Morgunblaðið - 25.09.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 35
UMRÆÐAN
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er engin
tilviljun að hlutabréfamarkað-
urinn í Bandaríkjunum er öfl-
ugri en hlutabréfamarkaðir
annarra landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt
af markmiðum með stofnun
þjónustumiðstöðva er bætt að-
gengi í þjónustu borgaranna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meirihluti
jarðarbúa, svokallaður almenn-
ingur þjóðanna, unir jafnan
misjafnlega þolinmóður við
sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr
vatnsorku til álframleiðslu
verði í framtíðinni fyrst og
fremst unnin í tiltölulega fá-
mennum, en vatnsorkuauðug-
um, löndum ...“
Tryggvi Felixson: „Mikil
ábyrgð hvílir því á þeim sem
taka ákvörðun um að spilla
þessum mikilvægu verðmætum
fyrir meinta hagsæld vegna
frekari álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson: „Ég
hvet alla Seltirninga til kynna
sér ítarlega fyrirliggjandi
skipulagstillögu bæjaryfirvalda
...“
Gunnar Finnsson: „Hins veg-
ar er ljóst að núverandi kerfi
hefur runnið sitt skeið og
grundvallarbreytinga er þörf
...“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdóttir:
„Öryggismál í landbúnaði falla
undir vinnuverndarlög og þar
með verksvið Vinnueftirlits-
ins.“
Jakob Björnsson: „Með þvílík-
um vinnubrögðum er auðvitað
lítil von um sættir.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inntaki
engu fremur háskólagráður en
þær sem TR útskrifaði nem-
endur með, nema síður sé.“
María Th. Jónsdóttir: „Á land-
inu okkar eru starfandi mjög
góðar hjúkrunardeildir fyrir
heilabilaða en þær eru bara allt
of fáar og fjölgar hægt.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
Í LEIÐARA Morgunblaðsins í
gær, hinn 24. september 2004, segir
leiðarahöfundur frá því að árið 1990
hafi Hæstiréttur talið umsækjanda
um dómarastöðu, sem var 64 ára að
aldri, of gamlan, en
geri nú ekki athuga-
semdir við aldur um-
sækjanda sem eldri sé.
Síðan segir Morg-
unblaðið, að erfitt sé að
sjá ,,hvaða breyting á
viðhorfi til aldurs hefur
orðið á þeim fjórtán ár-
um, sem liðin eru, og
hvers umsækjandinn
þá átti að gjalda að
vera dæmdur úr leik
vegna aldurs“. Því er
til að svara, að árið
1994 var Mannrétt-
indasáttmáli Evrópu lögleiddur á Ís-
landi og árið 1995 var mannréttinda-
kafli stjórnarskrárinnar
endurskoðaður. Með stjórn-
arskrárbreytingunni var lögfest svo-
nefnd jafnræðisregla og hafa ís-
lenskir dómstólar túlkað hana með
hliðsjón af dómum Mannréttinda-
dómstóls Evrópu. Í henni felst að
allir skuli vera jafnir fyrir lögum og
njóta mannréttinda án tillits til kyn-
ferðis, trúarbragða, skoðana, þjóð-
ernisuppruna, kynþáttar, litarhátt-
ar, efnahags, ætternis og stöðu að
öðru leyti. Með orðunum ,,stöðu að
öðru leyti“ er m.a. vísað til aldurs.
Auk þessara veigamiklu lagabreyt-
inga hefur mannréttindasamtökum
vaxið fiskur um hrygg og var Mann-
réttindaskrifstofa Íslands og Mann-
réttindastofnun Háskóla Íslands
stofnuð árið 1994. Lögmenn höfðu
reyndar um árabil vís-
að til mannréttinda-
laga, innlendra sem al-
þjóðlegra, er hér var
komið sögu, en að
mestu fyrir daufum
eyrum. Á mannrétt-
indasviði örlar fyrst á
breyttum viðhorfum
hjá dómstólum árið
1990 fyrir áhrif frá
Mannréttindanefnd og
Mannréttindadómstól
Evrópu, en eftir 1995
hefur orðið gjörbreyt-
ing á áhrifum mann-
réttindalaga á niðurstöður í dóms-
málum. Jafnframt hefur þekking á
mannréttindalögum og mannrétt-
indavitund aukist að mun bæði hjá
lærðum og leikum. Áhrif jafnræð-
isreglunnar hafa ekki síst skipt
sköpum um þróun mannréttinda hér
á landi. Ekki hafa allir tekið þessari
þróun jafn fagnandi og þess má geta
að áhrifamenn eins og lögfræðing-
arnir Davíð Oddsson og Jón Steinar
Gunnlaugsson hafa lýst miklum efa-
semdum um réttmæti reglunnar og
látið að því liggja að það hafi verið
mistök hjá Alþingi að gefa henni það
vægi sem hún fékk með stjórnar-
skrárákvæðinu 1995.
Leiðari Morgunblaðsins bendir til
að blaðið hafi ekki gefið þessari þró-
un gaum og blaðið krefst þess með
sinni alkunnu valdsmannsrödd, að
allt skuli óbreytt standa. Það hefur
augljóslega farið framhjá Morgun-
blaðinu að við lifum í breytilegum og
framsæknum heimi þar sem gildi
dagsins eru önnur en gærdagsins
meðal annars vegna þátttöku lands-
ins í ýmsum alþjóðasamtökum og
vegna alþjóðlegra skuldbindinga.
Enda þótt skiljanlegt sé að Morgun-
blaðið berjist fyrir því að framá-
menn í stjórnmálaflokki þeim, sem
blaðið styður, komist til sem mestra
áhrifa hjá dómstólum, þá verður
blaðið að átta sig á að við lifum í
breyttum og bættum heimi þar sem
krafan um hlutlæg, gegnsæ og lýð-
ræðisleg vinnubrögð valdsmanna
verður æ háværari og þeir komast
ekki lengur upp með gerræðislegar
geðþóttaákvarðanir.
Missti Morgunblaðið af
mannréttindavæðingunni?
Ragnar Aðalsteinsson svarar
leiðara Morgunblaðsins ’Það hefur augljóslegafarið framhjá Morgun-
blaðinu að við lifum í
breytilegum og fram-
sæknum heimi …‘
Ragnar Aðalsteinsson
Höfundur er starfandi lögmaður.
ALÞJÓÐLEGUR hjartadagur verð-
ur haldinn í yfir 100 löndum á morg-
un, sunnudaginn 26. september.
Þema dagsins í ár eru börn, ungling-
ar og hjartasjúkdómar. Hjartavernd
og Hjartaheill (Landssamtök hjarta-
sjúklinga) munu standa fyrir skipu-
lagðri dagskrá.
Hjartaganga verður farin frá fé-
lagsheimili Þróttara í Laugardalnum
kl. 13 en mæting í upphitun er kl.
12.30. Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra ávarpar göngu- og línu-
skautafólk. Félagar frá linuskautar-
.is verða með létta línuskautaferð (ef
veður leyfir) frá sama stað og á sama
tíma. Fulltrúar Latabæjar, þær
Solla stirða og Halla hrekkjusvín
taka þátt í göngunni. Farin verður
um hálftíma ganga/línuskautahlaup.
Ennfremur verður boðið upp á
heilsufarsmælingar þennan dag kl.
13–16 í félagsheimili Þróttar, s.s. kól-
esteról- og blóðþrýstingsmælingar,
ráðgjöf og fræðslu. Jafnframt mun
fólki verða leiðbeint í gegnum
áhættureiknivél á hjarta.is þar sem
líkurnar á að fá kransæðasjúkdóm
eru reiknaðar út.
Alþjóðlegur hjarta-
dagur á morgun
FRÉTTIR
STJÓRN BSRB hefur sent frá sér
eftirfarandi ályktun:
„Stjórn BSRB lýsir eindregnum
stuðningi við kjarabaráttu kennara
og sendir Kennarasambandi Íslands
baráttukveðjur. Brýnt er að samn-
ingar takist hið allra fyrsta því lang-
vinnt verkfall getur haft alvarlegar
afleiðingar fyrir alla hlutaðeigandi,“
segir í ályktun sem stjórn BSRB
samþykkti á fundi í dag. Jafnframt
var samþykkt ályktun þar sem lýst
var stuðningi við Sjómannasamband
Íslands í kjaradeilu sjómanna og
varað við tilraunum útgerðarmanna
til að sundra samstöðu sjómanna
með samningum á bak við samtök
þeirra.“
BSRB styður kenn-
ara og sjómenn
LANDSSAMTÖK hjartasjúklinga
hafa tekið upp nýtt nafn og að sama
skapi nýtt félagsmerki. Félagið heit-
ir nú HjartaHeill og var nýtt nafn
samþykkt á landsþingi samtakanna.
Markmiðið með breyttu nafni er að
höfða til fleiri en eingöngu þeirra
sem eru hjartasjúklingar.
Nýtt nafn mun nýtast betur í
tengslum við forvarnastarf og ýmis-
konar fyrirbyggjandi vinnu í barátt-
unni gegn hjartasjúkdómum, segir í
frétt frá samtökunum. Á lands-
þinginu var Vilhjálmur B. Vilhjálms-
son endurkjörinn formaður til
tveggja ára. Jónína S. Gísladóttir
var sæmd gullmerki samtakanna,
Gullhjartanu, fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf um áraraðir. Styrkt-
arsjóður Jónínu hefur látið mikið af
fjármunum renna til tækjakaupa
sem reynst hafa ómetanleg fyrir
hjartalækningar á Íslandi, segir í
fréttatilkynningu.
Nýtt nafn;
HjartaHeill
EKKI hefur farið fram hjá
neinum að staða dómara við
Hæstarétt Íslands er laus og
Hæstiréttur hefur sent frá sér álit
um umsækjendur.
Verið er að safna undirskriftum
til stuðnings einum umsækjand-
anum og jafnvel fullyrt að um-
sækjandinn sjálfur sé að safna
undirskriftum, sem hlýtur að vera
rangt.
Undirskriftasöfnun, við þessar
aðstæður, er nýmæli og vonandi
er hér ekki gefið fordæmi til fram-
tíðar. Erfitt er að hugsa sér að
héraðsdómarar færu að safna
undirskriftum í eigin hópi til
stuðnings umsækjanda úr þeirra
röðum.
Annað atriði er verra. Hver
verður staða þeirra lögmanna sem
af einhverjum ástæðum vilja ekki
skrifa undir og þurfa síðar að
flytja mál hjá dómara sem kann að
fá skipun eftir meðmælendasöfn-
un? Verður dómarinn vanhæfur?
Verður hann einnig vanhæfur
gagnvart þeim sem hefur ljáð nafn
sitt til meðmælanna? Munu skjól-
stæðingar lögmanna athuga í
hvorum hópnum lögmaður var áð-
ur en þeir ákveða hvort til hans
verður leitað? Svona má halda
áfram og spyrja hvort þeir lög-
menn, sem ekki taka þátt í þessu,
muni njóta velvildar þeirra dóm-
ara Hæstaréttar sem álitið gáfu og
svo verði annað viðhorf til hinna?
Þetta hefðu forsvarsmenn und-
irskriftasöfnunarinnar þurft að at-
huga áður en þeir fóru af stað og
er hér með skorað á þá að hætta
þessu.
Gestur Jónsson, Jakob R. Möller,
Ragnar H. Hall, Sigurmar K. Albertsson
Um undirskriftir
Höfundar eru hæsta-
réttarlögmenn.
Bikarkeppni BSÍ
Fjórðu umferðinni lauk um
helgina, þegar SS-sveitin lagði Essó-
sveitina – bikarmeistara síðasta árs.
Úrslitin í 4. umferð:
Gunnl. Sævarsson – Baldur Bjartm. 121–70
Orkuveita Rvk. – Sp. Siglufjarðar 147–44
ESSO-sveitin – SS fremstir f. bragðið 64–96
Black Mamba – Eðvarð Hallgrímson 90–79
Í undanúrslitum eigast við SS
fremstir fyrir bragðið/Júlíus Sigur-
jónsson og Black Mamba/Björgvin
Már Kristinsson annars vegar og
Gunnlaugur Sævarsson og Orku-
veita Reykjavíkur/Páll Valdimars-
son hins vegar.
Undanúrslitin hefjast kukkan
11:00 laugardag 25. september og
úrslitin verða spiluð á sunnudag og
hefst þá spilamennska klukkan
10:00.
Spilað er í Síðumúla 37, 3. hæð, og
eru áhorfendur hvattir til að fjöl-
menna og fylgjast með spennandi
viðureignum.
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ mánud. 13. sept. 2004.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S.
Júlíus Guðmsson - Rafn Kristjánsson 249
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 244
Ingib. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 242
Árangur A-V.
Björn E. Pétursson - Gísli Hafliðason 271
Helgi Hallgrímsson - Jón Hallgrímsson 235
Magnús Oddsson - Ragnar Björnsson 235
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 16. sept. Spilað var á 10
borðum.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S.
Björn Pétursson - Ólafur Ingvarsson 266
Magnús Oddsson - Ragnar Björnsson 233
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 232
Árangur A-V.
Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 267
Viggó Nordquist - Gunnar Andrésson 239
Magnús Jósefsson - Örn Sigfússon 229
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á tólf borðum
fimmtudaginn 15. september. Efst
vóru:
NS
Kristinn Guð.ss. – Guðm. Magnússon 270
Aðalbj. Benediktss. – Leifur Jóhanness. 237
Steindór Árnason – Tómas Sigurðsson 230
Karl Gunnarsson – Ernst Backmann 230
AV
Sigtryggur Ellerts. – Þorsteinn Laufdal 272
Oddur Jónsson – Ari Þórðarson 248
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 248
Þórhallur Árnas. – Stefán Friðbjarnars. 244
Mæting mánu- og fimmtudaga kl.
12.45.
Félag eldri borgara í Kópavogi
Þátttakan föstudaginn 17. sept.
var þokkaleg eða sextán pör og úr-
slitin þessi í N/S:
Ólafur Ingvarsson – Ragnar Björnsson 189
Bragi Salomonsson – Magnús Jósefsson 181
Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 181
A/V:
Július Guðmsson – Magnús Halldórsson 203
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 199
Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 199
Þátttakan sl. þriðjudag var hins
vegar dræm eða aðeins tólf pör og þá
urðu úrslitin þessi í N/S:
Guðjón Kristjánsson – Magnús Oddsson 118
Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 114
A/V:
Ólafur Lárusson – Þorleifur Þórarinsson 140
Ólafur Ingvarsson – Ragnar Björnsson 101
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 17. september var
spilað hjá eldri borgurum í Hafnar-
firði á 10 borðum. Úrslit urðu þessi.
N/S
Kristján Ólafss. - Friðrik Hermannss. 240
Sigurður Hallgr.s. - Sverrir Gunnarss. 236
Hermann Valst.s. - Jón Sævaldss. 232
A/V
Guðni Ólafsson - Stígur Herlufsen 273
Þorvarður Guðmss. -Kristján Þorlákss. 247
Nanna Eiríksd. - Guðný Hálfdánard. 236
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 21. september var
spilað á tíu borðum. Úrslit urðu
þessi.
N/S
Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 264
Sverrir Jónsson – Jón Pálmason 236
Bragi Björnsson – Auðunn Guðmundss. 231
A/V
Helgi Einarsson – Ingimundur Jónsson 247
Helgi Sigurðsson – Gísli Kristinsson 238
Sófus Berthelsen – Haukur Guðmundss. 233
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Safn
ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu
myndlistargagnrýni um sýningu í
Safni í Morgunblaðinu í gær, að
nafn Safns var ítrekað skrifað með
litlum staf. Vissulega á nafn Safns
að skrifast með stórum staf, enda
þar um sérnafn að ræða.
Sjónþing í Gerðubergi
FJALLAÐ verður um Reyni Vil-
hjálmsson á Sjónþingi í Gerðubergi,
sem fram fer í dag. Í blaðinu í gær
voru misvísandi upplýsingar, þar
sem fram kom í myndatexta að
þingið færi fram þann dag, föstu-
dag, en greinin sjálf sagði hið rétta,
að það færi fram í dag, laugardag.
Beðist er velvirðingar á misritun-
inni.
Röng dagsetning
Í BLAÐINU í gær var birt frétt um
fjölskyldudag á Seyðisfirði og stóð
þar að halda ætti hann í dag. Hið
rétta er að fjölskyldudagur á Seyð-
isfirði verður laugardaginn 2. októ-
ber nk. og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
HAFNARFJARÐARKIRKJA og
Hrókurinn, í samvinnu við skákdeild
Hauka og skákfélög eldri borgara í
Reykjavík og Hafnarfirði, standa
fyrir Strandbergsmótinu í skák um
helgina í tilefni af 90 ára afmæli
Hafnarfjarðarkirkju. Mótið hefst í
dag, laugardag, klukkan 13 í Strand-
bergi, safnaðarheimili Hafnarfjarð-
arkirkju.
Mótið er fyrir skákmenn sem eru
65 ára og eldri eða 15 ára og yngri.
Hver keppandi teflir 7 skákir.
Notaðar eru skákklukkur og hefur
hver keppandi 10 mínútur fyrir
hverja skák.
Dagskrá skákhátíðarinnar í
Strandbergi nær yfir tvo daga, laug-
ardag og sunnudag. Skákmótið fer
fram á laugardag og á sunnudegin-
um verður fjölbreytt dagskrá, sem
hefst klukkan 11 með skákmessu í
Hafnarfjarðarkirkju. Prestur: Sr.
Gunnþór Þ. Ingason.
Eldri og yngri tefla
í Hafnarfirði