Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 51 MENNING Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað og jóga kl. 9, boccia kl. 10, myndlist kl. 13, vídeóhornið kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al- menn handavinna, böðun, leikfimi, myndlist, bókband, fótaaðgerð. Söng- urinn fellur niður vegna jólafagnaðar. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag- blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45 hárgreiðslan opin, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13–16 sam- verustund, kl. 14.40 ferð í Bónus, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Staf- ganga kl. 11, brids í dag kl. 13, námskeið í framsögn kl. 16.15, félagsvist kl. 20. Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK Gullsmára spilar tví- menning mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á hádegi. Síðasti spiladagur fyrir jól mánudagur 13. des- ember. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gler- málun kl. 9, karlaleikfimi og málun kl. 13, trélist kl. 13.30, boccia karla og kvenna kl. 15, vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 8.30, opið í Garðabergi kl. 13–17. Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30, umsjón Guðmundur Karl Ágústsson, spilasalur og vinnustofur opin frá hádegi. Miðvikudaginn 15. des- ember verður jólahlaðborð í hádeginu, skráning hafin í síma 575 7720. Félagstarfið, Lönguhlíð 3 | Bingó kl. 15. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, bútasaumur, perlusaumur, kortagerð. Hjúkrunarfræðingur á staðnum, hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 fé- lagsvist, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa – bútasaumur kl. 9–13, boccia kl. 10–11, hannyrðir kl. 13–16.30, félagsvist kl. 13.30, kaffi og nýbakað. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hár- snyrting. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl. 9–16. Listasmiðja, glerskurður/frjálst, leikfimi kl. 10–11, aðstoð við böðun kl. 9–12, sönghópurinn kl. 13.30. Ósóttir miðar á Vínarhljómleikana 2005 til sölu eftir 1. desember. Jólamarkaður frá kl. 11–15. Skráning á jólahlaðborðið hafin. S. 568 3132. Korpúlfar, Grafarvogi | Í dag, fimmtu- dag, pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10. Á morgun, föstudag, vatnsleikfimi í Graf- arvogslaug kl. 9.30. Kvenfélagið Hrönn | Jólafundur með kaffihlaðborði verður fimmtudaginn 2. desember kl. 20 í Borgartúni 22, 3. hæð. Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin vinnu- stofa, kl. 10 ganga. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl. 10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 12.15–14 versl- unarferð í Bónus Holtagörðum, kl. 13– 14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurð- ur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Þórðarsveigur 3 | Jólakaffi og bingó kl. 13.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr- irbænastund kl. 12. Léttur hádeg- isverður á eftir. – Samvera eldri borg- ara kl. 15. Barnakór Akureyrar syngur. Ræðumaður: Sr. Birgir Snæbjörnsson. Áskirkja | Kl. 12 hreyfing og bæn. Kl. 14–17 samsöngur undir stjórn org- anista. Kl. 17–18 TTT-samvera: Aðventufundur. Kl. 17–20 TEN-SING– starfið. Bústaðakirkja | Foreldramorgnar fimmtudaga kl. 10–12. Þar koma for- eldrar saman með börn sín og ræða lífið og tilveruna. Þetta eru gefandi samverur fyrir þau sem eru heima og kærkomið tækifæri til þess að brjóta upp daginn með helgum hætti. Allar nánari uppl. eru á: www.kirkja.is. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12. Umsjón Anna Arnardóttir. Leik- fimi I.A.K. kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. www.digraneskirkja.is. Fella- og Hólakirkja | Foreldramorgn- ar alla fimmtudaga kl. 10–12. Allir for- eldrar, afar og ömmur sem eru heima með börn velkomin. Fimmtud. 2. des. föndrum við nammikrans. Kirkjan út- vegar allt efni nema sælgætið sem þátttakendur koma sjálfir með. Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf f. 3.–5. bekk er í Fella- og Hólakirkju alla fimmtudaga kl. 16.30–17.30. Síðasta samvera fyrir jól er 9. desember. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund er hvert fimmtudagskvöld í Vídalínskirkju kl. 22. Gott er að ljúka deginum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur sínar og gleði. Tekið er við bæn- arefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmis konar fyr- irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í há- degi kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 7–9 ára starf, er í Hjallakirkju kl. 16.30–17.30. Hjallakirkja | Í kvöld munu foreldrar á fjölskyldumorgnum hittast og föndra fyrir jólin. Jólaföndrið hefst kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Við byrjum stundirnar á að syngja gömlu góðu sálmana, síðan lesum við í Orði Guðs, biðjum, syngjum meira, fáum fræðslu eða vitnisburð og endum svo á því að fá okkur kaffi og meðlæti. Allir velkomnir. KFUM og KFUK | Ad-fundur KFUM kl. 20. „Fjárlagagerð ríkisins“, Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar. Upphafsbæn: Keith Reed. Hugleiðing: Sr. Ólafur Jóhannsson. Allir velkomnir. Langholtskirkja | Foreldra- og ung- barnamorgnar alla fimmtudaga kl. 10– 12. Fræðsla frá Miðstöð ungabarnaeft- irlits. Umsjón hefur Rut G. Magn- úsdóttir. Söngstund með Jóni Stefánssyni. Kaffisopi. Allir foreldrar ungra barna velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðarstund í hádegi. Kl. 14 samvera eldri borgara, jólafundur. Þórarinn Eldjárn les úr bók sinni, Baróninn. Nemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar leika. Kl. 17.30 KMS (15–20 ára). Æfingar fara fram í Áskirkju og Félagshúsi KFUM & K við Holtaveg. Lágafellskirkja | TTT – töff, töfrandi og taktfast, æskulýðsstarf fyrir tíu til tólf ára. TTT er félagsskapur fyrir öll tíu til tólf ára börn sem langar til að eiga skemmtilegan vetur saman. TTT- fundirnir verða á fimmtudögum kl. 16.30 í safnaðarheimili Lágafellskirkju. Neskirkja | Krakkaklúbburinn, starf fyrir 8 og 9 ára kl. 14.30. Leikir, spil, föndur og margt fleira. Umsjón Guð- munda og Elsa. Fermingarfræðsla kl. 15. Stúlknakórinn kl. 16. Fyrir 9 og 10 ára stúlkur. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Upplýsingar í síma 896 8192. Njarðvíkurprestakall | Ytri- Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra og öryrkja kl. 20 í kirkjunni í umsjá Lionsklúbbs Njarðvíkur, Ástríðar H. Sigurðardóttur og sr. Baldurs R. Sig- urðssonar. Natalía C. Hewlett organisti leikur á orgel við helgistund að spilum loknum. Síðasta skiptið á þessu ári. Svalbarðskirkja | Aðventukvöld föstu- daginn 3. des. kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum fyrir alla fjöl- skylduna. Hallgrímskirkja MEISTARAR Mozart, Bach, Schubert og Brahms verða í aðalhlutverki á Aðventutónleikum Kvennakórs Reykja- víkur í Grafarvogskirkju í kvöld. Þar verða m.a. flutt verkin Missa brevis í B og Laudate Dominum eftir Moz- art, hlutar úr Magnificat eftir J.S. Bach, Ave Maria eftir Brahms og Heilich, Heilich, Heilich eftir Schubert ásamt nokkrum vel þekktum jólalögum. Einsöngvarar á tón- leikunum eru Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Sess- elja Kristjánsdóttir messósópran og Jóhanna Halldórs- dóttir alt. Um hljóðfæraleik sjá þau Marteinn H. Friðriksson á orgel, Hjörleifur Valsson og Helga S. Torfadóttir á fiðlur og Örnólfur Kristjánsson á selló. Stjórnandi kórsins er Sigrún Þorgeirsdóttir. Kórinn endurtekur svo leikinn síðdegis á sunnudag. Guðrún S. Hilmisdóttir, formaður Kvennakórsins, segir áheyrendur mega eiga von á góðu. „Okkur finnst þetta alveg frábær músík sem við flytjum á þessum tón- leikum,“ segir Guðrún. „Það er svo gott að hafa þessa framúrskarandi tónlistarmenn með okkur, fiðlusveitina og Martein H. Friðriksson á orgelið og svo þessar flottu einsöngkonur sem syngja með okkur. Við erum mjög ánægðar með þetta starf. Við erum alltaf að flytja ein- hverja skemmtilega og góða músík með sínum hætti. Nú erum við að flytja þessa músík og höfum fengið til lags við okkur við það gott listafólk.“ Guðrún segir verkin um leið krefjandi og skemmtileg. „Það er mjög gaman að syngja verk eftir þessa snillinga og svo erum við með jólalög sem skapa náttúrulega alltaf ákveðna eftirvæntingu og stemmningu hjá manni.“ Morgunblaðið/Golli Guðrún S. Hilmisdóttir, formaður Kvennakórs Reykja- víkur, kveðst afar ánægð með dagskrá tónleikanna. Skemmtileg og krefjandi tónlist Kórtónlist | Aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur Tónleikarnir hefjast í Grafarvogskirkju kl. 20 í kvöld en verða endurteknir á sunnudag kl. 17. DAGBÓK ÍSLENSKIR djassleikarar hafa góðu heilli verið áhugasamir um að leika íslensk lög frá ýmsum tímum og virðist ekkert lát á því. Það er gæfa hverrar þjóðar að listamenn hennar rjúfi ekki tengslin við fortíðina um leið og þeir leita nýjunga í samtím- anum. Þó Marteinn kallinn Lúter verði seint kallaður íslenskur og sið- bót hans kærkomin danska konungs- valdinu tilað sölsa undir sig eignir kaþólsku kirkjunnar er þjóðin að nafninu til lútersk og sálmar þeir sem hann samdi, stældi eða stal margir í sálmabók þjóðkirkjunnar. Björn hef- ur farið eins að og endursamið arf Lúters með miklum ágætum. Margir sperrtu eyrun þegar lög af þessari skífu fóru að hljóma í útvarpi því hér er Björn fyrst og fremst rafmagnsgít- aristi en því höfðu margir gleymt og sumir kannski aldrei vitað. Stemmn- ingin frá Gammaárunum ríkir hér oft enda vopnabróðir hans þaðan, Stefán S. Stefánsson, með í för. Tónninn er gefin í upphafslaginu, Í dauðans höndum drottinn lá, þarsem Stefán þrusar fúsjónsándinu úr saxinum og urrar Jacquet-lega í sólónum. Bjössi er einnig í stórstuði í sóló sínum og hleypir á Djangóskeið í bræðingnum. Nú held ég burt í friði og ró er bland- að bláu en Vor guð er borg á bjargi traust leikið eftir bókinni þartil fú- sjóngítar Björns leiðir sveitina á nýja vegu. Þannig hljóma verkin eitt af öðru: hirðdansi bregður fyrir á stund- um og Guitar Islancio er ekki alltaf jafnfjarlægt og virðast mætti. Rich- ard Gilles blæs glæsilegan tromp- etsóló og undir lokin er bensínið stig- ið í botn í fjórgengisvél sveiflunnar og Björn minnir á fortíð sína með því að vitna í Softly Rombergs. Þar láta Qvick og Jón ekkert eftir liggja. Ein- hver best heppnaða plata Björns til þessa. Frá sálmum til ættjarðarlaga Sálmaplötur Sigurðar Flosasonar og Gunnars Gunnarssonar hafa orðið æði vinsælar meðal þjóðarinnar, en í ár láta þeir Bjössa Thor um trúna á himnafeðga en túlka þess í stað trúna á landið með heillandi ættjarðarskífu: Draumalandið. Þetta er tónlist sem hittir í hjartastað og vekur við- kvæmum tár, en erfitt er að dæma hvort svo verður víðar en hérlendis þarsem lögnin eru manni svo sam- ofin. Það skiptir minnstu hvort þessi skífa er kennd við djass eða ekki, en sé þetta ekki af djassættinni má af- skrifa Garbarek sjálfan á þeim vett- vangi. Það er kannski ekki óeðlilegt að sálmaandinn svífi hér yfir vötn- unum. Gunnar kirkjuorganisti og samvinna hans og Sigurðar fyrst og fremst á þeim vettvangi. Jafn ólík lög og Hver á sér fegra föðurland og Ís- land er land þitt eru kirkjunnar lög í túlkun þeirra félaga og svo er víða. Þó er þjóðlagið alkunna, Gefðu að móð- urmálið mitt, með rímnablæ og dans- andi barokkandi svífur yfir Íslands hrafnistumönnum, sem er ekki vænt lag til spunatúlkunar af djassætt freka en Lýsti sól þarsem karlakórs- belgingurinn er meistaralega spunn- inn burtu. Stundum bregða þeir fé- lagar á það ráð að spinna glæstan inngang að alþekktum þjóðern- issöngvum einsog Rís þú unga Ís- landsmerki, en flottastur er inngang- urinn að Úr útsæ rísa Íslands fjöll; afstrakt áðuren dramatík dr. Páls tekur völdin. Nótt og Draumalandið eru í hópi feg- urstu einsöngs- laga íslenskra og fá draumkennda túlkun en djass- vænni er kröftug- ur barrýtonspuni Sigurðar í Þótt þú langförull legðir. Flest lögin blæs hann í höfuðhljóð- færi sitt, altósaxófóninn, og það mjúktóna, en með árunum hefur vald hans á barrýton- og sópransaxófón- unum aukist mjög og má heyra það hér. Þetta er plata sem hefur alla burði tilað ná sömu hylli og sálmaplötur þeirra félaga, en sveifla í orðsins djassmerkingu fyrirfinnst engin þótt spuninn sé oft frábær. Dægurlög okkar tíma og alþýðuljóð Jóel Pálsson og Eyþór Gunnarsson fara þriðju leiðina að þjóðarhjartanu. Hér leika þeir sönglög eftir tónskáld, bæði af ætt ,,klassíkur“ og popps svo og þjóðlög. Sumt er leikið án mikils skrúðs, sumt spunnið og annað flétt- að uppá nýtt, Stál og hnífur Bubba og Dimmalimm Atla Heimis verða þann- ig að coltranískum ópusum þarsem sóprantónn Jóels hljómar tær við pí- anóhljóma Eyþórs, meðan Tvær stjörnur Megasar eru ljóðið sjálft. Dramatískur styrkur ræður ríkjum í Svefn-g-englum Sigurrósar og end- urómar í framhaldinu: Leyndarmáli Þóris Baldurssonar, sem var fyrstur Íslendinga tilað hljóðrita dúóskífu með saxófónleikara: Rúnari Georgssyni. Flest eru verkin flutt á klassískan máta, laglína-spuni- laglína, og er einna frábærast í þeim flokki túlkun þeirra félaga á Sveitinni milli sanda eftir Magnús Blöndal. Í vísum Vatnsenda-Rósu býr ógn sem við eigum ekki að venjast og kontra- bassaklarinett Jóels vekur – en fellur vel að sögu Rósu Guðmundsdóttur og samtímamanna hennar. Þetta er skífa sem hentar vel á síðkvöldum þegar ró hefur færst yfir heimilið – en vel að merkja engin lyftutónlist held- ur tær snilld. Örlítið um plötuumslög Á dögunum birtist í DV umfjöllun um bestu og verstu plötuumslögin að mati nokkurra álitsgjafa og var Luth- erumslagið eftir Pétur Halldórsson valið það versta. Ég get ómögulega verið sammála því, þykir umslagið nokkuð skondið og textinn læsilegur. Afturá móti á ég ver með að skilja ferðaþjónustublæinn á Skuggsjá Godds og verst þó að textinn er ill- læsilegur og lendir meirað segja á dökkum myndgrunni á stundum. Aft- urá móti hefði umslag Vilborgar Önnu Björnsdóttur, Draumalandið, átt heima í flokki bestu umslaga árs- ins. Hönnun hin fegursta og texti læsilegur. Það er einn helsti galli margra hönnuða að gleyma hvaða hlutverki plötuumslagið gegnir. Brúkskúnst er brúkskúnst. Arfleifð og nútíð spunnin Vernharður Linnet Sigurður Flosason Gunnar Gunnarsson Eyþór Gunnarsson Björn Thoroddsen TÓNLIST Íslenskar plötur Björn Thoroddsen: Luther Björn Thoroddsen gítar, Stefán S. Stefánsson tenórsaxófón, Jón Rafnsson bassa, Erick Qvick trommur og Richard Gilles trompet. Stensnar snarcd 16. 2004. Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson: Draumalandið. Sigurður Flosason, sópran-, altó og barrý- tonsaxófóna, Gunnar Gunnarsson orgel. Dimma DIM13. 2004. Jóel Pálsson og Eyþór Gunnarsson: Skuggsjá Jóel Pálsson tenór- og sópransaxófóna, kontrabassaklarinett; Eyþór Gunnarsson píanó. FLUGUR 001. 2004 Jóel Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.