Morgunblaðið - 13.09.2004, Side 10

Morgunblaðið - 13.09.2004, Side 10
FRÉTTIR 10 MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ INNBROT í Reykjavík voru 12% færri á fyrstu átta mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Lögregla þakkar þetta að hluta til bættum starfsháttum sínum en segir jafn- framt ljóst að mun fleiri þættir hafi áhrif á tíðni afbrota. Í upphafi ársins setti lögregla sér ýmis markmið og var eitt þeirra að draga úr innbrotum um 20%. Meðal þess sem átti að stuðla að fækkun var að auka skipulagt eftirlit á merktum og ómerktum lögreglufarartækjum. Þá var ákveðið að taka upp mark- vissa samvinnu við tryggingarfélög og fjölmiðla. Hinrik Pálsson, rannsóknarlög- reglumaður og afbrotafræðingur, var umsjónarmaður verkefnisins. Á blaðamannafundi sagði hann að mikil áhersla hefði verið lögð á bætta sam- vinnu og upplýsingagjöf milli vakta og deilda auk þess sem samvinna við borgaryfirvöld og öryggisfyrirtæki var aukin. Þá hefðu gagnagrunnar lögreglu verið notaðir til að finna út í hvaða hverfi afbrot væru tíðust hverju sinni og eftirlit miðað við það. Nú væri stefnt að því að vinna upp- lýsingar úr tölvukerfi lögreglu yfir á kortagrunn en með því móti yrði auðveldara að greina „heit svæði“, þ.e. hverfi þar sem innbrot eru tíð. Seig á ógæfuhliðina í mars Eins og áður sagði var stefnt að 20% fækkun innbrota. Horfurnar voru bjartar í byrjun árs þegar inn- brot voru allnokkuð færri en í fyrra. Í mars og apríl seig á hinn bóginn talsvert á ógæfuhliðina þegar inn- brotum fjölgaði skyndilega á nýjan leik. Þeim fækkaði síðan töluvert í sumar og voru um þriðjungi fátíðari en í fyrra. Hinrik sagði að yfirleitt væri fá- mennur hópur manna, harður kjarni, ábyrgur fyrir flestum innbrotunum. Í ár hefði lögregla lagt aukna áherslu á að fylgjast með þekktum afbrota- mönnum og þeir sem taldir væru virkastir hverju sinni. Þetta hefði gefið mjög góða raun. Frá janúar til ágúst voru 162 ein- staklingar kærðir fyrir innbrot, sum- ir oftar en einu sinni. Innbrotsþjófar eru yfirleitt karlkyns en aðeins 19 konur voru kærðar fyrir innbrot á þessu tímabili. Ein kvennanna var þó kærð í átta tilvikum, oftast allra inn- brotsþjófa. Líkt og fyrr voru innbrot í bifreiðar allt að helmingur allra inn- brota. Hinrik sagði að þar væri helsta sóknarfærið, með því að skilja ekki verðmæti eftir í bílum sínum gætu bíleigendur verulega minnkað líkur á innbrotum. Skilvirkari vinna en áður Hinrik taldi að góður árangur hefði orðið af þeim áherslum sem settar voru í byrjun árs og taldi hann vinnuna skilvirkari en fyrr. Lögregl- an byggi einnig yfir betri upplýsing- um og gæti gripið fyrr inn en áður. Meiri og nýrri upplýsingar væru nú tiltækar en áður og það leiddi til þess að lögregla gæti gripið fyrr inn í ef afbrotahrina væri í uppsiglingu. Hin- rik segir ljóst að ýmislegt annað en starf lögreglu hafi áhrif á fjölda af- brota, m.a. skipti upplýsingar frá al- menningi miklu máli. KARL Steinar Valsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn sagði að flestir þeirra sem handteknir eru fyrir innbrot væru fíkniefnaneytendur sem notuðu þýfið til að fjármagna neysluna. Hljómflutningstæki og tölvubúnaður væru vinsæl skipti- mynt og þar gilti ákveðið gengi, t.d. hefði lengi fengist eitt gramm af amfetamíni fyrir bílageislaspil- ara. Spurður um hvort markmiðið um 20% fækkun innbrota myndi nást sagði Karl Steinar að það yrði erfitt. Fram til þessa hefði lög- regla einbeitt sér að innra skipu- lagi og starfsháttum en hann minnti á að borgararnir gætu lagt mikið af mörkum með því að hafa samband við lögreglu ef þeir teldu að eitthvað misjafnt væri á seyði. Þá yrði fólk að vera á varðbergi gagnvart sölumönnum þýfis. „Það er ekki eðlilegt ef manni stendur til boða að kaupa nýja fartölvu á 50.000. Þá er eitthvað að.“ Annað markmið sem lögregla setti sér var að draga úr umferð- arslysum um 5%. Karl Steinar sagði að því miður myndi þetta lík- lega ekki nást, umferðin hefði ver- ið sérlega erfið í sumar. Gramm fyrir geislaspilara Innbrotum í Reykjavík hefur fækkað um 12% á fyrstu átta mánuðum þessa árs Eftirlit með þekkt- um afbrotamönnum gefur góða raun Morgunblaðið/Júlíus Hinrik Pálsson og Karl Steinar Valsson ræddu um forvarnir og innbrot. „ÉG TEL að ýmsir sóknarmögu- leikar séu fyrir hendi varðandi auk- ið bleikjueldi á Íslandi, við höfum víða góðar aðstæður og auknar rannsóknir og kynbætur er varða vaxtarhraða og kynþroska gefa meiri möguleika á hraðari fram- leiðslu. Ísland er stærsti bleikju- framleiðandi í heimi í dag enda sam- keppnisfærari í því en ýmsu öðru fiskeldi,“ segir Friðrik Steinsson, framleiðslustjóri Hólalax að Hólum í Hjaltadal, í samtali við Morgun- blaðið. Fiskeldisfyrirtækið Hólalax var stofnað 1979 og framleiddi fyrst ein- göngu laxaseiði til sleppinga vegna fiskiræktar í ám á Norðurlandi vestra en stærstu hluthafar fyr- irtækisins eru nokkur veiðifélög þar. Uppúr 1991 hóf stöðin að fram- leiða bleikju til slátrunar og er það aðalstarfsemin í dag. Allt að 95% bleikjunnar fara á erlendan markað, einkum til Bandaríkjanna og Evr- ópulanda. Einnig er framleiðsla á bleikjuseiðum sem seld eru til mat- fiskeldisstöðva. Áfram eru framleidd laxaseiði til sleppinga og stendur nú fyrir dyrum að sækja klakfisk í ár. „Bleikjueldið gefur okkur jafnar tekjur allt árið enda erum við að slátra og vinna tvö til þrjú tonn af bleikju í hverri viku en tekjur af laxaseiðasölunni koma einkum yfir sumarið svo þær eru mjög árstíðabundnar,“ segir Frið- rik. Starfsemi á þremur stöðum Starfsemi Hólalax fer fram bæði á Hólum og í Fljótum. Á Hólum er ein- göngu bleikjueldi en í Fljótunum eru laxaseiðin alin. Þá fer vinnsla á bleikjunni fram í aðstöðu sem Hóla- lax hefur til afnota hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki en fyrirtækið keypti fyrir alllöngu hlut ríkisins í Hólalaxi. Fimm manns starfa alls hjá fyr- irtækinu. „Í svona rekstri er tvennt einna mikilvægast, annars vegar nægilegt rennandi kalt vatn og hins vegar aðgangur að heitu vatni til að hita kalda vatnið í 8 til 10 gráður sem er kjörhitastig fyrir bleikjueldi. Eldið gengur hægar fyrir sig í kald- ara vatni en í svona rekstri eins og flestum öðrum er mikilvægast að ná sem mestum hraða í allri veltu.“ Bleikjueldið hjá Hólalaxi er ein- göngu í ferskvatni og segir Friðrik stöðina hafa verið lausa við sjúk- dóma, ekki hafi þurft að koma til bólusetningar á eldisfiski í stöðinni. Nábýlið við Hóla í Hjaltadal hefur að sögn Friðriks ýmsa kosti og nefn- ir hann þar sérstaklega rannsókn- irnar á kynbótum á bleikju. „Við njótum góðs af því þar sem við get- um stundum verið fyrri til að hag- nýta okkur nýjar upplýsingar og þekkingu sem þar verður til,“ segir Friðrik. Slátrað eftir 14 til 18 mánaða eldi Hjá Hólalaxi eru framleidd milli 100 og 120 tonn af bleikju árlega og er henni yfirleitt slátrað eftir 14 til 18 mánaða eldi, þegar hún er eitt til tvö pund. Friðrik segir Evrópu- markað ekki vilja mikið stærri en kílós fisk en á markað í Bandaríkj- unum er yfirleitt sendur fiskur sem er um og yfir eitt kíló. Hann segir fiskinn flakaðan og fluttan út fersk- an með flugi en fiskurinn er unninn og tilbúinn til útflutnings að kvöldi sláturdags. Er honum þá ekið í flug í Keflavík. Friðrik segir útflutninginn hafa gengið vel síðustu misserin, markaður hafi verið stöðugur og verðið þokkalega hátt. Hólalax er þriðji stærsti bleikjuframleiðandinn hérlendis næst á eftir Silungi á Vatnsleysuströnd og Silfurstjörn- unni í Þingeyjarsýslu. Nokkrir bændur stunda einnig bleikjueldi og selja bæði á markað heima og heim- an. Friðrik segir Kanada og Noreg vera næst á eftir Íslandi í bleikju- framleiðslu. Friðrik segir til athugunar hjá Hólalaxi hvort unnt sé að auka fram- leiðsluna og gera hana enn hag- kvæmari. Til að svo megi verða þurfi að útvega meira heitt vatn eða endurnýta vatnið en það þýði dæl- ingu í hringrás sem bæði kosti fjár- festingu og sé nokkuð dýr í rekstri. Segir hann þessar hugmyndir allar á frumstigi og vera vangaveltur til framtíðar. „Ég er ágætlega bjart- sýnn á bleikjueldið hjá okkur og hér- lendis yfirleitt og tel nokkuð örugga framtíð í því meðan gæðin sitja í fyr- irrúmi og markaðsstarfið er í lagi,“ segir Friðrik Steinsson að lokum. Morgunblaðið/jt Friðrik Steinsson, framkvæmdastjóri Hólalax, hugar að fóðrinu. Ýmsir sóknarmöguleikar fyrir Íslendinga í bleikjueldi Hólalax framleiðir 100 til 120 tonn af bleikju á ári sem fer aðallega á erlendan markað KYNBÆTUR á bleikju fara fram í tengslum við fiskeldisdeildina í Hóla- skóla en unnið hefur verið að þessum kynbótum í meira en 12 ár. Þeim stýrir í dag Einar Svavarsson og ann- ast skólinn kynbótaverkefnið sam- kvæmt samningi við landbún- aðarráðuneytið en stjórn verkefnisins er skipuð fulltrúum ráðuneytisins, bleikjuframleiðenda og Hólaskóla. „Markmið kynbótanna er að rækta hraðvaxta bleikjustofna til eldis og seinka kynþroskanum en við kyn- þroska missir fiskurinn holdlit og horast og verður ekki lengur góð söluvara,“ segir Einar í samtali við Morgunblaðið. Kynbætur hófust með samanburði á stofnum úr nokkrum ám og vötnum árið 1989 og stóðu þær til 1992. Þá var ákveðið að kynbæta tvo stofna, ljósan stofn að mestu úr Ölvesvatni á Skagaheiði og dökkan stofn úr Gren- læk í Landbroti, Litluá í Kelduhverfi og fleiri ám. Er stofnunum haldið að- skildum við kynbæturnar. Stærstu fiskarnir í úrvalið Einar segir að í stuttu máli gangi kynbæturnar þannig fyrir sig að úr hópi 5 þúsund fiska séu valdar um 170 hrygnur og 60–70 hængar til undan- eldis á ári. Aðeins stærstu fiskarnir komast í úrvalið og úr þeim úrvals- fiski eru myndaðar um 170 fjöl- skyldur. Úrtak úr hverjum systk- inahópi er síðan alið áfram í kynbótastöðinni og fiskum úr sömu hópunum jafnframt komið fyrir í tveimur öðrum fiskeldisstöðvum, Silf- urstjörnunni og Glæði, til að kanna hvort ólík uppvaxtarskilyrði hafi áhrif. Við tveggja ára aldur eru allir fiskarnir þyngdar- og lengdarmældir og kynþroski skráður og eru þessar mælingar grundvöllur einkunnar til að velja úr fiska til undaneldis. Einar segir alltaf talsverðan mun á vexti fiska í svo stórum hópi og byggjast kynbæturnar á því að velja til undaneldis þá einstaklinga sem vaxa hraðast og verða ekki kyn- þroska fyrr en við þriggja ára aldur. Núna í haust verður úrval 5. kyn- slóðar notað til undaneldis. Hann seg- ir að árangur megi m.a. meta út frá því að fyrst hafi milli 20 og 30% fiska orðið kynþroska of snemma en nú séu það innan við 5%. Segir hann fiskinn nú yfirleitt ekki ná kynþroska fyrr en eftir þrjú ár og hluti hans ekki fyrr en eftir fjögur ár. Einnig segir hann meðalþyngd tveggja ára fiska hafa aukist verulega. Hyggjast leita uppi erfðavísa Síðasti hlekkurinn í starfseminni er síðan sala hrogna frá þessum hæf- ustu fjölskyldum og segir Einar flesta bleikjuframleiðendur nú kaupa hrogn af kynbótastöðinni. En hvenær verður kynbótunum lokið? „Kynbæt- ur eru í sjálfu sér eilífðarverkefni og meðan bleikjueldi fer fram í landinu munum við stunda kynbætur. Þær munu áfram snúast um vaxtarhrað- ann og kynþroskann en menn hafa líka verið að gefa gaum að sjálfu fisk- holdinu, hvort fiskurinn sé of feitur eða slíkt en markaðurinn hefur samt ekki kvartað yfir því. Það má geta þess að kynbótaverkefnið hefur verið undirstaða ýmissa annarra rann- sókna á bleikju. Núna í haust fer t.d. af stað rannsókn, í samstarfi við kan- adíska vísindamenn, þar sem þess verður freistað að leita uppi einstaka erfðavísa sem hafa afgerandi áhrif á vaxtarhraða og kynþroskaaldur.“ Rækta hraðvaxta bleikjustofna Morgunblaðið/jt Einar Svavarsson (t.h.) og Jóhann Gestsson eru hér við föturnar sem seiðin eru alin í fyrstu mánuðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.