Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
AIREX DÝNUR
FYRIR JÓGA
OG LEIKFIMI
polafsson.is
Trönuhrauni 6 // 220 Hafnarfjörður // Sími: 565 1533
Bandaríkjamenn eru í hátíð-arskapi í dag enda haldaþeir í dag upp á þakk-argjörðardaginn, sem ver-
ið hefur lögboðinn frídagur í Banda-
ríkjunum frá því á seinni hluta
nítjándu aldar. Upphaf hans má þó
rekja enn lengra aftur eða allt til
komu fyrstu landnemanna frá Eng-
landi á öndverðri sautjándu öld.
Þakkargjörðardagurinn eða
Thanksgiving Day er ávallt haldinn
hátíðlegur í Bandaríkjunum fjórða
fimmtudag í nóvembermánuði.
Ef að líkum lætur svigna veislu-
borðin vestra undan girnilegum
krásum en kalkúnn er ómissandi að-
alréttur á þakkargjörðardegi.
Veitingamennirnir á TGI Friday’s
eru líka komnir í hátíðarskap, en þar
á bæ verður í dag hægt að gæða sér
á ekta þakkargjörðarmáltíð. „Á síð-
asta ári héldum við þakkargjörðar-
daginn hátíðlegan í fyrsta sinn og
reyndust viðtökurnar mjög góðar.
Hefð er orðin fyrir því hjá TGI
Friday’s-veitingastöðum að bjóða
upp á kalkún á
þessum degi og
viljum við ekki
vera eftirbátar
annarra í þeim
efnum,“ segir
Róbert Ólafsson,
yfirmatreiðslu-
meistari, en um
680 TGI Fri-
day’s-veitinga-
staðir eru reknir
um heim allan.
Óþreytandi við ný tilbrigði
Þegar Róbert er inntur eftir upp-
runa eigin uppskriftar, sem hann
deilir hér með lesendum, svarar
hann því til að í reynd sé eiginlega
engin ein uppskrift að hinum eina
sanna kalkún. „Þó er ýmislegt, sem
verður að vera til staðar í kalkúna-
máltíð á þakkargjörðardegi. Nefna
má fyllinguna, sætar kartöflur,
trönuber og graskers- eða valhnetu-
böku. Fyrir áhugasama bendi ég á
að hægt er að fletta upp á thanksgiv-
ing.com á Netinu þar sem finna má
óteljandi uppskriftir og hvaðeina
sem tengist þessum degi. Greinilegt
er að Bandaríkjamenn eru óþreyt-
andi við að finna ný tilbrigði við
þessa aldagömlu hefð. Ég safna hins
vegar brotum af því besta í mína
uppskrift,“ segir Róbert og bætir við
að kalkúnaveisla ásamt hnetu-
súkkulaðibitaköku með ís verði á
boðstólum frá 11.30 til 22 í dag.
Kalkúnninn
Fylling:
8 bollar brauðteningar
½ bolli söxuð steinselja
2 tsk salt
2 tsk ferskt rósmarin
2 tsk ferskt timian
½ bolli fersk salvía
½ bolli smjör
1 bolli saxaður laukur
1 bolli saxað sellerí með laufum
1½ bolli kjúklingasoð
Léttsteikið laukinn og selleríið í
smjörinu og blandið saman við
brauðblönduna ásamt öllu kryddinu
og kjúklingasoðinu.
1 heill kalkúnn, 6–8 kg.
Hreinsið fuglinn vel í köldu vatni
og þerrið með pappírsþurrku.
Troðið fyllingunni í kalkúninn og
bindið fuglinn upp.
Bakist á rist við 130°C í 4–5 tíma.
Penslið reglulega með smjöri.
Fjarlægið fyllinguna úr fuglinum
um leið og hann er tilbúinn og setjið
í skál.
Leyfið fuglinum að standa í 15
mínútur áður en hann er skorinn.
Trönuberja- og eplasulta
100 g smjör
500 g epli í bátum
2 tsk kanill
1 tsk negull
200 g púðursykur
4 msk hveiti
1 dl epladjús
500 g frosin trönuber
Bræðið smjörið í potti og bætið
eplunum út í og látið malla við lágan
hita þar til eplin mýkjast. Bætið
kryddinu og sykrinum saman við.
Leysið hveitið upp í djúsnum og
hrærið saman við eplablönduna.
Mallið áfram í 2 mín. og blandið að
síðustu berjunum út í.
Kartöflumús
5 stórar bökunarkartöflur
5 sætar kartöflur
100 g smjör
1 dl sýrður rjómi
2 msk beikonbitar
söxuð steinselja
salt
pipar
Skerið kartöflurnar í stóra ten-
inga og sjóðið í léttsöltu vatni. Sigtið
vatnið frá og stappið kartöflurnar í
mauk. Bætið smjöri, sýrðum rjóma,
beikoni, steinselju og kryddinu sam-
an við og hrærið vel saman.
Sósa
100 g smjör
innmatur úr einum fugli.
1 bolli saxaður laukur
1 bolli saxað sellerí
5 hvítlauksrif
2 dl balsamikedik
2 lítrar kjúklingasoð
svartur pipar
maizena-mjöl
Steikið innyflin, laukinn, hvítlauk-
inn og selleríið í smjörinu. Hellið
edikinu yfir og sjóðið niður. Hellið
kjúklingasoðinu og piparnum saman
við og sjóðið í 10 mín. Sigtið sósuna
og þykkið með maizena-mjöli.
MATARKISTAN | Bandaríkjamönnum finnst kalkúnninn vera ómissandi á þakkargjörðardegi sem er í dag
Safnar brotum af því
besta í uppskriftina
Veitingamenn á TGI Friday’s ætla í dag að halda
þakkargjörðardaginn hátíðlegan ásamt bandarísku
þjóðinni. Jóhanna Ingvarsdóttir fékk forsmekkinn
hjá Róberti Ólafssyni, matreiðslumeistara.
Morgunblaðið/Sverrir
Kalkúnn: Tilheyrir þakkargjörðardegi, sem er ávallt haldinn hátíðlegur í
Bandaríkjunum fjórða fimmtudag í nóvembermánuði.
join@mbl.is
Epla- og trönuberjasulta.
Kartöflumúsin.
Fyllingin.
Róbert Ólafsson
yfirmatreiðslu-
meistari.