Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 27
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 27 Við óskum Kraftvélaleigunni til hamingju með stærsta trjákurlara landsins, Vermeer BC 1000i Sími 594 6000 Akralind 2, 201 Kópavogur Kraftvélaleigan bætir flotann Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) hefur,í samræmi við þjónustusamning viðmenntamálaráðuneytið, yfirfarið náms-skrár í óformlegu námi og gert tillögur um mat til eininga á framhaldsskólastigi í samvinnu við matsnefnd á vegum menntamálaráðuneytisins. Nú þegar hafa fimm námsskrár verið yfirfarnar fyrir Mími-símenntun, sem er samstarfsaðili FA, auk þess sem unnið er að lýsingum og mati á fleiri námstilboðum, m.a. Fagnámi fyrir verslunarfólk. FA er samstarfsvettvangur ASÍ og SA um fullorð- ins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði. Meginmarkmið FA er að veita starfsfólki með litla grunnmenntun tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmda- stjóri FA, segir mörg brýn verkefni liggja fyrir. „Þar sem Fræðslumiðstöðin er enn ung að árum, ekki orðin tveggja ára, má segja að öll þessi verk- efni séu framtíðarverkefni. Til lengri tíma litið verður mikilvægast að byggja upp mat á raunfærni starfsmanna. Í löndunum í kringum okkur hefur verið mikil áhersla á þennan málaflokk á síðast- liðnum árum. Einnig er mikilvægt til framtíðar að byggja upp náms- og starfsráðgjöf fyrir fólk á vinnumarkaði. Fyrir þá sem hafa minnsta grunn- menntun eru upplýsingar um möguleika, hvatning og stuðningur afar mikilvæg. Loks þarf að huga sérstaklega að þeim sem hafa átt í námserfiðleikum, svo og þeim hópum sem ekki eiga íslensku að móðurmáli.“ Hver eru brýnustu verkefnin í dag? „Brýnustu verkefnin í dag eru að fjölga þeim möguleikum sem fólk með litla grunnmenntun hef- ur til að bæta við þekkingu sína og færni, efla og tryggja gæði námstilboðanna og fá þau metin til styttingar á námi. Samningar eru á döfinni við ýmsa fræðsluaðila um samstarf við lýsingar á námstilboðum þeirra og mat á þeim til eininga á framhaldsskólastigi. Með þessu móti gefst fólki möguleiki á að stytta leið sína í framhaldsskólanum, en einnig að sjá hvers virði það nám er sem það hefur stundað. Fjöldi starfsmanna með litla grunnmenntun er mikill á íslenskum vinnumarkaði, eða um 30–60% Hvaða gildi hefur FA fyrir atvinnulífið? „Eftirspurnin eftir menntuðu vinnuafli er mikil. Ef íslenskt atvinnulíf ætlar að standa sig í stöðugt aukinni samkeppni milli þjóða heimsins, þá verður að lyfta þekkingarstiginu. Meðlimir stéttarfélag- anna óska í auknum mæli eftir því að fræðsla sé á dagskrá stéttarfélaganna. Þá vilja fyrirtæki í aukn- um mæli gera símenntunaráætlanir fyrir starfs- menn og greina þarfir fyrir þekkingu innan fyrir- tækjanna.“ Símenntun | Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fær óformlegt nám metið til eininga Verður að lyfta þekkingarstiginu  Ingibjörg Elsa Guð- mundsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1951. Hún lauk BA-gráðu í sálfræði og kennslu- réttindum frá HÍ. Þá lauk hún M.Ed-námi frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum auk náms í norrænni full- orðinsfræðslu. Ingibjörg hefur starf- að víða í íslensku atvinnulífi en gegnt starfi framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar at- vinnulífsins frá 2003. Ingibjörg á tvö börn og tvö barnabörn. Hryðjuverkið í Beslan HRYÐJUVERKIÐ í Beslan er ofar- lega í huga fólks um allan heim þessa dagana, enda stingur það sárt í hjartað að sjá hörmungar og sorg vesalings fólksins sem missti börnin sín í þessum hryllingi. Það er líka fólki um megn að skilja innræti þeirra sem skipuleggja og fram- kvæma svona voðaverk, enda er vart hægt að ímynda sér neitt svívirði- legra og verra og svona verknaður getur aldrei leitt til ávinnings ger- endanna. Ég ritaði nafn mitt í minningabók í sendiráði Rússa á þriðjudags- morgni. Þar var þá enginn annar gestur á ferðinni þeirra erinda, enda sá ég í Morgunblaðinu í dag, að að- eins 167 manns hefðu komið þessa tvo daga og vottað Rússum samúð sína. Hvar er nú sýnilegur samúðar- vottur Íslendinga til þessara bræðra okkar og systra, sem hafa misst börn sín, barnabörn, mæður og eig- inkonur í þessu skelfilega voða- verki? Hvar eru þeir sem hafa skipulagt kertafleytingar? Það er ekki of seint ennþá. Hvar eru prestarnir á virkum degi, hvers vegna voru ekki haldnar minningarguðsþjónustur á þessum hörmulegu sorgardögum Rússa? S.J.S. Hver þekkir ljóðið? MIG langar til að vita hvort einhver þekkir þetta ljóð. Ég kvíði ei lengur komandi tíma. Ég hætt er að starfa og tekin að bíða. Ég horfi í ljósið sem lýsir fram veginn. Held göngunni áfram verð hvíldinni feginn. Ef einhver kannast við þetta myndi sá hinn sami hafa samband við mig í síma 551 9469 eða í tölvu- póst baldintata@yahoo.com. Með fyrirfram þökk. Hvar fæst hangiflot? ER einhver sem getur sagt mér hvar hægt er að kaupa hangiflot? Þeir sem gætu gefið upplýsingar eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 861 6267. Sími í óskilum SÍMI fannst á göngustígnum á Grandanum skammt frá Nóatúni við Hringbraut. Sá sem telur sig eiga símann getur hringt í síma 868 6431. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is STYTTAN af Davíð eftir Michel- angelo, sem prýðir Flórensborg eins og svo mörg önnur endurreisn- arverk, fagnaði fimm hundruð ára afmæli sínu fyrir skömmu. Hinn 8. september árið 1504 var stytta hins 22 ára gamla myndlistarmanns af- hjúpuð með formlegum hætti. Níu mánaða afmælisveisla Davíð til heiðurs er því nýhafin í Flórens, þar sem tónleikar, flugeldasýn- ingar, myndlistarsýningar og sér- stakir minjagripir heiðra hálfs ár- þúsunds afmæli hans. Á fréttavef BBC, var það haft eft- ir Franca Felletti, en hún hefur um- sjón með þeim stað þar sem Davíð er til sýnis, að „nú sé komin tími til að við förum að átta okkur á því hversu mikla þýðingu Davíð getur haft í samtíð og framtíð“. En eins og margir vita hefur þessi fræga stytta verið eitt helsta kennileiti Flórensborgar um margar aldir. Davíð gekk í gegnum umdeilda hreinsun fyrir afmælið, en með þeim hætti gera yfirvöld í Flórens tilraun til að „koma Davíð aftur til starfa, frekar en að setja hann á eftirlaun“, eins og Felletti orðar það. Stefna borgaryfirvalda er því að augljóslega sú að Davíð haldi áfram að þjóna hlutverki sínu sem kennileiti í borginni, hvað svo sem tautar og raular. Á myndinni sést hann nýhreinsaður, hvítur og strokinn. AP Davíð fimm hundruð ára NÝ tveggja binda útgáfa ritsins Stjórn- arráð Íslands 1904–1964 eftir Agnar Klemens Jónsson, sendiherra og ráðuneytisstjóra, er komin út. Ritið, sem kom upphaflega út árið 1969 í tveimur bindum, hefur æ síðan reynst haldgott yfirlitsrit um sögu fram- kvæmdavalds og stjórnsýslu á tíma- bilinu. Í tilefni af aldarafmæli Stjórnarráðs Íslands á þessu ári var ákveðið að ráðast í endurútgáfu verksins, sam- hliða útgáfu ritsins Stjórnarráð Ís- lands 1964–2004 í þremur bindum. Í þessari nýju útgáfu á verki Agnars Kl. Jónssonar hafa flestar myndir verið endurnýjaðar og myndaskrá samin. Þá hefur brotið verið stækkað til sam- ræmis við brot Stjórnarráðs Íslands 1964–2004. Með þessari endurútgáfu hefur saga framkvæmdavaldsins verið gerð aðgengileg frá því að það fluttist með heimastjórn frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur og til þessa dags. Útgefandi er Sögufélagið. Stjórnarráð Ís- lands 1904–1964 LAUNAMÁL hljóðfæraleikara í hljómsveitum eru í brennidepli í Bretlandi um þessar mundir, að því er fréttastofa BBC greinir frá. Ótt- ast forsvarsmenn samtaka tónlist- arfólks að bág launakjör gætu valdið dauða greinarinnar. Fram kom í könnun sem samtökin stóðu fyrir að meðalhljómsveitarleikari hefði verið í starfi í 21 ár og hefði rúmar 240.000 krónurá mánuði að meðaltali í laun. „Fólk sem undir venjulegum kringumstæðum vildi starfa innan greinarinnar er að hverfa til annarra starfa, einfaldlega vegna þess að það eru ekki nægir peningar til að lifa hefðbundnu lífi og sjá fyrir fjöl- skyldu,“ sagði Bill Kerr hjá sam- tökum tónlistarmanna í Bretlandi. Mikill meirihluti breskra hljóð- færaleikara tekur að sér aukaverk- efni til að ná endum saman. Einnig kemur fram í frétt BBC að flestir þeirra leiki á hljóðfæri sem kosti meira en árslaun þeirra, um þrjár milljónir króna. Laun ákvarðast af því fé sem hljómsveitir hafa úr að spila og er nú stefnt að því að finna lausnir á fjár- mögnun þeirra, meðal annars með aðstoð einkaaðila. „Við erum að reyna að kalla eftir hugmyndum frá öllum sem hafa áhuga á hljóm- sveitum og klassískri tónlist,“ sagði Kerr, „því við ætlum ekki að fara beint til stjórnvalda og heimta alltaf meir. Það hlýtur að vera til aðferð til að leiðrétta fjármál hljómsveitanna á þann hátt að hægt sé að bjóða hljóðfæraleikurum meira öryggi og betri launakjör. Annars gæti svo far- ið að starfsgreinin legði upp laup- ana.“ Tónlist | Samtök tónlistarmanna í Englandi tjá sig um laun Bág launa- kjör hljóð- færaleikara áhyggjuefni Morgunblaðið/Kristinn Borgarstjórinn spreytir sig á því að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands, en Reykjavíkurborg leggur til 18% af rekstrarkostnaði hennar. Fréttasíminn 904 1100 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.