Morgunblaðið - 02.12.2004, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 55
NÚ ER hinn finnski frændi okkar
Renny Harlin kominn með nýja
bíómynd og alls ekki svo ósvipaða
sínum fyrri. Frekar ófrumleg og
hálfgerð della, en handbragðið
vandað og spennan til staðar.
Reyndar svipar henni mjög til
Deep Blue Sea þar sem vís-
indamenn á einangraðri eyju þurfa
að berjast við gáfaða hákarla sem
gera uppreisn.
Nú eru það nemendur FBI sem
vinna lokaverkefnið sitt. Þau eru
send á einangraða eyju þar sem
þau setja á svið skuggalegan glæp.
Það er þeirra að lesa huga morð-
ingjans, hvert verður hans næsta
skref og að koma í veg fyrir að
hann geti fullkomnað verkið. Hins
vegar reynist glæpurinn ekkert
plat, heldur er einhver í hópnum
morðinginn, og nú þurfa nemend-
urnir að reyna að reikna hver ann-
an út.
Það er gamalt þema að einn
drepist af öðrum og enginn veit
hver er að verki. Myndin Identity
frá því í fyrra var einmitt þannig og
varð ansi vinsæl, enda virðist þetta
vera formúla sem ekki klikkar.
Mér finnst skemmtileg hug-
myndin með nemendurna sem
reyna að skilja alla í kringum sig
og hver annan og væri alveg til í að
sjá sjónvarpsþáttaröð um þau án
þess að verða drepin þó. Hér hefði
samt mátt taka þann áhugaverða
þátt mun lengra, en hann drukknar
í spennu- og hryllingsklisjunni.
Verra er hins vegar að þótt hug-
myndin sé góð og handritshöfund-
urinn með magnað hugmyndaflug
þá er myndin mjög ótrúverðug.
Eftir myndina velti maður því fyrir
sér hvernig morðinginn fór að því
að framkvæma óhugnaðinn og
kemst alls ekki að neinni nið-
urstöðu, sem er mjög svekkjandi.
Leikurinn er líka í slappari kant-
inum jafnvel þótt leikararnir séu
alls ekki af verri endanum. Val
Kilmer og Christian Slater eru fín-
ir, en ég veit að Clifton Collins Jr.
og Johnny Lee Miller geta gert
mun betur. En það er kannski því
að kenna að í raun eru allar per-
sónurnar mjög grunnar og standa
bara fyrir viss persónuleika-
einkenni í stað þess að vera full-
mótaðar.
Myndin á áreiðanlega eftir að fá
fullt af áhorfendum, enda virkar
hún sem spennukikk þá stundina
sem á hana er horft. Hún mun þó
líklega renna manni mjög fljótt úr
minni, nema kannski atriði í loka-
uppgjörinu. Það var neðansjáv-
arskotbardagi sem mér fannst frek-
ar svalur.
Morðingja
leitað
KVIKMYNDIR
Sambíóin Álfabakka, Kringlunni
og Keflavík
Leikstjórn: Renny Harlin. Aðalhlutverk:
Eion Bailey, Clifton Collins Jr., Will Kemp,
Val Kilmer, Johnny Lee Miller, Kathryn
Morris, Christian Slater, LL Cool J og Pat-
ricia Velasquez. Kvikmyndataka: Robert
Gantz. 106 mín. BNA. Columbia 2004.
Mindhunters Hildur Loftsdóttir
ROKKSVEITIN Úlpa heldur tónleika í Þjóðleikhúskjall-
aranum klukkan 22 í kvöld í tilefni þess að 100 ár eru liðin
síðan kveikt var á fyrstu ljósaperunni á Íslandi, en sá at-
burður gerðist í Hafnarfirði, heimabæ Úlpu.
Úlpa mun þar flytja jólalagið sitt og leika efni af fyrstu
breiðskífu sinni ásamt allri nýju plötunni sem væntanleg er í
byrjun næsta árs.
Sveitin vakti heilmikla athygli á síðustu Airwaves-hátíð
þar sem hún lék á Nasa fyrir fullu húsi gesta. Var mál
manna hversu þétt sveitin væri þá orðin og því spennandi
tækifæri að sjá þá nú á heilum tónleikum.
Ásamt Úlpu kemur fram tónlistarmaðurinn Rúnar, sem
einnig stefnir að útgáfu plötu eftir áramót.
Tónlist | Úlpa í
Þjóðleikhúskjallaranum
Fagna komu ljóssins
Morgunblaðið/Golli
Liðsmenn Úlpu og Rúnar sem kemur fram með sveitinni í Kjallaranum.
Tónleikar Úlpu og Rúnars hefjast kl. 22, miðaverð er kr.
500.