Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 21
MINNSTAÐUR
SUÐURLANDSBRAUT 54
(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109
FRÁ FIMMTUDEGINUM 2. DES.
TIL LAUGARDAGSINS 4. DES.
JÓLABÓNUS!!!
50%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM
EKKI MISSA AF ÞESSU!!!
Þórshöfn | „Við höfðum lengi leit-
að að einhverju sem hentaði okk-
ur þegar við duttum niður á þetta
fyrirtæki,“ segir Konráð Jóhanns-
son, tæknistjóri Hraðfrystihúss
Þórshafnar. Hann hefur ásamt
fjölskyldunni fest kaup á fyr-
irtækinu Silkiprenti og fánum og
verður reksturinn fluttur úr
Reykjavík til Þórshafnar í byrjun
næsta árs.
Fjölskyldan rak veitingastað á
Þórshöfn og hætti því fyrir þrem-
ur árum. „Síðan höfum við verið
að leita að einhverju í staðinn og
helst haft framleiðslufyrirtæki í
huga. Við höfum skoðað fjölda
fyrirtækja og hugmynda og stund-
um verið nálægt því að slá til. En
allar athuganir hafa strandað á
því hversu dýrt er að flytja hrá-
efnin hingað og koma vörunni á
markað, orkuverði og ýmsu öðru,
þangað til við sáum okkur leik á
borði með þetta,“ segir Konráð.
Silkiprent og fánar eru leiðandi
í framleiðslu á fánum, ekki síst
margs konar fyrirtækjafánum en
framleiðir einnig ýmislegt fleira.
Konráð segir að mikið sé unnið
fyrir fasta viðskiptavini og berist
pantanirnar mest með tölvupósti.
Afurðirnar séu síðan sendar til
viðskiptavinanna sem smáböggla-
póstur. Því skipti afar litlu máli
hvar á landinu framleiðslan sé.
Nýir eigendur taka við Silki-
prenti og fánum 1. febrúar. Þá
ætlar Konráð að vera klár með
húsnæði sem hann hefur tryggt
sér á Þórshöfn til þess að geta
sett vélarnar upp á stuttum tíma
og hafið framleiðslu. Framleiðslan
byggist á gamalli hefð í silki-
prentun. Konráð vonast til að
geta innleitt nýjungar. Þannig sé
að koma nýtt efni í fánana sem
fyrirtækið hafi tryggt sér einka-
leyfi á. Það sé ódýrara en það efni
sem nú er og auðveldara að vinna
það. Þá sé það sterkara.
Fimm starfsmenn
Á milli fjögur og fimm stöðu-
gildi eru nú í Silkiprenti en Kon-
ráð hefur lagt drög að öflun fleiri
verkefna þannig að hann ætlar að
byrja með fimm starfsmenn í fullu
starfi og frekar að auka við en
hitt. „Það munar um þessi störf í
okkar litla samfélagi,“ segir Kon-
ráð.
Hefur verið auglýst eftir þrem-
ur starfsmönnum á Þórshöfn en
auk þess munu kona Konráðs,
Erla Jóhannsdóttir, og Karen
dóttir þeirra vinna við fyrirtækið.
Konráð og sonur þeirra, Rúnar
Þór, verða þó ekki langt undan
þótt þeir verði áfram í sínum
föstu störfum og fleiri úr fjöl-
skyldunni munu vinna að því eins
og þörf gerist.
Fjölskylda á Þórshöfn kaupir Silkiprent og fána og flytur til sín vinnuna
Munar um störfin í litlu samfélagi
Morgunblaðið/Líney
Fjölskyldufyrirtæki Konráð Jóhannsson og Erla Jóhannsdóttir ásamt fjöl-
skyldu. Lengst til vinstri er Ólafur Birgir Vigfússon, Karen Rut Konráðs-
dóttir með Erlu Rós, Konráð, Erla, Rúnar Þór Konráðsson og og Hilma
Steinarsdóttir. Fremst stendur Anna María Ólafsdóttir. Yngsta dóttir
þeirra hjóna, Sandra Ösp, er í skóla á Akureyri.
LANDIÐ
Hveragerði | Hvergerðingar eru að byggja upp
tónlistardeild við bókasafn sitt með áskorenda-
leik sem einn starfsmaður safnsins hóf. Bóka-
safnið hefur nú verið opnað í nýju húsnæði í
verslunarmiðstöðinni Sunnumörk.
Aðstaða bókasafnsins hefur gjörbreyst á síð-
ustu árum. Fram kom hjá Hlíf S. Arndal, for-
stöðumanni bókasafnsins, við opnunina að fyrir
rúmum fimm árum hefði safnið flutt úr 50 fer-
metra húsnæði í 170 fermetra við Austurmörk
og nú væri safnið komið í 300 fermetra og því
væri rúmt um alla.
Við opnunina afhenti Kvenfélag staðarins
peningaupphæð sem á að verja til kaupa á hljóð-
snældum.
Þrír diskar í safninu
Einn starfsmaður safnsins, Pálína Snorra-
dóttir, vildi auka við tónlistardeild safnsins sem
samanstendur af þremur geisladiskum og tók til
sinna eigin ráða. Á dögunum eignaðist hún
geisladisk, þar sem Sóleyjarkvæði eftir Jóhann-
es úr Kötlum, er endurútgefið. Pálína ákvað að
gaman væri fyrir bókasafnið að eiga eintak af
þessum diski, því Jóhannes úr Kötlum bjó hér í
Hveragerði og er eitt af Hveragerðisskáldun-
um.
Þegar Pálína hafði ákveðið þetta fór hún að
hugsa um að það væru örugglega margir Hver-
gerðingar sem vildu taka þátt í að efla tónlist-
ardeildina. Hún setti af stað áskorendaleik. Gaf
diskinn með Sóleyjarkvæði og skoraði jafn-
framt á formann menningarmálanefndar, Krist-
in Harðarson, að gefa eitthvað til tónlistardeild-
arinnar og láta leikinn halda áfram þannig að
stofn að tónlistardeild gæti byggst upp. Pálína
tekur fram að ekki þurfi allir að gefa geisla-
diska, því allt sem tengist tónlist sé vel þegið.
Strax á fyrsta opnunardegi kom Helga Bald-
ursdóttir og færði safninu almenna söngfræði
handa byrjendum í og utan skóla eftir Sigfús
Einarsson, útgefin 1932. Þessa bók gaf Louisa
Ólafsdóttir frá Arnarbæli Helgu, og sagði henni
þá, að þetta hefði verið hennar skóli. Hún var
síðan organisti í Ölfusi og Hveragerði í sextíu
ár.
Bæjarbókasafnið flytur í Sunnumörk
Setja upp tónlistardeild
með áskorendaleik
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Áskorun Pálína Snorradóttir hóf söfnun fyrir tónlistardeildina með því að afhenda Hlíf S. Arn-
dal disk með Sóleyjarkvæði og skora á Kristin Harðarson, formann menningarmálanefndar,
að gefa annan disk. Fyrir átti tónlistardeildin aðeins þrjá geisladiska.
Kauptún opnað | Á föstudag verð-
ur verslunin Kauptún á Vopnafirði
opnuð í nýju og endurbættu húsnæði
að Hafnarbyggð 6, neðri hæð Kaup-
félagshússins, en Kaupfélag Vopn-
firðinga varð nýverið gjaldþrota.
Verslunarrými Kauptúns þrefaldast
miðað við það sem áður var, en
verslunin hafði frá stofnun verið við
götuna Hafnarbyggð. Kauptún er
dagvöruverslun, en að auki eru á
boðstólum gjafavara og búsáhöld.
Árni Róbertsson er kaupmaður í
Kauptúni.
Álversskrifstofa | Alcoa hefur
flutt íslenskar höfuðstöðvar sínar úr
Reykjavík til Reyðarfjarðar. Skrif-
stofur fyrirtækisins eru til húsa í
Landsbankahúsinu sem Alcoa
keypti fyrir fáeinum vikum. Bankinn
verður þó áfram með starfsemi í
húsinu, eða uns ný verslunar- og
þjónustumiðstöð, Molinn, rís á Reyð-
arfirði. Alcoa verður áfram með
starfsstöð í Reykjavík, en þegar ál-
verið er fullbúið stendur til að flytja
allt skrifstofuhald til Reyðarfjarðar.
Útboð á plöntum | Austurlands-
skógar og Héraðsskógar bjóða nú út
ýmsar tegundir skógarplantna
vegna verkefna á árunum 2006 og
2007. Útboðið snýst um ýmsar teg-
undir skógarplantna. Opna á tilboð
14. desember n.k.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111