweed-efnin kalli vissulega upp ímynd fágunar og
kvenleika er þeim einnig gefið frjálslegra og hversdags-
legra yfirbragð með því að hafa brúnir trosnaðar, liti líflega
eða einfaldlega með því að para tweed-jakka saman við
gallabuxur. Skór, töskur, hattar og treflar fara þá ekki
varhluta af áhrifum tweed-efnanna þetta árið og sýndi
fatahönnuðurinn Junya Watanabe m.a. ponsjó úr tweedi á
tískusýningarpöllum sínum. Það er því af nógu að taka og
ætti ekki að reynast erfitt að finna línu innan tweed-tískunnar sem
fellur að stíl jafnt sem efnahag hvers og eins.
Morgunblaðið/Sverrir
Vinsælt efni: Jafnvel barnafatnað má finna úr tweed-efnum þetta haustið eins og þessi kápa
sem Marta María Stephensen klæðist er dæmi um. Noa Noa.
Á blómlegum
nótum:
Skrautleg
taska með af-
slöppuðu yf-
irbragði.
Monsoon.
Dömulegur
jakki:
Trosnaðar brúnir
setja tweed-efnið í
nýstárlegan búning.
Oasis.
Á skoskum nótum:
Stutt tweed-pils í jarðlit-
unum. Marco Polo.
Fortíðarstraumar:
Hattur í anda fyrri tíma.
Monsoon.
Í anda
fortíðar:
Jafnvel
skórnir
sleppa ekki
við áhrif
tweed-tísk-
unnar þetta
haustið. The
Shoe Studio.
Sterkar
andstæður:
Jarðlitað
tweed-efnið fer
vel með sterk-
bleikum lit
ólarinnar.
Marco Polo.
Tískutaktar í tweed
TÍSKA
Fágað
yfirbragð:
Hlýlegir hanskar
fyrir íslenskan
vetur. Monsoon.
14 MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF