Morgunblaðið - 02.12.2004, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
ÞÓTT fjölskylda Evelyn R. Sulliv-
an sé ekki stór eru matarinnkaup
hennar svolítið flókin. Evelyn er
frá Jamaíku og þrátt fyrir að hafa
búið hér á landi í sextán ár heldur
hún í ýmsar matarhefðir frá
heimalandinu. Eiginmaðurinn Júl-
íus Sigurðsson og Aþena dóttir
þeirra eru bæði fædd á Íslandi en
eru líka með ólíkan matarsmekk.
„Mæðgurnar eru báðar með svo-
litlar sérþarfir, en ég borða allt,“
segir Júlíus og Evelyn segist öf-
unda hann af því að geta það. Sjálf
getur hún til dæmis ekki borðað
lambakjöt. Hún veit ekki hvers
vegna en það fer ekki vel í hana.
Ekki einu sinni hangikjöt ofan á
brauð.
Evelyn og Júlíus búa á Akranesi
og fóru í Nettó á Akranesi til að
kaupa í matinn þennan dag.
Annars versla þau einnig mikið í
Reykjavík því þangað liggur leiðin
oft til að fylgja dótturinni á sund-
mót. En Evelyn segist ánægð með
úrvalið í Nettó þótt ekki finni hún
margt sem minnir á matinn á Ja-
maíku þar frekar en í öðrum búð-
um á Íslandi. Kjöt kaupa þau helst
í Nóatúni.
„Þegar ég kom fyrst til Íslands
árið 1983 gat ég ekki borðað annað
en Coca Cola og kex,“ segir hún.
Þau Júlíus höfðu verið pennavinir
frá árinu 1974 og hann hafði heim-
sótt hana tvisvar. Fyrst til Jam-
aíku og síðar til New York eftir að
hún fluttist þangað. Þegar hún
kom svo í heimsókn til hans ætlaði
hann að sýna sínar bestu hliðar og
bjóða henni út að borða í Hall-
argarðinn, sem þá var í Húsi
verslunarinnar. Hann endaði með
að borða dýrindis máltíð sjálfur en
Evelyn þorði ekki að smakka neitt
nema ísinn.
Tvenns konar kjötsúpur
En hún hreifst af landi og þjóð
og þegar hún kom í annað sinn
ákváðu þau að það væri of dýrt að
vera alltaf að heimsækja hvort
annað um langan veg og ákváðu að
gifta sig. Hún fluttist til Íslands
fyrir sextán árum og líkar vel.
„Mér finnst landið yndislegt og
fólkið enn yndislegra,“ segir hún.
Fjölskyldan skiptir vikunni nið-
ur þannig að það er íslenskur mat-
ur á þriðjudögum, fimmtudögum
og föstudögum og um helgar, en
eitthvað framandi á mánudögum
og miðvikudögum. Aðallega er
keypt inn um helgar og því var
matarkarfan alls ekki full þennan
dag.
Þau keyptu til dæmis léttmjólk,
skyr og ávaxtasafa, lifrarpylsu,
kex og morgunkorn. Einnig var
keypt kjöt og grænmeti en þau
nota mikið grænmeti með öllum
mat, til dæmis gufusoðið með salt-
fiski. Saltfiskur er mikið uppáhald
á heimilinu. Þau kaupa þurrkaðan
saltfisk og útvatna hann sjálf, ekki
of mikið því þau vilja hafa hann
nokkuð vel saltan. Síðan er hann
eldaður ólíkt því sem Íslendingar
eiga að venjast. „Stundum sakna
ég reyndar gamla góða saltfisksins
með tólg út á,“ segir Júlíus. „En
ég fæ minn íslenska mat eins og
ég vil. Til dæmis elda ég stundum
íslenska kjötsúpu,“ segir hann.
Evelyn segist líka elda kjötsúpu
en með allt öðrum hætti. Hún býr
til bragðmikla súpu úr nautakjöti
og graskeri.
Hamborgarhryggur á íslenska
vísu besti maturinn
Ofan í körfuna fer því hefðbund-
inn matur á íslenska vísu en þegar
meira er spurt kemur í ljós að þótt
íslenskt hráefni sé notað er hægt
að elda ýmislegt að hætti íbúa
Jamaíku. Þá er notað viðeigandi
krydd svo sem paprikuduft, hvít-
laukur, pipar, salt og sítróunupip-
ar. Einstaka sinnum áskotnast
þeim niðursoðinn ackee-ávöxtur
frá Jamaíku sem notaður er með
saltfiski. Þar er spínat einnig not-
að í saltfiskrétti og nú er alltaf
hægt að fá ferskt spínat í búðum.
Hvað skyldu þau svo borða á jól-
unum?
„Hamborgarhrygg á íslenska
vísu með öllu tilheyrandi, brún-
uðum kartöflum og öllu,“ segir
Evelyn. „Þetta er uppáhalds-
maturinn minn og einnig lax, sem
ég kynntist fyrst hérna. Mér
finnst það besti fiskurinn. Eins og
áður segir notum við saltfisk mikið
en mér finnst ýsa líka góð. Svo tek
ég auðvitað lýsi.“
HVAÐ ER Í MATINN | Evelyn R. Sullivan
Morgunblaðið/Ásdís Haralds
Evelyn óskaði eftir pennavinum í Morgunblaðinu árið 1974 og Júlíus Sig-
urðsson frá Akranesi svaraði. Evelyn hefur verið búsett á Íslandi í sextán ár.
Framandi réttir úr íslensku hráefni
Það er íslenskur matur
á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og föstudögum
og um helgar, en eitt-
hvað framandi á mánu-
dögum og miðvikudög-
um.
asdish@mbl.is
BÓNUS
Gildir 2.–5. des. verð nú verð áður mælie. verð
Frosnir ýsubitar, roð- og beinlausir......... 499 799 499 kr. kg
Kofareykt sveitabjúgu ........................... 299 499 299 kr. kg.
Goða beikon/skinka ............................ 499 998 499 kr. kg
Víking malt, 500 ml ............................. 49 79 98 kr. kg
Skagfirskt hangilæri m/beini................. 999 1.399 999 kr. kg
Kofareykt úrbeinað hangilæri ................ 1.599 1.999 1.599 kr. kg
Kofareyktur hangiframp. með beini ........ 595 699 595 kr. kg
Kofareyktur hangiframp, úrbeinaður ....... 1.199 1.599 1.199 kr. kg
Bónus piparkökur, 500 g ...................... 199 259 398 kr. kg
Bónus baquette brauð, 2 stk................. 99 nýtt 50 kr. kg
FJARÐARKAUP
Gildir 2.–4. des. verð nú verð áður mælie. verð
4 hamborgarar m/brauði...................... 299 399 75 kr. stk
Fk bayonne-skinka ............................... 819 1.364 819 kr. kg
Bacon frá Ferskum kjötvörum................ 699 998 699 kr. kg
Ariel þvottaefni, 2.970 g ....................... 798 998 270 kr. kg
Svínarifjasteik úr kjötborði .................... 299 499 299 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Svínabuff 4 stk. í pk ............................. 199 299 50 kr. stk
Hangiframpartur 1⁄1 sagaður í poka......... 659 998 659 kr. kg
HAGKAUP
Gildir 2.–5. des. verð nú verð áður mælie
Nautalundir ......................................... 2.387 3.979 2.387 kr. kg
Óðals hamborgarhryggur m/beini.......... 839 1.398 839 kr. kg
Freschetta pepperoni pitsa, 400 g......... 293 489 733 kr. kg
Freschetta royal, 400 g......................... 293 489 733 kr. kg
Freschetta ostapitsa 400 g................... 293 489 733 kr. kg
Paaske frönsk pylsubrauð, 6 stk. ........... 179 299 179 kr. stk.
Anton Berg, 900 g ............................... 1.999 2.995 2.221 kr. kg
Mackintosh, 3 kg ................................. 2.999 4.379 999 kr. kg
KRÓNAN
Gildir til 7. des. verð nú verð áður mælie.verð
Hóla hangiframpartur úrbeinaður, 1 kg... 1.072 1.649 1.072 kr. kg
Hóla hangikjöt úrbeinað læri, 1 kg......... 1.429 2.199 1.429 kr. kg
Krónu hamborgarhryggur, 1 kg .............. 779 1.298 779 kr. kg
Borgarnes helgarlamb m/kryddi, 1 kg.... 1.116 1.594 1.116 kr. kg
Borgarnes helgargrís m/pestó, 1 kg....... 1.116 1.594 1.116 kr. kg
Ali gúllas kryddað, 1 kg ........................ 909 1.398 909 kr. kg
Ali Vínarsnitsel, raspað og kryddað ........ 909 1.398 909 kr. kg
Náttúra hveiti, 2 kg .............................. 49 69 25 kr. kg
Smjör, jólasmjör, 500 g ........................ 159 179 318 kr. kg
Klementínur/mandarínur 1 kg............... 99 169 99 kr. kg
NETTÓ
Gildir til 8. des. m. birgðir end. verð nú verð áður mælie.verð
Grísahryggur m/puru............................ 749 998 749 kr. kg
Grísabógur, 1⁄2 ...................................... 282 564 282 kr. kg
Grísahnakki, beinlaus........................... 937 1.338 937 kr. kg
Purusteik ............................................ 395 527 395 kr. kg
Londonlamb........................................ 947 1.353 947 kr. kg
Kalkúnn 1. fl., frosinn........................... 569 699 569 kr. kg
Ísfuglskjúklingur, ferskur, 1⁄1 ................... 345 689 345 kr. kg
Kjúklingabringur skinnlausar ................. 1.377 2.295 1.377 kr. kg
Náttúra hveiti, 2 kg .............................. 49 71 25 kr. kg
Mackintosh, 1,45 kg ............................ 999 1.199 689 kr. kg
NÓATÚN
Gildir 2.–8. des. m. birgðir end. verð nú verð áður mælie. verð
Önd .................................................... 998 1.599 998 kr. kg
Hangiframpartur m/beini...................... 589 999 589 kr. kg
Bautabúrs bayonne-skinka ................... 741 1.481 741 kr. kg
Nóatúns hangiframpartur, úrbeinaður .... 1.237 1.649 1.237 kr. kg
Nóatúns hangilæri, úrbeinað................. 1.687 2.249 1.687 kr. stk
Coke kippa, 4x2 ltr............................... 599 899 75 kr. ltr
Egils jólaöl, 2,5 ltr................................ 398 489 159 kr. ltr
Kjörís jólaís, 2 ltr.................................. 499 799 250 kr. ltr
Johnson parketsápa............................. 349 499 349 kr. stk.
Náttúra frosið smábrauð, 360 g ............ 145 289 402 kr. kg
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 2.–5. des. verð nú verð áður mælie. verð
Sambands hangilæri úrbeinað .............. 1.434 2.049 1.434 kr. kg
Sambands hangikjöt úrb. frampartur ..... 1.231 1.759 1.231 kr. kg
Léttreyktur grísabógur, Bautabúrið ......... 399 626 399 kr. kg
Ísfugl ferskar kjúklingabringur m/skinni . 1.198 1.998 1.198 kr. kg
Klementínur ........................................ 99 179 99 kr. kg
Rauð epli ............................................ 99 192 99 kr. kg
Rauð vínber USA.................................. 299 498 299 kr. kg
Lindu konfekt, 750 g............................ 1.498 1.889 1.997 kr. kg
Lindu sælkeramolar 350 g.................... 599 799 1.711 kr. kg
Cadbury Roses konfekt, 1,7 kg.............. 1.999 2.595 1.999 kr. kg
Celebrations konfekt, 465 g .................. 699 899 1.503 kr. kg
Spar, Bæjarlind
Gildir til 6. des. verð nú verð áður Mælie. verð
Nautahamborgarar, 10x80 g, frosið....... 499 963 50 kr. stk.
Nautahamborgarar, 10x115 g, frosið..... 599 1.298 60 kr. stk.
Nautahamborgarar, 5x140 g, frosið....... 398 789 80 kr. stk.
Libero bleiur, tvöfaldur pakki ................. 875 1.298 875 kr. pk.
Pampers bleiur, tvöfaldur pakki ............. 979 1.298 979 kr. pk.
SCA wc pappír, 8 rúllur......................... 189 215 24 kr. stk.
SCA eldhúsrúllur, 4 rúllur ...................... 189 215 47 kr. stk.
Sunkist safi, 3x200 ml, 4 teg. ............... 119 139 198 kr. ltr.
Piparkökur, 150 g. Annas ..................... 98 Nýtt 653 kr. kg.
ÞÍN VERSLUN
Gildir 2. – 8. des. verð nú verð áður mælie. verð
Búrfells grillbuff, 4 stk. ......................... 191 239 191 kr. pk.
Steiktar beikonbollur ............................ 303 379 303 kr. pk.
Mjúkís, 1 ltr., vanillu ............................. 329 489 329 kr. ltr
Viennetta ískaka, vanillu, 650 g ............ 389 489 552 kr. kg
Toro sveppasósa .................................. 98 129 98 kr. pk.
Toro grjónagrautur................................ 129 147 129 kr. pk.
Pik-Nik kartöflustrá, 113 g.................... 159 198 1.399 kr. kg
Konfekt, ís og hangikjöt
HELGARTILBOÐIN|Neytendur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Saltfiskur að
hætti Evelyn
saltfiskur
sellerí
blaðlaukur
paprika
grænir bananar
Saltfiskurinn er rétt látinn
sjóða og potturinn tekinn af
hellunni. Hann er síðan tekin
sundur í flögur en ekki skorinn
í bita. Grænmetið er gufusoðið.
Grænu bananarnir eru soðnir
eins og kartöflur og hafðir með.
Annars segist Evelyn sjaldan
nota uppskriftir því hún eldar
matinn venjulega af fingrum
fram. Oft hefur hún hrísgrjón
með en þau gufusýður hún í
litlu vatni með lauk og stundum
öðru grænmeti. Júlíus segist
ekki skilja hvernig hún fer að
því að brenna þau ekki. Öðru
nær, því þau séu mjög góð og
létt í sér og klessist ekki sam-
an.