Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 47
Þvottavél - rúmlega árs gömul
Electrolux þvottvél til sölu. Verð-
hugmynd - 35 þús. Upplýsingar
gefur Daníel í s. 552 3085.
Kauphúsið ehf. S: 552 7770 &
862 7770. Skatta- bókhalds- &
uppgjörsþjón. allt árið, f. einstakl.
& félög. Eldri framtöl. Leiðrétt.
Kærur. Stofna ný ehf. Eigna- &
verðmöt. Sig. W. Lögg. faste.sali.
Fyrirtæki - námsfólk athugið!
Tek að mér þýðingar, prófarka-
lestur og vinnslu texta á ísl./
ensku. Veiti ráðgjöf um uppsetn-
ingu texta. Býð uppá einkatíma
í ensku fyrir nemendur.
Sími 899 4512.
Samfellur. Ofsalega flottar og
langar. Stærðir, 75B til 90G. Litir
ivory og svart. Verð kr. 10.750.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Rafbylgjumælingar & varnir
Virðist hafa áhrif á:
Mígreni, höfuðverk, síþreytu,
svefntruflanir, vöðvabólgu, exem,
þurrk í húð vegna tölvu, fótaverki,
liðkast í mjöðm.
Klettur ehf., símar 581 1564,
892 3341.
GÓÐ JÓLAGJÖF Notalegir inni-
skór í úrvali - verð frá kr. 750,- til
2.790,
Misty-skór,
Laugavegi 178, s. 551 2070.
Gestabækur, sérmerktar, frá
kr. 8.500.
Reyndór ehf., afgreiðsla
í Faxatúni 36, 210 Garðabæ,
s. 565 8588/897 2690/896 0588.
reyn@mi.is
www.simnet.is/reyndor
Fjárhagserfiðleikar? Viðskipta-
fræðingur semur um skuldir við
banka, sparisjóði og aðra.
FOR, sími 845 8870.
www.for.is
Fallegir loðfóðraðir kvenjakkar
5 litir, 4 stærðir.
Verð aðeins 3.900.
Fatalínan, Laugavegi 103.
sími 551 1610
Ódýrar bensínrafstöðvar 800W.
Létt og meðfærileg rafstöð. 230V
og 12V. Þyngd 21 kg. Verð 24.000
m. vsk. Loft og raftæki, sími 564
3000 - www.loft.is.
Toyota Corolla LB 1600 árg. '99,
sjálfskiptur, sk. '05, ekinn 90 þús.
km, rauður, ný snjódekk.
Upplýsingar í síma 864 0695.
Lexus IS 200, árgerð 2001, ekinn
68.000 km, beinskiptur.
Ný vetrardekk. Reyklaus bíll.
Verð 1.870 þús.
Uppl. í síma 699 7002 e. kl. 19.00.
Camac jeppadekk - tilboð gildir
til 3. desember
4 stk. 31x10.5R15 + vinna kr. 49.800.
4 stk. 30x9.5R15 + vinna kr. 46.000.
4 stk. 235/75R15 + vinna kr. 43.900.
4 stk. 195R15 + vinna kr. 35.500
Kaldasel ehf., Dalvegi 16b,
201 Kópavogi,
símar 544 4333.
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun - alþrif.
Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, Skemmuvegi 22,
s. 564 6415 - gsm 661 9232.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Bjóðum upp á varahluti í flestar
gerðir bensín- og díselvéla frá við-
urkenndum. Framleiðendum sem
standast þínar kröfur. Erum alltaf
á sama stað í Brautarholti 16.
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Terrano II '99,
Cherokee '93, Nissan P/up '93,
Vitara '89-'97, Patrol '95, Impreza
'97, Legacy '90-'94, Isuzu pickup
'91 o.fl.
Ódýr jólalager. Til sölu jólalager,
120 jólatrésfætur og 220 jóla-
stjörnur með ljósi. Verð 77.000 kr.,
smásöluverð ca 300.000. Sími 898
9097.
Jólasveinabúningar - Sala/
leiga
Einnig laust skegg og húfur m.
hári. Upplýsingar í s. 845 2510 og
692 4321.
Jólabasar
á Kleppi
JÓLABASAR iðjuþjálfunar á
Kleppi er haldinn í dag, fimmtu-
daginn 2. desember. Basarinn er
haldinn í húsnæði iðjuþjálfunar og
verður opinn frá kl. 12– 15.
Málþing
um fegurð
Reykjavíkur
EMBÆTTI byggingarfulltrúans í
Reykjavík er 100 ára á þessu ári.
Af því tilefni verður haldið mál-
þing í Ráðhúsi Reykjavíkur föstu-
daginn 3. desember n.k. kl 14–16
og er það opið öllum.
Frummælendur á málþinginu
eru Andri Snær Magnason, rithöf-
undur, Áslaug Thorlacius , mynd-
listarmaður, Egill Ólafsson, tón-
listarmaður, Hilmar Þór
Björnsson, arkitekt og Ómar
Ragnarsson, fréttamaður og munu
þeir leitast við að svara spurning-
unni: Er Reykjavík falleg borg?
Borgarstjóri mun jafnframt
ávarpa málþingsgesti og bygging-
arfulltrúi, Magnús Sædal Svav-
arsson rekja stuttlega sögu emb-
ættisins.
Að loknum framsögum munu
frummælendur sitja fyrir svörum í
pallborði ásamt byggingarfulltrúa.
Salvör Jónsdóttir, sviðsstjóri
skipulags- og byggingarsviðs
Reykjavíkur, mun stýra mál-
þinginu og pallborði.
Rangt
föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn
Ólafar Hallgrímsdóttur frá Vogum
í Mývatnssveit í frétt sem birtist á
bls. 18 í blaðinu í gær og fjallaði
um kynningu samtakanna Lifandi
landbúnaðar. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.
Rangt nafn
á forlagi
Rangt var farið með nafn forlags-
ins sem gefur út bók Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar, Kiljan,
í blaðinu í gær. Það er Bókafélagið
sem gefur bókina út en ekki Nýja
bókafélagið eins og stóð.
Erlingur
knapi ársins
Þau leiðu mistöku urðu í hesta-
þætti í blaðinu í gær að niður féll
texti sem fjallaði um val á
kynbótaknapa ársins Erlingi Er-
lingssyni í grein um val knöpum
ársins. Erlingur sýndi fjölda kyn-
bótahrossa á landsmóti auk vor-
og síðsumarsýninga á árinu. Hæst
bar árangur hans á tveimur hryss-
um sem efstar stóðu hvor í sínum
flokki á landsmóti. Í fimm vetra
flokki var það Frigg frá Miðsitju
en í fjögra vetra flokki Björk frá
Litlu-Tungu sem var að margra
mati skærasta stjarnan í hópi kyn-
bótahrossa á landsmóti. Náði Er-
lingur þar að setja nýtt met í hæfi-
leikaeinkunn hjá fjögra vetra
hryssum. Vakti það allnokkra at-
hygli að hryssan var stöðugt að
bæta sig allt frá vorsýningu og allt
fram til síðustu stundar lands-
mótsins.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Morgunblaðið/Vakri
Ljósin kveikt
á heimstré
Í ÁR verður heimstré SOS-
barnaþorpanna á 1. hæð í Smára-
lind, fyrir framan Debenhams, þar
sem einnig eru til sölu jólakúlur,
allan desembermánuð, með merki
SOS-barnaþorpanna og rennur all-
ur ágóði af sölu þeirra til bygg-
ingar nýs SOS-barnaþorps í Úkra-
ínu.
Í dag kl. 14 mun Birgitta Hauk-
dal kveikja ljósin á heimstrénu og
vekja athygli á málstaðnum. Hún
mun m.a. ganga í kringum tréð með
börnum og syngja jólalög. Öllum er
velkomið að vera með í Heimstrénu
og sérstaklega börnum. Þeim er
jafnframt boðið að koma með sitt
kort með kveðju til barna í Úkra-
ínu, í hvaða formi sem hverjum og
einum hentar, og hengja það á tréð.
Þegar barnaþorpið tekur til starfa
munu kveðjurnar verða hengdar
upp í „íslenska“ húsinu í Brovary í
Úkraínu með sérstakri kveðju frá
íslenskum börnum.
NJARÐARSKJÖLDURINN hefur
verið veittur í níunda sinn og að
þessu sinni hlaut verslunin ELM á
Laugavegi 1 skjöldinn.
„Það sem einkum stendur upp úr
við valið að þessu sinni er einkar
skýr og glæsileg ímynd þeirrar
hönnunar sem í boði er í versl-
uninni að Laugavegi 1. Verslunin
sérhæfir sig í hágæða kvenfatnaði
sem allur er hannaður af eigendum
ELM, þeim Lísbet Sveinsdóttur,
Ernu Steinu Guðmundsdóttur og
Matthildi Halldórsdóttur,“ segir í
rökstuðningi.
Verslunin var opnuð í nóvember
1999 í kjölfar þátttöku í tískusýn-
ingu í New York. ELM er með um-
boðsmenn fyrir fatnaðinn í París,
Mílanó og New York og hefur náð
mestum árangri í Bandaríkjunum
og hefur einnig tekið þátt í fjöl-
mörgum tískusýningum á erlendri
grund. Áhersla er lögð á stílhreint,
klassískt umhverfi verslunar og
persónulega þjónustu.
„Merkingar eru áberandi og
greinargóðar upplýsingar um vör-
urnar og endurgreiðslu á virð-
isaukaskatti. Þekking og tungu-
málakunnátta starfsfólksins og
stílhreinar innréttingar gerir þessa
verslun að glæsilegum fulltrúa í
verslunarflóru miðborgar Reykja-
víkur fyrir erlenda ferðamenn jafnt
sem heimamenn,“ segir ennfremur
í rökstuðningi fyrir verðlaununum.
Njarðarskjöldurinn er hvatning-
arverðlaun Reykjavíkurborgar og
Íslenskrar verslunar en að henni
standa Félag íslenskra stórkaup-
manna og Kaupmannasamtök Ís-
lands. Markmiðið með veitingu
verðlaunanna er að hvetja til bættr-
ar og aukinnar verslunarþjónustu
við ferðamenn í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sverrir
Þórólfur Árnason borgarstjóri, Erna Steina Guðmundsdóttir, Matthildur
Halldórsdóttur og Lísbet Sveinsdóttir.
ELM hlýtur
Njarðarskjöldinn