Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMÞYKKTU VANTRAUST
Úkraínska þingið samþykkti í gær
vantraust á stjórn Viktors Janúkóv-
ítsj forsætisráðherra. Líklegt þykir
nú að efnt verði til nýrra kosninga í
Úkraínu en stjórnarandstaðan hefur
sakað stjórnvöld um kosningasvik í
forsetakosningunum sem haldnar
voru 21. nóvember sl.
Vann 42 milljónir
Heppinn Íslendingur var með all-
ar tölur réttar í Víkingalottóinu í
gær. Hlaut hann rúmar 42 milljónir
króna í sinn hlut. Vinningsmiðinn
var seldur í söluturninum Rebba í
Hamraborg í Kópavogi í gær.
Barghuti í slaginn
Marwan Barghuti kastaði í gær
sprengju inn í palestínsk stjórnmál
þegar hann tilkynnti að hann hygð-
ist bjóða sig fram í forsetakosning-
unum sem halda á 9. janúar nk.
Barghuti, sem afplánar margfaldan
lífstíðardóm í ísraelsku fangelsi,
hafði áður tilkynnt að hann yrði ekki
í framboði.
Ísland rekur lestina
Noregur er í fremstu röð Norð-
urlanda hvað varðar fjölda kvenna
við stjórnvölinn í atvinnufyr-
irtækjum. Ísland rekur hins vegar
lestina með hlutfallslega fæstar kon-
ur í æðstu stjórnunarstöðum.
Járnlítil börn
Næstum þriðjungur tveggja ára
íslenskra barna hefur litlar sem eng-
ar járnbirgðir í líkamanum, sam-
kvæmt nýlegri rannsókn. Járn-
skortur hefur lengi verið tengdur
mikilli neyslu kúamjólkur.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 37
Erlent 14/15 Forystugrein 32
Heima 16 Viðhorf 34
Höfuðborgin 18 Minningar 38/44
Akureyri 20 Dagbók 48/51
Austurland 21 Víkverji 48
Landið 21 Menning 51/61
Daglegt líf 22/23 Bíó 58/61
Neytendur 24/25 Ljósvakamiðlar 62
Listir 26/27 Veður 63
Umræðan 28/37 Staksteinar 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablað frá Apple IMC.
Dæmdur í 45 daga fangelsi
Stal kjötlæri og
fimm oststykkjum
FERTUGUR maður sem glímir
við áfengisfíkn hefur verið dæmd-
ur í 45 daga óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir að stela kjötlæri og fimm
oststykkjum úr verslunum í
Reykjavík. Samtals nam verðmæt-
ið 4.580 krónum.
Í dómnum kemur fram að mað-
urinn hefur þrisvar sinnum geng-
ist undir sátt vegna ölvunarakst-
urs, annarra umferðarlagabrota og
þjófnaðar, síðast 23. maí 2002.
Átta sinnum hefur hann hlotið
dóm fyrir ölvunarakstur og hegn-
ingarlagabrot, árið 1988 fyrir föls-
un, árið 1992 fyrir kynferðisbrot,
árin 1996, 1999, 2000 og 2001 fyrir
þjófnað, tilraun til þjófnaðar, brot
gegn friðhelgi einkalífs og fölsun
og síðast hlaut ákærði 60 daga
fangelsisdóm 7. febrúar 2002, fyrir
þjófnað og umferðarlagabrot.
Þjófnaðarbrotin voru minni háttar.
Við ákvörðun refsingar var litið
til skýlausrar játningar ákærða og
þess að um lítil verðmæti var að
ræða og til þess að hann hefur
reynt að vinna bug á áfengisfíkn
sinni, en einnig var horft til þess
að hann hefur ítrekað framið
þjófnað. Vegna sakarferils manns-
ins taldi dómurinn ekki unnt að
skilorðsbinda refsinguna.
Ingveldur Einarsdóttir, héraðs-
dómari í Reykjavík, kvað upp
dóminn.
GENGI íslensku krónunnar hefur
ekki verið jafnsterkt í fjögur ár og
það er nú og ekki frá því horfið var
frá fastgengisstefnunni snemma árs
2001 og Bandaríkjadalur hefur ekki
verið jafnlágur gagnvart íslenskri
krónu í níu ár.
Gengi íslensku krónunnar hefur
verið að styrkjast að undanförnu og
gengisvísitala hennar endaði í 117,2
eftir viðskipti gærdagsins. Gengi
krónunnar hefur ekki verið sterkara
síðan 3. nóvember árið 2000. Gengi
Bandaríkjadals gagnvart krónu var
64,47 kr. við lok markaða í gær og
hefur ekki verið jafnlágt frá því í
októbermánuði árið 1995, en það er
fyrir tíma virks gjaldeyrismarkaðar
hér á landi. Á þeim tíma var gengi
krónunnar ákveðið af Seðlabanka Ís-
lands einu sinni á dag. Sé litið á þró-
un gengisins það sem af er þessu ári
kemur í ljós að krónan er 9% sterkari
gagnvart Bandaríkjadal en hún var
um áramót og 4% sterkari gagnvart
evru.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
banka Íslands, sagði að nefna mætti
þrennt sem skýrði styrkingu krón-
unnar síðustu dagana. Í fyrsta lagi
væri gert ráð fyrir vaxtahækkun
Seðlabankans í dag upp á 0,5–0,75% í
tengslum við útgáfu Peningamála og
það yki vaxtamun. Í öðru lagi hefðu í
gær verið mikil viðskipti með verð-
tryggð skuldabréf og væri líklegt að
þarna væru erlendir aðilar á ferðinni
sem væru að koma inn á markað hér
og taka áhættu í krónunni. Í þriðja
lagi virtist síðan hafa verið talsvert
lánainnflæði síðustu daga og líklega
hefði það einnig áhrif í þessum efn-
um.
Edda Rós sagðist aðspurð ekki
hafa reiknað með að krónan yrði
þetta sterk, en úr því sem komið
væri gæti hún alveg átt eftir að
styrkjast enn frekar tímabundið. Al-
mennt talað væri gert ráð fyrir að
krónan yrði sterk áfram allt næsta
ár í megindráttum og myndi ekki
fara að veikjast að nýju fyrr en í lok
þess hagvaxtarskeiðs sem nú stæði
yfir.
Styrkist líklega ekki í bráð
Edda Rós sagði spurð um geng-
isþróun Bandaríkjadals að viðskipta-
hallinn í Bandaríkjunum væri um 6%
af landsframleiðslu þeirra, en fjár-
hæðirnar væru slíkar að hann sogaði
til sín 75% af öllum sparnaði í Kína,
Japan og Þýskalandi. Það væri ekki
útlit fyrir að Bandaríkjadalur styrkti
sig í sessi í nánustu framtíð, en þó
væri erfitt að meta hvenær þessi
þróun snerist við.
Gengið ekki sterkara í 4 ár
Gengi Bandaríkjadals hefur
ekki verið jafnlágt í níu ár
! " # $ % $ " " & !
BISKUPINN yfir Íslandi, Karl Sig-
urbjörnsson, afhenti Freyju Har-
aldsdóttur fyrstu Kærleikskúlu árs-
ins 2004 við hátíðlega athöfn í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu í gær. Áður hafði biskup Íslands
blessað kúluna. Kærleikskúlan kem-
ur nú út í annað sinn og hefur Ólafur
Elíasson hannað útlit kúlunnar og
kallar verkið Augað.
Um Kærleikskúluna 2004 segir
Ólafur: „Færið jólatrénu auga til að
sjá jólin ykkar – jólin eru sá tími sem
við leggjum meiri áherslu en ella á
að hafa það gott ásamt okkar nán-
ustu. Þau eru sá tími þar sem við
reynum að finna okkur stund til að
íhuga hvernig okkur líður. Íhuga
hvernig við verjum lífi okkar og
hvað við getum gert til að aðstoða
eða styðja aðra í þeirra lífsbaráttu.
Það að rétta út hendina og miðla
kærleika hefst með því að maður
horfir í eigin barm til að meta hvern-
ig maður hefur kosið að lifa sínu lífi.
Einungis með því að breyta afstöðu
sinni getur maður breytt sjón-
arhólnum sem maður notar sem
ramma viðmiða sinna.
Þar sem augað er með marg-
víslegum hætti uppspretta sjón-
arhólsins, er það tækið sem gefur
okkur færi á að endurmeta umhverfi
okkar, og þá gestrisni og örlæti sem
við sýnum heiminum. Augasteinninn
hjálpar okkur ekki einungis til að sjá
heiminn, heldur einnig að sjá hvern-
ig við sjáum og þar með þá hugs-
anlegu ábyrgð sem felst í því að vera
hluti samfélags mannanna.“
Styrkja Reykjadal
Markmiðið með sölu kúlunnar er,
að sögn Evu Þengilsdóttur hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra,
að auðga líf fatlaðra barna og ung-
menna, en allur ágóði rennur til efl-
ingar starfsemi Reykjadals. Við at-
höfnina í gær lék Bjöllukórinn
nokkur jólalög undir stjórn Val-
gerðar Jónsdóttur og Eiríkur Þor-
láksson, forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkur, fjallaði um Ólaf Elías-
son og list hans.
Kærleikskúlan verður til sölu dag-
ana 5.–19. desember í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
og í verslununum Home Art í
Smáralind, Villery og Boch í Kringl-
unni, Kokku á Laugavegi 47 og Val-
rós á Akureyri.
Augað hans
Ólafs sér jólin
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Elíasson og Eva Þengilsdóttir með Augað.
Morgunblaðið/Golli
Karl Sigurbjörnsson afhendir Freyju Haraldsdóttur Kærleikskúluna.
Karl Sigurbjörnsson biskup afhenti fyrstu Kærleikskúluna 2004