Morgunblaðið - 02.12.2004, Side 22
HÖNNUN | Jólagjafir til þjóðþekktra Íslendinga
Kóróna úr messing: Til Vigdísar Finnboga-
dóttur. Frá Helenu Rós Róbertsdóttur. „Ég
vil setja kórónu á höfuð Vigdísar vegna þess
að mér finnst hún svo ofboðslega flott kona.“
Kertakrans á flösku: Til Þórarins Tyrfings-
sonar. Frá Kirsten Ruhl. „Þórarinn stendur
fyrir SÁÁ og verkið mitt heitir „Þú hefur val-
ið“. Fólk hefur val um hvort það vill halda
áfram í sinni fíkn, sem þýtt getur dauðann
samanber glerbrotin í flöskunni. Fólk hefur
líka val um að tileinka sér fræði SÁÁ og feng-
ið ljós inn í líf sitt.“
Toppur úr þæfðri íslenskri ull með perlu-
bandi að framan og leðurreimum að aftan:
Til Birgittu Haukdal. Naglaarmbönd: Til
Jónsa. Frá Maríu Markovic. „Mér þótti svona
toppur henta Birgittu vel því hún er alltaf svo
sætt klædd. Og Jónsi er bara harður nagli.“
Morgunblaðið/Ómar
Hönnunarnemar í Hafnarfirði: Frá vinstri, Hanna Dís Whitehead, María Markovic, Kirsten Ruhl, Dilja Rannveig Bóasdóttir, Þórunn Hannes-
dóttir, Kristrún Thors, Helena Rós Róbertsdóttir, Arnrún Einarsdóttir, Ólafía Zoëga og Ágústa M. Arnardóttir.
Búlluböggull: Til Tómasar A. Tómassonar.
Frá Kristrúnu Thors. „Ég er ekki mikil ham-
borgaramanneskja, en búllan toppar allt og
því hannaði ég svuntu og derskyggni úr átján
kók-dósum á Tomma á Hamborgara-
búllunni.“
Allt manngert umhverfi okkar er hannaðaf einhverjum. Við erum meðvituð umþetta þó við veltum því sjaldnast fyrirokkur hver hafi hannað peysuna okk-
ar, tölvuna eða dósahnífinn. Stundum hefur til-
viljunin ein fengið að ráða ferðinni í hönnun hluta
en miklar rannsóknir hafa legið að baki öðrum
hlutum. Að auki taka hönnuðir m.a. tillit til fjöl-
margra þátta í vinnu sinni, m.a. notagildis, fag-
urfræði, heimspeki og pólitíkur.
Á morgun, föstudag, verður opnuð í Hafn-
arborg, menningar- og listastofnun Hafn-
arfjarðar, sýning á jólagjöfum til þjóðþekktra Ís-
lendinga. Sú hugmynd kom upp í Hafnarborg
fyrr á árinu að fá til liðs við sig nemendur á loka-
ári hönnunardeildar Iðnskólans í Hafnarfirði til
að hanna jólagjafirnar. Nemendunum var það í
sjálfsvald sett hverjum þeir vildu gefa gjafirnar
auk þess sem útlit sýningarinnar, boðskort og
sýningarskrá eru einnig þeirra verk.
Á sýningunni, sem formlega verður opnuð kl.
16.00 og ber yfirskriftina „Má ég opna“, verða
verk eftir þrjátíu nemendur, þar af 27 stúlkur og
þrjá pilta. Daglegt líf kíkti á nokkur verkanna í
Hafnarborg og spjallaði við nokkra nemendur
um tilurð þeirra, en meðal þeirra, sem njóta
gjafa iðnskólanemanna eru Vigdís Finnboga-
dóttir, Birgitta Haukdal, Davíð Oddsson, Kári
Stefánsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit
Moussaieff, Vala Matt, Sigríður Beinteinsdóttir,
Vigdís Grímsdóttir og Björk Guðmundsdóttir,
svo nokkrir séu nefndir auk annarra, sem vart
koma til með að þiggja gjaf-
irnar enda ekki lengur á
meðal vor, t.d. Gísli á
Uppsölum, Bjartur í
Sumarhúsum og Vatns-
enda-Rósa.
Daglegt líf kíkti við í
Hafnarborg þegar nokkrir
hönnunarnem-
anna voru að
koma verk-
um sínum
fyrir. Áformað
er að sýningin
standi fram á
þorláksmessu
og ætla þá
margir hönn-
uðanna að
freista þess að
afhenda réttum
viðtakendum
gjafirnar.
Veski og belti úr lambaleðri og gylltu hlýra-
roði: Til Dorritar Moussaieff. Bindisnæla og
ermahnappar: Til Ólafs Ragnars Grímssonar.
Frá Ágústu M. Arnardóttur. „Ég vildi hanna
fyrir forsetahjónin því þau eru andlit þjóð-
arinnar út á við og sótti ég efniviðinn í þjóð-
legan arf og íslenska náttúru. Skart Ólafs er í
stíl við fylgihluti frúarinnar því hlýraroð sit-
ur ofan á silfurplötu auk hreindýrahorns.“
Hljóðfæraskór:
Til Andreu Gylfadóttur, söngkonu.
Frá Sólrúnu Björgu Ólafsdóttur.
Hvað er í pökkunum?
22 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF