Morgunblaðið - 30.09.2004, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Garðabær | Foreldrafélög í Hofs-
staðaskóla og Flataskóla í Garðabæ
fara fram á að sett verði upp eft-
irlitsmyndavélakerfi sem nái til alls
skólasvæðisins til að auðvelda eft-
irlit með börnunum, í bréfi sem sent
var bæjarstjóra Garðabæjar um
miðjan september.
Ásgeir K. Ólafsson, formaður
Foreldrafélags Hofsstaðaskóla, seg-
ir að tilefnið séu áhyggjur foreldra
vegna aukins ofbeldis meðal barna
almennt, á skólalóðum sem og ann-
ars staðar, og skemmda á eignum
barnanna og skóla.
„Svo er það líka þessi almenna
umræða um öryggi barnanna okkar,
[...] aðgengi ókunnugra að börn-
unum okkar. Þó að það hafi ekki
komið upp neinsstaðar þarna þá veit
maður að aðilar sem eru með ým-
islegt óæskilegt í huga leita oft eftir
félagsskap við börn,“ segir Ásgeir.
Hann bendir einnig á að heimur
fíkniefnanna fari sífellt harðnandi.
„Það er talað um að þetta sé að fær-
ast sífellt lengra niður, með svona
kerfi er allavega komið í veg fyrir
það að það eigi sér stað á skólalóð-
inni, að börnum sé boðið eitthvað
óæskilegt sem þau ættu ekki að vera
í samneyti við,“ segir Ásgeir.
„Í dag finnst mér þetta [eftirlits-
myndavélar] vera orðinn eðlilegur
partur af skólaumhverfinu, það er
þessi eftirfylgni, að það sé fylgst
með því hvað er að gerast hjá börn-
unum. Og ekki bara hjá þeim heldur
hjá öðrum aðilum líka,“ segir Ásgeir.
Foreldrarnir leggja sérstaklega
áherslu annars vegar á forvarn-
argildi eftirlitsvélanna, og hins veg-
ar möguleika til að sanna eitthvað,
sem gerist á lóðinni, gerist þörf á
því. Ásgeir segir að kerfið þyrfti að
vera lokað þannig að einungis þeir
sem umsjón hafa með kerfinu gætu
skoðað, auk þess sem upptökum yrði
eytt að einhverjum tíma liðnum. Í
bréfi foreldrana kemur fram að verð
á slíku kerfi yrði líklega á bilinu 300
til 500 þúsund kr.
Eftirlit kennara dugar ekki til
Með þessari kröfu foreldra er ekki
verið að kasta rýrð á starf kennara
sem hafa eftirlit með nemendum á
skólalóð, en Ásgeir segir að það dugi
einfaldlega ekki til, kennararnir nái
ekki að fylgjast með allsstaðar.
Hann hefur ekki áhyggjur af því að
kerfið yrði misnotað, kennurum sé
treyst fyrir eftirliti á skólalóðinni og
því ætti að treysta þeim fyrir eftirliti
í gegnum eftirlitsmyndavélarnar.
Ásgeir bendir á að búnaður af
þessu tagi sé þegar kominn í notkun
í nýju íþróttahúsi, sem og sundlaug-
inni. Þar hafi hann t.d. komið í veg
fyrir ofbeldi, auk þess sem upptökur
hafi verið notaðar til að koma upp
um þjófnað. Skólayfirvöld reyndu að
fá eftirlitskerfi af þessu tagi sam-
þykkt fyrir nokkrum árum en án ár-
angurs, segir Ásgeir. „Það er búið að
reyna í nokkurn tíma að ná þessu í
gegn, en það hefur ekki gengið.“
Aðspurður hvort þetta standist
lög um persónuvernd segir Ásgeir
að ekki hafi verið haft sérstaklega
samband við Persónuvernd, en hann
sjái ekki hvernig þetta ætti að stang-
ast á við lögin, ekki frekar en á sund-
stöðum eða öðrum stöðum þar sem
lík kerfi eru notuð. „Þetta er gert í
verndarskyni, ekki það að það sé
verið að njósna um einn né neinn.
Svo þetta er frekar á hinn veginn,
verið að vernda persónuna frekar en
að ógna einkalífi hennar.“
Bæjarstjóri vill fund um málið
Ásdís Halla Bragadóttir bæj-
arstjóri Garðabæjar segir að til
standi að koma á fundi með fulltrú-
um foreldra. Hún segir að ýmsir
skólar hafi sett upp myndavélar til
að verja byggingar, en þarna séu
foreldrar að biðja um meira en það.
Hingað til hafi það verið álitið nægi-
legt eftirlit að hafa kennara á skóla-
lóðinni í frímínútum, og talið betra
að vera með virkar forvarnir en
myndavélakerfi, en hún muni hitta
fulltrúa foreldra með opnum huga.
Vilja eftirlitsmyndavélar á skólalóðir
Morgunblaðið/Kristinn
Eftirlit Myndavélar hafa verið nýtt-
ar til eftirlits með húseignum skóla.
MYNDAVÉLAR eru notaðar við
eftirlit í um það bil fjórðungi
grunnskóla í Reykjavík, en þar er
eingöngu verið að fylgjast með
húseigninni til að verjast eigna-
spjöllum, ekki er fylgst með nem-
endum.
Júlíus Sigurbjörnsson, deild-
arstjóri rekstrardeildar Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur, segir að
þar sem eftirlitsmyndavélar séu til
staðar við grunnskóla í Reykjavík
sé þeim yfirleitt beitt til að fylgj-
ast með þeim hliðum skólabygg-
inganna þar sem annars væri
hægt að athafna sig óséður við
skemmdarverk, svo sem veggja-
krot eða rúðubrot, sem talsvert
hafi verið kvartað yfir við vissa
skóla.
Hann segir samþykkt Fræðslu-
ráðs Reykjavíkurborgar um málið
engöngu ná til slíks eftirlits með
eignum og ekkert eftirlit með
nemendum eigi að fara fram með
þeim eftirlitsmyndavélum sem eru
við grunnskóla í Reykjavík.
Ekki eftirlit
með nemendum
LANDIÐ
Húsavík | Gerður hefur verið samningur um að Þekk-
ingarsetur Þingeyinga á Húsavík taki við rekstri og
framkvæmdastjórn Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga,
FræÞings. Jafnframt hefur nýr starfsmaður verið ráð-
inn til verka, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, en hún
tekur við af Iðunni Antonsdóttur sem verið hefur
framkvæmdastjóri FræÞings í þau fimm ár sem mið-
stöðin hefur starfað.
FræÞing annast endur- og símenntun í Þingeyj-
arsýslum. Skrifstofa miðstöðvarinnar hefur verið á
Kópaskeri en flyst nú til Húsavíkur. Iðunn hefur verið
ráðin til annarra starfa, á Ísafirði.
Guðrún Kristín er Húsvíkingur sem m.a. á ættir að
rekja til Flateyjar á Skjálfanda. Hún mun hafa umsjón
með verkefnum FræÞings og daglegum rekstri þess.
Guðrún Kristín lauk kennaraprófi 1973 og hefur
lengst af unnið við kennslu. Frá 1995 hefur starfsvett-
vangur hennar verið blaðamennska, bókhald og
skjala- og upplýsingamál hjá Húsavíkurbæ auk þess
sem hún stundaði framhaldsnám við Háskólann á Ak-
ureyri. Þar lauk Guðrún Kristín diplómagráðu í upp-
eldis- og menntunarfræðum með áherslu á stjórnun sl.
vor og er nú í framhaldsnámi til meistaragráðu við
sama skóla.
En hvernig skyldi henni lítast á nýja starfið og hvað
er í boði fyrir þá sem vilja nýta sér þjónustu FræÞings?
„Mér líst mjög vel á það og hlakka til að takast á við
fjölbreytt og spennandi verkefni á sviði fullorð-
insfræðslu og þjónustu við fjarnema og aðra há-
skólanema sem nýta sér þá aðstöðu sem er í boði hér á
Þekkingarsetrinu. Varðandi hvað er í boði fyrir Þing-
eyinga þá eru haldin fjölbreytt námskeið víða í sýsl-
unni, s.s. á Þórshöfn, Raufarhöfn, í Mývatnssveit, á
Laugum og hér á Húsavík. Um er að ræða stutt frí-
stundanámskeið og lengri námskeið á sviði umönn-
unar og við skrifstofustörf svo eitthvað sé nefnt,“ segir
Guðrún Kristín og bætir við í lokin að vetrarstarfið sé
að fara í gang og hún voni að sem flestir áhugasamir
og fróðleiksfúsir Þingeyingar nýti sér það sem boðið
verður uppá.
Fræðslumiðstöð Þingeyinga flyst í Þekkingarsetrið
„Fjölbreytt
og spennandi
verkefni“
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
FræÞing Guðrún Kristín starfar fyrir Fræðslumiðstöð.
Siglufjörður | Komið er í ljós að
tvær aurskriður hafa fallið á veginn
um Siglufjarðarskarð í síðustu viku.
Skriðurnar hafa stíflað ræsi í veg-
inum og vatnið þar með brotið sér
nýja leið yfir veginn, skolað burtu yf-
irlagi hans og á köflum grafið í hann
djúpar rásir.
Vatnsskemmdir og úrrennsli hafa
orðið á mörgum stöðum og þar er
fína yfirborðsefnið víða alveg horfið
og aðeins grjóthnullungar eftir.
Skemmdirnar spanna alls nokkur
hundruð metra en eru víða á leiðinni.
Þessar skemmdir eru Siglufjarðar-
megin og byrja strax við neðsta
mastrið á skíðalyftunni.
Í Siglufirði var gríðarlegt úrfelli í
síðustu viku og meðal annars lá að-
stöðuhúsið á skíðasvæði Siglfirðinga
undir skemmdum en því tókst að
bjarga áður en stórtjón hlaust af.
Ekki er farið að meta skemmdir á
veginum, en skriðurnar komu í ljós
um helgina þegar tveir menn voru
þarna á heilsubótargöngu.
Vegurinn um Siglufjarðarskarð
var opnaður um miðjan júlí í sumar
og hafði verið fær síðan og sagður í
mjög þokkalegu ástandi. Hann er
talsvert farinn af ferðafólki yfir sum-
arið, en nú er ljóst að gera þarf veru-
legar endurbætur á honum fyrir
næsta sumar. Ekki er enn vitað
hvort skemmdir hafa orðið á vegin-
um innan við Skarð enda er fáferð-
ugt þar þegar kemur fram á haust.
Vegurinn um Siglufjarðarskarð skemmdur eftir flóðin
Tvær aurskriður fallið á veginn
Ljósmynd/ÖÞ
Ófært Djúp rás hefur myndast í
veginn um Siglufjarðarskarð þar
sem vatnsflaumurinn hefur grafið í
gegnum veginn.