Morgunblaðið - 13.09.2003, Side 36
m37
Hvaða vín skal velja?Hvaða vín skal velja?
Þær eru margar spurningarnar sem upp geta komið þegar vín er
annars vegar og fyrir óvana er frumskógurinn þéttur. Í vínbúðum
ÁTVR er lögð áhersla á gott vöruúrval og góða þjónustu.
Starfsfólk með sérþekkingu leggur metnað í að leysa úr
spurningum viðskiptavinarins en það er líka hægt að stytta sér
leið. Heimasíða ÁTVR, www.vinbud.is opnar fyrir þér búðina á
öllum tímum með skýrum og greinargóðum upplýsingum,
leitarmöguleikum og margháttuðum fróðleik - og þar er líka
hægt að versla.
Hvar finn ég rauðvín á 1.500 kr.
sem hentar með ostunum?
Efst á forsíðu vefjarins er hægt að leita á fljótlegan hátt eftir
vínflokki, tegund og landi og hér má einnig sjá greinar og fréttir
úr vínheimum. Vinstra megin eru ýmsir valhnappar sem veita
aðgang að nánari upplýsingum. Neðar er hægt að sjá hvaða vín
eru í reynslusölu.
Undir hnappnum Vörulisti eru nánari upplýsingar um vöruúrval
vínbúða. Vínunum er skipt í flokka eftir tegund, upprunalandi og
svæði og síðan fylgir hverju víni stutt og greinargóð lýsing.
Sérlega þægileg eru táknin sem fylgja og sýna með hvers konar
mat vínið hentar, t.d. er mynd af lambi ef vínið hentar með
lambakjöti, oststykki ef það smakkast vel með ostunum og svo
framvegis. Einnig má sjá áfengisstyrk vínsins og verð. Ef vín
vekur áhuga er hægt að komast að því í hvaða vínbúð það fæst
eða kaupa það beint af vefnum með því að smella á það og setja
í innkaupakörfu. Þar sést hvað allt kostar ásamt sendingar-
kostnaði. Eftir innskráningu er hægt að kaupa, bæta í körfu eða
hætta við.
Leitin auðvelduð
Undir vörulistahnappnum er líka að finna mjög öfluga leitarvél
sem hjálpar manni að finna réttu tegundina af víni. Það er að
sjálfsögðu hægt að leita eftir nafni og tegund en einnig er hægt
að gera leitina ítarlegri og setja skilyrði um verð, vínbúð, hvaða
mat vínið á að henta með, upprunaland vínsins og jafnvel
berjategund - ef það verða nú einmitt að vera Chardonnay-
þrúgur frá Nýja Sjálandi í þetta sinn með ostunum.
Hvaða vín hentar best með steikinni?
Er til lífrænt ræktað rauðvín?
Hvað þarf mikið vín fyrir veisluna?
Kynning