Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 7 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S F LU 2 57 71 09 /2 00 4 Komdu hópnum þínum á óvart! Við gerum hópnum þínum frábær ferðatilboð til allra áfangastaða okkar innanlands, hvort sem ferðinni er heitið norður, suður, austur eða vestur, og til Færeyja að auki. Þið njótið þeirrar fjölbreyttu afþreyingar sem í boði er vítt um land í skemmtun, menningu, ævintýrum og upplifun. Kannaðu hópafargjöldin fyrir þinn hóp og þá möguleika sem í boði eru á hverjum stað í síma 570 3075, á vefsíðunni www.flugfelag.is eða sendu fyrirspurn á hopadeild@flugfelag.is (Lágmarksfjöldi er 10 manns.) árshátíð - menning - áskorun - hópefli - hvíld - djamm - samstaða - óvissa - upplifun - ævintýri - félög - klúbbar - vinir - samtök - konur - karlar - stelpur - strákar flugfelag.is | 570 3075 Taktu flugið MIKILL fjöldi Grafarvogsbúa á öllum aldri tók þátt í gerð vináttulistaverks í Húsaskóla, en þar sem Grafarvogsdaginn bar í ár upp á 11. september var ákveðið að tileinka daginn vináttunni. „Það var troðfullt út úr dyrum í Húsaskóla, en líklegt má telja að um þrjú til fjögur þúsund manns hafi lagt leið sína í skólann yfir daginn,“ sagði Þráinn Haf- steinsson, íþrótta- og tómstundaráðgjafi í Grafarvogi, í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður segir Þráinn afar ánægjulegt hversu margir tóku þátt í gerð vináttulista- verksins, en stefnt var að því að búa til stærsta vináttulistaverk Íslandssögunnar. „Eftir er að mæla pappírsstrangann og verð- ur það gert einhvern næstu daga, en senni- lega eru þetta um hundruð metrar af vin- áttumyndum, textar um vináttuna og ljóð, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Þráinn, en verið er að kanna hvar og hvernig hægt verði að hafa vináttulistaverkið til sýnis í Grafarvog- inum. Aðspurður segir Þráinn þátttöku íbúa í viðburðum Grafarvogsdagsins ívið meiri í ár en á undanförnum árum. Að vanda var Mátt- arstólpinn, verðlaun fyrir framúrskarandi fé- lags- og menningarstarf í Grafarvogi, afhent- ur á Grafarvogsdeginum og féll hann að þessu sinni í skaut Foreldra- og kennara- félags Engjaskóla. Metþátttaka í Grafarvogsdeginum Morgunblaðið/Sverrir Vinátta í verki – stærsta vináttulistaverk Íslandssögunnar? TVÆR milljónir króna hafa safnast í gegnum söfnunarsíma Rauði kross Íslands vegna hjálpastarfs í Beslan í N-Ossetíu og hefur Rauði krossinn að auki sent eina milljón kr. til hjálparstarfsins. Því til við- bótar hefur Og Vodafone gefið Rauða krossinum hálfa milljón króna til hjálparstarfsins og nema framlögin því samtals 3,5 milljón króna. Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri útbreiðslusviðs Rauðs krossins, segir að 2.200 manns hafi hringt í söfnunarsímann907 2020 til að styðja aðgerðir Rauða krossins í Beslan. Telst það mjög góð þátt- taka og verður síminn opinn áfram. Sendifulltrúi fann tvær stúlkur EITT af verkefnum Rauða krossins er að hafa uppi á fólki sem saknað er á átakasvæðum. Á mánudaginn fyrir viku var tölvupóstur frá Bandaríkjunum, sem lýsti mikilli angist, sendur skrifstofu Alþjóða Rauða krossins í Moskvu og spurt um afdrif tveggja ungra stúlkna, sem teknar höfðu verið í gíslingu í hryðjuverkunum. Sendifulltrúi Rauða krossins fór að leita að stúlk- unum, þeim Innu og Natalíu, og fann þær. Önnur þeirra var særð, en hin haldin mikilli áfallastreitu. Rauði krossinn hefur sent mikið af hjálpargögnum til Beslan, að- allega til aðstoðar á sjúkrahúsum þar sem hlúð er að um 400 manns sem sluppu lifandi úr gíslatökunni. 3,5 milljónir kr. til hjálparstarfs í Beslan TOGVEIÐIBÁTURINN Aðalvík SH 443 fékk troll í skrúfuna í fyrrinótt 16 sjómílur vestan við Sandgerði og óskaði aðstoðar við að skera úr henni. Fór björgunarskip Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, Hannes Þ. Hafstein, með tvo kafara á vettvang, en þegar komið var að skipinu var ákveðið að draga það nær landi á sléttari sjó til að skera úr. Að sögn Hjálmars Hjálm- arssonar, yfirvélstjóra á Hannesi Þ. Hafstein, tók óvenjulangan tíma, eða tvær klukkustundir, að skera úr skrúfunni því flækjan var mikil. Hafði pokinn á trollinu og belg- urinn flækst í skrúfunni svo að- gerðin varð tafsöm. Lauk þeim um hádegið og kom Hannes Þ. Hafstein til lands í Sandgerði kl. 12.30 eftir átta klukkustunda leiðangur, sem er með lengri björgunarferðum sem skipið hefur farið í. Þar af tók það 3 klst. að draga Aðalvíkina og 2 klst. að skera úr skrúfunni. „Þetta gekk í það heila áfalla- laust þótt það hefði tekið óvenju- langan tíma að skera úr skrúfunni,“ sagði Hjálmar. Aðalvík er 234 brúttólesta skip, smíðað 1959 í Þýskalandi. Fékk troll í skrúfuna við Sandgerði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.