Morgunblaðið - 02.12.2004, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 15
ERLENT
www.toyota.is
Öryggi þitt í umferðinni veltur á útsýninu og rúðuþurrkurnar
eru því eitt mikilvægasta öryggistæki bílsins. Toyota Optifit
þurrkublöðin eru búin sérstökum slitmæli sem gerir þér viðvart
þegar skipta þarf um þurrkublað.
Þurrkublöðin smellpassa og ná yfir mesta hugsanlegan flöt á
framrúðunni. Sjáðu betur út úr bílnum þínum í vetur.
Komdu og fáðu það öruggasta sem völ er hjá viðurkenndum
þjónustuaðilum Toyota.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
26
06
7
1
0/
20
04
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570-5070
Sjáðu betur í vetur
Rúðuþurrkur með slitmæli fyrir allar gerðir Toyota
Optifit rúðuþurrkur, verð frá 490 kr.
EFTIR þrjá mánuði tekur gildi
alþjóðlegur sáttmáli um baráttu
gegn reykingum að því er fram
kom hjá talsmanni WHO, Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar, í gær.
Þá varð Perú 40. ríkið til að
skrifa undir hann. Samkomulag
varð um þennan sáttmála á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna á síð-
asta ári en þá hafði staðið í
stappi um hann milli tóbaks-
framleiðenda og baráttumanna
gegn reykningum í fjögur ár.
Ríki, sem hann undirrita, gang-
ast undir að banna tóbaksauglýs-
ingar og kostun tóbaksfyrirtækja,
að banna sölu tóbaks til fólks
undir lögaldri og skera upp herör
gegn smygli. Þá er þeim gert að
skylda framleiðendur til að hafa
stærri viðvörunarmiða á vörunni.
WHO segir, að nú kosti tóbaks-
notkunin fimm milljónir manna
lífið á hverju ári og óttast er, að
sú tala muni tvöfaldast á næstu
25 árum.
Banatilræði við
forseta Serbíu
TALIÐ er, að
reynt hafi verið
að ráða Boris
Tadic, forseta
Serbíu, af dög-
um í fyrradag
en þá reyndu
ókunnir menn á
svörtum Audi-
bíl að aka á bíl
forsetans er
hann var á ferð í Belgrad. Komu
lífverðir forsetans í veg fyrir að
það tækist og er nú Audi-bílsins
leitað.
Tadic, sem berst fyrir umbót-
um og aðild að Evrópusamband-
inu í fyllingu tímans, sagði í gær,
að hvorki hótanir né ofbeldi
myndu stöðva hann á þeirri
braut.
„Lýðræðið verður að sigra í
þessu landi. Annaðhvort verðum
við hluti af hinu evrópska sam-
félagi eða einangrað útkjálkaríki
um aldur og ævi,“ sagði Tadic.
Ekki eru liðin tvö ár síðan Zoran
Djindjic, forsætisráðherra Serbíu
og flokksbróðir Tadic, var drep-
inn af leyniskyttu.
Sarkozy
ögrar Chirac
NICOLAS Sark-
ozy var um síð-
ustu helgi kjör-
inn leiðtogi
Lýðfylking-
arinnar, UMP,
flokks Jacques
Chirac, forseta
Frakklands. Af
þeim sökum hef-
ur hann nú látið
af embætti fjármálaráðherra og
við því tekið Herve Gaymard. Var
hann áður landbúnaðarráðherra.
Eftir kjörið hét Sarkozy því að
hrista upp í hlutunum með víð-
tækum umbótum og gaf í skyn,
að tími Chirac væri brátt á enda.
Hafa þeir lengi eldað grátt silfur
saman enda ósammála um margt,
meðal annars aðild Tyrkja að
ESB en Sarkozy er andvígur
henni.
166 náma-
menn fórust
LJÓST er orðið, að kínversku
kolanámamennirnir 166, sem lok-
uðust inni í námu vegna gas-
sprengingar, eru látnir. Brugðust
ættingjar manna ævareiðir við
tilkynningunni og efndu til upp-
þota, réðust inn á stjórn-
arskrifstofur og börðu á starfs-
mönum þeirra. Námaslys eru
afskaplega tíð í Kína og kosta
þau meira en 7.000 manns lífið á
hverju ári. Þeir, sem berjast fyrir
bættum vinnuskilyrðum, segja
raunar, að talan 20.000 sé nær
lagi.
Alþjóðasáttmáli
gegn reykingum
Nicolas Sarkozy
Boris Tadic
JORGE Sampaio, forseti Portúgals,
ákvað í fyrradag að leysa upp þingið
og boða til nýrra kosninga. Sagði
hann ástæðuna þá, að núverandi rík-
isstjórn mið- og hægriflokka, sem set-
ið hefur í fjóra mánuði, virtist ófær
um að tryggja stöðugleika í landinu.
Hugsanlegt er, að kosið verði strax
í febrúar, en ekki hafði verið búist við
kosningum fyrr en 2006. Pedro Sant-
ana Lopes forsætisráðherra sagðist í
gær mundu virða ákvörðun forsetans
þótt hann væri henni algerlega and-
vígur en að undanförnu hefur efna-
hagsstefna hans verið harðlega gagn-
rýnd af talsmönnum verkalýðsfélaga
og atvinnulífsins og jafnvel eigin
flokksmönnum. Þess má geta, að þeir,
sem kalla sig sósíaldemókrata í
nokkrum Suður-Evrópuríkjum, eru
hægrimenn en jafnaðarmenn aftur
nefndir sósíalistar.
Santana Lopes tók við sem for-
sætisráðherra af Jose Manuel Barr-
oso er hann sagði af sér til að verða
nýr forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins.
Santana Lopes er sagður meiri
hægrimaður en Barroso en hann hef-
ur líka verið sakaður um lýðskrum.
Þykja fjárlögin fyrir næsta ár bera
þess merki en með þeim gerði hann
hvorttveggja í senn að lækka skatta
og hækka lífeyrisgreiðslur og laun op-
inberra starfs-
manna. Hafa
margir kunnustu
hagfræðingar í
Portúgal gagn-
rýnt þetta harð-
lega og einnig
Anibal Cavaco
Silva, fyrrverandi
forsætisráðherra
sósíaldemókrata.
Segir hann fjárlögin aðeins ávísun á
meiri halla en leyfilegur sé innan evr-
ópska myntbandalagsins.
Þingið á raunar enn eftir að af-
greiða fjárlögin frá sér en vegna
þeirra hefur alþjóðlega matsfyrir-
tækið Standard & Poor’s breytt mati
sínu á horfunum í portúgölskum þjóð-
arbúskap úr „stöðugum“ í „slæmar“.
Stjórnin hefur einnig verið sökuð
um ótilhlýðileg afskipti af fjölmiðlum,
þ.e. að reynt hafi verið að þagga niður
í gagnrýnum fréttamönnum. Vinsæll
fréttaskýrandi og fyrrverandi leiðtogi
Sósíaldemókrataflokksins hætti
störfum hjá óháðu sjónvarpsstöðinni
TVI í síðasta mánuði og var það rakið
til þess, að einn ráðherranna, Rui
Gomes da Silva, hafði úthúðað honum
fyrir að gagnrýna stjórnina. Í síðustu
viku ákvað síðan Santana Lopes að
gera Gomes da Silva að næstráðanda
sínum.
Lissabon. AP, AFP.
Pedro Santana
Lopes
Boðar kosningar í Portúgal