Morgunblaðið - 13.09.2003, Page 24
BERJABLÁR
Ber innihalda fyrst og fremst mikil-
vægar trefjar og nauðsynleg vítamín
og steinefni. Svo eru þau svo ein-
staklega fersk og hressandi fyrir
bragðlaukana.
3 dl ber að eigin vali, það má alveg
nota frosin ber
1 1/2 msk síróp (maple) eða hunang
Safi úr 1/2 sítrónu
2 dl sódavatn
1 dl vodki
Ísmolar
Setjið berin í blandara ásamt sítrón-
usafanum og sírópinu, hellið sóda-
vatninu í og sigtið beint í glösin.
Vodkinn hrærður saman við og að
síðustu eru 2-3 ísmolar settir í hvort
glas.
KRYDDAÐUR
Þessi drykkur er sérlega hreinsandi
fyrir kroppinn og eins ef kvefið er
eitthvað að angra. Engiferið og hvít-
laukurinn verða líka ótrúlega ljúfir í
safanum og vodkanum.
1 msk rifinn engiferrót
3-4 pressuð hvítlauksrif
1 dl vodki
3 dl gulrótar- og appelsínusafi
Leggið engiferið og hvítlaukinn í
safann í stutta stund, sigtið í glös og
hellið vodkanum í. Það má gjarnan
krydda þennan drykk enn frekar með
örlitlum cayennepipar, hann rífur allt
í burtu sem rífa þarf.
RABARBARA „MOJITO“
Rabarbarinn góði innheldur
grófar trefjar, steinefni og vítamín.
Engiferölinu fylgja öll hin góðu
efni engifersins sem gera
kroppnum svo gott.
2 vænir rabarbara stönglar
2-3 msk hunang
Safi úr 1 sítrónu
3 dl vatn
3 dl engiferöl
10-15 myntublöð
sódavatnsskvetta
1 dl vodki,
ísmolar
Skerið helminginn (rótarmegin) af báð-
um rabarbarastönglunum í þunnar
sneiðar og sjóðið ásamt hunangi, sítr-
ónusafa og vatni, í um 15 mínútur án
loks til þess að það verði dálítið sultu-
kennt, kældu. Merjið myntublöð og 1 dl
rabarbarabita í mortéli, hellið engiferöl-
inu saman við og „sultunni“ líka, sigtið í
glös. Vodkinn hrærður saman við ásamt
sódavatni og að síðustu eru 2-3 ísmolar
settir í hvort glas. Flott er að skreyta
glasið með rabarbarastöngli sem einnig
er hressilega ætur.
styrkjandi haustkokkteilar
ÞAÐ ER NÚ EINU SINNI ÞANNIG AÐ ÞEGAR HAUSTA TEKUR ER OFT STUTT Í KVEF OG KVERKASKÍT!
Þessir drykkir eru sérstaklega hugsaðir til að styrkja ónæmiskerfið,
fullir af vítamínum, steinefnum, trefjum og kryddi til að hreinsa burt
óþverrann. Kokkteilar eru oft fullir af sykri og hinum ýmsu líkjörum
en að þessu sinni var einungis settur vodki til hjartastyrkingar. Að
sjálfsögðu má sleppa honum og setja t.d. sódavatn í staðinn. Yljum
okkur nú við ljúfan kvöldrykk á köldu haustkvöldi, helst í góðum fé-
lagsskap.
Mælt er með því að sigta grænmeti og krydd frá, hollustan minnkar
sáralítið við það en ef þú hefur allt gumsið í drykknum má segja að
kominn sé kokkteilsúpa og þá þarf ekkert til að narta með.
Allir drykkirnir eru hugsaðir fyrir tvo (eða einn þyrstan).U
M
SJ
Ó
N
:Ó
LÖ
F
B
. G
A
R
Ð
A
R
SD
Ó
TT
IR
ALGJÖR RÓFA
Rauðrófur eru fullar af vatnsleysaleg-
um trefjum sem hægja á frásogi kol-
vetna út í blóðið og blóðsykurinn
sveiflast minna. Hunangið er ávaxta-
sykur og edikið tefur ferð kolvetna útí
blóðrásina.
2 rauðrófur
1/2 l vatn
5 þræðir saffran
1 msk hunang
1 msk balsamico edik
2 dl sódavatn
1 dl vodki
Skerið rauðrófurnar í litla bita og
sjóðið þær ásamt saffraninu, hunang-
inu og balsamicoedikinu í 15-20 mínút-
ur. Setjið í blandara og kælið. Sigtið
og hellið í glösin ásamt vodkanu og
sódavatninu. Það má gjarnan sjóða
fleiri rauðrófur og narta í svona með-
fram því sem dreypt er á.
RÓSMARÍNSVALI
Rósmarínkryddið hefur þá gör-
áttu eiginleika að skerpa á heil-
anum, eykur minni og hraða
hugsunar. Pottþéttur drykkur yf-
ir góðum rökræðum.
2 rósmaríngreinar
1 dl vodki
3 dl sódavatn eða sprite
Látið rósmaríngreinina liggja í
vodkanum í a.m.k. 15 mínútur.
Hellið í glös ásamt sódavatninu
eða sprite og hafið rósmarín-
greinina í, þið finnið undurljúft
bragð og ögrandi ilm þessa
krydds sem kemur öllu af stað.
PIPRAÐUR
Paprikan og chilipiparinn í þessum drykk
eru sérlega góð til að styrkja varnir lík-
amans og innihalda mikilvæg vítamín,
steinefni og önnur efni sem gera líkam-
anum svo gott. Basílikum inniheldur eins
og aðrar grænar kryddjurtir fullt af
heilsusamlegum efnum sem hafa styrkj-
andi áhrif. Tómatsafinn er að auki sér-
lega hollur og fullur af jákvæðri orku.
1 rauð paprika í bitum, mýkt rólega á
pönnu (án olíu) og maukuð í blandara
ásamt chilipiparnum, kælt.
1 tsk saxað rauður chilipipar, takið
af mjóa endanum og sleppið fræjunum
2 dl tómatsafi
safi úr einni límónu
5 blöð basílika
1 dl vodki
jurtasalt á glasbrúnina
Stingið brúninni á „margaritu“ glasi á
hvolf í vatn og síðan í salt á diski, þá
fæst nett rönd sem er svo góð saman
við drykkinn, saltið þannig hvern sopa.
Setjið safana út í paprikumaukið, hrærið
hraustlega og sigtið síðan í (sósu)könnu
með stút. Setjið vodkann í og hellið
nettilega í glösin. Flott að skreyta með
heilum chilipipar og þeir allra hörðustu
geta nartað í hann með.