Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 27
MENNING
ÞAÐ ER ekki hægt annað en dást að
þrautseigju Ragnars Axelssonar ljós-
myndara við gerð bókarinnar Andlit
norðursins, þrautseigju sem svo
sannarlega skilar sér í einstöku og
eftirminnilegu verki.
Um tilurð bókarinnar segir Ragn-
ar sjálfur í bókinni að hugmyndina
hafi hann fengið þegar hann var að
mynda Axel Thorarensen á Gjögri.
Tilfinningin fyrir því að vera að fanga
liðinn tíma, að verða vitni að lífs-
háttum sem að öllum líkindum munu
líða undir lok varð til þess að Ragnar
réðst í þetta langtímaverkefni; að
mynda líf fólks við harðneskjulegar
aðstæður norðursins, á Íslandi, Fær-
eyjum og Grænlandi.
Ragnar einskorðar myndir sínar
nokkuð við samspil manns og náttúru
en einnig eru þó nokkrar myndir sem
sýna byggð ból, fæstar þeirra þó
nokkuð nútímalegra en rússneska
ljósaperu. Fólkið á myndunum teng-
ist umhverfi sínu á órjúfanlegan hátt,
hvítt hár og skegg Guðjóns Þor-
steinssonar ýfist rétt eins og brim-
aldan að baki, í Færeyjum umbreyt-
ist hey í skegg bóndakonu og svo
mætti áfram telja. Flestir eru hér
komnir á aldur en yngra fólk sýnir
einnig að ef til vill eru
lífshættir þeir sem hér
er lýst ekki alveg við
það að deyja út heldur
hafa þeir bara fjarlægst
okkur borgarbörnin.
Við vitum öll að kinda er
leitað á fjöllum að hausti
en að sjá Kristin Guðna-
son ríðandi úti í miðri á
með kind í slefi færir
þennan raunveruleika
allt í einu áþreifanlega
nálægt. Þessi hæfileiki
er eitt aðalsmerkja
Ragnars sem ljósmynd-
ara, nærvera hans er
hluti af myndunum,
auga hans verður auga okkar og það
er ekki fjarlægt og hlutlaust heldur
tekur fullan þátt í og lifir sig inn í það
sem það sér, þess vegna gerum við
það líka.
Æðruleysi það sem prýðir marga á
myndum bókarinnar og Guðmundur
Andri Thorsson gerir m.a. að umfjöll-
unarefni í formála er ekki síður til
staðar hjá Ragnari sjálfum og á sinn
hlut í að skapa myndir sem lifa.
Ragnar hefur mjög ákveðinn stíl á
þessum myndum, hann velur skýj-
aðan himin fram yfir heiðan, storm-
inn fram yfir lognið. Skuggarnir eru
fleiri en sólargeislarnir en þegar birt-
an fellur á dúnmjúkan barnsvanga í
Færeyjum er hún mild og mjúk. Sólin
lætur líka sjá sig stundum þó það
verði kannski til þess
að fólk fær skyndilega
ofbirtu í augun eins og
börnin í boltaleiknum.
Þetta eru þó alls ekki
þunglyndislegar mynd-
ir, áhorfandanum er
ljóst að sólin skín líka í
lífi þessa fólks þó hér sé
valið að sýna oft erfiðar
stundir og óblítt um-
hverfið, dramað er
dregið fram.
Viðfangsefni Ragn-
ars eru sígild, minna td.
á árstíðamyndir
Limbourg-bræðranna
frá fimmtándu öld sem
sýndu fólk við skyldustörf. Eða mál-
verk Breughels. Myndir eftir Hring
Jóhannesson koma einnig upp í hug-
ann, td. þar sem spegill er notaður til
að víkka út myndsviðið. Það er mikill
skyldleiki með myndum Ragnars og
málverkum, sérstaklega notkun hans
á ljósi og skugga. Aðrir þættir eins og
áferð og mynstur eru sérgrein ljós-
myndarinnar og Ragnar notar þetta
einnig á margvíslegan hátt.
Það er ástæða til að óska Ragnari
til hamingju með þessa bók. Hún á
þátt í því að sýna okkur hver við erum
og hvaðan við komum, hún er hvorki
prédikun né áminning um að muna og
varðveita heldur einfaldlega óður til
lífsins við allar aðstæður.
BÆKUR
Ljósmyndir
Eftir Ragnar Axelsson,
Mál og menning 2004
Andlit norðursins
Morgunblaðið/Ragnar AxelssonGjógv, Austurey, Færeyjum, 1987.
Ragna Sigurðardóttir
Ragnar Axelsson
Óður til lífsins
við allar aðstæður