Morgunblaðið - 22.09.2004, Blaðsíða 2
Arkitektar að nýju íþrótta- og sýningahöllinni eru teiknistofan T.ark.
LAUGARDALSHÖLLIN verður
lokuð í um fimm mánuði á næsta ári
vegna framkvæmda við nýbyggingu
og endurbætur á 39 ára gamalli
höllinni. Stefnt að því að því að þeim
verði að fullu lokið í ágúst 2005.
Reykjavíkurborg og Samtök iðn-
aðarins stofnuðu hlutafélag um
þetta verkefni sem nefnist Íþrótta-
og sýningahöllin og eiga þar hvort
um sig jafnstóran hlut. Heild-
arkostnaður er áætlaður rösklega
1,4 milljarðar króna að meðtöldum
endurbótum á Laugardalshöll á
vegum borgarinnar. Laugardals-
höllin er rúmlega 6.000 m² að stærð
en nýja húsið er nokkuð stærra eða
um 7.000 m².
Jónas Kristinsson, forstöðumaður
Laugardalshallar, segir að nauð-
synlegt hafi reynst að loka höllinni
þar sem m.a. þurfi að brjóta niður
veggi milli bygginganna, leggja raf-
magns- og vatnsleiðslur auk þess
sem ráðist verði í tímabærar end-
urbætur. Þá fái „gamla góða höllin“
andlitslyftingu og hugað verði að
því að bæta hljómburð og sviðs-
mynd. Að öðru leyti verði allt með
svipuðu sniði innandyra og ekki er
gert ráð fyrir að áhorfendasætum
fjölgi.
Jónas bendir á að nýbyggingin sé
sérhönnuð fyrir frjálsar íþróttir og
sýningahald. Í íþróttasalnum verði
m.a. 200 metra hlaupabraut. „Þetta
er algjör bylting fyrir frjáls-
íþróttamenn og aðra sem geta not-
að þessa aðstöðu,“ segir hann. Þá
verði höllin kjörland fyrir ráð-
stefnur og sýningar, smáar sem
stórar.
Laugardalshöllin
lokuð í fimm mánuði
Íþrótta- og sýningahöll að rísa
2 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
DRÁPU GÍSL
Íslamskt vefsetur birti í gær-
kvöldi yfirlýsingu frá samtökum
Abu Mussabs al-Zarqawis, sem stað-
ið hefur fyrir mörgum hryðjuverk-
um í Írak, þar sem fram kemur að
þau hafi annan daginn í röð líflátið
bandarískan gísl sem þau höfðu í
haldi. Samtökin halda enn í gíslingu
breskum manni, Kenneth Bigley, og
hóta þau að taka hann einnig af lífi ef
ekki verður orðið við kröfum þeirra
um að öllum múslímskum konum í
íröskum fangelsum verði sleppt úr
haldi.
Annan óánægður
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, setti ofan í við
Bandaríkjamenn vegna innrás-
arinnar í Írak og framferðis banda-
rískra hermanna gagnvart íröskum
föngum í Abu Ghraib-fangelsinu.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
varði hins vegar innrásina í Írak í
ávarpi sínu á allsherjarþingi SÞ.
Hyggjast auðga úran
Íranar eru byrjaðir að breyta
hráu úrani í gas en um er að ræða
mikilvægt skref í áttina að því að
auðga úran. Íranar segjast einungis
vilja auðga úran til þess að geta
framleitt næga orku fyrir lands-
menn en Bandaríkjamenn grunar að
tilgangurinn sé þvert á móti sá að
framleiða kjarnavopn.
Tengjast ljósleiðaraneti OR
Orkuveitan undirbýr nú tengingu
heimila við ljósleiðaranetið og er
ráðgert að tæp fimm þúsund heimili
verði tengd við kerfið í fyrsta
áfanga. Samkvæmt heimildum
blaðsins munu OgVodafone og
Norðurljós selja þjónustu sína um
Netið.
Undanþágur frá verkfalli
Tíu undanþágubeiðnir frá kenn-
araverkfalli hafa borist sérstakri
undanþágunefnd sem mun fara yfir
þær á næstu dögum.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Viðskipti 12 Minningar 24/28
Erlent 13 Skák 31
Suðurnes 15 Dagbók 32/34
Höfuðborgin 16 Listir 35/37
Akureyri 16 Fólk 38/41
Landið 17 Bíó 38/41
Bréf 20 Ljósvakamiðlar 42
Umræðan 19/20 Staksteinar 43
Forystugrein 22 Veður 43
* * *
!
"
#
$
%&' (
)***
HÓPUR frá Femínistafélagi Íslands afhenti Halldóri
Ásgrímssyni forsætisráðherra fullar hjólbörur af les-
efni um jafnréttismál og bauð auk þess ríkisstjórninni
allri á námskeið um jafnréttismál við fyrstu hent-
ugleika, á fundi með forsætisráðherra í gær.
Halldór sagði miklu skipta að umræðan um jafnrétt-
ismál væri lifandi, enda málaflokkur sem skipti miklu
máli. Hann sagðist ekki geta svarað því hvort hann eða
aðrir úr ríkisstjórninni ætluðu að þekkjast boð Fem-
ínistafélagsins og koma á jafnréttisnámskeið. Hann
þakkaði þó fyrir bækurnar og blöðin sem honum voru
færð, þótt ljóst væri af magninu að klárlega væri þetta
ekkert sem hann læsi á einni viku.
„Það skiptir gríðarlegu máli að forsætisráðherra sé
vel að sér í jafnréttismálum og okkur finnst ríkis-
stjórnin ekki hafa staðið sig sem skyldi, ekki bara í orði
heldur á borði,“ sagði Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir,
ráðskona atvinnu- og stjórnmálahóps félagsins, eftir að
hópurinn hafði afhent lesefnið.
Vilja Halldór í lið með sér
Bryndís segir að heimsóknin í stjórnarráðið sé hugs-
uð til að fá forsætisráðherra í lið með femínistum. Hún
segir ljóst að mikið sé búið að ganga á og Halldór hafi
verið mikið gagnrýndur innan Framsóknarflokksins og
aðrir í ríkisstjórn fyrir stöðuveitingar.
Femínistafélagið bauð ríkisstjórninni allri á nám-
skeið um jafnréttismál.
Femínistar afhentu forsætisráðherra bækur um jafnrétti
Morgunblaðið/Þorkell
Fékk fullar hjólbörur af lesefni
AÐALMEÐFERÐ í líkfundarmál-
inu svonefnda hefst fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur 18. október og er
gert ráð fyrir að réttarhöldin taki tvo
daga. Þrír menn sæta ákæru ríkis-
saksóknara, einkum fyrir fíkniefna-
brot, sem tveir ákærðu játa á sig en
einn neitar. Þá er ákært fyrir brot
gegn lífi og líkama, sem neitað er af
öllum, og illa meðferð á líki Vaidas
Jucevicius, sem fannst látinn í höfn-
inni í Neskaupstað í febrúar sl. Tveir
neita sök þar, en einn játar að hluta
til. Gagnaöflun í málinu lauk í gær
þegar málið var tekið fyrir. Dómari
synjaði beiðni verjanda eins sak-
borningsins um að leggja fram bréf
þar sem farið var fram á að aflað yrði
upplýsinga um heilsufar Vaidas en
verjandinn taldi við þingfestingu
málsins í vor að slíkt gæti varpað
ljósi á meðvirkandi þætti sem tengj-
ast láti Vaidas hérlendis. Hefði kom-
ið fram að hann hefði verið maga-
veikur og með lungnabólgu áður en
hann kom hingað. Dómari sagðist
ekki sjá efni til að verða við beiðninni
og óskaði verjandinn þá úrskurðar
dómara þar sem ákvörðunin er rök-
studd nánar.
Líkfundarmálið tekið fyrir í dómi
Réttarhöld hefj-
ast 18. október
ÁTTA lögreglumenn sem skipuðu
samningahóp ríkislögreglustjóra
sögðu upp störfum sem samninga-
menn fyrir um einni viku. Töldu þeir
starfið stórlega vanmetið og óskuðu
eftir að fá greitt álag á laun sín en yf-
irlögregluþjónn hjá ríkislögreglu-
stjóra segir að ekki hafi verið hægt
að verða við því. Þegar hafi verið
gerðar ráðstafanir vegna þessa og
viðbúnaður sé fullnægjandi.
Samningahópurinn er hluti af sér-
sveit ríkislögreglustjóra. Hlutverk
samningamanna er m.a. að tala við
menn sem hóta öðrum með vopnum,
hafa tekið gísla eða eru í sjálfsvígs-
hugleiðingum.
Níu lögreglumenn voru í samn-
ingahópnum en áður en áttmenning-
arnir sögðu upp hafði hópstjórinn
hætt störfum. Allir halda þeir áfram
öðrum störfum sínum sem lögreglu-
menn.
Ekki fjárheimildir
Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn
og yfirmaður sérsveitar ríkislög-
reglustjóra, segir að óskir um álag á
laun hafi fyrst komið fram í vor. Ef
orðið hefði verið við þeim hefði það
valdið um 4–5 milljóna króna aukn-
um kostnaði á ári. Ekki hefðu verið
fjárheimildir fyrir því.
Jón segir að auðvitað sé slæmt að
missa mennina en eins og ávallt komi
maður í manns stað. Stór hópur lög-
reglumanna hafi fengið þjálfun í
samningatækni og hluti þeirra hafi
nú verið fenginn til þessara starfa.
Viðbúnaður sé því fullnægjandi þó
að auðvitað taki einhvern tíma að
koma hlutum í samt lag og áður.
Sérsveit
ríkislögreglustjóra
Samninga-
hópurinn
sagði upp
KÁRAHNJÚKASTÍFLAN hefur
nú fyllt sjálft Hafrahvammagljúf-
ur og náð um 70 metra hæð frá
gljúfurbotni. Að því er fram kem-
ur á vef Kárahnjúkavirkjunar er
stíflan því komin upp að gljúfur-
börmum.
Úthlið stíflunnar er orðin
greinileg, bæði í gljúfrinu og á
vesturbakkanum. Haldið verður
áfram að flytja efni í stífluna með
færiböndum og stórvirkum flutn-
ingabílum og þjappa það niður í
lögum, eða þar til að stíflan hefur
náð nærri 200 metra hæð. Á vef
virkjunarinnar má sjá nýjar
myndir af þessum framkvæmd-
um, www.karahnjukar.is.
Stíflan við Kárahnjúka
upp að gljúfurbörmum