Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Loksins, loksins!
Sannleikurinn um Ísland
/
ba
gg
al
ut
ur
.is
Viðeyjardóninn
afhjúpaður!
Allt um lesbíuna í Sandey!
Hvað gerist í F
élagi eldri bor
gara?
Hvaðan kom Brúðubíllinn?
* ósýnilega mannsins
30%
afsláttur
Baggalútur les úr bókinni
á Súfistanum í kvöld
- Allir velkomnir!
Alfræði
Baggalúts
Einskis er svifist til að
koma efninu á framfæri og
engum hlíft.
Brot úr
lærlegg* fylgir
hverri seldri
bók!
Ísland eins og það er í raun og veru!
FRAMTÍÐ í nýju landi er nafn til-
raunaverkefnis til þriggja ára sem
hleypt var af stokkunum í gær og
snýst um aðstoð við ungmenni af
asískum uppruna við að setja sér
markmið um menntun, færni og að-
lögun að íslensku samfélagi og leita
úrræða til að ná þeim. Að verkefninu
standa Alþjóðahúsið, félagsmála-
ráðuneytið, menntamálaráðuneytið,
Rauði kross Íslands, Reykjavíkur-
borg og Velferðarsjóður barna.
Skrifað var undir samstarfssamning
aðila í gær og var það fyrsta opin-
bera embættisverk Steinunnar Val-
dísar Óskarsdóttur í embætti
borgarstjóra.
Verkefnisstjóri verður Anh-Dao
Tran, menntunarfræðingur og ráð-
gjafi, sem hefur starfað mikið meðal
innflytjenda hérlendis og erlendis.
Aðsetur verkefnisins verður í Al-
þjóðahúsi.
Í ávarpi sínu sagði Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir borgarstjóri að
Anh-Dao Tran hefði einkum haft
forgöngu um undirbúning verkefn-
isins sem staðið hefði síðustu tvö ár-
in. Hún sagði 25 ár frá því fyrstu
flóttamennirnir frá Víetnam komu
hingað, haustið 1979, og eru nú um
400 manns af víetnömskum uppruna
búsettir hérlendis. Búa um 96%
þeirra á höfuðborgarsvæðinu.
Koma í veg fyrir brottfall
Borgarstjóri sagði verkefnið bein-
ast að um 60 ungmennum á aldr-
inum 15 til 25 ára úr þessum hópi en
rannsóknir hafi sýnt að brottfall
unglinga af asískum uppruna úr
framhaldsskólum sé meira en geng-
ur og gerist. Borgarstjóri sagði
einnig að ýmsar stofnanir þjóð-
félagsins hefðu verið lítt undir það
búnar að taka á móti fólki af erlend-
um uppruna en vilji væri fyrir því að
gera betur á þessum sviðum.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra minnti á að mikilvægt væri
einnig að fólk af erlendum uppruna
varðveitti bakgrunn sinn og menn-
ingu og Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra sagði
ánægjulegt hversu margir ættu að-
ild að samstarfinu. Kvaðst hún vona
að fleiri nemendur af erlendum upp-
runa sæktu framhaldsskóla.
Menntakerfið byði öllum tækifæri til
að mennta sig og þeir sem flyttust til
landsins þyrftu að njóta sömu tæki-
færa og aðrir þegnar landsins.
Anh-Dao Tran sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessi fyrsti mark-
hópur verkefnisins, ungt fólk af víet-
nömskum uppruna, yrði öðrum
fyrirmynd og hvatning til að leita
framhaldsmenntunar. Sagði hún
brýnt að brúa bilið milli grunnskóla
og framhaldsskóla og ýta undir vilja
ungmenna til að halda áfram námi
hérlendis.
Sex aðilar í samstarf um verkefnið Framtíð í nýju landi
Ungt fólk aðstoðað við að
laga sig að íslensku samfélagi
Morgunblaðið/Sverrir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir í hópi ungmenna af asískum uppruna.
RÍKISSAKSÓKNARI krefst allt að
5 ára fangelsis yfir karlmanni sem
tekinn var með tæp tvö kg af kókaíni
og amfetamíni við komuna til lands-
ins í maí sl. Maðurinn játaði sakar-
giftir en segist ekki hafa flutt inn
efnin til að græða á þeim sjálfur
heldur hafi hann verið burðardýr
fyrir ónefndan mann.
Málið var flutt fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær og sagðist ákærði
hafa átt fyrrnefndum aðila skuld að
gjalda og því fallist á að sækja fíkni-
efni fyrir hann til Amsterdam.
Skuldin sem um ræðir er talin hafa
verið á þriðju milljón króna. Menn-
irnir tóku upp kunningjasamband í
fangahjálpinni Vernd á sínum tíma
en höfðu haft einhver kynni í gegn-
um innheimtustofu sem ákærði rak
fyrr á tíð. Ákærði hætti hjá stofunni
þegar hann var dæmdur í 15 mánaða
fangelsi fyrir fjársvik og skjalafals
og sagðist hafa verið í miklum
kröggum þegar hann var laus úr
fangelsi. Þar hafi kunninginn komið
til skjalanna með peningalánum.
Ákærði hélt að kunninginn hefði selt
íbúð og ætti því peninga en taldi ekki
að hann væri að lána fé sem hann
hefði haft upp úr glæpastarfsemi.
Þar kom að ákærði fór í fíkniefna-
ferðina en var tekinn af tollgæslunni
á Keflavíkurflugvelli í Leifsstöð með
fulla vasa af fíkniefnum. Játaði hann
sakir en var mjög óttasleginn vegna
yfirvofandi hefndaraðgerða af hálfu
fyrrnefnds manns. Þrátt fyrir að
málið hefði verið upplýst kom nafn
umrædds manns aldrei fram og var
hann ekki ákærður fyrir að skipu-
leggja smyglið.
Rauf skilorð með brotinu
Fram kom hjá Kolbrúnu Sævars-
dóttur, fulltrúa ákæruvaldsins, að
amfetamínið hefði verið veikt eða
með 29% amfetamínbasa. Engu að
síður taldi ákæruvaldið að brotið
hefði verið alvarlegt auk þess sem
ákærði hefði með smyglinu rofið
skilorð vegna fjársvikadómsins.
Björn Þorri Viktorsson, verjandi
ákærða, krafðist vægustu refsingar
sem lög leyfa og taldi ekki rétt að
beita hörðum refsingum í fíkniefna-
málum enda hefði það sýnt sig að
þær skiluðu ekki tilætluðum árangri.
Betra væri að fræða neytendur um
skaðsemi fíkniefna og beita nútíma-
refsipólitík. Vísaði hann í þessu sam-
bandi til nýfallins dóms í Hæstarétti
yfir tveimur sakborningum sem
fengu eins og tveggja ára fangelsi
fyrir innflutning á 1 kg af amfeta-
míni og 1 kg af hassi auk tilraunar til
innflutnings á einu kg til viðbótar af
amfetamíni. Ásgeir Magnússon hér-
aðsdómari fer með málið og kveður
upp dóm 20. desember.
Var með 2 kg af hörðum fíkniefnum
Krafist allt að
5 ára fangelsis
25 ÁRA karlmaður hefur verið
dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að slá annan mann með
bjórflösku í höfuðið þannig að sex
sentímetra langur skurður myndað-
ist í hársverði hans. Árásina gerði
hann eftir að hann komst að því að
unnusta hans hafði gist hjá þeim sem
fyrir árásinni varð, en sá er barns-
faðir hennar.
Í niðurstöðum dómsins segir að
við ákvörðun refsingar sé annars
vegar litið til greiðlegrar játningar
mannsins en hins vegar til þess að
þótt hann kunni að hafa verið í upp-
námi vegna tengsla við konuna hafi
hann beitt mjög hættulegu áhaldi við
árásina auk þess sem hún var gerð á
heimili árásarþola þar sem barn var
inni. Refsingin fellur niður haldi
maðurinn skilorð í þrjú ár.
Ingveldur Einarsdóttir, héraðs-
dómari í Reykjavík, kvað upp dóm-
inn.
Dæmdur fyrir að slá
mann með bjórflösku
AUGLÝSINGASTOFAN Jónsson &
Lémacks vann til evrópsku auglýs-
ingaverðlaunanna (EPICA) fyrir
auglýsingaherferðina „Klæddu þig
vel“ fyrir 66° norður.
„Herferðin er röð dagblaða- og
tímaritaauglýsinga sem sýna vel
klædda Íslendinga í þungri og
hrikalegri íslenskri veðráttu,“ seg-
ir í tilkynningu frá stofunni.
Verðlaunin voru veitt í flokki
tískufatnaðar. Sigurvegarar síð-
ustu þriggja ára í þessum flokki eru
gallabuxnafyrirtækin Levis, Lee og
Diesel.
Viggó Örn Jónsson, yfirumsjón-
armaður hugmynda og hönnunar
hjá auglýsingastofunni, segir verð-
launin fyrst og fremst vera viður-
kenningu á því starfi sem hafi verið
unnið. Hann á ekki von á því að ein-
hver peningaverðlaun eigi eftir að
fylgja verðlaununum.
Athygli vakin á þeim sem skara
framúr fyrir frumleika
„Hugmyndin á bak við svona
keppni er sú að verðlauna það sem
vel er gert til þess að vekja athygli
á þeim sem eru að skara fram úr í
frumleika og gæðum í faginu,“ seg-
ir Viggó og bætir við að EPICA
auglýsingaverðlaunin séu meðal
þeirra virtustu í heiminum, en þetta
var í 18. sinn sem þessi verðlaun
eru veitt.
Viggó segir auglýsingastofuna
vera unga, aðeins um ársgamla, og
er þetta í fyrsta sinn sem hún send-
ir inn auglýsingu í slíka keppni. Að
auglýsingaverðlaunum standa fag-
tímarit auglýsingagerðarmanna í
Evrópu og er dómnefnd skipuð
starfsfólki þeirra tímarita að sögn
Viggós, en formlega verður tekið
við verðlaununum í janúar í Búda-
pest í Ungverjalandi.
„Ljósmyndirnar í herferðinni eru
teknar af Ara Magg. Hér á landi
hafa auglýsingarnar verið birtar
ýmist á ensku eða íslensku enda er-
lendir ferðamenn stór hluti af við-
skiptavinum 66° norður,“ segir í til-
kynningu um verðlaunin.
5.000 auglýsingar tilnefndar
Valið var úr tæplega 5.000 inn-
sendum auglýsingum frá 41 landi
og aðrir sigurvegarar í keppninni
þetta árið eru m.a.: Smirnoff,
Guinness, Visa, Sony, BMW og
Nike,“ segir í tilkynningunni.
Íslensk auglýsingastofa
vann til evrópskra verðlauna
Verðlaunamyndin sem auglýsir fatnað fyrirtækisins 66 gráður norður.