Morgunblaðið - 22.09.2004, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Heilsubótar-
ganga í
skugga
vinnudeilna
ÞAÐ var æði napur en bjartur
haustdagur sem heilsaði börn-
um og fullorðnum í daglegri
heilsubótargöngu þeirra niður
Bólstaðarhlíðina í gær. Þetta er
hinn laglegasti hópur og tilvalið
að njóta útiverunnar þótt til-
efnið komi ekki til af góðu,
nefnilega verkfalli grunnskóla-
kennara. Svo háttar til að hér er
á ferðinni nemendahópur í Ís-
aksskóla sem fær enga íþrótta-
kennslu í verkfallinu. Það eru
því foreldrarnir sem skiptast á
um að hafa ofan af fyrir ungvið-
inu í íþróttatímum, en íþrótta-
kennarinn er í verkfalli.
EIRÍKUR Jónsson, formaður
Kennarasambandsins, segir engan
vafa leika á því að þriggja daga um-
þóttunartími sem sáttasemjari gaf
deiluaðilum eftir að upp úr slitnaði
á sunnudag, sé kappnógur fyrir
kennara. Ríkissáttasemjari sagði
spurningu í gær hvort gefa hefði átt
deiluaðilum lengri umþóttunartíma
en fram til fimmtudags, en það er
óþarfi að mati Eiríks. „Við hefðum
getað haldið áfram strax á mánu-
daginn,“ segir hann. „Við hefðum
skipt liði og sent út fólk til að kynna
stöðuna. Ég bendi á að öll sú hreyf-
ing sem orðið hefur í þessu máli
hefur verið af okkar hálfu.“
Eiríkur segir að það standi nú
upp á launanefndina að að nota tím-
ann milli funda til að hugsa fyrir
nýju útspili.
„Við höfum sett fram grundvall-
aratriði í vinnutíma, bæði í lang-
tíma- og skammtímasamningi. Þessi
atriði eru forsenda þess að deilan
leysist. Á meðan engin viðbrögð eru
merkjanleg hinum megin borðsins,
erum við ekki að spila út neinu
nýju.“
Eiríkur gagnrýnir sveitarstjórn-
armenn í landinu fyrir tómlæti í
garð skólastarfsins og segir að svo
virðist sem hinum pólitískt kjörna
einstaklingi „komi skólahald í land-
inu ekki við. Ég spyr hvar eru sveit-
arstjórnir þessa lands? Eru það
fjórir aðilar í samninganefnd launa-
nefndar sem bera alla ábyrgð á
skólastarfi? Hvar er þetta fólk sem
er að bjóða sig fram á fjögurra ára
fresti til að stjórna sveitarfélögun-
um? Liggur það í dvala?“
Nægur umþótt-
unartími
fyrir kennara
Eiríkur Jónsson
BIRGIR Björn Sigurjónsson, for-
maður launanefndar sveitarfélag-
anna, telur mikilvægt að samninga-
nefnd kennara og launanefndin
setjist niður eins fljótt og verða má
til þess að leita lausnar á deilunni.
Hann tjáir sig ekki beint um það
hvort sá þriggja daga umþóttunar-
tími sem ríkissáttasemjari gaf deilu-
aðilum á sunnudag, sé nægilega
langur, en segist að sjálfsögðu lúta
ákvörðun sáttasemjara um að mæta
á fund að nýju á morgun, fimmtudag.
„Menn hafa verið að fara yfir
framvinduna síðustu vikurnar og svo
horfa menn einnig fram fyrir sig,“
segir hann aðspurður hvernig launa-
nefndin verji tímanum fram að
næsta fundi. „Það hafa náttúrlega
komið upp ýmsar spurningar vegna
verkfallsins. Aðilar þurfa að skipa
undanþágunefnd vegna undanþágu-
beiðna sem kunna að koma frá ýms-
um stofnunum.“
Einnig hafi menn verið að sinna
ýmsum hagnýtum þáttum sem
tengjast verkfallinu.
„En við höfum auðvitað verið að
velta fyrir okkur stöðunni og höfum
tíma til þess fram að fimmtudegi. Ég
held að það sé mikilvægt að menn
setjist niður eins fljótt og verða má
til þess að leita að lausnum á eins for-
dómalausan hátt og menn geta.“
Engin ákvörðun hafi verið tekin
um hvort launanefndin hyggist
leggja fram nýtt útspil á samninga-
fundinum á morgun. Ekki sé þá unnt
að svara því í hvaða liði nákvæmlega
sé verið að fara fram að fundinum.
Birgir Björn tekur fram vegna
fyrirspurna og umræðna um verk-
bann á starfsmenn grunnskóla, aðra
en kennara, hafi sveitarfélög ekki
verkbannsheimild og því geti ekki
komið til verkbanns á aðra starfs-
menn skólanna sem eru í stéttar-
félögum opinberra starfsmanna.
Deiluaðilar
fundi sem fyrst
Birgir Björn Sigurjónsson
HÓPUR hæstaréttarlögmanna
hefur hrundið af stað undirskrifta-
söfnun meðal lögmanna til stuðn-
ings Jóni Steinari Gunnlaugssyni,
hæstaréttarlögmanni og eins um-
sækjenda um embætti hæstarétt-
ardómara sem losnar um næstu
mánaðamót. Í texta undirskrifta-
söfnunarinnar er settur dómsmála-
ráðherra í málinu, Geir H. Haarde,
hvattur til að leggja sjálfstætt mat
á kosti umsækjendanna þegar
hann veitir embættið.
„Ég get staðfest að það er hópur
lögmanna sem hratt þessu af
stað,“ segir Sveinn Andri Sveins-
son hæstaréttarlögmaður í samtali
við Morgunblaðið. Kveðst hann
vera í þeim hópi. Að sögn Sveins
Andra telur hópurinn að Jón
Steinar, að öðrum umsækjendum
ólöstuðum, njóti ekki sannmælis í
umsögn Hæstaréttar um umsækj-
endurna sjö sem sóttu um emb-
ættið. „Í annan stað finnst okkur
lögmannsstörf almennt hafa lítið
vægi í þessari umsögn,“ segir
Sveinn Andri, „og við höfum
áhyggjur af því ef sá sem einna
fremst stendur í hópi lögmanna
þyki ekki gjaldgengur. Okkur þyk-
ir það undarlegt. Þar með er verið
að segja að það sé alls ekki stefna
Hæstaréttar að mæla með hæsta-
réttarlögmönnum í dómarastarf.“
Hann segir að söfnunin sé á frum-
stigi en texti hennar gengur nú
manna á milli í lögmannastétt.
Leggi sjálfstætt mat
á umsækjendur
Texti undirskriftasöfnunarinnar
hljóða svo: „Undirritaðir lögmenn
lýsa undrun sinni á umsögn
Hæstaréttar um einn umsækjenda
um embætti hæstaréttardómara,
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmann og prófessor. Þar
er hlutur hans að okkar dómi
gerður miklu verri en efni standa
til.
Enginn vafi er á því, að Jón
Steinar Gunnlaugsson er í fremstu
röð íslenskra lögfræðinga og á að
baki glæsilegan feril. Hann hefur
m.a. flutt mörg af merkustu dóms-
málum síðari ára á Íslandi. Er
hann af öllum sem til þekkja, m.a.
dómurum og lögmönnum, talinn
afburðamálflytjandi. Farsæll
kennsluferill hans og umfjöllun
hans um lögfræði á öðrum vett-
vangi, bæði í ræðu og riti, ber
einnig góðum hæfileikum hans
vitni.
Það er mat undirritaðra að Jón
Steinar væri afar vel að því kom-
inn að verða skipaður dómari við
Hæstarétt. Hefur raunar iðulega
verið hamrað á því í umræðu und-
anfarinna ára hvílík nauðsyn sé á
því að í réttinn verði skipaður
starfandi lögmaður. Er raunar
vandséður verðugri fulltrúi þeirrar
stéttar til setu í Hæstarétti. Með
þessum orðum er ekki verið að
kasta nokkurri rýrð á aðra um-
sækjendur um embættið.
Undirritaðir hvetja settan dóms-
málaráðherra til að leggja sjálf-
stætt mat á kosti umsækjendanna
og hagsmuni Hæstaréttar til fram-
tíðar litið, þegar hann veitir emb-
ættið.“
Ráðherra leggi sjálfstætt
mat á umsækjendur
Hópur lögmanna stendur að undirskriftasöfnun
vegna skipunar hæstaréttardómara
HÉÐINN Unnsteinsson, fyrrum
verkefnisstjóri Geðræktar og
hvatamaður að stofnun verkefn-
isins, tók á dögunum við viður-
kenningu frá dr. L. Patt Franc-
iosi, forseta Alþjóðageðheil-
brigðissamtakanna (WFMH), sem
útnefndu Geðrækt sérstaklega
sem fyrirmyndarverkefni á sviði
geðræktar. Viðurkenningin og
peningaverðlaun voru veitt á al-
þjóðlegri ráðstefnu, sem haldin
var á Nýja-Sjálandi.
Þrjátíu og fimm geðrækt-
arverkefni alls staðar að úr heim-
inum voru kynnt á sömu ráð-
stefnu, þar með talið verkefni
Héðins, en út er komin bók sem
inniheldur greinargerðir um öll
verkefnin.
„Þetta er mikil viðurkenning
fyrir mig þó að ég hafi auðvitað
yfirgefið verkefnið. Þetta er við-
urkenning á vinnu undanfarinna
ára og sérstaklega vakti það at-
hygli að frumkvæðið hefði komið
frá fyrrverandi notanda kerfisins.
Ég gekk með hugmyndina að
þessu verkefni í heilt ár og vann
við að koma því áfram launa-
laust. Það skilar sér í því að enda
þetta á að fljúga til Nýja-Sjálands
og veita þessari viðurkenningu
viðtöku á alþjóðlegum vettvangi,“
segir Héðinn, sem nú starfar á
skrifstofu Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar í Kaup-
mannahöfn.
Héðinn Unnsteinsson fær verðlaun fyrir Geðrækt
„Mikil viðurkenning“
Dr. L. Patt Franciosi, forseti Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna, WFMH,
veitir Héðni Unnsteinssyni viðurkenningu fyrir verkefnið Geðrækt á ráð-
stefnu á Nýja-Sjálandi á dögunum.