Morgunblaðið - 02.12.2004, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
anda í Menntaskólanum í Kópavogi,
er ég kenndi honum dönsku í 2 ár, auk
þess sem við Helga móðir hans vorum
nánar samstarfskonur í MK, þannig
að oft hitti ég hann á heimili hans er
ég kom þangað í heimsókn. Gísli var
afskaplega elskulegur og góður nem-
andi, rólegur, yfirvegaður og mikið
prúðmenni. Hann átti auðvelt með
nám sem hann sýndi svo sannarlega í
læknisfræðinni en að henni lokinni
lauk hann einnig mastersnámi í við-
skiptafræði. Eftir að hann hleypti
heimdraganum fylgdist ég með hon-
um úr fjarlægð gegnum Helgu móður
hans, en fyrir nokkrum árum lá ég á
Landspítalanum og hver stendur þá
við rúmstokkinn, kominn í hvíta
sloppinn, annar en Gísli, nærgætinn,
hlýr og jafn elskulegur og áður. Sú
mynd er mér dýrmæt í dag, mynd af
fallegum ungum manni sem gaf ekk-
ert frá sér nema gott. Minningin um
þennan góða og farsæla dreng mun
lifa með ástvinum hans og bregða
birtu á óbærilega sorg þeirra. Við
Björn biðjum algóðan Guð að styrkja
Helgu, Þóri, Brynjólf, Herdísi og fjöl-
skyldu og biðjum Gísla Guðs bless-
unar í nýjum heimkynnum.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Anna Sigríður Árnadóttir.
Tíminn stöðvaðist hinn 24. nóvem-
ber þegar fréttir um fráfall ástkærs
vinar, Gísla Friðrik Þórissonar, bár-
ust til Kaupmannahafnar. Við þessi
tíðindi misstu áríðandi og mikilvæg
málefni dagsins allt vægi. Minningar
um leiki okkar á bernskuárum í
Hrauntungunni í Kópavogi. Samvera
í skíðaferðum og útilegum og enn
frekari efling vináttu okkar í Gauta-
borg, Svíþjóð, 1980 komu upp í hug-
ann. Við fjölskyldan áttum síðast tíma
með honum síðastliðinn janúar þar
sem við gistum yfir nótt á leið utan.
Gísli var mikill tónlistarunnandi og
var oftast fyrstur í vinahópnum til að
finna nýjar góðar hljómsveitir og fór
eigin leiðir í þeim efnum. Í kjallaran-
um hjá Gísla að Hrauntungu 97, sem
var samkomustaður okkar vinanna,
heyrði ég fyrst í hljómsveitunum:
Jam, Stiff little fingers, Clash, U2,
The Smiths. Þar fóru einnig oft fram
heitar umræður um dagleg málefni,
þar sem við vinirnir í hópnum sjaldn-
ast vorum sammála, kryddaðar með
góðlátlegri stríðni og svörtum húmor.
Það voru forréttindi að fá að kynn-
ast Gísla. Vinátta okkar í gegnum árin
hefur auðgað tilveru mína og er stór
hluti af mér.
Ég votta foreldrum Gísla, Helgu og
Þóri, og systkinunum Brynjólfi og
Herdísi, djúpa samúð og bið um styrk
fyrir þau til að takast á við erfiðan
tíma.
Ég kveð þig með einlægan söknuð í
hjarta.
Þinn vinur,
Sigurður Hrafn Þorkelsson
myndlistarmaður.
Enn hefur stórt skarð verið höggv-
ið í okkar litla vinahóp. Fréttirnar um
að kær vinur okkar væri fallinn frá sló
okkur óneitanlega. Drengur í blóma
lífsins er okkur horfinn og óhætt að
segja að þetta útspil örlagadísanna sé
okkur með öllu óskiljanlegt.
Flest kynntumst við Gísla í kring
um unglingsárin okkar. Margt var þá
brallað og hlegið og áttum við oft góð-
ar stundir í stóra herberginu hans í
Hrauntungu. Var þetta oft á tíðum
eins og félagsmiðstöð þar sem við
hrúguðum okkur upp í sófa, horfðum
á sjónvarp, tefldum skák eða spiluð-
um kana.
Galsinn í okkur og lætin voru oft á
tíðum slík að við fengum pena áminn-
ingu frá húsráðendum um að það
væru fleiri sem byggju í húsinu en
bara Gísli. Eftir á að hyggja er ekki
annað hægt en að virða þolinmæði
foreldra hans yfir öllum gassagang-
inum í okkur og þessari stöðugu um-
ferð af háværum krakkahópnum.
Það kom fljótlega í ljós að Gísli skar
sig óneitanlega úr hópnum að einu
leyti. Hann var strax í grunnskóla
kominn með skýra stefnu á það sem
hann ætlaði að gera. Meðan við vor-
um enn að baksa við að ákveða hvað
við ætluðum að verða þegar við yrð-
um stór, þá lá hann yfir bókunum og
áður en varði var fyrsti stúdentinn
kominn í hópinn. Eitthvað dróst að
við tækjum við okkur og fyndum okk-
ur þann farveg í lífinu sem hentaði en
Gísli setti markið hátt. Það var óneit-
anlega svolítið gaman að geta nokkr-
um árum eftir að hafa fengið stúdent-
inn í hópinn getað hreykt sér af því að
hafa Doktor til að vaka yfir okkur ef
eitthvað bjátaði á.
En það er því miður svo með okkur
eins og marga aðra að með hækkandi
aldri og aukinni ábyrgð þá minnkar
viðvera okkar saman.
Gísli fór í nám erlendis, við fórum
hvert í sína áttina, sumir í nám aðrir
að hrúga niður börnum og taka við því
ábyrgðarhlutverki að ala upp okkar
eigin pottorma. Sem betur fer náðum
við þó alltaf að halda í þá hefð að hitt-
ast öll á litlu jólunum okkar. Sú árlega
hefð hefur alltaf náð að þjappa okkur
saman og halda sambandi við hvert
annað. Það verður nú óneitanlega
tómlegra í næsta jólaboði.
Kæri vinur, það er erfitt að kveðja
og viljum við með þessum fátæklegu
orðum þakka þér fyrir samfylgdina.
Þér er sjálfsagt ætlað eitthvað ann-
að og stærra hlutskipti annars staðar.
Það er von okkar og trú að það verði
vel tekið á móti þér þangað sem þú
ferð núna.
Foreldrum Gísla og systkinum vilj-
um við votta samúð okkar og hlýhug.
Með samúðarkveðju,
vinahópurinn.
Dalai Lama segir að oft séu þeir
sem er svipt burt fyrirvaralaust í
blóma lífsins meistarar í dulargervi
að minna okkur á fallvaltleik lífsins.
Þau kynni sem ég hafði af Gísla Frið-
rik Þórissyni voru þess eðlis að ljóst
er að þar var einstakur maður á ferð.
Stundum hreyfist lífið þannig að mað-
ur er óvænt staddur á ókunnum stað
þar sem allt er manni framandi og
maður verður nánast að kynnast
sjálfum sér upp á nýtt. Það var í þann-
ig aðstæðum sem ég kynntist Gísla í
raun og veru og í gegnum þær að-
stæður leiddi hann mig, nánast eins
og meistari, með sínum hljóðláta, góð-
lega og hlýja hætti.
Þó við hefðum fyrst kynnst ofurlítið
sem unglingar í grunnskóla og sveit-
ungar í austurbæ Kópavogs, þá tókst
fyrst með okkur vinátta þegar við lás-
um saman undir niðurskurðarprófin á
fyrsta ári í læknisfræði á haustmán-
uðum 1991. Gísli, sem var að ganga í
gegnum þessa raun í annað skipti,
eins og svo margir þeirra sem vildu
komast í gegnum nálaraugað á þeim
tíma þurftu að gera, tók mig hrein-
lega að sér og beindi mér á réttar
brautir, lánaði mér glósurnar sínar og
bækur og kynnti mig fyrir vinahóp
sínum, sem stóð saman sem einn mað-
ur þessa mánuði í hakkavélinni.
Upp úr jólum skildi svo leiðir á ný
þegar Gísli komst inn, en ég ekki. Ég
sneri mér að öðrum hugðarefnum og
Gísli varð læknir. Svo grátlega vildi til
að við hittumst aldrei eftir það. Við
fylgdumst þó hvor með öðrum í gegn-
um mæður okkar, sem eru miklar vin-
konur. Alltaf átti maður von á að vin-
skapurinn yrði við tækifæri rifjaður
upp, en amstur dagsins hefur alltaf
forgang fram yfir gamla vini og nú er
orðið ljóst að það verður ekki gert
hérna megin móðunnar miklu.
Ekki kæmi mér þó á óvart, miðað
við þau kynni sem ég hafði af Gísla, að
hann yrði sá fyrsti sem maður hitti
þegar þar að kemur að leiða mann á
ókunnum stað gegnum nýjar aðstæð-
ur. Ég sendi fjölskyldu Gísla og að-
standendum einlægar samúðarkveðj-
ur,
Magnús Árni Magnússon.
Kollegi minn og vinur, Gísli Fr.
Þórisson er fallinn frá. Þrátt fyrir að
einungis tvö ár skildu okkur að í
Læknadeild Háskóla Íslands, kynnt-
ist ég honum ekki almennilega fyrir
en vorið 2000 er við héldum til Banda-
ríkjanna í sérfræðinám. Við höfðum
báðir sótt um stöður víða um Banda-
ríkin en forlögin höguðu því þannig að
við enduðum báðir á háskólasjúkra-
húsinu í Iowa City í Iowafylki. Þegar
út var komið þá skildu einungis fáein
hús heimili okkar að. Við Gísli kynnt-
umst því vel og reyndist hann mér
vinur góður.
Fram undan reyndist langur vetur
með mikilli vinnu og oft liðu margir
dagar án þess að við hittumst. Þarna
myndaðist þó fljótt lítill en samheldin
hópur Íslendinga er hafði flutt út á
sama tíma. Gísli var jafnan aufúsu-
gestur á öllum samkomum okkar
enda maður bráðskemmtilegur. Þrátt
fyrir að vera oft fámáll í margmenni
þá var sem allar hömlur brystu í
góðra vina hópi. Þar fór maður vel les-
inn og fjölfróður með afbrigðum og
afar fastur fyrir í rökræðum. Hann
var jafnfimur hvort sem rætt var um
læknisfræði eða lífsins lystisemdir.
Þar var skeggrætt um allt frá stjórn-
málum til eðalvína og lá Gísli aldrei á
skoðunum sínum. Hann var hreinskil-
inn maður og heiðarlegur.
Það varð okkur nokkurt áfall er
Gísli tilkynnti okkur eftir tæplega
ársdvöl í Iowa að hann hygðist söðla
um og flytjast til Hollands til náms í
viðskiptafræðum. Samskiptin urðu
mun minni og stopulli og hittumst við
síðast fyrir tæpum tveimur árum
heima á Íslandi. Það sem átti að verða
stuttur stans yfir kaffibolla varð að
löngu maraþonkaffiþambi þar sem
klukkustundirnar þutu hjá. Eftir það
urðu samskiptin einungis á rafrænu
formi en engu síður skemmtileg. Nú
er því öllu lokið og með söknuði kveð
ég góðan vin sem setti meiri svip á lít-
ið Íslendingasamfélag vestan hafs en
hann sennilega nokkru sinni grunaði.
Aðstandendum hans votta ég mína
dýpstu samúð.
Þorvarður Ragnar
Hálfdanarson.
Kær vinur minn, Gísli, er látinn.
Leiðir okkar lágu fyrst saman þeg-
ar við vorum í pollar barnaskóla.
Hafði ég heyrt af strák sem bjó í
Hrauntungunni sem átti Atari tölvu.
Þóttu þetta merkir gripir í þá daga og
mikið velti ég því fyrir mér hvernig ég
gæti komist í kynni við þennan dreng.
Að lokum lét ég verða af því að fara
heim til hans, banka og spyrja eftir
honum. Þegar Gísli kom til dyra tjáði
ég honum að mig langaði mikið að sjá
þennan eðalgrip sem hann átti. Það
var nú ekkert tiltökumál og bauð
hann mér strax inn. Frá þeim degi
fyrir rúmum 23 árum hefur vinskapur
okkar verið óslitinn og varla liðið sú
vika að við höfum ekki verið í ein-
hverju sambandi.
Rétt um tvö ár síðan hann kláraði
endanlega sitt langa og krefjandi nám
og blasti ekkert við hjá honum nema
mikill frami. Þarna var greinilega á
ferðinni mikill og klár maður. Hefur
honum á þessum stutta tíma tekist að
koma ótrúlega mörgum hlutum á
stað.
En nú er því miður komið að erfiðri
kveðjustund og votta ég foreldrum og
systkinum Gísla samúð mína á þess-
ari miklu sorgarstund.
Minning þín mun alltaf lifa.
Snorri Arnar Þórisson.
GÍSLI FRIÐRIK
ÞÓRISSON
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
10% afsláttur
af legsteinum
til 10. desember
Englasteinar
www.englasteinar.is
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SIGRÚN EINARSDÓTTIR,
Heiðarhjalla 35,
Kópavogi,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 28. nóvember, verður jarðsungin
frá Digraneskirkju þriðjudaginn 7. desember
kl. 11.00.
Jón Kristfinnsson,
Guðrún Björk Jónsdóttir,
Kristrún Jónsdóttir, Jón V. Guðmundsson,
Einar Kjartan Jónsson, Drífa Björk Landmark
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdadóttir, systir og mágkona,
GUÐLAUG SVEINSDÓTTIR,
Urriðakvísl 23,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. desember kl. 15.00.
Benedikt Hauksson,
Sveinn Viðarsson,
Haukur Benediktsson,
María Bryndís Benediktsdóttir,
Herdís Sigurðardóttir,
Haukur Benediktsson,
Herdís Sveinsdóttir, Rolf Hansson,
Jóhann Sveinsson, Guðný Hafsteinsdóttir,
Finnur Sveinsson, Þórdís Hrafnkelsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON
vélstjóri,
Tjarnarbraut 25,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði þriðju-
daginn 30. nóvember.
Elín Guðjónsdóttir,
Sveinn Magnússon, Kristín Bragadóttir,
Margrét Sesselja Magnúsdóttir, Ólafur Emilsson,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Einar Ólafsson,
Elín Magnúsdóttir, Garðar Briem,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi sambýlismaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, sonur og bróðir,
STEFÁN REYNIR ÁSGEIRSSON,
er lést af slysförum laugardaginn 27. nóvem-
ber sl., verður jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju föstudaginn 3. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
minningarsjóð í banka nr. 0114-05-065388 til handa börnum hans.
Hildur Símonardóttir.
Ásgeir Heiðar Stefánsson, Anna Dóra Ólafsdóttir,
Guðjón Stefánsson,
Sunna Líf Stefánsdóttir,
Davíð Þór Dagbjartsson,
Ásgeir Einarsson, Steingerður Halldórsdóttir,
Fjóla Ragnarsdóttir,
Haraldur Ásgeirsson
Bryndís Ásgeirsdóttir, Konráð Jónsson,
Ragnheiður Dóra Ásgeirsdóttir, Gunnbjörn Steinarsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma,
MARGRÉT ARNGRÍMSDÓTTIR,
lést mánudaginn 29. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hermann Ægir Aðalsteinsson,
Díana Bryndís Hermannsdóttir,
Víðir Már Hermannsson
og barnabörn.