Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞING Úkraínu samþykkti í gær til- lögu um vantraust á Viktor Janúkov- ítsj, forsætisráðherra landsins, og krafðist þess að mynduð yrði ný rík- isstjórn. Leoníd Kútsjma, fráfarandi forseti Úkraínu, kvaðst í gær vera hlynntur því að efnt yrði til nýrra forsetakosninga í landinu vegna ásakana um kosningasvik í síðari umferð kosninganna 21. nóvember. Hæstiréttur Úkraínu skýrði frá því í gær að Janúkovítsj forsætisráð- herra hefði óskað eftir því að síðari umferð kosninganna yrði úrskurðuð ógild. Þá samþykkti þing heimahér- aðs forsætisráðherrans í austan- verðri Úkraínu að haldin yrði at- kvæðagreiðsla meðal íbúanna um hvort héraðið ætti að fá takmarkaða sjálfstjórn. Þing Úkraínu samþykkti van- trauststillöguna með 229 atkvæðum af 450 og munaði aðeins þremur at- kvæðum að hún yrði felld. Ekki var ljóst í gær hvort stjórn Janúkovítsj færi frá. Forsætisráðherrann kvaðst ekki ætla að segja af sér, sagði ákvörðun þingsins ólöglega. Fréttaritari breska ríkisútvarps- ins BBC í Úkraínu sagði að forsetinn gæti hafnað samþykkt þingsins. Til að þingið gæti knúið stjórnina til að segja af sér þyrftu tveir þriðju þing- mannanna, eða 301, að styðja van- trauststillöguna. Vill ekki að síðari umferðin verið endurtekin Fréttastofan AP sagði að Kútsjma forseti gæti heimilað ríkisstjórninni að sitja áfram þar til ný stjórn yrði mynduð, en þó ekki lengur en í tvo mánuði. Búist var við að Kútsjma skipaði bráðabirgðastjórn, líklega undir forystu Volodymyrs Lytvins, forseta þingsins, að sögn sérfræð- inga í úkraínskum stjórnmálum. Kútsjma kvaðst í gær vera hlynnt- ur því að efnt yrði til nýrra forseta- kosninga í Úkraínu og hafnaði kröfu stjórnarandstöðunnar um að síðari umferð kosninganna yrði endurtek- in. Í fyrri umferðinni voru 24 í fram- boði og þar sem enginn þeirra fékk meirihluta atkvæða þurfti að kjósa á milli tveggja efstu forsetaefnanna – Janúkovítsj forsætisráðherra og stjórnarandstæðingsins Viktors Jústsjenkós – í síðari umferðinni sem fram fór 21. nóvember. Stjórn- arandstaðan sakaði þá stuðnings- menn Janúkovítsj um stórfelld kosn- ingasvik og neitaði að viðurkenna kjörtölur yfirvalda. Stjórnarandstaðan hefur krafist þess að síðari umferð kosninganna verði endurtekin en Kútsjma lýsti þeirri lausn sem „skrípaleik“. „Ég hef aldrei stutt þessa hugmynd vegna þess að hún samræmist ekki stjórnarskránni,“ sagði hann. Svo virtist sem með tillögunni um að efna til nýrra kosninga væri Kútsjma að reyna að vinna tíma nú þegar stjórnkerfið í höfuðborginni hefur verið lamað vegna fjöldamót- mæla sem staðið hafa í ellefu daga. Áður hafði Jústsjenkó hafnað tillögu Janúkovítsj um að haldnar yrðu nýj- ar kosningar en að hvorugur þeirra tvímenninganna yrði þá í kjöri. Úkraína verði sambandsríki Þing Donetsk, heimahéraðs Jan- úkovítsj í austanverðri Úkraínu, samþykkti í gær tillögu um að efnt yrði til atkvæðagreiðslu meðal íbú- anna í janúar um það hvort héraðið ætti að fá takmarkaða sjálfstjórn. Anatolí Blíznjúk, héraðsstjóri Don- etsk, sagði að þing héraðsins vildi að það yrði áfram hluti af Úkraínu og að landið yrði gert að sambandsríki. Markmiðið með samþykktinni virtist vera að hræða stjórnarand- stöðuna, sem nýtur mests stuðnings í vesturhluta landsins, með hótunum um rjúfa einingu landsins án þess að ganga svo langt að hóta aðskilnaði. ESB reynir að miðla málum Javier Solana, talsmaður Evrópu- sambandsins í utanríkismálum, og Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, reyndu að miðla málum á samningafundi í Kíev í gær með Kútsjma forseta, Janúkovítsj for- sætisráðherra og Jústsjenkó. Rússnesk stjórnvöld létu í ljósi grunsemdir um að Evrópusamband- ið og Bandaríkin væru að reyna að koma Jústsjenkó til valda með því að kynda undir ólöglegum götumót- mælum. Sergej Lavrov, utanríkis- ráðherra Rússlands, varaði við því að „óhófleg þátttaka ákveðinna evr- ópskra fulltrúa í ferlinu í Úkraínu [hefði] magnað spennuna í landinu“. Þing Úkraínu samþykk- ir vantraust á stjórnina Kútsjma forseti vill að efnt verði til nýrra forseta- kosninga Kíev. AP, AFP. AP Stjórnarandstæðingar á þingi Úkraínu fagna eftir að það samþykkti tillögu um vantraust á ríkisstjórnina í gær. DAVID Blunkett, inn- anríkisráðherra Bret- lands, neitaði í gær að hafa gert nokkuð rangt en því var haldið fram í einu dagblaðanna, að dvalarleyfi fyrir filipp- íska þjónustustúlku fyrrverandi ástkonu hans hefði verið afgreitt með hraði og aðeins á nokkrum dögum. Daily Mail birti í gær tvö bréf frá innanrík- isráðuneytinu til þjón- ustustúlkunnar, Leoncia Casalme, vegna umsóknar hennar á síðasta ári um varanlegt dval- arleyfi í Bretlandi. Í öðru bréfanna sagði, að það tæki eitt ár að af- greiða umsóknina en í hinu, sem var dagsett 19 dögum síðar, sagði, að umsókn hennar hefði verið sam- þykkt. Casalme vann fyrir Kimberley Quinn, útgefanda tímaritsins Spectators, en þriggja ára löngu ástarsambandi Quinn og Blunketts lauk í ágúst sl. Um síðustu helgi birti Sunday Telegraph tölvupósts- keyti frá Quinn til Blunketts þar sem hún biður hann að flýta fyrir dvalarleyfi Casalme eða með öðr- um orðum að misnota stöðu sína. Tony Blair forsætisráðherra segist bera fullt traust til Blunk- etts, sem hefur sjálfur hvatt til rannsóknar á málinu, en það er af Quinn að segja, að hún var flutt á sjúkrahús sl. mánudag eftir að hafa dottið heima hjá sér. Er streitu kennt um en hún er komin sjö mánuði á leið og er ekki annað vitað í augnablikinu en faðir barns- ins sé Stephen Quinn, eiginmaður Kimberley og útgefandi Conde Nast-tímaritanna. Eiga þau hjón fyrir tveggja ára gamlan dreng en sagt er, að Blunkett hafi farið fram á DNA-rannsókn til að úr því verði skorið hver sé faðir barnanna. Saumað fastar að Blunkett London. AFP. Tony Blair forsætisráðherra fyrir utan Down- ingstræti 10 í gær (t.h.) ásamt David Blunkett. NÚ þurfa menn ekki lengur að skammast sín fyrir það hversu oft þeir skipta um farsíma og henda þeim gamla á haugana eða ofan í skúffu. Nú er nefni- lega búið að þróa farsíma sem fólk mun geta notað til nytsam- legra hluta er þeir hafa skilað hlutverki sínu: það mun geta gróðursett þá og búið til úr þeim blóm! Vísindamenn við Warwick- háskóla í Bretlandi segjast hafa þróað farsíma sem hefur að geyma ofurlítið fræ. Segja þeir að þegar eigandinn hættir að nota símann geti hann gróð- ursett hann, síminn eyðist með tíð og tíma eftir að hann kemst í snertingu við mold en hið inn- byggða fræ byrji hins vegar að spíra. Virðist uppfinningin hafa tekist vel því fallegan sólfífil er nú að finna þar sem fyrsti sím- inn var gróðursettur. Vísindamennirnir benda á að endingartími farsíma sé sér- staklega stuttur, notendur endurnýi símana sína mjög reglulega. Þessi nýja tegund farsíma sé umhverfisvæn og uppfylli kröfur þeirra sem vilji að hægt sé að endurnýta sím- ana. Ekki fylgir sögunni hvort og þá hvenær símarnir koma á markað. Farsímar munu blómstra London. AFP. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.