Morgunblaðið - 30.09.2004, Síða 48
Kalli Bjarni hafði frækilegan sig-ur í fyrstu íslensku Stjörnuleit-inni („Idol“) sem lauk um miðj-an janúar á þessu ári. Óhætt er
að segja að Íslendingar hafi tekið þessari
keppni opnum örmum og um nokkurra
vikna skeið var hún á allra vörum. Eftir
keppni gerði Kalli fólki það ljóst að hann
hygðist nýta sér þetta tækifæri til fulln-
ustu. Hann hafði verið að stússast í bönd-
um á árum áður, hafði spilað lítið eitt á
pöbbum og átti meira að segja nokkur
frumsamin lög í fórum sínum.
Kalli hefur líka að sönnu sætt lagi í
framhaldinu og hefur verið giska áberandi
síðan Stjörnuleitinni var slitið (sem byrjar
á nýjan leik á morgun, föstudag, á Stöð 2).
Hann hefur enda ekki unnið handtak
síðan hann sigraði keppnina að eigin sögn,
þ.e. hefur enga verklega vinnu stundað
eins og hann orðar það brosandi. Kalli,
sem heitir Karl Bjarni Guðmundsson fullu
nafni og starfaði áður sem sjómaður í
Grindavík, er staðráðinn í að gera tónlist-
ina að atvinnu sinni og platan nýútkomna
er fyrsta stóra varðan á þeirri leið.
Enska eða íslenska
Kalli segir það hafa verið einkar lær-
dómsríkt að gera plötuna en upp-
tökustjórnandi var Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson.
„Hann náði öllu úr mér. Ég bætti mig til
muna í upptökuferlinu sem söngvari. Ég
finn ekki fyrir neinni stöðnun, er enn á
flugi upp á við og það er gott.“
Platan er tíu laga og inniheldur lög eftir
Roland Hartwell (sem samdi sumarsmell Kalla,
„Gleðitímar“, sem er meðal þeirra laga sem
prýða plötuna), Þorvald Bjarna Þorvaldsson,
Friðrik Karlsson, Vigni Snæ Vigfússon úr Íra-
fári, Jón Ólafsson og Stefán Hilmarsson. Kalli á
sjálfur tvö lög. Texta eiga Stefán Hilmarsson,
Kristján Hreinsson, Friðrik Sturluson og
Andrea Gylfadóttir en Kalli semur textana
sjálfur við sín lög. Allir eru þeir á íslensku, eitt-
hvað sem hann var síðastur til að samþykkja að
eigin sögn.
„Ég söng alltaf á ensku í gamla daga og var
hræddur um að ég myndi ekki ná nógu mikilli
tilfinningu á íslensku. Svo fór ég að gefa þessu
meira tækifæri og þetta fór fyrst að ganga þeg-
ar ég slakaði bara aðeins á. Þá fór þetta að
rúlla.“
Hvernig er að stíga út úr stjörnuleitarímynd-
inni og verða einfaldlega söngvarinn Kalli
Bjarni?
„Mér finnst þetta vera eðlilegt framhald og
ég hef fulla trú á því að það eigi eftir að ganga
eftir. Stjörnuleitin hefur ekki verið dragbítur á
mig, það var jú hún sem gerði mér það kleift að
komast þetta langt. Fólk sagði mig reyndar
ruglaðan á sínum tíma að ætla að taka þátt í
þessari „karókíkeppni“ eins og það var orðað!“
Þú tókst sannarlega áhættu með þessu var
það ekki? Það var enginn ríkur pabbi til að
bakka þig upp ef allt færi í handaskolum …
„Ég hefði aldrei getað fyrirgefið mér að taka
ekki þátt. Þetta var gríðarlega erfitt og ég
ákvað að líta á þetta eins og Ólympíukeppni.
Konan tók alfarið að sér heimilishaldið á meðan
og var eins og klettur í brimsköflum. Við erum
með þrjú börn á framfæri og á tímabili þurfi ég
að láta skrifa hjá mér mjólkina í kaupfélaginu!
Þetta var áhætta, svo sannarlega.“
100% einbeiting
Hvernig er að koma nánast blautur á bak við
eyrun inn í þennan „bransa“?
„Ég var dálítið hræddur í fyrstu við að að
vera hent svona beint út í hringiðuna. Maður er
í raun að svindla sér inn bakdyramegin. Ég var
að tala við Vigga (Vigni í Írafári) sem spilaði í
þrjú ár launalaust svo gott sem. En ég hef auð-
vitað þurft að halda á spöðunum, það var í mínu
valdi hvað ég gerði við þetta dæmi.“
Lög plötunnar eru mörg hver „stór“ og
dramatísk, með hæðum og lægðum, og reyna
rækilega á raddsvið Kalla.
„Sérstaklega eru lögin hans Rolands þann-
ig,“ segir Kalli. „Þau eru engan veginn hefð-
bundin.“
Roland þessi er starfandi með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands, leikur þar á fiðlu en hefur
verið umsvifamikill í poppgeiranum að und-
anförnu.
Tvö lög Kalla heita „Þúsundfalt“ og „Til
Kidda“.
„Það sem mér fannst mikilvægast var að
finna það að lögin mín fengju sömu meðferð og
hin lögin,“ segir hann. „Það var ekki verið að
gera mér greiða með því að hafa þau með eða
að þetta væri einhver aumingjagóðmennska.
Þau fóru inn á sínum forsendum.
Síðara lagið, „Til Kidda“ fjallar um vin minn
sem var með mér í hljómsveitastússinu í gamla
daga. Hann náði því miður ekki að loka dyrum
fortíðarinnar, sökk dýpra og dýpra og svipti sig
að lokum lífi. Við félagarnir ræddum stundum
um það okkar á milli að það væri gaman að gefa
út plötu. Ég segi því á einum stað í textanum að
nú vanti bara hann. Gítarsólóið í laginu er eftir
Grétar Lárus Matthíasson vin minn og félaga
en hann var með mér í gegnum alla Stjörnuleit-
ina og er jafnframt í bandinu mínu.“
En hversu mikið varst þú innviklaður í vinn-
una við plötuna?
„Ég var með í öllum ákvarðanatökum. Ég,
Eiður (Arnarson hjá Skífunni) og Þorvaldur
tókum fund strax í upphafi þar sem ég spurði
einfaldlega hversu mikið ég kæmi að þessu,
enda hafði ég ekkert vit á þessum málum. Svo
þegar öll spil voru uppi á borðum var auðveld-
ara að einbeita sér 100% að því að landa þessu
verkefni. Maður var grænn í byrjun en þetta
gekk æ betur eftir því sem á leið. Það er líka
þægilegt að vinna með Þorvaldi að því leytinu
til að hann segir bara hreint út hvort hlutirnir
ganga eða ekki.“
Engin pressa
Að mörgu leyti er Kalli tákn fyrir „venju-
lega“ Íslendinginn sem brýst áfram af einurð
og dugnaði til metorða, hugmynd sem íslenska
þjóðin er einkar upptekin af. Kalli er enda
heimsfrægur á Íslandi og í miðju viðtali, sem
fer fór fram á veitingahúsi í bænum, ryðjast
krakkar að borðinu og biðja um eiginhand-
aráritun. Kalli veitir þær góðfúslega og er sýni-
lega vanur svona atgangi. En er ekki pressa að
vera að gefa út sína fyrstu plötu, þegar orðinn
þjóðþekktur? Kalli er ekki á því.
„Það er bara gaman. Ég finn ekki fyrir
óþægilegri pressu,“ svarar hann þess í stað
glaðbeittur.
Þú virðist keppnismaður mikill …
„Já, en svoleiðis hefur það ekki alltaf verið.
Það var maður með mér á sjó, Haraldur Leifs-
son sem er fyrrum atvinnumaður í körfubolta.
Hann þjálfaði mig í lyftingum og kenndi mér af-
skaplega mikið um keppnisskap og viðhorf til
þess. Eitt sinn nennti ég ekki að æfa og þá neit-
aði hann að þjálfa mig það sem eftir lifði af
túrnum. Það er þetta viðhorf, að ef maður ætlar
að gera eitthvað þá gerir maður það upp í topp.
Þetta tók ég t.d. með mér sem nesti í Stjörnu-
leitina.“
Kalli Bjarni kemur þannig fyrir sem einkar
ákveðinn maður, hann ætlar að fara alla leið,
a.m.k. mun hann gera allt sem í hans valdi
stendur til að koma sér þangað.
„Ég ætla að gera þetta að minni atvinnu og
þá er um að gera að hafa allar klær úti. Ég sé
fyrir mér að vera með bandið mitt á stærri tón-
leikum en svo ætla að ég halda úti tríó fyrir
minni tónleika. Þetta er búið að vera bæði gam-
an og erfitt. Þetta er miklu stærra dæmi en ég
gerði mér grein fyrir í byrjun. En þetta er
draumur sem er að rætast og mér finnst platan
vera að ganga upp. Nú fer ég af stað með band-
ið mitt til að fylgja þessu eftir því það er komið
að því að standa á eigin fótum og skilja Stjörnu-
leitina við sig.“
Tónlist | Kalli Bjarni gefur út sína fyrstu plötu í dag Hinn alíslenski drengur, Kalli Bjarni: „…á tímabili þurfti ég að láta skrifa
hjá mér mjólkina í kaupfélaginu. Þetta var áhætta, svo sannarlega.“
Fyrsta „stóra“ plata haustsins,
samnefnd skífa stjörnuleit-
arkappans Kalla Bjarna kemur
út í dag. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við Kalla
um þá rennireið sem síðasta
ár hefur verið.
U
pp
í
to
pp
U
pp
í
to
pp
arnart@mbl.is
48 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. b.i. 16 ára.
S.V. Mbl.
HP. Kvikmynd-
ir.com
Kvikmyndir.is
Ó.H.T Rás 3.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 .
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i 14 ára.
Sýnd kl. 8. B.i 16 ára.
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
Lífið er bið
Tom Hanks Catherine Zeta Jonest ri Z t J s
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.
TOM CRUISE JAMIE FOXX
COLLATERAL
Hörkuspennumynd frá Michel
Mann leiksjóra Heat
COLLATERAL
TOM CRUSE JAMIE FOXX
Hörkuspennumynd frá
Michel Mann leiksjóra Heat
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Ein
steiktasta
grínmynd
ársins
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 5.30, 8 OG 10.30.
J.H.H KVIKMYNDIR.COM
H.L. MBL
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
H.I. Mbl.
Ó.Ó.H. DV
S.G. Mbl.
Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 10.40. Sýnd kl. 6.
Before sunset