Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 25

Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 25
Morgunblaðið/Júlíus Spurning: Gilda einhverjar reglur um verðmerkingu á vörum sem aug- lýstar eru í dagblöðum eða öðrum fjölmiðlum og hvaða reglur gilda um verðmerkingar í verslunum og búð- argluggum? Svar: „Samkvæmt reglum Sam- keppnisstofnunar er ekki skylt að gefa upp verð á vörum sem auglýst- ar eru í dagblöðum eða öðrum fjöl- miðlum,“ segir Kristín Færseth hjá Samkeppnisstofnun. „Ef fyrirtæki hins vegar gefur upp verð í auglýs- ingum þá ber að fara eftir þeim reglum sem gilda um verðmerkingar eftir því sem við á.“ Í samkeppnislögum er hins vegar kveðið á um að fyrirtæki sem selur vörur eða þjónustu til neytenda skuli merkja vöru sína og þjónustu með söluverði eða sýna það á svo áber- andi hátt á sölustaðnum að auðvelt sé fyrir neytendur að sjá það. Þetta á einnig við um vörur í sýning- argluggum verslana.“ Þegar Kristín er spurð hvaða við- urlögum sé beitt ef brugðið er út af lögum hvað varðar verðmerkingar segir hún að samkeppnisráð geti lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn ákvæðum laganna eða fyrirmælum settum samkvæmt þeim. Í því sambandi má nefna að dómur hefur fallið í Hæstarétti vegna brota á lögum um verðmerk- ingar.  SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL Ekkert verð í auglýsingum MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 25 NEYTENDUR Kringlunni - Smáralind Kringlunni - Smáralind Selected jólabæklingurinn fylgir blaðinu á morgun Glæsilegt úrval af fallegum jólagjöfum fyrir herra Jack & Jones jólabæklingurinn fylgir blaðinu á morgun Frábært úrval af flottum jólagjöfum - Ekki missa af! Jakki 8.990 Bolur 2.990 Peysur 3.990 Eigðu stefnumót við heiminn Bók í sérflokkiHöfundur: IngólfurGuðbrandsson HEIMSKRINGLA Ferða- og bókaklúbbur Laugarásvegi 21, 104 Reykjavík Talhólf: 861 5602 Fax: 581 4610 Netfang: heimskringla @visir.is Magnpöntun: Minnst 10 eintök. Komin í bókaverslanir 534 ljósmyndir og kort 256 bls. Lifandi frásagnir og litmyndir úr öllum álfum heimsins, í senn falleg, fróðleg og skemmtileg. Varanleg jóla- og tækifærisgjöf á sérstöku tilboðsverði til 10. des. Kr. 5.990, almennt verð kr. 7.990 ÚTG: HEIMSKRINGLA - Ferða- og bókaklúbbur Ítalskt konfekt Baci heitir nýr konfektmoli úr mjúku núggati, ristuðum hnetum og dökku súkkulaði sem fæst núna á Ís- landi. Baci þýðir koss á ítölsku (bor- ið fram baddsí) og er fáanlegur í nokkrum mismunandi gjafaöskjum – í málmboxi, jólakúlu eða kassa. Í desember fylgir jólakúla í kaupbæti. Baci fæst í öllum helstu mat- vöruverslunum. Rauðkál og rauðbeður Danska fyrirtækið Beauvais hefur í meira en 150 ár framleitt matvörur fyrir dönsk heimili. Nú er komin nýjung frá Beauvais. Þetta er lína sem þeir kalla „Delikatessen“ eða sælkeralína og samanstendur af þremur vörutegundum, rauðbeður með koríander, gúrkum með sól- þurrkuðum tómötum og rauðkáli með appelsínum. Humarsúpa fyrir Íslendinga Eftir að fyrirtækið Oscar breytti vörunum sínum úr deigi í duft, þá hafa engar súpur verið fáanlegar frá þeim. Íslendingar söknuðu hum- arsúpunnar úr línu Oscars og nú hef- ur fyrirtækið hafið framleiðslu á súpunni í duftformi sérstaklega fyrir Ísland. Hún er ekki í boði í Dan- mörku. Súpan kemur í verslanir í næstu viku. Desertsósur Frá Dr. Oetker eru komnar des- ertsósur á markað. Þær koma í túp- um og eru þykkar. Þær eru fáan- legar til að byrja með í Krónunni, Nóatún og Hagkaup. NÝTT „VIÐ hófum nýlega innflutning á ítölsku LaSelva-niðursuðu- matvörum sem koma frá sam- nefndum búgarði á Ítalíu þar sem lífræn ræktun hefur verið stunduð í rúm tuttugu ár“, segir Sólveig Ei- ríksdóttir sem starfar fyrir deild innan inn- flutningsfyrirtækisins Matráðs, en deildin heitir Himnesk holl- usta og sér um inn- flutning á lífrænni mat- vöru. „Hjá LaSelva er tvinnað saman það besta úr ítölsku eld- húsi, lífrænt ræktað hrá- efni í hæsta gæðaflokki og virðing fyrir náttúrunni. LaSelva- búgarðurinn spannar 850 ekrur og er í Toscana-héraði. Ég fór þangað í heimsókn í sumar í framhaldi af því að við náðum samningum við þá, en það er ekki auðfengið því þeir setja mjög strangar kröfur um hverjum þeir selja vörur. Auk þess er fram- leiðslan í smáum stíl, þeir framleiða sjaldan meira en 30.000 krukkur á ári í hverri tegund og ekki nema 1.000 krukkur af sumum teg- undum,“ segir Sólveig og bætir við að hún hafi heillast af umhverfinu og aðferðunum á LaSelva-búgarðinum þar sem uppskeran er unnin á eins einfaldan og náttúrulegan hátt og hægt er. Nýpressuð olía skiptir miklu máli Sólveig segir að á Ítalíu séu reglur um lífrænt ræktaðar matvörur þær ströngustu í Evrópu. „Ég get nefnt  MATUR Ítalskar sælkeravörur sem dæmi að á LaSelva-búgarðinum þurfa að líða sjö ár á milli þess sem sama tegund matvöru er ræktuð í sama reit, á meðan krafan annars staðar er oftast tvö til fimm ár. Og þessar vörur er lausar við öll auka- efni. Tómatvörurnar frá þeim eru til dæmis ekki með neinum viðbættum sykri, af því að á La- Selva-búgarðinum leyfa þeir tómötunum að verða rauðir og fullþroska á plöntunum og þannig verða þeir nátt- úrulega sætir. En það sem mér finnst skipta mestu máli er að olían sem þeir nota er lífræn kald- hreinsuð ólífuolía frá bóndanum á næsta bæ. Og þessi olía er nýpress- uð, sem skiptir miklu máli, því fyrir vikið inniheldur hún óvenjumikið af ómega-fitusýrum og öðrum fitusýr- um sem við þurfum á að halda. Ítalir gefa börnum sínum svona olíu í sama tilgangi og við gefum börnum okkar lýsi,“ segir Sólveig. LaSelva- vörurnar fást í Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Yggdrasli, Maður lif- andi, Melabúðinni og Blómavali.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.