Morgunblaðið - 13.09.2003, Qupperneq 16
AUSTURRÍKI kemst líklega næst því að vera best
geymda leyndarmál vínheimsins. Þótt vínpressan
hafi ekki haldið vatni yfir gæðum austurrískra hvítvína
síðustu árin hefur hinn almenni neytandi ekki tekið
við sér. Þótt flestir viti að þar séu framleidd vín
(líklega vegna þess að marga rámar í fréttir af
“vínhneykslinu” mikla fyrir nokkrum áratugum) gera
fæstir sér grein fyrir að austurrísku hvítvínin eru
einhver allra, allra bestu hvítvín sem framleidd eru í
veröldinni. Og ekki nóg með það. Sætvínin geta
keppt við hvaða sætvín sem er. Smám saman gæti
þetta þó verið að breytast og leyndarmálið farið að
leka út. Breska víntímaritið Decanter birti í byrjun
ársins niðurstöður umfangsmikillar smökkunar þar
sem Austurríki valtaði yfir flest af þekktustu
hvítvínum veraldar. Nú í sumar birti síðan New York
Times grein byggða á smökkun sérfræðinga blaðsins
þar sem því var lýst yfir að austurrísk hvítvín væru
sumarvínið í ár. Leyndarmálið verður vart leyndarmál
mikið lengur.
Þeir sem bragðað hafa á nýbylgjunni í austurrískri
rauðvínsgerð átta sig jafnframt á því að þar er ekki
síður mikið að gerast og eflaust ekki langt í að þau
verði jafnumtöluð og hvítvínin.
Það felst ákveðin þversögn í því að þrátt fyrir að
austurrísku vínin séu tiltölulega sjaldséð í verslunum
og á vínlistum víða um heim þá á víngerð sér lengri
sögu í Austurríki en í flestum öðrum ríkjum. Keltar og
Rómverjar ræktuðu vín á þessum slóðum og á
miðöldum nutu austurrísk vín mikillar virðingar í
Evrópu.
Víngerð í Austurríki varð hins vegar fyrir gífurlegu
áfalli um miðjan níunda áratuginn. Nokkrir
austurrískir vínframleiðendur voru staðnir að því árið
1985 að blanda efnum (sem meðal annars má finna í
frostlegi) út í vínið til að gera það sætara. Þetta olli
miklu uppnámi, austurrískum vínum var kippt úr
hillum vínbúða um allan heim og neytendur fóru að
sniðganga þau.
Þótt einungis hafi verið um mjög einangruð tilvik
að ræða var fjölmiðlaumfjöllun mikil og hefur
austurrísk vínframleiðsla verið að jafna sig á þessu
hneyksli allt fram til dagsins í dag. Smám saman hafa
austurrísku vínin hins vegar verið að ná sér á strik,
ekki síst vegna nýrrar kynslóðar víngerðarmanna sem
eru að breyta landslagi austurrískrar vínframleiðslu.
Flestir eru sammála um að ekkert skipti jafnmiklu
máli í austurrískri vínframleiðslu og kynslóðabilið.
Austurríki er nú orðið að einhverju mest spennandi
víngerðarsvæði Evrópu. Hlutirnir gerast hratt,
hugmyndauðgin er mikil og menn eru stöðugt að
reyna eitthvað nýtt. Nýjar þrúgusamsetningar, ný
svæði, nýjar víngerðaraðferðir.
Austurríkismenn gera sér vel grein fyrir vanda
sínum. Það er ekki nóg að framleiða góð vín lengur.
Út um allan heim eru menn að framleiða stöðugt
betri vín og oft fyrir sífellt lægra verð. Í Chile, Suður-
Afríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi er þróunin ekki síður
ör og evrópskir vínframleiðendur standa frammi fyrir
því að þeir eiga erfitt með að keppa við
framleiðendur frá þessum ríkjum varðandi verð,
magn og jafnvel gæði. Leynivopn Evrópu gæti
líklega helst falist í því að bjóða upp á vín sem eru
frábrugðin því sem Nýji heimurinn dælir út. Það er
enginn skortur á “alþjóðlegum” Chardonnay og
Cabernet Sauvignon-vínum sem oftar en ekki virðast
öll steypt í nokkurn veginn sama mótið. Vissulega
tæknilega ágæt en voðalega einkennalaus. Hér
stendur Austurríki sterkt að vígi, einstakar aðstæður
og einstakar þrúgur. Hver sá sem bragðað hefur á
góðu hvítvíni úr þrúgunni Grüner Veltliner getur
borið þess vitni að þau eiga sér fáa líka í heiminum.
Bestu Riesling-vín Austurríkis geta sömuleiðis keppt
við hvaða Riesling-vín sem er í heiminum.
Það er hins vegar einnig margt sem gerir
Austurríki erfitt fyrir á mörkuðum. Flöskumerkingar
eru oft flóknar, alla jafna á þýsku og gjarnan með
gotnesku letri. Flokkun vína er ekki ósvipuð því sem
gengur og gerist í Þýskalandi. Vínum er skipt upp í
gæðaflokka (Landwein, Qualitätswein, Kabinett,
Prädikat) og eru að auki flokkuð eftir sætleika
(trocken, halbtrocken, liebliech). Prädikats-vínin eru
þessu til viðbótar flokkuð eftir því á hvaða
þroskastigi þrúgurnar voru tíndar: Spätlese, Auslese,
– ekki lengur leyndarmál…
au
st
ur
rí
ki
ST
E
IN
G
R
ÍM
U
R
S
IG
U
R
G
E
IR
SS
O
N
m16